Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001
DV
Fréttir
Sólborg í Stykkishólmi telur sig svikna í viðskiptum við Samherja:
„Skítlegt hvernig
staðið var að þessu “
Bæjarstjóm Akureyrar hefur
samþykkt að nýta forkaupsrétt
vegna tog- og netabátsins Sæþórs
EA-101 sem er 1 eigu Samherja eftir
sameiningu BGB-Snæfells við Sam-
herja. Samningar höfðu tekist um
sölu á bátnum til Sólborgar í Stykk-
ishólmi sem hafði selt togbátinn Ár-
sæl SH-88 til Stefáns Egilssonar í
Hafnarfirði af því tilefni.
Bátinn á að selja kvótalausan en
hann hafði 846 þorskígildistonna
aflamark. Ásgeir Magnússon, for-
maður bæjarráðs, segir að fyrrver-
andi eigandi bátsins, Hermann Guð-
mundsson á Árskógssandi, hafl sýnt
Keisarinn lifir
- þótt hann sé allur
BKeisarinn við
Hlemm samastað-
ur ógæfufólks af
báðum kynjum, lif-
ir að hluta til enn,
þó svo búið sé að
loka staðnum fyrir
löngu. Vihjálmur
Svan, athafnamað-
Vilhjálmur ur sem um skeið
Svan. rak Keisarann,
festi kaup á hluta af innréttingum
staðarins og hefur nú selt til annarra
veitingahúsa. Þannig verða þykkar
tréplötur í lofti Keisarans notaðar í
veggi nýs skemmtistaðar sem veriö
er að opna i Reykjanesbæ og bar-
borðið sjálft, sem var það lengsta i
Reykjavík, hefur verið sett upp á
nýrri krá sem er í Aðalstræti þar
sem Fógetinn var áður.
„Það hafa margir bjórar farið yfir
þetta barborð og það verður áfram-
hald á,“ segir Vilhjálmur Svan. -EIR
Metró í Skeifunni:
Heitapotts-
kerru stolið
- fundarlaun í boði
Sérhæfðri kerru, svokallaðri Spaa
Dolly, var stolið frá Metró í Skeifunni
7 í Reykjavík í fyrrinótt. Hjörtur Aðal-
steinsson hjá Metró segir þetta mjög
bagalegt því kerran sé sérhönnuö ein-
göngu til aö flytja heita potta sem
mikil sala sé í þessa dagana. Þarna sé
um verkfæri að ræða að verðmæti
rúmlega 400 þúsund krónur og segir
Hjörtur að fundarlaun séu í boði ef
einhver geti visað á kerruna. Býöur
Metró finnanda að velja sér Samsoni-
te-ferðatösku að eigin vali en þær
kosta allt að 40 þúsund krónur. -HKr.
áhuga á að eignast hann og því hafi
bæjarstjórn ákveðið að beita laga-
rétti sínum til að ganga inn í kaup-
in til þess að halda bátnum áfram í
Eyjafirði.
Aðalsteinn Helgason hjá Sam-
herja segir að báturinn hafi aldrei
verið auglýstur og því eðlilegt að
ekki kæmu tilboð frá fleirum í upp-
hafi. Að sumu leyti hafi þetta verið
klaufaskapur og ekki hafi legið Ijóst
fyrir í upphafi hvort Hermann hefði
áhuga á bátnum. Gunnlaugur Árna-
son, framkvæmdastjóri Sólborgar,
segir að þessi ákvörðun Samherja
og Akureyrarbæjar komi þeim mjög
Bitbeiniö
Sæþór EA-10 sem nú er á rækju-
veiöum á Öxarfjarðardýpi.
illa og skítlegt hvernig staðið hafi
verið að þessu og hann hefði aldrei
trúað því að nokkur gæti hagað sér
svona í viðskiptum. Málið snúist
ekki um þann lagalega rétt Akur-
eyrarbæjar að neyta forkaupsréttar
heldur að tilkynna þeim að til
standi að þessi möguleiki yrði nýtt-
ur.
Samherji eignaðist auk Sæþórs
togarana Björgvin, Björgúlf, Kamba-
röst og Blika en sá síðastnefndi hef-
ur þegar verið seldur til Grænlands.
Björgúlfur og Kambaröst afla hrá-
efnis til frystihússins á Dalvík, Sæ-
þór er á rækjuveiðum á Öxarfjarö-
ardýpi fyrir verksmiðju Samherja á
Akureyri og Björgvin er á grálúðu-
veiðum. -GG
DV-MYND G.BENDER.
Lúther Einarsson og Rögnvaldur Guömundsson
Veiddu fimm fyrstu iaxana í Fitjá i Húnavatnssýslu í gærmorgun þegar Víöidalsá var opnuð.
Fitjá í Húnavatnssýslu:
Veiddu fimm laxa í Kerinu
Laxveiðin byrjar ágætlega miðað
við aðstæður og núna hafa laxveiði-
árnar gefið um 250 laxa. Stærsti lax-
inn er enn þá 19,5 punda í Blöndu,
en stærri laxar hafa sloppið
„Það er ágætt að ná fimm löxum
hérna í Kerinu, miðað við aðstæður,
áin er ekki vatnsmikil," sögðu þeir
félagarnir Lúther Einarsson og
Rögnvaldur Guðmundsson við Fitjá
í gærmorgun þegar veiðin hófst fyr-
ir alvöru i ánni.
Langá á Mýrum var einnig opnuð
í gærmorgun og þar veiddist einn 12
punda fyrir hádegi. Seinni partinn í
gær var Miðfjarðará opnuð og var
enginn lax kominn þar á land þegar
við fréttum síðast. í Elliðaánum
veiddi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
fyrir hádegi og veiddi hún aðeins
einn urriða. Nokkrir smáurriðar
veiddust og voru þeir svipaðir ur-
riða Ingibjargar.
G.Bender
Bætur fyrir Loftskeytastööma:
Tilkynningaskyldan fari
til Siglufjarðar?
Flutningur stofnana og opinberra
fyrirtækja út á land hefur verið eitt
af markmiðum ríkisstjórnar Davíðs
Oddssonar. Nú er rætt um að flytja
Tilkynningaskyldu íslenskra fiski-
skipa norður á Siglufjörð, en hún er
í dag rekin af Slysavarnafélaginu-
Landsbjörg samkvæmt sérstökum
samningi við samgönguráðneytið.
Árni Johnsen, þingmaður og for-
maður samgöngunefndar Alþingis,
segir að málið hafi ekki komið til
kasta nefndarinnar, en þetta sé eitt
af því sem talað hefur verið lengi
um að skoða af alvöru og hagræða í
kerfinu. „Mér vitanlega hefur ekki
verið rætt um eitt byggðarlag öðru
fremur í því sambandi en þama hjá
Tilkynningaskyldunni er um að
ræða fimm til sex störf,“ segir Árni
Johnsen.
Guömundur Guðlaugsson, bæjar-
stjóri á Siglufirði, segir að Siglfirð-
ingar séu ekki að biðja um neina
ölmusu en þegar starfsemi Loft-
skeytastöðvarinnar á Siglufirði var
lögð niður hafi veriö talað um að
bæta Siglfirðingum það með ein-
hverjum hætti. „En ríkisvaldið eða
samgönguráðherra þyrfti að hafa
hag af því að horfa til Siglufjarðar i
þessu sambandi umfram önnur
byggðarlög. En við mundum fagna
þvi heilshugar ef Tilkynningaskylda
íslenskra fiskiskipa yrði flutt til
Siglufjarðar," segir Guðmundur
Guðlaugsson. „Ekki veitir ríkis-
stjómni af að standa við einhver af
þeim loforðum sem hún hefur verið
að gefa, m.a. um fjarvinnsluverkefni
út á land. Efndir hafa engar verið til
þessa,“ segir Kristján Möller, Sigl-
firðingur og þingmaður Samfylking-
arinnar á Norðurlandi vestra. -GG
Umsjón: Sigurður Bogi Sævarsson
Bónína
Frægasta súperpar landsins er
vafalítið þau Jónína Benedikts-
dóttir og Jóhannes Jónsson í
Bónus. Þau hafa meðal annars lýst
sambandi sinu í
tímaritsviðtölum
og sjálfur kveðst
Jóhannes ,Bónus-
kaupmaður og
besti vinur litla
mannsins, aldrei
ferskari en nú eft-
ir að hann fór að
þjálfa skrokkinn'
reglulega á líkamsræktarstöð Jón-
ínu. Ekki þarf síðan að deila um
hvar hin hagsýna Jónína Ben.
kaupir í helgarmatinn, vafalítið er
það í verslunum Bónuss og hvergi
annars staðar. Því hafa gárungar
lagt út frá nafni hennar og manna
á meðal er hún nú ekki annað
nefnd en Bónína.
Hvaða stórmái?
Þingflokkur Vinstri grænna, sem
var á fundaferðlagi á Austurlandi í
síðustu viku, efndi meðal annars
til fundar á Reyðarfirði þar sem
þingmenn reifuðu
ýmis mál, svo
Ls sem þau - eins og
¥ stjómarandstööu-
* ■■ flokki ber að gera
- að ríkisstjórnin
væri afspyrnu-.
vond og var henni
helst til miska
fundið að loka
pósthúsum úti á landi. Þegar á leið
sagði Steingrímur Joð Sigfússon
að nú sýndist sér að búið væri að
reifa þau helstu mál sem á þjóðinni
brynnu og sagði að nú væri fundi
slitið. Einn fundargesta spurði þá
hvort ekki ætti að ræða stóra mál-
ið fyrir austan. „Hvaða mál er
það?“ spurði Kolbrún Halldórs-
dóttir sem lét eins og hún vissi
ekkert hvert málið væri. Umrædd
álver og virkjanir sem VG-fólk lét
undir höfuð leggjast að ræða á
þessum fundi, enda ekkert stórmál.
Finnur og flugvélin
Hestamenn landsins eru nú hver
á fætur öðrum að leggja hnakk á
gæðinga sína og ríða þeim í hin
grænu grös í bithögunum. Einn
þeirra, glókollur-
inn Finnur Ing-
ólfsson seðla-
bankastjóri, fór í
félagi við fleiri
með hesta sína
austur yfir flall
þessari viku
var riðið um Mos
fellsheiði og
austur um. Ekki vildi betur til en
svo að hestamir fældust og týndust.
Var rétt eins og jörðin hefði gleypt
þá. Brá þá einn fylgdarmanna
Finns, sem einmitt starfar hjá Flug-
málastjórn, á það ráð að kalla út
flugvél til þess að fá einhver svör
við hinni dularfullu gátu með týndu
hestana. Með þessum hætti tókst
Finni og félögum að hafa upp á
klárunum - enda þótt fyrirhöfnin
væri öllu meiri en jafnan tíðkast.
Bubbi í baráttuna
Smábátasjómönnum hefur bæst
nýr liðsmaður í baráttu sinni og sá
skrifar kjarnyrtan pistil þeim til
stuðning á Reykjavik.com. Þetta er
Bubbi Morthens
sem segist vera
sérstaklega
hlynntur því að
stjórhvöld láti
smábátaútgerð í
landinu í friði, tel-
ur hana vera af
hinu góða og lands-
byggðarvæn eins
og 95 prósent landsmanna telja
raunar. „Og trillukarlarnir okkar
hafa þá ímynd í huga okkar að þetta
séu eins konar afar sem halda út á
sjó með hvítt skegg og bros í auga.
Þannig var það þegar ég var lítill
strákur og ég held að enn þá eimi
eftir af þessari mynd í hugum
manna," segir Bubbi i pistli sínum
og bætir við við: „Hvað ætlar helvít-
is togarinn að gera við smábátinn?"