Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Blaðsíða 43
51 LAUGARDAGUR 16. JUNI 2001 Reylgavúairborg Borgarverkfrœðingur Lóðir fyrir leiguhúsnæði í Grafarholti Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um byggingarrétt á þremur lóðum í Grafarholti. Lóðunum verður úthlutað til þess að á þeim verði reist fjölbýlishús með leiguíbúðum. Askilið er, að Félagsþjónustan í Reykjavík hafif.h. skjólstœðinga sinnaforgangsleigurétt að allt að 20% íbúða á hverri lóð. Um er að ræða þessar lóðir: • Þórðarsveig 1-9, • Þorláksgeisla 6 — 18 og • Þorláksgeisla 20 - 34. Borgarráð mun gefa fyrirheit um úthlutun bygg- ingarréttar á ofangreindum lóðum ef fullnægjandi umsóknir berast. Núgildandi deiliskipulag á lóðunum verður endurskoðað að höfðu samráði við væntanlega lóðarhafa áður en formleg úthlut- un byggingarréttarins fer fram. Umsækjendur skulu leggja fram með umsóknum sínum stutta greinargerð og gögn, sem veita upp- lýsingar um starfsemi umsækjanda á sviði hús- bygginga eða húsnæðismála, um fjármögnun fyrirhugaðra framkvæmda, fyrirhugað rekstrar- fyrirkomulag leiguíbúðanna, áætlað leiguverð íbúða eða viðmiðunargrundvöll leigu og annað, sem máli kann að skipta. Umsækjendur skulu vera reiðubúnir til að gefa nánari upplýsingar um fjárhagsstöðu. Athygli er vakin á því, að endumýja þarf eldri umsóknir. Um lóðimar gilda sérskilmálar, auk þeirra skil- mála sem að öðm leyti gilda um lóðir í Grafarholti, og fást þeir afhentir á skrifstofu borgarverk- fræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð. Brýnt er fyrir umsækjendum að kynna sér rækilega þá skilmála, sem um lóðimar gilda. Umsóknum skal skila til skrifstofu borgarverk- fræðings, Skúlatúni 2, fyrir kl. 16:00 föstudaginn 29. júní 2001. Nánari upplýsingar em veittar í síma 563 2300. Borgarverkfrœðingurinn í Reykjavík I>V Tilvera Steinunn Osk Brynjarsdóttir hárgreiðslunemi: „Móöirin kom rétt fyrir kiukkan 18 og var auövitaó alveg hissa á góöri mætingu, hún gekk inn í eidhús og spuröi mig hvaöa fnyk legöi um íbúöina. „Þaö er bara eins og veriö sé að bræöa gúmmíhanska, “ sagöi hún meö vantraust í röddinni. “ Veislugestir reknir út á svalir Steinunn Ósk Brynjarsdðttir, hár- greiðslunemi á Mojo, er matgæðingur vikunnar að þessu sinni. Hún segir nóg að gera í hárgreiðslugeiranum enda ís- lendingar duglegir að rækta útlitið. „Þetta er mjög skemmtilegt starf og nauðsynlegt að vera vel vakandi fyrir nýjum línum og tískunni sem er í gangi. Ég er mjög heppin því á minni stofu sækjum við mikið námskeið og áhuginn er mikill hjá starfsfólkinu við að gera sem best. Mórailinn á stofum skiptir miklu máli því ef maður er að vinna með áhugasömu fólki þá myndast hvetj- andi stemning sem er alveg nauðsynleg í þessu fagi,“ segir Steinunn. Að eigin sögn er hún frekar fyrir létta matseld en auðvitað horfi hún oft á girnilegar myndir í uppskriftabókum en þá frekar með það í huga að einhver annar myndi elda fyrir hana. Öll af vilja gerð „Hvað matargerð varðar þá held ég að hörmungar mínar í matargerð hafi náð hámarki í fyrra. Þannig var mál með vexti að ég var í sumarfríi og vin- kona mín átti afmæli. Mamma hennar hringdi 1 mig daginn áður og sagðist ætla að baka köku og einhvers konar rétt, fara með heim til vinkonu minnar, bjóða nánustu vinum og ættingjum og koma henni á óvart þegar hún kæmi svoi heim kl. 18. Ég var ekki lengi að bjóðast til að létta undir með henni og bauðst til þess að sjá alfarið um matseldina þar sem ég væri í sumarfríi. Ég fékk uppskriftabók að láni hjá mömmu og fyrir valinu varð súkkulaðiterta og heitur skinkuréttur. Á afmælisdaginn fór ég heim til vin- konu minnar þegar ég vissi að hún var komin í vinnuna, ég byrjaði á því að taka til og gera fint svo ég ætti nú ekk- ert eftir þegar matseldin hæfist. Ég átti von á gestunum kl. 17.30 svo ég byrjaði á matreiðslunni kl. 15. Skipulagið fór út um þúfur Ég hitaði skinkuréttinn í ofninum og setti hann svo inn í ísskáp þar sem ég ætlaði að hafa hann þar til gestina bæri að garði. Þá ætlaði ég að setja yfir hann ost og aftur inn í ofn. Skipulagið var svona nokkurn veg- inn í lagi hjá mér þar til bjailan hringdi klukkan 17. Það reyndust vera amma hennar og tvær móðursystur sem ákváðu að koma strax eftir vinnu. Það vantaði ekki hrósið hjá þeim og þær sögðu að þetta hefði þær nú aldrei grunað, að sjá mig við eldavélina. Súkkulaðikakan var komin inn í ofn þegar gestimir vildu fá kaffi, mér fannst þetta orðið heldur mikið „prógramm" og það var ekki til að bæta það þegar amman vildi fá te, sem ég fann svo eftir mikla leit innst inni í skáp. Ég vissi ekki á hverju ég ætti að byrja þar sem kakan var alveg að verða tilbú- in inni í ofninum og ég átti eftir að bera fram þessar „kaffipantanir". Til að koma öllu í röð og reglu ákvað ég að skella réttinum með ostinum inn í ofn síðustu mínútumar með súkkulaði- kökunni. Of góð mæting Byrjar bjallan að hringja og fleiri gestir bættust við og ég var orðin eins og brjálæðingur þar sem ég hentist á milli kaffivélarinnar, stofunnar og úti- dyranna. Allir vildu kaffi og þama vom komnir einir 15 manns. Auðvitað átti vinkona mín ekki svo mikið af kafriboll- um svo ég var farin að láta fólk drekka kaffi úr mjólkurglösum. Móðirin kom rétt fyrir klukkan 18 og var auðvitað alveg hissa á góðri mæt- ingu, hún gekk inn í eldhús og spurði mig hvaða fhyk legði um íbúðina. „Það er bara eins og verið sé að bræða gúmmíhanska," sagði hún með van- traust í röddinni. Ég tók snögglega við mér og hentist inn í eldhús, ég hafði gleymt kökunum og réttinum inni í ofni. Ég rykkti upp ofninum og það kom mesti reykur sem ég hef á ævinni séð. Ég slökkti allsnar- lega á hitanum og hljóp út úr eldhúsinu. Mér brá enn meir þegar ég sá mömmu vinkonu minnar halda fyrir augun þar sem hún sagði að sig logsviði. Veislu- gestir voru reknir út á svalir þar sem reykjarmökkurinn dreiföi sér sífellt meir og meir og ætlaði ekkert að linna. Allir gluggar opnaöir Þetta var hörmulegt, ég hefði getað farið að grenja þegar ég horfði á veislu- gestina forviða úti á svölum, svo ég tali nú ekki um háaldraða ömmu hennar sem nú þurfti að styðja úti á svölum, eft- ir að hafa verið svo stolt af mér 15 min- útum áður. Ég opnaði alla glugga íbúðarinnar (sem er nú ekki stór) og í því kemur vin- kona mín heim. Ég hélt hún myndi ær- ast úr hlátri þegar hún sá dauðskelkaða stemninguna úti á svölum og mig með flöktandi handklæði um aila íbúð að reyna að reka reykinn út. Skemmtilegasti afmælisdagurinn Þegar mesti reykurinn var farinn og vinkona mín enn þá í hláturskasti kikt- um við á fyrirbærin í ofninum. Ég er ekki að grínast, þetta var hrikaleg sjón að sjá, við stóðum í svona 5 mínútur og horfðum á „atriðið" inni i ofninum þangað til vinkona mín öskraði af hlátri. Ég hafði gleymt að taka plastlok- ið ofan af skinkuréttarílátinu og það hafði bráðnað yfir réttinn og kökumar sem voru á hæðinni fyrir neðan. Þetta var agalegt. Það var viðbjóðslegasta fýla sem ég hef á ævinni fundið í marga daga á eftir í íbúðinni. Vinkona mín segir að þetta sé skemmtilegasti afmælisdagur hennar hingað til og það verði eflaust ekki hægt að toppa hann. Ég þarf vart að taka fram að ég hef ekki verið beðin um aðstoð hjá þeirri fjölskyldu við matseld eftir þetta,“ sagði Steinunn að lokum. -klj Nonnapylsur 10 SS-pylsur Season All-krydd rauðlaukur kínakál kokkteilsósa/pítusósa 10 pylsubrauð Pylsurnar er kryddaðar með Season Ail-kryddinu og grillaðar. Rauðlaukur- inn og kínakálið er brytjað niður, látið í pylsubrauðin og þvínæst sósan og síðast pylsan. Hakk og spaghetti hálfur pakki spaghetti salt og olía 400 g nautahakk steikt á pönnu Oscar-spaghettisósa 1/2 glas af vatni hvítlaukur tómatmauk eftir smekk Spaghettíið er soðið í vatni með salti og olíu. Nautahakkið er steikt á pönnu og þegar það er búið er allt sett á pönn- una og látið malla. I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.