Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Blaðsíða 12
12 Helgarblað LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 DV Ungur Timothy McVeigh: Grét svo dögum skipti yfir dauðum kettlingum Timothy McVeigh er mesti fjöldamoröingi sem Bandaríkin hafa alið af sér. Hann var fær um að myrða 168 manns iðrunarlaust og hann var tekinn af lífí á mánudag- inn án þess að tapa andlitinu. En það sem mestan ugg vekur er ekki grimmdin og vægðarleysið sem McVeigh sýndi með verknaðinum, heldur hversu líkur venjulegum Bandaríkjamanni hann var. Margir samferðamenn hans lýsa honum sem viðkunnanlegum og umhyggju- sömum og fréttamenn hafa margir furðað sig yfir gáfum hans og orð- færi. Hann var alla tíð með fullu viti og með röksemdafærslum reyndi hann að réttlæta að hann drap á annaö hundrað manns. í hans eigin augum gerði hann ekk- ert rangt. Tim var tilfinninganæmt ung- menni sem var hrekkt á salerninu í bamaskólanum og hann grét svo dögum skipti þegar nágranni hans drekkti kettlingum í tjörn nærri heimili hans. Röð atburða leiddi til þess að McVeigh varð ekki venju- legur Bandaríkjamaöur heldur hat- aður fjöldamorðingi. 27 ára gamall tók hann nefnilega upp á því að hlaða sendibil þremur tonnum af sprengiefnum og leggja honum fyrir framan alríkisbyggingu í Okla- homa. Tilgangurinn var að koma höggi á ríkisstjórnina og drepa fjög- ur til fimm hundruð manns. - Erlent fréttaljós Heft fjölskylda og byssuæði Fjölskylda Tims litla McVeigh var tilflnningalega heft og sjálfur sagðist hann muna litið eftir tjá- skiptum á milli foreldra hans. Þeir skildu þegar hann var ellefu ára gamall og honum var gert að velja á milli föður Timothy McVeigh Hanrt er mesti fjöldamorðingi Bandaríkjanna en passar engan veginn inn í ímynd hins ógeðfellda og blóðþyrsta morðingja. Fólk spyr sig hvernig maður sem ekki er vitskertur getur sannfært sjálfan sig um að hann verði að sprengja upp byggingu með hundruðum mannslífa og iðrast ekki, jafnvel þó eigi að lífláta hann fyrir það. hjá stráknum sem átti sér hliðstæðu meðal hægri sinnaðra öfgamanna. Hann fann snemma þörf til að verj- ast óvini og 14 ára gamall sagði hann félögum sínum að hann væri síns og móður. Tvær systur hans völdu móður sína en hann valdi föð- ur sinn og sagðist ekki vilja að pabbi sinn væri einn. 22 árum síðar neitaði Timothy McVeigh að faðma föður sinn í fangelsinu í síðasta heimsóknartíma fyrir aftökuna. Tim náði góðu sambandi við einn fjölskyldumeðlim og það var afi hans. Hann kenndi barnabaminu að skjóta úr riffli og kom af stað brennandi byssuáhuga aö byrgja sig upp með vopnum og mat ef ske kynni að kommúnistar gerðu kjarnorkuárás eða yfirtækju landið. Síðar fann hann sér nýjan óvin. Hatur á stjórnvöldum Þáttaskil urðu í lífi McVeighs þegar hann skaut og drap íraskan hermann af tæplega tveggja kíló- metra færi í Persaflóastríðinu. Það olli honum samviskubiti og fyllti hann reiði. Honum þótti sem Banda- ríkja- menn væru að ifSHip Mm *• -j** . Arfleiö McVeighs Timothy McVeigh drap 168 manns þegar hann sprengdi upp byggingu alríkisins í Okiahomaborg 1995. Hann var að vonast til að ná að sprengja bygg- inguna alla niöur og drepa fjögur til fimm hundruö manns. Hann sagöi fólkið vera hluta af hinu illa stórveldi og þurfa aö deyja, líkt og í Dauöastjörn- unni í Star Wars. kúga vanmáttuga íraka, líklega á svipaðan hátt og þegar hann var kúgaður í skólanum forðum. Auk þess hafði hann áhyggjur af því að Sameinuðu þjóðirnar, sem Banda- ríkjaher þjónaði í Persaflóastríðinu, væru í þann mund að sölsa undir sig heiminn. Sú skoðun er dæmi- gerð fyrir hægri sinnaða öfgahópa sem eru dreifðir um miðvesturhluta Bandarikjanna. Þeir einkennast af vænisýki og andúð gagnvart stjórn- völdum og sjúklegum áhyggjum af því að lifa af. Til að skapa sér öryggi og sjálfstæði sanka hóparnir að sér skotvopnum og æfa sig í hernaði. Hvatinn að áherslunni á hernað var að verjast stjómvöldum, sem sýnt höfðu fádæma harðræði þegar þau slátruðu öfgahópum í Waco og Ruby Ridge. Upp úr þessum jarðvegi spratt hugmyndafræði Timothys McVeighs sem lét hann finna sig knúinn til að sprengja alríkisbygg- inguna í Oklahomaborg. McVeigh var dyggur aðdáandi Star Trek sjónvarpsþáttanna og sá útópíska stjórnskipan heimsins í þeim. Hann þóttist hafa réttlætingu fyrir sprengjuárásinni í Oklahoma í Star Wars kvikmyndunum þar sem Dauðastjarna hins illa keisaradæm- is var sprengd í lokin, við mikinn fognuð áhorfenda, enda var heimin- um bjargað frá hinu illa. ÍDauða- stjörnunni var starfsfólk sem eng- ann drap og var ekki vopnað. Fólk- ið var hins vegar mikilvægt fyrir starfsemi keisaradæmisins. Að mati McVeighs, og liklega flestra áhorf- enda var fólkið óhjákvæmilegur fórnarkostnaður þess að bjarga heiminum frá hinu illa. Starfsfólkið í alríkisbyggingunni var að mati McVeighs sambærilegur fórnar- kostnaður. Byggt á Reuter, CNN o.fl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.