Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Blaðsíða 8
8 _________________________________________________________________________________________________LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 Útlönd ____________________ ____________________________________________________________ X>V Hiti í Dúmunni Ríkisstjórn Rússlands vill koma á frjálsum viöskiptum meö land. Slagsmál í rúss- neska þinginu Mikið uppnám var í neðri deild rússneska þingsins, Dúmunni, þeg- ar frumvarp um frjálsa sölu land- eigna var tekið til atkvæðagreiðslu í gær. Frjáls sala á landi hefur verið bönnuð frá tíma Sovétríkjanna en það eru stjórnvöld sem standa bak við frumvarpið um breytingu núna. Stjómarandstæðingar með komm- únista i fararbroddi segja ríkis- stjórnina vera að selja móðurlandið. Þeir óttast að landið verði keypt upp ódýru verði af fáum efnamönn- um og fátækir bændur missi þar með afkomu sína. Mikill æsingur var í þinginu og einn stjórnarandstæðingur var fluttur á spítala með of háan blóð- þrýsting. Þá slógust tveir þingmenn áður en stjórnarandstæðingar gengu út úr þinghúsinu og neituðu að taka þátt í atkvæðagreiðslunni. Hetja reyndist skúrkur og bófi Venesúelskur vörður sem verð- launaður var fyrir að bjarga pening- um undan ræningjum í brynvörð- um peningaflutningabíl er nú eftir- lýstur fyrir rán á andvirði rúmlega 570 milljóna króna. Vörðurinn komst í hann krappan þegar honum tókst að hrekja á brott ræningja í síðasta mánuði og var hann verð- launaður með 150 þúsund krónum fyrir. Vinnuveitendur skúrksins viðsjáverða hafa lagt 7,4 milljónir króna til höfuðs honum. Hetjan fallna er talin hafa hent peninga- pokunum aftan úr brynvarða bíln- um til vitorðsmanna sinna og stokk- ið svo sjálfur á eftir þeim. Gyanendra konungur Var litinn grunsemdaraugum eftir fjöldamorö á konungsfjölskyldunni. Nýr konungur Nepals hlýtur lof Gyanendra, nýr konungur Nepals, hlýtur lof fyrir meðhöndlun sína á eftirmálum fjöldamorðanna á konungsfjölskyldunni fyrir tveimur vikum. Nefnd, skipuð af honum, komst að þeirri niðurstöðu í gær að Dipendra krónprins hefði framið fjöldamorðin sem skiidu 9 ættingja hans eftir í valnum, þar á meðal konungshjónin. Mikil óvissa hefur verið meðal almennings í Nepal um hver hafi staðiö að morðunum, enda lýstu stjórnvöld því yfir að byssa hefði bilað og skotið á fjölskylduna. Gyanendra var illa tekið við vígslu sína sem konungur en er nú kom- inn í náðina. Bush bætir ímynd sína í Evrópuferð George W. Bush Bandaríkjafor- seta virðist hafa tekist að bræða hjörtu Evrópumanna ef marka má algera viðhorfsbreytingu sem orðið hefur gagnvart honum. í stað þess að vera kallaður treggáfuð brúða ol- íubaróna er honum nú hrósað sem heillandi, hnyttnum og jafnvel gáf- uðum. Ensk dagblöð eru sérstaklega hrif- næm fyrir Bush og kallar The Sun heimsókn hans til Evrópu fullkom- inn árangur. Daily Telegraph réðst á Svía fyrir að setja sig á háan hest fyrir framan hið góðviljaða stór- veldi. Hið þýska Suddeutsche Zeit- ung kallaði Bush „stjóra" í fyrirsögn og sagði hann heillandi en harðan og að ekki ætti að vanmeta manninn, því hann gæti náð fram hverju því sem hann beitir sér fyrir. Jafnvel Frakkar. voru ánægðir meö Bandaríkjaforsetann. Hins veg- ar voru ítalir fastir við sinn keip þegar dagblaðið Corriere della Sera kallaði hann barnalegan kúreka og ýjaði að fávisku hans. George Bush Forsetinn þakkar pólskri stúlku fyrir blómvönd meö Texas-kveöju í Varsjá. Oröstír hans í Evrópu hefur vaxiö í ferö hans síöustu daga. Bush var vel tekið þegar hann kom til Póllands í gær og átti hann ánægjulegar stundir með Alexander Kwasniewski forseta, sem lýsti yfir stuðningi sínum við eldflaugavama- kerfi Bandaríkjamanna. Einungis lítils háttar mótmæli voru við komu hans. Bush mærði Pólland og sagði það leiðarljós í lýðræðisátt. Þá talaði hann fyrir stækkun Nató og Evr- ópusambandsins í austurátt. Bush sagði Rússa ekkert hafa að óttast í þeim efnum, hann væri forseti frið- elskandi þjóðar sem vildi hag Rússa sem vænstan. Næsti áfangastaður í ferð Bush er Ljubljana í Slóveníu þar sem hann hittir Pútín Rússlandsforseta að máli. Málefnin á dagskrá verða stækkun Nató til austurs og eld- flaugavamakerfið, en Rússar hafa fylkt sér saman með nágrönnum sínum í Mið-Asíu í andstöðu við kerfið. Einnig munu þeir ræða deil- una í Mið-Austurlöndum og efna- hagsmál, svo eitthvað sé nefnt. Miöbær Gautaborgar Óeiröir andkapítalista og andstæöinga hnattvæöingar geröu miöborg Gautaborgar aö vígvelli í gærdag. Svíum er afar brugöiö yfir hamaganginum og Tony Blair, forsætisráöherra Breta, segir ofbeldisfulla óróaseggi afvegaleiöa aöra mót- mælendur. Þeir höföu lofaö friösamlegum mótmælum í gær, eftir átök á fimmtudag. Andstæðingar hnattvæðingar mótmæla: Skrílslæti í Gautaborg skyggja á fund ESB Andstæðingar alþjóðavæðingar og andkapítalistar gengu berserks- gang um miðborg Gautaborgar í gær í tilefni fundar Evrópusam- bandsins í borginni. Þúsund manna lögreglulið réð lítið við ástandið og neyddist til að eftirláta mótmælend- unum 25 þúsund heilu göturnar, þar af nokkrar helstu verslunargötur borgarinnar. Hundruð mótmælenda tóku þá upp á því að brjóta rúður í alþjóð- legum fyrirtækjum í miðbænum, svo sem skyndibitastað MacDon- alds. Auk þess hlóðu þeir varöeld úr kaffihúsastólum og braki og hentu múrsteinum í bíla. Mótmælendum- ir komust þó ekki að ráðstefnumið- stöð fulltrúa Evrópusambandsins, þar sem lögregla stóð í vegi fyrir þeim. Anna Lindh, utanríkisráðherra Göran Persson Forsætisráöherra Svíþjóöar segir mótmælendur vinna gegn lýöræðis- þróun meö ofbeldi. Svíþjóðar, segir óeirðirnar vera hörmulegar og dómsmálaráðherra landsins hefur hætt við utanlands- för til að setja af stað rannsóknar- nefnd um málið. Svíar eru almennt felmtri slegnir yfir því að svona nokkuð skuli gerast í landinu. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, vottaði sænskum yfir- völdum samúð sína fyrir það sem þau hafa þurft að umbera. Hann sagði mótmælendur vera afvega- leidda af ofbeldisfullum óróaseggj- um. Leiðtogar ESB-ríkjanna 15 ræddu framtíð sambandsins og væntanlega stækkun þess. í skugga höfnunar íra í þjóðarat- kvæðagreiðslu á því að sambandið verði stækkað lýsa þeir því yfir að ekki sé rétti tíminn til að æða út í of háfleygar umræður um framtíð þess, heldur sé rétt að fara sér hægt. Aftökur geðveikra hætti Mary Robinson, fulltrúi mannrétt- indamála hjá SÞ, hvetur Bush Banda- ríkjaforseta til að stöðva aftökur á andlega sjúkum föngum. Hún biður hann um að gera dómstólum stefnu stjórnarinnar ljósa. Ljósmynduðu innbrotið Tveir norskir innbrotsþjófar fóru illa að ráði sínu þegar þeir tóku myndir af hvor öðrum við innbrot. Lögreglan var við það að leggja inn- brotsmálið niður þegar myndir af þeim rótandi í skúffum og skápum fundust í flkniefnabæli og voru þeir handteknir í kjölfarið. Viðræöur í Palestínu Öryggisfulltrúar Palestínumanna og ísraela hittust í gær undir hand- leiðslu Bandaríkjamanna til að meta árangurinn af vopnahléi síð- ustu daga. Þrátt fyrir vopnahléið og tilslakanir ísraelshers héldu smá- skærur áfram. Svíar hrifnir af Danmörku Þrír af hverjum fjórum ibúum á Skáni í Suður-Svíþjóð ætla yfir Eyr- arsundsbrúna til Danmerkur i sum- ar. Danir eru hins vegar ekki jafn hrifnir af frændþjóðinni og fara hvergi. Hraðferð að ákæru Fimm stórir hópar innan indónesíska þingsins vilja hraða ferli sem miðar að ákæru á hendur Ab- durrahman Wahid forseta fyrir embætt- isglöp. Margar I ákvarðanir hans undanfarið hafa | þótt róttækar og ólýðræðislegar, meðal annars sú að reka 7 ráðherra. SÞ hirða vopn í Kosovo Alþjóðlegar lögreglusveitir Sam- einuðu þjóðanna gerðu upptæk skotfæri og hundruð vopna í flutn- ingabíl á leið inn í Kosovo. Hann fannst yfirgefinn í bílaröð við landa- mærin að héraðinu. Reynir að ráða morðingja Hæstiréttur ísraels frestaði gildistöku ráðn- ingar Ariels Shar- ons forsætisráð- herra á nýjum yf- irmanni aðgerða gegn hryðjuverk- um. Hann hefur játað að hafa myrt palestínska fanga sem voru í haldi hans árið 1984. Réttað í Dando-málinu Réttarhöld standa nú yfir i máli bresku sjónvarpskonunnar Jill Dando, sem var myrt fyrir utan heimili sitt árið 1999. Líkur eru á því að atvinnumorðingi hafi framið morðið. Slappi af gagnvart hassi Lögreglan í Lundúnum hefur lýst því yflr að hún muni slappa af gagn- vart þeim sem hafa undir höndum kannabisefni. Þeim verður veitt munnleg áminning en engin kæra lögð fram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.