Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Blaðsíða 11
11 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 Skoðun þess að svo sé. Og er nú svo komið að foreldrar eru strax farnir að hafa áhyggjur af því við fæðingu fyrstu dóttur sinnar að þeir hafi engin efni á að kosta allar brúðkaups- veislurnar hennar í framtíðinni. Er minn tími komínn? Við lifum á einnota tímum. í gamla daga var flest gert til að endast, „made to last,“eins og Bret- inn segir. Buxur, vesti, brækur og skór. Og hrærivélar og hjóna- bönd. Og lambhúshettur. Ég á lambhúshettu sem ég fékk í sjö ára af- mælisgjöf og hrærivélin vinninginn á báðum sviðum. Fyrir tvemur árum tók ég viðtal við gamlan bónda sem gekk daglega í með öllu óslitinni skyrtu sem hann hafði keypt í kaupfélaginu fyrir 51 ári. Hann er enn i skyrtunni sinni en kaupfélagið er ekki lengur til nema í skötulíki. Og yfirleitt er komið gat á olnboga nútímaskyrtunnar jafnvel áður en þær detta úr tísku og það er ekki langur tími. í gamla daga entust hjónaböndin ekki síður en reiðhjólin og skyrturn- ar og hrærivélarnar. Menn héngu kannski ekki alltaf í þeim himinsæl- ir, en létu sig flestir hafa það, vitandi að sjaldan var í skárri hús að venda. Nú eru menn aftur á móti margir farnir að leggja drög að því að losa sig við makann á leiðinni niður kirkjutröppurnar, ef menn hafa ekki þegar gert það í steggjar- ellegar gæsaveislunni skömmu áður. Að minnsta kosti benda tölur um meðal- talsendingu hjónabanda á íslandi til nota enn. En kannski var þetta allt alls ekki svona gott og ekki svona endingar- gott. Kannski voru allir skapaðir hlutir síbilandi í gamla daga en mað- ur kýs fremur að muna það sem hélst heilt og entist. Minningar eru auðvitað aldrei raunsönn endursköpun á þeim veru- leika sem var, heldur aðeins óljós endurómur af tónlist liðins tíma, stundum eitthvað allt annað lag, eða með öllu óþekkjanlegt í nýrri útsetn- ingu eða sérviskulegri túlkun flytj- anda Kannski vill tíminn bara ekki tengja sig við mig eða a.m.k. ekki tæknin. Kannski er minn timi ekki kominn. Og kannski kom hann án þess ég tæki eftir því og fór aftur án þess ég yrði hans var. Kannski er ég bara að verða gam- all. Og staðfesti þá um leið á persónu- legan hátt þá kenningu sem haldið er fram í þessum pistli, að endingartím- anum hafi hrakað í nútímanum. Þannig hafa stjómtæki líkt og vaxtahækkanir ekki haft jafnmik- il áhrif hér og í nágrannalöndun- um. Almenningur hefur farið sínu fram og tiplað fram á ystu nöf frá því að sögur hófust. Offjárfesting í blikkbeljum er eitt sögulegasta dæmið. Lántakendur spyrja ekki um vexti. Breyttir tímar? En nú er komin vísbending um breytta tíma. í DV í fyrradag kom fram aö sólarlandaferðir landans muni dragast saman um heil 15-20% frá fyrra sumri en sam- felld aukning hafði orðið í þessum ferðalögum um margra ára skeið. Þetta eru söguleg tíðindi því það hefur hingað til ekki stöðvað þorra þjóðarinnar i ákvarðana- töku að eiga engan pening. Ef hugarfarsbreytingin er hafin, gefur það vonir um góð fyrirheit. Hundruð milljóna munu sparast í gjaldeyri þetta sumariö vegna þess að íslendingar átta sig á að nú er ekki rétti tíminn til að liggja á baöströndinni. íslendingar hafa varið góðærinu illa. Þeir hafa ekki notað hagsæld- artímabilið til að létta á skuldum og búa í haginn fyrir framtíðina heldur þvert á móti. Ekkert grín Það er ekkert grín að stýra efna- hagsmálum þjóðar sem liflr bara fyrir einn dag í einu og hvort sem lendingin veröur hörð eða mjúk þá eru sum mál þannig að fólkið í landinu verður að taka þau í eigin hendur og axla ábyrgð. Það er ekki hægt að skella skuldinni endalaust á stjórnvöld þegar þjóðin lendir í erfíðleikum. í flestum tilvikum er um að ræða sjálfskaparvíti þótt örsmár hluti þjóðarinnar sé illa settur án þess að geta nokkuö að því gert. Sólarflug á ekki upp á pallborö- ið í sumar, enda höfum við ekki efni á því. En það að horfast í augu við staðreyndir er einmitt vísbending um það að landsmenn sjái nú til sólar sem aldrei fyrr. Þrátt fyrir 15-20% samdrátt i sól- arlandaflugi og samdráttarskeið sem vara mun misserum saman að mati Þjóðhagsstofnunar. Þetta er ljós í myrkrinu öllu. Ferðalandið kalda Ritstjórnarbréf íslendingar standa frammi fyrir undarlegum vanda. Á næstu árum koma til landsins fleiri erlendir ferðamenn en land og þjóð ráða við. Fram að þessu hafa landsmenn ver- ið harla kátir yfir því hvað erlend- um ferðamönnum hefur fjölgað hressilega frá einu ári til annars. Og montnir grípa ráðamenn til orða eins og „sprengingar í ferðaþjón- ustu“ og tala gjarna á þann veg að lengi taki landið við. Já, það er gaman að lifa, ekki síst á ferðalögum, með fínan kost og fal- legt útsýni. Skrifari þessara orða man þá tíð um seinni hluta síðustu aldar þegar hann reit af nokkru stolti um mikla fjölgun erlendra ferðamanna hér á landi elds og isa, gott ef fjöldi þeirra á hverju ári færi ekki brátt upp fyr- ir 120 þúsund manns, næstum helm- ing landsmanna. Þetta var á bernskutímum íslenskrar ferða- þjónustu þegar landsmenn hugsuðu að mestu í gildum sinna gömlu tíða - og ferðaþjónusta sem nafn á at- vinnugrein var vart eða ekki til. Ferðamenn þóttu furðulegt fólk. við náttúru íslands, ekki ósvipað og gert hefur verið um aðra mikilvæga auðlind landsins, sem sjávarauð- lindin er? Þetta eru áleitnar spum- ingar og tímabærar og þeim mun at- hyglisverðara er, hversu fáir spyrja þeirra. Fólk í ferðaþjónustu er af alvöru farið að ræða þann möguleika aö ein milljón erlendra ferðamanna komi til íslands innan tiltölulega fárra ára, ef til vill innan hálfs ann- ars áratugar. Þetta þýddi þrefalt fleiri ferðamenn en nú koma til landsins á hverju ári. Fyrr var minnst á skrif þess sem þetta ritar frá þvi á árum áður þegar ferða- menn voru rösklega 100 þúsund. Og þótti mikið. Þá grunaði engan heil- vita mann að fjöldinn myndi þre- faldast á næstu fimmtán árum. Það hefði þótt hlægileg spá. Ein milljón ferðamanna Núna, í dögun nýrrar aldar, eru landsmenn reynslunni ríkari og eng- inn hlær að spám i þá veru að fjöldi erlendra ferðamanna kunni að þre- faldast á næstu fimmtán árum. Og enginn, í besta falli afskaplega fáir, leiðir að því hugann að þetta kunni að vera óæskileg þróun. Rétt eins og á fyrri árum fiskveiða okkar flnnst okkur í lagi að sækja og fara að vild. Fáir, aðeins einstaka maður, tala i þá veru að íslenska náttúran sé jafntak- mörkuð auðlind og fiskimiðin um- hverfis landið. Vitaskuld er íslensk náttúra við- kvæm eins og annað lífríki hér við ysta haf. Það þekkja þeir sem landið byggja og reyndar mestur ef ekki nær allur fjöldi erlendra ferðamanna sem fer um landið af mikilli virðingu fyrir eðli túndrunnar. Milljón manns og helmingi fleiri fætur munu kosta sitt. Þessi milljón mun ekki aðeins skilja eftir sig griðarmikla fjármuni, næstum 100 milljarða, heldur líka þung spor. Staðir sem eru þegar orðnir ásetnir munu láta mjög á sjá. Þá verður orðið fuUseint að spyrja. „Þolir landið meiri átroðning? Á að tak- marka fjölda fólks á við- kvcemustu svœðin? Á með öðrum orðum að setja reglur um um- gengni fólks við náttúru íslands, ekki ósvipað og gert hefur verið um aðra mikilvœga auðlind landsins, sem sjávarauð- lindin er. “ breyst frá því íslendingar komu sælubrúnir heim með fyrstu pullur landsins í handfarangri. Þeir eru meira á ferðinni, utan lands sem innan. Þeir eru famir að fara langt- um meira um eigið land en áður og fara oftar á ári út fyrir bæjarmörk- in en áður tíðkaðist. Það sem voru sumarbústaðir eru orðnir heilsárs- bústaðir. Og þeir sem hafa ekki að- gang að fóstum bústöðum fara um á forláta tjaldvögnum sem eru margir orðnir svo stórir að kalla verður fellihýsi. í lok venjulegrar helgar á vor- mánuðum hlykkjast umferðin út úr sveitinni tU borga og bæja. Fólk sækir frið sinn út í náttúruna og kann að meta alla þá þjónustu sem farið er að bjóða upp á í dreifðum byggðum landsins. Þar á hug- myndaflugið sér engin takmörk. Og þar gildir að hugsa öðruvísi. Það sem áður þótti furðulegt, þykir nú frábært: Bændur bregða búi í nýrri merkingu og hendast með aðkomu- fólki niður erfiðustu ár og breyta fjósum sínum í golfskála og túnum í leikandi velli. Landið meira notað Landið er langtum meira notað en verið hefur. Og þar skipta lands- menn miklu og útlendingar æ meira máli. Stóra spurningin er hins veg- ar hvar og hvort við viljum setja mörkin í þessum efnum. Áætlanir Ferðamálaráðs gera ráð fyrir þvi að um 320 þúsund gestir komi til Is- lands í ár, tugþúsundum fleiri en landsmenn eru. Fjölgun þessara gesta hefur verið ævintýraleg á síð- asta áratug og ef fram heldur sem horfir þarf að grípa til enn sterkari lýsingarorða eftir nokkur ár. Fram að þessu hefur umræðan um erlenda ferðamenn snúist um þá peninga sem þeir skilja eftir \ land- inu þegar þeir fara héðan. Gæði ferðaþjónustunnar hefur ekki skipt mestu máli, heldur hitt að hafa pen- inga af þessu ágæta fólki. Og er þar vissulega eftir miklu að slægjast. Á síðasta ári eyddu ferðamenn 30 milljörðum króna á ári. Það eru tífold loðnuverðmæti. Gengisþróun bendir til þess að hlutfallsleg eyðsla útlendinganna aukist hressilega á þessu ári. Nokkrar lykiispurningar í þessari umræðu gleymast nokkrar lykilspumingar. Athyglis- vert er hversu fáir halda þeim á lofti: Viljum við fleiri ferðamenn? Þolir landið meiri átroðning? Á að takmarka fjölda fólks á viðkvæm- ustu svæðin? Á með öðrum orðum að setja reglur um umgengni fólks Sigmundur Ernir Rúnarsson itoðarritstjóri Stórskrýtíö fólk! Á þessari tíð, upp úr 1975, voru það nánast einvörðungu sérvitring- ar sem sóttu landið heim á illa heit- um sumardögum. Altént gátu heimamenn ekki ráðið annað úr augnaráði þessa fólks en þar færi stórskrýtiö fólk. Fólk sem gekk um á stórum skóm í hnébuxum og tók myndir í gríð og erg af sjálfsögðustu hlutum. Gjama miðevrópskt mið- stéttarfólk með miðlungs tekjur sem önglaði saman afgangspeningum sínum og flaug til þessarar hreinu meyjar Evrópu til að draga að sér andann djúpt. Þetta var á þeim árum sem Guðni í Sunnu og Ingólfur í Útsýn fluttu heilu flugfarmana af íslenskri þjóð á strendur Spánar og skiluðu kaffi- brúnum heim. Öllum heilvita ís- lendingum var fyrirmunað að skilja af hverju fólk gat kosið að fara úr hlýju í kulda í fríi sínu og þramma um vegaleysur á meðan hægt var að fá sína sangríu á sundlaugarbakk- ann. Þetta var á þeim tímum þeg- ar svo fáir útlendingar komu til íslands á hverju ári að auð- veldlega var hægt að hlæja að þeim dátt. Gerbreyttir tímar Ferðamennska hefur ger-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.