Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 16. JUNI 2001 21 DV Helgarblað „Skuldaukning borgar- innar hefur verið 8 millj- ónir króna á hverjum einasta degi sem R-list- inn hefur verið í meiri- hluta. Heildarskuldir borgarinnar eru komnar á hættustig. Það er stað- reynd sem mér þœtti stórmannlegra að viður- kenna og takast á við. “ skipti við Austur-Evrópu svo marg- ir héldu að hann væri vinstrisinn- aður enda auglýsti hann mikið í Þjóðviljanum. Meðal hans bestu vina voru tveir úr Alþýðuflokknum, Pétur Pétursson þingmaður og Egg- ert Þorsteinsson, ráðherra og þing- maður. Það var ekki svo að pabbi héldi fram ákveðnum pólitískum skoðunum. Sjálfur tók ég ekki veru- legan þátt í stjórnmálum fyrr en fyr- ir nokkrum árum þegar ég tók þátt i prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna borgarstjórnarkosninganna 1998 en hafði þá um skeið verið í stjórn eins af hverfafélögum flokks- ins. Reyndar starfaði ég i stúd- entapólitíkinni á háskólaárunum og hef alla tíð tekið virkan þátt í ýms- um félagsmálum." Blekkingar R-listans - Hvernig meturðu stöðu Sjálf- stæðisflokksins í borginni. Það er talað um leiðtogakreppu hjá ykkur, er það ekki bara rétt? „Ég held að ef menn lita yflr svið- ið sjái þeir að í stjórnarandstöðu er lenska að tala um leiðtogakreppu, hvort sem er á landsvísu eða í sveit- arstjórnum. Það er engin ástæða að láta það koma sér úr jafnvægi. Það gengur yfir, sérstaklega þegar nálg- ast kosningarnar og baráttan fer að harðna. Ég held lika að flestir þeir sem kynnast störfum okkar sjálf- stæðismanna í borginni viðurkenni að mikill kraftur er í þeim hópi sem nú starfar í borgarstjórn. Nýjasta skoðanakönnun um fylgi flokkanna í borgarstjórn, sem kynnt var fyrir nokkrum dögum, sýnir að borgar- stjórnarflokkur okkar er verulega að styrkja sína stöðu og það eykur okkur bjartsýni." - Hvað finnst þér um þá hug- mynd að Björn Bjarnason fari fram sem leiðtogi sjálfstæðismanna í borginni? „Ef Bjöm hefur áhuga á að starfa að borgarmálum þá verður hann að taka þátt í því prófkjöri sem líkleg- ast er fram undan, eins og aðrir.“ - Ég geri ekki ráð fyrir að þú sért ánægður meö störf R-listans í borg- inni, en hvað finnst þér helst vera hægt að gagnrýna hann fyrir? „Það er af mörgu að taka. Þegar ég kom í borgarstjórn kom mér á óvart hversu skipulega og mark- visst ér unnið að því að telja borgar- búum trú um að fjárhagur borgar- innar standi i miklum blóma. Þetta eru hreinlega ósannindi sem eru hverjum manni ljós sem skoðar árs- reikninga borgarinnar. Það er hins vegar eölilegt að fólk kæri sig al- mennt ekki um að setja sig inn í svo flókin mál sem fjármál stærsta sveitarfélags landsins eru. Það er enda hlutverk okkar borgarfulltrúa að kynna þá stöðu. Bókhaldsleik- fimi núverandi meirihluta hefur valdið því að útilokað er að komast að raunverulegri stöðu borgarinnar nema að kafa djúpt og skoða fyrri ár. Þetta er gert meðvitað og í blekk- ingarskyni. Hagstofa Islands hefur til dæmis bent á að skoða verði árs- reikninga borgarinnar út frá ákveðnum forsendum til þess að komast að hinu sanna. Ingibjörg Sólrún hélt því fram i síðustu kosn- ingum að skuldasöfnun hefði verið stöðvuð, eins og hún orðaði það. Skuldaaukning borgarinnar hefur verið 8 milljónir króna á hverjum einasta degi sem R-listinn hefur ver- ið i meirihluta. Heildarskuldir borg- arinnar eru komnar á hættustig. Það er staðreynd sem mér þætti stórmannlegra að viðurkenna og takast á við. Helgi Hjörvar sagði í kosninga- baráttunni að gjöld mundu ekki hækka. Það væri fróðlegt að fá skýr- ingu á því um hvaða gjöld hann var að tala. Útsvar, fasteignagjöld og all- ar gjaldskrár hafa hækkað svo um munar. Á tímum góðæris hefur R- listinn hækkað skatta og gjaldskrár en jafnframt aukið skuldir hraðar en nokkur dæmi eru til um. Til samanburðar hefur ríkisstjórnin lækkað skatta og greitt niður skuld- ir. Það er ódýrt að eyða til vinstri og hægri án innstæðu en láta öðrum eftir að greiða úr þeim vanda sem það skapar. Mér finnast naprar kveðjurnar sem R-listinn hefur sent húsbyggj- endum. Loksins þegar R-listinn skipulagði lóðir eftir sex ára stjórn- arsetu í borginni er þeim úthlutað með útboðsleiðinni. Staðan er sú að húsbyggjendur, ungar fjölskyldur sem vilja koma sér þaki yflr höfuð- ið, verða að keppa við fjársterk byggingarfyrirtæki um lóðir í Graf- arholti, því sá sem fær er sá sem býður best. Það þarf ekki spyrja að því hver hefur betur. Þessi útboðs- leið hefur hækkað byggingarkostn- að og þar af fasteignaverð í Grafar- holtinu verulega.“ Ingibjörg Sólrún og ungarnir - Nú segja margir að Ingibjörg Sólrún geti haldið borginni eins og lengi og henni sýnist, hún sé jafn- sterkur stjórnmálamaður og Davíð Oddsson. „Vinstrimönnum hefur lengi ver- ið umhugað um að finna í sínum röðum stjórnmálamann sem er jafn- ingi Davíðs Oddssonar. Þann jafn- ingja hafa þeir ekki fundið í Ingi- björgu Sólrúnu. Hæfileikar Ingi- bjargar Sólrúnar felast ekki í leið- togahæfileikum, heldur miklu frem- ur í hæfileikum til málamiðlana. R- listinn er hópur einstaklinga úr ólíkum flokkum og flokksbrotum. R- listinn virkar í borgarstjórn sem margir þrýstihópar þar sem allir krefjast þess að fá sem mest í sinn hlut. í stað þess að samstilltur hóp- ur komi sér saman um eina stefnu sem gengið er eftir verður Ingibjörg Sólrún að sjá til þess að allir þeir sem að R-listanum standa fái sitt. Hún er eins og fuglinn sem kemur að hreiðrinu með orminn. Allir goggarnir koma upp á móti henni og vilja fá sem mest. Ingibjörg hefur leyft öllum að fá sitt því hún veit að ella getur bitlingalímiö gefið sig. Samningaviöræður við VG um að- komu að R-listanum snúast væntan- lega um það hversu mikið þeir eigi að fá af kökunni. Hin slæma fjár- hagsstaða borgarinnar endurspegl- ar þetta og vegna þessa verður ekki unnið á skuldastöðunni á meðan R- listinn heldur meirihluta." - Þú stefnir ótrauður í næsta prófkjör? „Eins og staðan er í dag geri ég ráð fyrir því.“ - Nú verðurðu fimmtugur næst- komandi mánudag. Líður þér eins og þú hafir lifað hálfa öld? „Ég held að ef ég missti minr.ið, eins og gerist stundum i bíómynd- um, þar sem menn ráfa um götur og vita hvorki hvað þeir heita né hverj- ir þeir eru, og einhver myndi stoppa mig og spyrja hvað ég væri gamall þá myndi ég segja 34 ára. En ég verð að viðurkenna að það er nokkurs konar veruleikalending að eiga stórafmæli eins og þetta.“ „í stað þess að samstillt- ur hópur komi sér saman um eina stefnu sem geng- ið er eftir verður Ingi- björg Sólrún að sjá til þess að allir þeir sem að R-listanum standa fái sitt. Hún er eins og fugl- inn sem kemur að hreiðr- inu með orminn. Allir goggarnir koma upp á móti henni og vilja fá sem mest.“ MGNNINGARBORGARSJOÐUR LISTAHÁTÍÐ í REYKJAVÍK Búnaðarbankínn er rnáttarstólpi Listahátíðar í Reykjavík EFTIRTAUN VERKEFNI HLUTU STYRK MENNINGARBORGARSJÓÐS: Óperustúdíó Austurlands - BIARTAR NÆTUR í |ÚNÍ 2001. Brúökaup Fígarós og Mozart tónlistarveisla. Meöal flytjenda eru Sigrún Hjálmtýsdóttir og Ólafur Kjartan Sigurðarson. Kvikmyndaf. Einstefna - HEIMILDARMYNDIN BÝRÐll í BRAGGA Saga braggabyggóarinnar í Reykjavík frá 1940- 1979 sögö í kvikmynd í samstarfi vió Eggert Pór Bern- harösson, sagnfræóing. Kistan.is - MARGMIÐLAÐUR MEGAS í NÝLISTASAFNINU. Listaþing, sýning, tónleikar, netkaffi og margmiðluð dagskrá í okt. 2001. Yfir 50 rithöfundar, fræóimenn og listamenn taka þátt í verkefninu. Gamla Apótekið á fsafirði - ÍSLANDSLEIKHÚS. Samvinnu- verkefni um sumarleikhús ungs fólks. Sveitarfélögin ísa- fjörður, Dalvík, Austur-Hérað, Árborg, Garðabær, Horna- fjörður og Húsavík taka þátt. Borgarbókasafn Reykjavíkur - BÓKMENNTAVEFUR. (slenskir samtímahöfundar kynntir á ítarlegan hátt á gagnvirkum margmiðlunarvef, verkefnisstjóri Kristín Viðarsdóttir. Listasafnið á Akureyri - Sýning í ágúst á verkum danska listamannsins PER KIRKEBY. Fyrsta einkasýning á Islandi á verkum eins fremsta núlifandi myndlistarmanns á Norðurlöndum. Fræðslumiðstöðin - HEIMSÓKN TIL HÖFUÐBORGARINNAR. Nemendur af landsbyggðinni og nemendur (Reykjavík tengjast í vinnu um sögu, náttúru og menningu höfuð- borgarinnar. Háskóli íslands - OPINN HÁSKÓLI fyrir grunnskólabörn á landsbyggðinni. Tungumálanám barna á Höfn, ísafirði, Húsavík, Héraói, Fjarðarbyggð, Keflavlk, Patreksfirði, Borgarnesi, Stykkishólmi, Blönduósi og Þórshöfn. Erlendur Sveinsson - KVIKMYNDIN MÁLARINN OG SÁLMURINN HANS UM LITINN. Listsköpun Sveins Björns- sonar myndlistarmanns, Sveinshúsi í Krýsuvík. Schola Cantorum - ÍSLENSK IÓLAÓRATÓRÍA eftir John A. Speight, flutt í desember 2001. Verk fyrir 2 kóra, 4 ein- söngvara og 20 hljóðfæraleikara undir stjórn Harðar Ás- kelssonar. Gallerí i8 - ALÞIÓDLEGA LISTAKAUPSTEFNAN í BERLÍN. október 2001. íslensk myndlist kynnt á einni stærstu listamessu í Evrópu. Saga Film - IONÓ - HÚS ÆVINTÝRANNA. Heimildarmynd um Iðnó, handritjón Viðar Jónsson og Guðrún Ásmunds- dóttir, dagskrárgerð Jóhann Sigfússon. Sumartónleikar í Skálholti - UPPTÖKUR OG ÚTGÁFA á geisladiskum meó sígildu tónefni frá tónleikum í Skál- holtskirkju, m.a. með Bachsveitinni. Hljóðheimur - TÓNLEIKAR IIANÚAR 2002 MEÐ GAMALLI, NÝRRI OG SPUNNINNI TÓNLIST. Huqí Guðmundsson. Matthías M. D. Hemstock, Hörður Askelson og Voices Thules. IÖKLASÝNING 2001 Á HORNAFIROl. Myndlistarsýningar, stuttmynd Valdimars Leifssonar og Ara Trausta Guðmunds- sonar, fræósluefni og fyrirlestrar um Vatnajökul. Djúpavogshreppur - VEFUR UM RÍKHARÐ IÓNSSON. Ilf hans og starf. Fjölbreytt verkefni um listamanninn, sam- tíma hans og list. Grafískur hönnuður, Már Guðlaugsson. Strandaqaldur - GALDRASTEF Á STRÖNDUM. Menningar- og fjölskylduhátíð í ágúst 2001 með innlendum og erlend- um lista- og fræðimönnum. Hilmar Örn, Steindór Andersen, Jón Böðvarsson, Megas, Andrea Gylfa, Edda Heiðrún og Valravn o.fl. ÞIÓÐLAGAHÁTÍÐIN Á SIGLUFIRÐI 10.-15. IÚLÍ 2001. Norræna miðaldasveitin Alba, þjóðlagahópurinn Embla, Sláttukvintettinn, Siguróur Flosason og Gunnar Gunnarsson eru meóal þátttakenda í þjóðlagahátíðinni og margvísleg námskeið verða í boði. Réttur dagsins - REYKIAVÍK GUESTHOUSE - RENT A BIKE. Ný leikin kvikmynd, frumsýnd í haust, unnin af ungum listamönnum. Aðalhlutverk leika Hilmir Snær Guðnason og Kristbjörg Kjeld. Edda miólun og útqáfa - FRAMTÍÐARMÚSÍK. Útgáfuröð með tónlist ungra og efnilegra listamanna og hljómsveita, m.a. Davíðs Þórs Jónssonar, Úlpu, Vígspár og Orgelkvart- ettsins Apparats. Seyðisfjórður - LUNGA, LISTAHÁTÍÐ UNGS FÓLKS, Austur- landi íjúlí 2001. Hönnunarsamkeppni, lagasamkeppni, leiklistarnámskeið undir stjórn Stefáns Karls Stefánssonar leikara, tónleikar með Botnleóju o.fl. Ljósaklif - LIÓDRÆN KONSEPTLIST sumarið 2001. Tveir framúrskarandi listamenn, Paul Armand Gette frá Frakklandi og Hreinn Friðfinnsson sýna á hraunsvæðinu í Hafnarfirði. Kvikmyndasafnið - NÝ TÓNLIST - GAMLAR KVIKMYNDIR. Sýninga- og tónleikaröð 2001-2002 þar sem gamlar, frægar kvikmyndir verða sýndar við undirleik m.a. múm, Jóels Pálssonar, Skúla Sverrissonar o.fl. NÝn TÓNVERK EFTIR |ÓN NORDAL. Nýtt tónverk fyrir 10- 15 strengjaleikara og blásara í Kammersveit Reykjavíkur. Akureyrarbær - HRAUN - ÍS - SKÓGUR. Myndlistarverk- efni listamanna og stofnana á Akureyri, Rovaniemi í Finnlandi og Narsaq á Grænlandi með áherslu á náttúru svæðanna. BARNAÓPERAN SKUGGALEIKHÚS ÓFELÍU. Ný barnaópera eftir Messíönu Tómasdóttur með tónlist eftir Lárus H. Grímsson, söngvarar Marta Halldórsdóttir og Sverrir Guðjónsson. COLLEGIUM MUSICUM. Gerð DVD geisladisks með efni úr íslenskum handritum. Helgisiðastofnun í Skálholti undir- býr og Hanna Styrmisdóttir ritstýrir. Nemendur í Listaháskóla islands - HRINGFERÐIN, mynd- listarsýning í kringum landið. Myndlistarnemar heimsækja bæjarfélögin Borgarfjöró, ísafjörð, Blönduós, Siglufjörð, Húsavík, Skriðuklaustur, Seyðisfjöró, Fjarðarbyggð, Höfn, Djúpavog, Vík í Mýrdal og Þorlákshöfn og vinna á staónum að myndlistarsýningum. Heimsljósin - SÓNGLEIKUR BYGGÐUR Á ÞIÓÐSÖGU FRÁ VÍETNAM. Fjölmenningarlegur barnakór flytur, tónlistar- stjóri Júlíana Rún Indriðadóttir, Þórey Sigþórsdóttir gerir leikgerðina. Nýlistasafnið - POLYPHONY í IÚNÍ 2001. Hljóðhátíð í Ný- listasafninu með þátttöku myndlistarmanna, tónlist- armanna, leikara og hljóðlistamanna. Magnús Blöndal, Hilmar Bjarnason, Egill Sæbjörnsson, Tilraunaeldhúsið, Gjörningaklúbburinn, Vigma o.fl. koma fram. Gabríela Friðriksdóttir - LISTAMAÐURINN Á HORNINU, samspil listar og samfélags. 10 myndlistarmenn sýna úti um alla borg í sumar, m.a. Magnús Sigurðarson, Eygló Haraldsdóttir, Haraldurjónsson, Margrét Blöndal o.fl. Pars Pro Toto - ELSA OG LADY FISH AND CHIPS. Ný íslensk dansverk eftir Láru Stefánsdóttur sem ekki hafa verið flutt á íslandi en hlotið viðurkenningu erlendis. Orri Jónsson - EYÐIBÝLAVERKEFNI. Ljósmyndaverk- efni um íslensk eyðibýli og fólksflutninga af lands- byggðinni. Sumartónleikar - HÁTÍÐARTÓNLEIKAR í MÝVATNSSVEIT. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands leikur í Skjólbrekku undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Jón Axel Eqilsson - PERULEIKIR. Hreyfimynd fyrir börn, byggð á vatnslitamyndum. Bókmenntafræðistofnun Hl' - SKÁLDSAGNAÞING. Ráð- stefnuröð um skáldsögur, erindi flutt af Jóni Ólafssyni á ýmsum stöðum á landsbyggðinni. SMÍÐI Á TÓNVERKI FYRIR BÖRN. Nýtt tónverk eftir Tryggva Baldvinsson við texta Sveinbjörns Baldvins- sonar, flutt á skólatónleikum af Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Gunnarsstofnun - GRÝLU6LEÐI. Dagskrá og myndlistar- samkeppni fyrir börn og fullorðna um Grýlu og hyski hennar að Skriðuklaustri. TÓNLISTARDAGAR í VESTMANNAEYIUM. Masterdass í tónlist í ágúst 2001, kennarar veróa Arnaldur Arnarsson, Áshildur Haraldsdóttir, Marcal Cervera, Nína Margrét Grímsdóttir og Sigrún Eðvaldsdóttir. Norræna húsið - A EUROPE OF TALES. Sagnaarfur 5 Evrópuþjóða á vefnum, Island, Frakkland, Skotland, ftalla og Finnland. Verkefnisstjóri á íslenska hlutanum Jón Karl Helgason. GOTT AR GETUR AF SER MÖRG BETRI Listahátíð i Reykjavík, Lækjargötu 3b, 101 Reykjavík, sími 561 2444, fax 562 2350, www.listahatid.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.