Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Qupperneq 25
LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001
25
Helgarblað
Þarf oft að hugga
brotnar sálir
- Þórhildur Líndal, umboðsmaður barna,
í viðtali um ágreininginn við Barnaverndarstofu,
heimilislaus börn og árangur af erfiðu starfi
„Ég vil ekki meina að ég standi í
deilum við Barnavemdarstofu. Hins
vegar bar mér samkvæmt þeim lögum
sem umboðsmaður barna starfar eftir
að koma röddum umbjóðenda minna
á framfæri sem ég og gerði. Ég hef
upplýsingar um börn sem hafa verið á
götunni; börn sem þannig hefur verið
ástatt um hafa hringt til mín, ég hef
heyrt af þeim og eins hef ég beinlínis
verið látin vita þegar málum er svona
háttað. Ég hef séð brýna nauðsyn á
því að vekja máls á þessum vanda og
er alls ekki að þessu í neinu niðurrifs-
skyni,“ segir Þórhildur Líndal, um-
boðsmaður barna, í samtali við DV.
Vandinn er til staðar
Meiningarmunur og jafnvel deilur
hafa verið uppi í ijölmiðlum á milli
Umboðsmanns barna og Barnavemd-
arstofu um hvort sú sé raunin að börn
á íslandi séu heimilislaus. Bragi Guð-
brandsson, forstjóri Barnaverndar-
stofu, hefur vísað á bug öllum kenn-
ingum um að sú sé raunin, meðal ann-
ars hér í DV. Þórhildur Líndal stend-
ur hins vegar fast á sínu og segir að
upplýsingar frá Rauðakrosshúsinu
staðfesti þetta með skýrum hætti. Af
þeim stóra hópi barna sem þangað
hafi leitað á síðasta ári hafi alls 32
komið af götunni, fjórtán stelpur og
átján strákar. Þá hafi tólf heimilislaus
börn fengið athvarf i húsinu á þessu
ári og sex af þeim yfirgefið húsið án
þess að opinberir aðilar hefðu fundið
viðunandi lausn á þeirra málum.
„Það þarf ekki að deila um að
vandinn er til staðar," segir Þórhild-
ur. „í þessari viku fékk ég til dæmis
símtal vegna stráks sem hafði verið
vísað að heiman og var á götunni.
Sem betur fer fæ ég ekki mörg svona
mál en mér vitanlega hafa öll þau til-
vik verið tilkynnt bamaverndaryfir-
völdum."
Með fingur á púlsi
Embætti Umboðsmanns barna var
sett á laggirnar í ársbyrjun 1995 og
meginhlutverk þess er að gæta þess
að réttindi bama á íslandi séu virt,
meðal annars samkvæmt Barnasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna sem ísland
er aðili að. Þórhildur, sem hefur gegnt
embættinu frá upphafi, kveðst hafa
rækt starfsskyldur embættisins með
ýmsu móti. Ekki dugi að sitja aðeins á
skrifstofu í Reykjavík - þangað sem
margir leita þó - heldur kveðst Þór-
hildur einnig hafa farið í heimsóknir
í skóla, á sjúkrahús, félagsmiðstöðvar
og á fleiri slíka staði sem börn dvelja
á og sækja. Þá hafi verið haldin mál-
þing viða um land með þátttöku æsku
landsins um málefni hennar. „Þannig
tel ég mig vera embættismann sem er
með fingurinn á púlsinum og hafa
skynjað hver staða mála er í raun hjá
mínum umbjóðendum, börnunum í
landinu."
Embætti Umboðsmanns barna
heyrir undir forsætisráðuneytið en
engin formleg tengsl eru þar á milli,
utan hvað ráðuneytið hefur eftirlit
með fjárreiðum embættisins og um-
boðsmanni ber að skila forsætisráð-
herra árlegri skýrslu um störf sín.
„Ég er óháður embættismaður. Ég tel
að ef þetta embætti væri undirstofnun
einhvers fagráðuneytis væri hætta á
að hlutleysið mætti draga í efa. Þessi
óháða staða gefur embættinu mikið
svigrúm og er því afar mikilvæg."
Baráttan er eilíf
„Börn fullyrða að lítil virðing sé
borin fyrir þeim og ekki hlustað á
þeirra sjónarmið. Þetta viðhorf í garð
barna er óþolandi," segir Þórhildur og
telur mikilvægt að þetta breytist.
„Það hefur raunar komið fyrir í sam-
skiptum mínum við einstaklinga, fyr-
irtæki og stofnanir, þar sem ég hef
verið að tala máli barna, að andað
hafi köldu í garð embættisins en ég er
fljót að kasta slíku aftur fyrir mig.
Baráttan í þessum málum er eilíf og
ekki má gefast upp þótt blási á móti
um stund.“
Þórhildur Líndal segir það reynslu
sína að þótt undirtektir við ábending-
um hennar hafi í upphafi máls verið
dræmar af hálfu þeirra sem hlut eiga
að máli hafi aðeins í örfáum tilvikum
ekki reynst vera vilji til þess að at-
huga og færa til betri vegar þau mál
er varða hag bama sem hún sem Um-
boðsmaður bama hafi tekið til um-
fjöllunar. „En allt tekur þetta sinn
tíma og oft þarf að ítreka erindin og
þrýsta á mál. En allflest kemur þetta
á endanum."
Ýtt við eineltisvandanum
Af einstökum málum sem Um-
boðsmaður bama hefur vakið máls
á er einelti i grunnskólum. „Haust-
ið 1996 efndi ég til blaðamanna-
fundar þar sem ég vakti máls á þvi
að einelti I grunnskólum væri til
staðar og væri vandamál. Þetta
sagði ég einmitt af því að mér hafði
borist fjöldi ábendinga frá börnum,
foreldrum og öðrum um slíkt og
þegar þessum upplýsingum öllum
hafði verið safnað saman sást að
vandinn var umfangsmikill. Ferlið
er í sjálfu sér ekki ólíkt því sem
Umbjóðandi barnanna
„Börn fullyröa að lítil virðing sé borin fyrir þeim og ekki hlustaö á þeirra sjón-
armiö. Þetta viöhorf í garö barna er óþolandi, “ segir Þórhildur Líndal, um-
boösmaöur barna, meöal annars hér i viötaiinu.
Ágreiningur
Djúpstæður ágreiningur hefur
verið uppi milli Barnaverndar-
stofu og Umboðsmanns barna
um skeið, eins og DV hefur
greint frá. Síðustu atburðir vitna
um hann svo ekki verður um
villst. Umboðsmaður barna kem-
ur í fjölmiðla og segir að hópur
barna sé á vergangi og sofi jafn-
vel í bílum. Forstjóri Barna-
verndarstofu skrifar umboðs-
manni í kjölfarið og óskar eftir
upplýsingum um þessi börn. Um-
boðsmaður skrifar til baka og
gagnspyr forstjórann en svarar
engum spurningum. Forstjórinn
hyggst ekki svara því bréfi, enda
hafi umboðsmaður ekki valdboð
yflr Barnavemdarstofu. Umboðs-
maður og forstjórinn hafa ekki
getað gefið út sameiginlega nið-
urstöðu í þessu mikilvæga máli,
þar sem „samvinna" þeirra er
með þeim hætti sem að ofan
greinir.
gerst hefur nú varðandi heimilis-
lausu bömin.
Eftir blaðamannafundinn um ein-
elti í skólum fékk ég til dæmis mjög
sterk viðbrögð frá einstökum skóla-
mönnum sem könnuðust aUs ekki við
að þetta ætti sér stað. Framhald máls-
ins var svo að menntamálaráðherra
lét gera rannsókn á umfangi og eðli
þessara mála, sem var sú fyrsta sem
gerð var hér á landi. Þar kom skýrt
fram að einelti í skólum landsins er
alvarlegt vandamál sem nú er viður-
kennt og samstaða um að hvergi eigi
að líðast. Þá hefur menntamálaráð-
herra nýlega samþykkt tillögur starfs-
hóps um markvissar aðgerðir í þess-
um málum. Á þessu dæmi sést að ég
hef með virku sambandi við fólkið í
landinu komist að raun um hvernig
hlutirnir eru og getað brugðist við því
með viðeigandi hætti. Nefna mætti
íleiri dæmi um árangur sem náðst
hefur en þau er hægt að kynna sér í
ársskýrslu fyrir árið 1999, sem er að
fmna ásamt ýmsum öðrum fróðleik á
heimasíðu embættisins www.barn.is“
Brennandi í andanum
Fyrir þann sem gegnir embætti
Umboðsmanns barna er dýrmæt
reynsla og gott veganesti að vera for-
eldri. „Við hjónin höfum alið upp þrjá
syni og í gegnum þá hef ég kynnst af
eigin raun hvernig lífið gengur fyrir
sig hjá börnum og unglingum þessa
lands. Hvaða mál það eru sem brenna
á börnum og unglingum frá degi til
dags. í þessu embætti, sem ég gegni
nú, hef ég oft þurft að hugga brotnar
sálir, en að mínum dómi er meginmál-
ið að bera virðingu fyrir börnum sem
einstaklingum og þeirra viðhorfum.
Góðu heilli hefur þetta verið að breyt-
ast og ég hef tekið eftir því að meira
er um það nú en áður var að börn séu
höfð með í ráðum, til dæmis í skóla-
starfi, enda þótt inn í grunnskólalögin
vanti ákvæði sem gerir ráð fyrir
slíku."
Sem áður segir h’efur Þórhildur
Líndal gegnt starfl Umboðsmanns
barna frá því það var sett á laggirnar
fyrir rúmum sex árum. „Ég þurfti að
byrja alveg frá grunni, hafði í upphafi
ekkert að styðjast við nema lögin sem
embættið starfar eftir og út frá þeim
hef ég mótað og byggt upp starfsem-
ina. Auk mín starfa tveir fastráðnir
starfsmenn við embættið og hefur
þeim ekki fjölgað þrátt fyrir að um-
svifin hafi aukist til mikilla muna. Ég
er brennandi í andanum í þessu starfi
og sá eldur mun loga svo lengi sem ég
sé árangur af verkum mínum. Og sú
hefur svo sannarlega verið raunin síð-
ustu árin.“
-sbs
PARTNER
STEINSAGIR
Itextron I
RYAN
CUSHMAN
JACOBSEN
RANSOMES
SCHAEFER
5ími: 544
Dalvegur 16A • 201 Kópavogur • S: 544-4656 • F: 544-4657 • mhg@mhg.is
IEZGDI
IhmMHHIW |Æ
Brennur þér eitthvað á vörum?
Notkunarsvið: Varex inniheldur virka efniö
Aciclovir og er ætlað við áblæstri (frunsum).
Varúðarreglur: Lyfiö má ekki bera í augu.
Aukaverkanir: Geturvaldið roða, sviða og þurrki í húö.
Skammtastærðir handa börnum og fullorönum:
Við upphaf einkenna er lyfið borið á sýkt svæði
fimm sinnum á dag í 5-10 daga.
Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. 19.01.98
www.delta.is
Júnítilboð í apótekum
mMmammmmmmgmmssmMmmMMMmmsmmwmmMmmmtmmtmmmmsmmmmmsmmmmmmmmsmmmisam
- vinnur á frunsunni