Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Page 42
■* 50______ Tilvera LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 DV Sóðbú í Búrgund - T Beztu veitingastaðir Frakklands bera af erlendum eins og gull af eiri, enda tala Frakkar um kokka eins og aðrir Vesturlandabúar tala um frægð- arfólk. Hjarta franskrar matargerðar- listar hefur lengi slegið í Búrgund, þaðan sem nýklassíska byltingin sigr- aði Frakkland á áttunda áratugnum. I kjölfar vinnu í Lausanne fór ég viku- langt í minnisstæða pílagrímsferð milli góðbúa héraðsins í matargerðar- list árið 1986. Öryggi hjá Girardet Ferðin hófst raunar í nágrenni ; Lausanne í franska Sviss, þar sem Al- fred Girardet á glæsilegan veitingastað í gömlu ráðhúsi í Crissier. Ég man eft- ir hlýju snillingsins, sem gaf sér tíma til að ræða við mig um frábæran hum- ar með hvítri graslaukssósu. Löngu seinna naut ég að endurlifa þar hástig ■/irðulegrar matargerðai’listar. Nú hef- ur Rochat tekið við stjórnartaumun- um, en gæðin eru traust sem fyrr. Crissier (Sviss): Hotel de Ville, 1 rue d'Yverdon, sími: 21 634 0505, fax: 21 634 2464 llmur hjá Blanc Frá George Blanc man ég eftir mögnuðum ilmi blómagarðsins við ána Veyle, þar sem allt sameinaðist í meistaraverkum persónulegs matar- :’erðarstds, þar sem ilmur og bragð fengu að halda forræði sinu í litadýrð- nni. Hann kunni bezt allra að sam- ina tindrandi ferskt hráefni og hámá- kvæma eldamennsku. íjúklingalifur með svart- benja-ediks- sósu var liátindur píla- gríms- ferðar- innar. Vonnas: George Blanc, sími: 450 9090, fax: 47 450 0880 Sjarmi hjá Troisgros Frá nútímalegu veitingahúsi bræðr- anna og feðganna Troisgros andspæn- is jámbrautarstöðinni í Roanne man ég bezt eftir gamansamri og viðkunn- anlegri framgöngu annars bróðurins, Pierre, sem gekk milli borða og út- skýrði krabbasúpu með léttsýrðu grænmeti. Sonurinn Michel er nú orð- inn yfirkokkur staðarins og heldur fyrra gæðastaðli. Roanne: Troisgros, Place Gare, sími: 47 771 6697, fax: 47 770 3977 Hráefhi hjá Chapel All hafði sinn sérstaka keim í undirfógrum veitingasaln- um hjá Alain Chapel. Meira að segja brauð og smjör ilmuðu eins og franskt sumar. Hug- myndarík matreiðsla féll vel að heimsins fers- kasta hráefni, einkum saffrankryddaðri þykkvalúru. Nú hefur Philippe Jousse tekið við stjómartaumunum í Mioannay og stjömunum hjá Michelin hefur fækkað um eina. Mioannay: Alain Chapel, sími: 47 891 - 8202, fax: 47 891 8237 Bocuse kóngur Pílagrímsferðin endaði svo tveimur klössum neðar hjá Bocuse kóngi í út- hverfi Lyon, þar sem hann hefur neglt fimastórt málverk af sér utan á húsið og nokkur minni málverk af sér inn- andyra. Ég kom raunar til hans aftur fyrir tveimur árum. í bæði skiptin óð auglýsingakóngurinn útblásinn um sali. Maturinn var í hvomgt skiptið hug- myndaríkur eða minnisstæðm’, nema hvað ekkert svartsveppabragð var að ~ frægu svartsveppasúpunni í seinni heimsókninni. Gestir voru þá einkum fávist peningafólk og kokkar frá Nor- egi, enda skilst mér, að franskir mat- gæðingar hafi fyrir löngu afskrifað hinn sjálfhverfa kóng. Colbnges: Poul Bocuse, Pont de Collonges Nord, sími: 47 242 9090, fax: 17227 8587 Kóríander Kóríanderjurtin á sínar upphaflegu rætur við Miðjarðarhaf en er fyrir löngu orðin þekkt víða um heim. Hún er afar vinsæl í Indlandi og einnig stundum kölluð kinversk steinselja enda eru blöðin ekki ólík steinselju í útliti þótt bragðið sé allt annað. Af þeim er eilítið beiskur anískeimur og þau eru oft notuð fersk, til dæmis í kaldar sós- ur og ídýfur. Þau eru líka notuð i heitan mat og er þá gjarnan bætt út í við lok matreiðslunnar til að bragöið nái að halda sér. Heil lauf eru ákjósanleg til skreytingar, likt og stein- seljulaufin. Fersk lauf endast illa og henta ekki til þurrkun- ar en þau má hins vegar frysta. Kórí- anderfræin eru nokkuð ólík blöðunum á bragðið en þau eru vinsælt krydd að fornu og nýju. Koma meðal annars við sögu í Biblíunni og Rómverjar notuðu þau til að krydda með brauð. Fræin eru sæt- beisk og mild og þykja henta afar vel í austurlenska rétti. DV-MYNDIR: HILMAR ÞÓR George Holmes kann vel með krydd að fara. Ómissandi í indverska rétti - segir George Holmes, kokkur á Vegamótum „Kóríander er þjóðarkrydd í Ind- landi og ómissandi í flesta ind- verska rétti,“ segir George Holmes, kokkur á veitingahúsinu Vegamót- um, og bætir því við til fróðleiks að Indverjar rækti um 100 þúsund tonn af kóríander árlega. Kjúklingurinn sem hann matreiðir handa okkur er þakinn kóríander og smakkast frá- bærlega með hrísgrjónum og nan- brauði. George er frá Goa í Indlandi og þessi réttur hans heitir einfald- lega: Kjúklingur a la Goa 8 kjúklingabringur, marineraðar í eftirfarandi kryddi: 6 matsk. fersk kórí- anderblöð og stilkar sem búið er að mauka 6 stk. stór grænn chillipipar (ca 6 cm hver) svört piparkorn 2 msk. engifer og hvítlauksmauk 1 matsk. kóríander- korn 1 matsk. ind- verskt kúmen (ekki þetta sæta sem notað er í kringlur) 1 matsk. Tamarind pulp (fæst í austurlenskum búðum) gróft salt Chillipiparinn er maukaður og kryddkornin öll steytt. Allt hrært vel saman og nuddað vel á kjúklingabringurnar. Látið standa yfir nótt. Sósan 75 ml smjör eða sólblómaolía 2 meðalstórir laukar 1 stór grænn chUlipipar 3 matsk. maukuð kóríander- lauf 1/4 matsk. kúmen og turmer- ickrydd 1 cm ferskur engifer 250 g kókosmjólk frá Thai Choice (fæst í austurlenskum búðum) salt Engifer, chillipipar og laukur er maukað í matvinnsluvél. Smjörið eða olían sett á pönnu og allt krydd- ið og grænmetið steikt í olíunni í 5 mínútur. Kókosmjólkinni bætt við, allt látið malla við mjög hægan eld í 10 min- útur. Marineraður kjúklingurinn settur út í og áfram er sósan látin sjóða hægt i 10 mínútur til viðbótar. Borið fram með karríhrísgrjón- um og nan-brauði. m andermofar Kjúklingur a la Goa með hrís- grjónum og Nan brauöi. Nan-brauð 1 kg hveiti 16 g smjör 2 msk. olía 2 egg 1 tesk. þurrger 1 msk. salt 1 msk. sykur 450 ml volgt vatn Öllu hrært saman - hveitinu blandað í síðast. Flatt út í þunnar kökur sem bakaðar eru á þurri pönnu. Lambagrýta með kóríander 5 matskeiðar af olíu eru hitað- ar á pönnu. 3 smáttskornir lauk- ar settir út í og 3 matskeiðar af engifer og hvítlauksmauki. Steikt létt í 1 mínútu. 5 matsk. af maukuðum kóríanderblöðum og stilkum og 2 matskeiðar af kóríanderfræjum, steyttum, ásamt 1 matsk. af kúmenfræjum (indverskum), steyttum, og 1 matsk. kanil bætt út í og soðið í 5 mínútur við vægan hita. Hálft kíló magurt lambakjöt er sett út í sósuna og látið malla þar til kjötið er soðið. 4 maukaðir tómatar og 100 ml jógúrt án bragðefna sett út 1 og soðið áfram við mjög hægan eld þar til allt er vel soðið. Saltað ef þurfa þykir. Góð köld sósa 1 dós jógúrt er hrærð og saman við hana er blandað smátt niður- skornum kóríanderlaufum og myntulaufum. Marineraðar rækjur Einn bolli kóríanderlauf og stilkar er maukað og hálfur bolli myntulauf líka, 1 matskeið hvitlauksmauk og 2 mat- skeiðar af engiferi bætt út í hræruna, 1 matskeið af hverju, kóríander- fræjum, steyttum, kanil- dufti, chHlidufti og fennel- dufti bætt í. 1,6 cm fersk- ur rauður chillipipar maukað- ur og pínulitið gróft salt sett út i. Þetta er allt hrært saman, rækjurnar lagðar í maukið og látnar liggja í því í 2-3 tíma. Þá eru 100 g af olíu hituð á pönnu, 2 maukuðum laukum bætt í og soðið. Næst er 4 mauk- uðum tómötum bætt á pönnuna og 1 cm smátt skornum rauðum chillipipar. Marineraðar rækj- umar settar á pönnuna og soðn- ar við mikinn hita smástund. 3 matsk. tamarindmauki er bætt í og soðið áfram í 1 mínútu. Salt- að eftir þörfum og vatni bætt í ef þurfa þykir. Rækjurnar eru afar góðar með fersku salati og nanbrauði. Tómatsalsa Einn laukur, fjórar matskeið- ar kóríanderlauf, tveir tómatar, afhýddir, eitt hvítlauksrif og einn chillipipar, kjarnhreinsað- ur, er maukað í matvinnsluvél. Saman við hræruna er bætt hálfri teskeið af sítrónusafa og fjórðungi úr teskeið af salti og tabasco-sósu. Þá er sósan tilbúin og hentar bæði vel með kjöti og fiski, auk þess sem hún er upp- lögð ídýfa. Jónas Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.