Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2001, Blaðsíða 8
Viðskipti___________________________________________
Umsjón: Viöskiptablaðíö ^
Launahækkanir á Islandi
úr takti við önnur lönd
- undirrót viðskiptahallans, gengissigsins og verðbólgunnar
Launaþróun i iðnaði
i nokkrum löndum
1) ísland: Heildarniöurstaöa
Kjararannsóknarnefndar
Heimildir:
DA Lönstatistik, nr. 1, juni 2002
Kjararannsóknarnefnd, júni_2001.
Hagstofa íslands
Launahækkanir hér á landi hafa
verið algjörlega úr takti við flest
þau lönd sem við berum okkur
saman við milli þessa árs og síð-
asta árs. Þetta er þó ekki eina
tímabilið þar sem launahækkanir
á íslandi hafa verið ríflegar en
laun hafa hækkað mjög mikið frá
árinu 1996 þegar laun tóku kipp frá
því sem áður hafði verið á tíunda
áratugnum og byrjuðu að hækka
mjög mikið. í nýrri skýrslu sem
Seðlabankinn gaf út sökum þess að
verðbólgan rauf 12 mánaða verð-
bólgumarkmið bankans kom fram
að þessar launahækkanir, sem
hafa verið miklu ríflegri en launa-
hækkanir á Norðurlöndunum,
Evrópu og Bandaríkjunum, hafa
átt hvað mestan þátt í þeim við-
skiptahalla, gengissigi og verð-
bólgu sem landinn hefur verið að
horfa upp á síðustu mánuði.
Samtök atvinnulífsins í Dan-
mörku sendu nýlega frá sér yfirlit
yfir launaþróun í nokkrum ríkjum
frá 1. ársfjórðungi siðasta árs til 1.
ársfjórðungs þessa árs. Löndin í
samanburðinum eru 11 mikilvæg-
ustu viðskiptalönd Danmerkur.
Launabreytingar í þessum ríkjum
voru að meðaltali um 3% á þessu
tímabili sem er svipuð niðurstaöa
og ársfjórðunganna á undan.
Fram kemur í frétt frá Samtök-
um atvinnulífsins að launabreyt-
ingar voru mestar í Finnlandi, eða
um 5%, og hafa vaxið töluvert frá
árunum á undan þegar þær voru á
bilinu 3-4%. Frakkland kemur þar
fast á eftir meö 4,8%. í Noregi og
Hollandi hafa launabreytingar
einnig farið vaxandi. Launabreyt-
ingamar fóru hins vegar minnk-
andi í flestum stóru ríkjanna, þ.e.
Bandaríkjunum, Þýskalandi, Bret-
landi og Japan.
í meðfylgjandi súluriti hefur
launabreytingum á íslandi verið
bætt við, skv. niðurstöðum Kjara-
rannsóknamefndar. Þar kemur
berlega í ljós að ísland sker sig
verulega úr með margfalt meiri
launabreytingu á þessu tímabili en
að meðaltali í samanburðarríkjun-
um. Eins og áður hefur komið
fram á vef SA er meginskýringin á
óvenjumikilli hækkun á íslandi á
þessum tíma sú að tvær hækkanir
vegna kjarasamninga áttu sér stað
á umræddu tímabili. Því má búast
við að þessi munur minnki veru-
lega í næstu mælingum. Á hinn
bóginn er það staðreynd að launa-
breytingar, skv. mælingum Kjara-
rannsóknarnefndar, hafa verið á
bilinu 6-9% á síðustu árum eða
tvöfalt til þrefalt meiri en að jafn-
aði í helstu viðskiptalöndum.
Á myndinni er einnig sýnd
verðbólga á tímabilinu mars 2000
til mars 2001 skv. samræmdri
neysluverðsvísitölu. í löndunum
með mestu launabreytingarnar
(utan íslands), Finnlandi, Frakk-
landi og Bretlandi, óx kaupmáttur
launa umtalsvert, og nokkuð í
Danmörku og Noregi. í öðrum
löndum stóð kaupmáttur í stað eða
minnkaði örlítið. Vaxandi alþjóö-
leg verðbólga undanfama mánuði
hefur rýrt kaupmátt bæði austan
hafs og vestan. Sem fyrr sker Is-
land sig hins vegar úr í saman-
burðinum en hérlendis óx kaup-
máttur langt umfram verðlagsþró-
un á þessu tímabili, eða um rúm-
lega 9% sem er þrefalt meiri aukn-
ing en þar sem hún er mest í sam-
anburðarlöndunum.
Skýrr gerist
Workplace-
■ ■ Æ" J* ■■■
Workplace Systems Plc. í Bret-
landi hefur gert samning við Skýrr
hf. um sölu og dreifingu á Work-
place. Workplace er háþróað kerfi
fyrir stærri fyrirtæki og stofnanir
sem heldur utan um tímaskráning-
ar starfsmanna, viðveru, vaktaáætl-
anir og skipulagningu vakta.
I frétt frá Skýrr hf. kemur fram
að kerfið er mjög öflugt og hrað-
virkt og byggir á lausnum frá
Oracle með Oracle-gagnagrunn sem
undirlag. Workplace er afar sveigj-
anlegt kerfi sem setja má upp bæði
sem sjálfstætt kerfi eða sem viðbót
við Oracle e-Business Suite-starfs-
manna- og launakerfi ásamt Oracle-
flárhagskerfinu.
Workplace er veflægt kerfi og
einn helsti styrkleiki þess felst í
hversu notendavænt það er. Lögð er
rík áhersla á sjálfsafgreiðslu,
þannig að bæði yfirmenn og al-
mennir starfsmenn geti notað öflug
skýrslugerðartól til aö nálgast þær
upplýsingar sem þeir hafa aðgang
að.
í kerfinu er lögð áhersla á skil-
virkni upplýsinga (hraða, bestun
lausna, bæði með tilliti til vinnuafls
og þjónustu), sveigjanlegan vinnu-
tíma, stuðning við opinberar laga-
setningar (t.d. tilskipanir Evrópu-
sambandsins) og skipulagningu á
starfsemi með tilliti til vinnuafls.
Auk þess er hægt að tengja skipu-
lagningu á starfsemi við annan bún-
að fyrirtækja og stofnana, svo sem
tæki og húsnæði.
, i'j’ki jjérvænt um cinlivcm
SjfftaþiiltiÍKlihunitl
'É;.'(ÍW pwáir AJuííum áffnps!
Flugleiðir selja hlutabréf í France
Telecom og flugvélavarahluti
- 515 milljón króna söluhagnaður
Flugleiöir selja
Flugleiöir hafa gengiö frá sölu flugvélavarahluta meö 230 milljóna kröna sölu-
hagnaöi. Fyrst og fremst er um aö ræöa sölu á hreyfli í Boeing 737-400.
Hlutabréf Flugleiða í flarskipta-
fyrirtækinu France Telecom hafa
verið seld með 285 milljóna króna
hagnaði. Sala Flugleiðabréfanna í
France Telecom var hluti af sölu á
hlutabréfum fleiri flugfélaga í fyrir-
tækinu. Flugleiðir eignuðust þessi
hlutabréf þegar France Telecom
keypti flarskiptafyrirtækið Equant
sem Flugleiðir áttu hlut í. France
Telecom greiddi Flugleiðum og öðr-
um flugfélögum fyrir Equant með
eigin bréfum.
Fjarskiptafyrirtækið Equant var
dótturfyrirtæki SITA, flarskiptafyr-
irtækis flugfélaga, og flugfélög eign-
uðust hlut í Equant í hlutfalli við
viðskipti sín við SITA á tilteknu
árabili.
Þá hafa Flugleiðir gengið frá sölu
flugvélavarahluta með 230 milljóna
króna söluhagnaði. Fyrst og fremst
er um að ræða sölu á hreyfli í
Boeing 737-400-flugvél. Flugleiðir
hafa fækkað í Boeing 737-flota sín-
um undanfarin ár og á næsta ári
fara tvær síðustu vélar félagsins
þeirrar gerðar úr flotanum. Því hef-
ur verið unnið að sölu hluta af vara-
hlutalager þessarar flugvélagerðar
þar sem verðmestu hlutimir eru
varahreyflar.
Mikil aukning húsbréfaútgáfu í júní
Heildarflárhæð sam-
þykktra lána í húsbréfa-
kerfinu í júní var 2.777
milljónir króna sem er
35,7% aukning frá júní í
fyrra. Fyrstu sex mánuði
ársins er heildarflárhæð
samþykktra lána nánast
sú sama og á fyrri hluta
síðasta árs.
Heildarflárhæð sam-
þykktra lána hækkar mik-
ið i júní þrátt fyrir að
flöldi innkominna um-
sókna um húsbréfalán
fækki um 8,6% frá þvi i júní í fyrra.
Áætlað markaðsverð húsbréfa,
sem gert er ráð fyrir að gefin verði
út í tengslum viö þessi lán, er 2.488
milljónir í júní samanborið við 1.834
milljónir í júní í fyrra. Það jafngild-
ir einnig 35,7% aukningu á milli
ára. Áætlað markaðsverð útgefinna
húsbréfa fyrstu sex mánuði ársins
er 13.317 milljónir króna samanbor-
ið við 13.832 milljónir á fyrri helm-
ingi síðasta árs.
Þróunin vonbrigði
Þróunin í húsbréfaútgáfu síðustu
tvo mánuði verður að teljast nokkur
vonbrigði en aukin ásókn í húsbréf
gefur til kynna að ekki sé að draga
úr umsvifum í byggingafram-
kvæmdum. Framan af ári var
samdráttur í heildarflárhæð
samþykktra húsbréfalána og
var um að ræða yfir 20% sam-
drátt bæði í mars og apríl sl.
frá sömu mánuðum árið áður. í
maí reyndist heildarfiárhæð
samþykktra húsbréfalána hins
vegar 13,9% meiri en í mai í
fyrra og eins og áður segir er
aukningin í júni 35,7%.
Á heildina litið er heildar-
flárhæð samþykktra húsbréfa-
lána það sem af er ári nánast sú
sama og á fyrstu sex mánuðum síð-
asta árs en áætlað markaðsverð er
örlítið lægra vegna aukinna affalla
af húsbréfum. Athygli vekur aftur á
móti að flöldi innkominna umsókna
um húsbréfalán dregst saman um
tæp 8% sem gefur til kynna að hver
lántakandi sé að fá hærra húsbréfa-
lán en í fyrra að jafnaði.
ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2001
DV
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI 5000 m.kr.
Hlutabréf 70 m.kr.
Húsbréf 2900 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
© Baugur 32 m.kr.
© íslandsbanki 7 m.kr.
© Flugleiðir 4 m.kr.
MESTA HÆKKUN
© Össur 1,1%
o
o
MESTA UEKKUN
© Flugleiðir 4,1%
© Íslandssími 3,6%
© Pharmaco 1,8%
ÚRVALSVÍSITALAN 1042 stig
- Breyting © 0,03 %
T-Mobile ætlar
að vaxa og
lækka verð
Þýska far-
símafyrirtækið
T-Mobile, sem
er dótturfélag
Deutsche Tel-
ekom, ætlar að
lækka verð og
halda áfram að
stækka með
kaupum á öðr-
um farsímafyr-
irtækjum. Með því vonast stjóm-
endur T-Mobile til að geta ógnað yf-
irburðastöðu breska farsímafélags-
ins Vodafone á Evrópumarkaði.
Rene Obermann, sem stýrir
rekstri T-Mobile í Evrópu, segir að
ástæða sé fyrir T-Mobile að hafa
áhyggjur af langtíma-samkeppnis-
stöðu gagnvart Vodafone. Til þess
að treysta hana sé nauðsynlegt að
halda áfram á þeirri braut að
stækka T-Mobile og að lækka verð.
Þessi stefna kemur nokkuð á
óvart því á fiármálamörkuðum
hafði almennt verið búist við að T-
Mobile myndi draga úr vexti en ein-
beita sér að því að ná tökum á nú-
verandi starfsemi í kjölfar 25 millj-
arða dollara yfirtöku á bandaríska
farsímafélaginu VoiceStream.
Hægir á hag-
vexti í Kína
Hægt hefur á hagvexti í Kína á
öðrum ársflórðungi þar sem dregið
hefur úr eftirspum eftir útflutningi
alþýðulýðveldisins. Talið er að verg
landsframleiðsla hafi aukist um
7,8% á öðrum ársflórðungi á árs-
grundvelli. Hagvöxtur á fyrsta árs-
flórðungi var 8,1%.
Útflutningur dróst saman í júní í
fyrsta skiptið í tvö ár og var undir-
rótin að því minnkandi eftirspurn í
Bandaríkjunum og Japan. Á fyrri
helmingi ársins jókst útflutningur
um 8,8% samanborið við 38,3%
aukningu á sama tímabili árið 2000.
Útflutningur nam alls einum flórða
af landsframleiðslu Kína í fyrra.
17.07.2001 kl. 9.1S
KAUP SALA
WlfiPollar 102,690 103,210
fesÍSPund 143,250 143,980
O±0Kan. dollar 66,850 67,260
BSpönsk kr. 11,7380 11,8030 i
i-t—INorsk kr 10,9550 11,0150 ;
SSsænsk kr. 9,5050 9,5570
H—^FI. mark 14,6941 14,7824
ÍFra. franki 13,3191 13,3991 :
(_J Belg. franki 2,1658 2,1788
Q! Sviss. franki 57,7700 58,0900 |
QhoII. gyllini 39,6456 39,8838 ^
”ÍÞýskt mark 44,6702 44,9386
jit. líra 0,04512 0,04539
(£jAust. sch. 6,3492 6,3874
’ j Port. escudo 0,4358 0,4384
14-, ,Spá. peseti 0,5251 0,5282
; i_*Jjap. yen 0,81770 0,82260 i
|_Vjírskt pund 110,933 111,600
SDR 127,7700 128,5300 :
EUecu 87,3673 87,8923 i