Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Side 2
2
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001
DV
Stuttar fréttir
Stjóm Endurbótasjóðs menningar-
bygginga hefur neitað DV um aðgang
að fundargerðum sínum. í skriflegu
svari er því lýst að vegna þeirrar yfir-
lýsingar rikissaksóknara að einungis
sé tímaspursmál hvenær opinber
rannsókn á málum, tengdum bygging-
arnefnd Þjóðleikhússins, sé beiðni DV
hafnað.
í svarbréfinu er reifað að stjórnin
telji miklar líkur á því að við rann-
sóknina verði óskað eftir þeim gögn-
um Endurbótasjóðs sem varða fram-
kvæmdir við Þjóðleikhúsið.
Blaðið óskaði eftir fundargeröunum
Arni Johnsen. Jón Helgason.
í tilefni þess að Björn Bjarnason
menntamálaráðherra staðfesti í DV-yf-
irheyrslu að Árni hefði mætt á fund
stjómar sjóðsins. Ekki hefur verið
upplýst af hvaða tilefni hann mætti.
Jón Helgason, stjómarmaður i End-
urbótasjóði og fyrrverandi ráðherra,
staðfesti við DV í síðustu viku að Ámi
hefði verið kallaður fyrir nefndina:
„Við kölluðum Áma á okkar fund til
að fá skýringar á ýmsu sem okkur
þótti óljóst. Hann gaf okkur fullnægj-
andi skýringar." Endurbótasjóður
menningarbygginga fjármagnar allt
viðhald á Þjóðleikhúsinu.
DV mun strax eftir helgi kæra synj-
un stjórnar Endurbótasjóðs til úr-
skurðamefndar um upplýsingamál.
-rt/EIR
Blaðið í dag
Fréttir
Gríðarlegur ótti á Spánarströndum:
Tvö hundruð íslend-
Niðurstöður Alþjóða hvalveiðiráðsins:
Virða hvorki lög né rétt
- segir Konráð Eggertsson hvalveiðimaður
- segir
„Það er ósköp lítið um það að segja
sem hefur verið að gerast á fundum
hvalveiðiráðsins, það er alveg eins og
ég átti von á. Ég hef setið marga fundi
hjá þessu liði en þetta er lið sem virð-
ir engin lög og engan rétt annarra. Ég
er reyndar hissa á einum hlut en það
er hversu margar þjóðir vora þó til-
búnar að þessu sinni til að fara að lög-
um,“ segir Konráð Eggertsson hvala-
Eggertsson
skytta um þá ákvörðun Alþjóða hval-
veiðiráðsins að framlengja bann við
hvalveiðum í atvinnuskyni um eitt ár.
En hvað segir Konráð um þau við-
brögð íslenskra ráðamanna að ekki
verði hafnar hvalveiðar að sinni og
Davíð Oddsson segir að það þurfi að
undirbúa málið betur áður en veiðar
verði hafnar.
„Auðvitað er löngu kominn tími á
að hefja veiðarnar að nýju og við átt-
um reyndar aldrei að hætta þeim.
Þetta er eitt allsherjar helvítis klúður,
bæði hjá hvalveiðiráðinu og hjá okkur
hér heima. Það gengur ekkert hjá okk-
ur, það gerist ekkert og þetta em enda-
laus vonbrigði."
Konráð gefur ekki mikið fyrir þá
sem skipa Alþjóða hvalveiðiráðið.
„Meirihlutinn af þessu er kolruglað lið
sem hlustar ekki á
nein rök, hvorki
frá vísindamönn-
um né öðrum,
heldur fer bara
sínu fram hvað
sem tautar. Von-
brigðin eru mikil,
bæði með þetta lið
Konráö °g með okkar
Eggertsson ráðamenn, og ég
„Þetta er held að það sé best
kolruglað liö. “ að vera ekki að
spá neinu um
framvindu mála, það þýðir ekki neitt,“
segir Konráð. -gk
DV neitað um fundargerðir stjórnar Endurbótasjóðs menningarbygginga:
Stjórn sjóðsins ber við yfirvofandi rannsókn
- Árni Johnsen var kallaður fyrir stjórn til að skýra „ýmislegt óljóst“
Ódýrara bensín
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
telur að olíufélögin geti lækkað
bensinverð um 5 krónur á lítrann
um næstu mánaðamót. Forsvars-
menn olíufélaganna segja að engar
ákvarðanir hafi verið teknar um
lækkun en telja að forsendur fyrir
því að lækka bensínverð séu fyrir
hendi.
Þrefalt hjá R-listanum
Júlíus Víflll Ingv-
arsson, borgarfull-
trúi Sjálfstæðis-
flokksins, segir að
fjármagnskostnað-
ur á valdatíma
Reykjavíkurlistans
hafi rúmlega þre-
faldast.
80 sagt upp
Með samþykkt hluthafafundar
Aco í gærmorgun á samruna Aco og
Tæknivals er lokið lögformlegum
aðdraganda sameiningar fyrirtækj-
anna. Um 80 starfsmönnum verður
sagt upp störfum.
LO þús. á mánuöi
Samkvæmt nýjum kjarasamningi
m Félag íslenskra náttúrufræð-
ga undirritaði á fimmtudag eru
gmarkslaun um 110 þúsund krón-
■ og hámarkslaun um 380 þúsund
ónur. Einnig var samið um að ár-
igurstengja laun.
Geir vill lífeyri í ál
Geir H. Haarde
fiármálaráðherra tel-
ur það mikinn
ábyrgðarhluta að líf-
eyrissjóður starfs-
manna ríkisins hafni
því að kanna kosti
þess að fjárfesta í ál-
veri í Reyðarfirði.
Sumarhús merkt
Eigendur sumarhúsa geta nú
fengið öryggisnúmer sem segir til
um hvar hús þeirra eru. Ef óhapp
verður er hægt að gefa upp númer-
ið sem auðveldar lögreglu og starfs-
mönnum Neyðarlínunnar að finna
staðinn.
affallsvatni
Akureyringa
Beitarfiskur í
Útgerðarfélag
áformar, i samvinnu við Iðntækni-
stofnun, að rækta um 5.000 tonn af
beitarfiski á Húsavík og nota til
þess heitt affallsvatn frá Orkustöð
Húsavíkur.
Hjúkkur semja
Samninganefndir Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga og ríkis-
ins hafa undirritað nýjan kjara-
samning. Hjúkrunarfræðingar
felldu fyrir skömmu kjarasamning
sem skrifað haföi verið undir í júní.
Landmælingar slá í gegn
Landmælingar Islands hlutu ný-
verið alþjóðleg verðlaun á ráðstefnu
um landfræðileg upplýsingakerfi og
kortagerð sem haldin er árlega í
San Diego í Kaliforníu. -EIB
Barnagæla og
feimin fram-
sóknarstúlka
j stað ungfrú
ísland
Ný 7-lína
BMW
DV-bílar
Jafnar
Schumacher
met Prosts?
Formúlan
Þjóðleikhúsið
Stjórr Endurbótasjóðs neitar DV um fund-
argerðir um málefni Þjóðleikhússins.
Sigur í Bonn
Sérákvæði íslendinga var sam-
þykkt á loftlagsráðstefnunni í Bonn
í gær. Valgerður Sverrisdóttir iðn-
aðarráðherra telur þetta vera merk-
isáfanga í sögu íslendinga.
Vídeó-myndir
Fjölmargar
kvartanir hafa
borist Persónu-
vernd að undan-
förnu vegna mynda-
töku tveggja mynd-
bandaleiga af við-
skiptavinum sín-
um. Forstjóri Persónuverndar segir
að sömu reglur eigi að gilda um
myndefni og persónuupplýsingar.
Þrígift
húsmóðir
verður forseti
fréttaljós
Rignlngarhelgi í
sumarhúsi
Hryðjuverk ETA
Lögregla rannsakar vettvang sprengjuárásar basknesku hryðjuverkasamtakanna ETA í Madrid fyrr í mánuðinum.
Samtökin hafa ákveðiö aö beina árásum sínum á vinsæla ferðamannastaði sem íslendingar sækja gjarnan.
stað sem sprengjan sprakk. Það er
afar óhuggulegt að búa við þetta og ég
heyrði úti á flugvelli að fjöldi ferða-
manna frá hinum ýmsu löndum
hefðu afpantað ferðir hingað. Við höf-
um verið laus við skæruhernað ETA
á þessu svæði og vonum innilega að
bæjarbúar verði ekki fyrir þessu aft-
ur,“ segir Smári og bætir við að bær-
inn Torrevieja sé að öðru leyti para-
dís á jörð. „Hér hefur verið gott að
búa og við hjónin erum svo sannar-
lega ekki á leiðinni heim,“ segir
Smári Matthíasson. -aþ
Einelti í
hvalveiðiráði
Eldgamlar
krossgátur
„Það greip um sig gríðarlegur ótti í
bænum eftir sprenginguna. Fólk
fyllist óhug við þá tilhugsun að ETA
sé á þessu svæði sem hingað til hefur
verið laust við
átök skæruliða.
Þessi sprengja var
náttúrlega slysa-
sprengja en það er
að heyra á mörg-
um að fólk sé
þakklátt fyrir að
hún skyldi
springa í höndum
þess sem ætlaði
að beita henni
gegn öðrum,“ segir Smári Matthías-
son, íbúi í bænum Torrevieja sem er
skammt frá borginni Alicante á Mið-
jarðarhafsströnd Spánar.
Um tvö hundruð íslendingar eyða
sumarleyfinu í Torrevieja um þessar
mundir. Að sögn Smára búa íslend-
ingamir í sumarhúsum vítt og breitt
um bæinn. Síðastliðinn þriðjudag
sprengdi kona sjálfa sig upp á heimili
sínu í bænum. Talið er víst að hún til-
heyri basknesku hryðjuverkasamtök-
unum ETA og sprengingin hafi orðið
fyrir slysni. Sjö manns, þar af fjögur
börn, slösuðust í sprengingunni og
feyktust glerbrot og líkamsleifar kon-
unnar í nærliggjandi sundlaug.
Smári segir ferðalanga alla jafna
ekki fylgjast grannt með fréttum en
fregnir af sprengingunni hafi borist
hratt út. „Ég varð ekki sjálfur var við
sprenginguna en fylgist alltaf grannt
með fréttum. Þónokkur fiöldi íslend-
inga dvelur í íbúðum nálægt þeim
Smári
Matthíasson.
ingar í ETA-hryllingi