Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Blaðsíða 21
21 LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001 X>V__________________________________________________________________________________________________Helgarblað margir háttsettir meðlimir flokksins sem stunda æflngamar. Falun Gong er ekki stjórnmálaafl heldur mannræktarhreyfing og póli- tískar skoðanir fólks eru einkamál hvers og eins, þannig að að stjómin hefur ekkert að hræðast." Ofsóknir Samkvæmt upplýsingum sem er að finna á heimasíðunni www.falinin- fo.net skipaði Jiang Zemin forseti svo fyrir að Falun Gong skyldi vera útrýmt í Kína fyrir 1. október árið 2000. Það tókst ekki. Þúsundir iðkenda héldu áfram að mæta á Torg hins himneska friðar og mótmæla banni stjómarinnar á friðsamlegan hátt. Frá þvi að samtökin voru bönnuð 22. júlí 1999 hafa rúmlega tvö hundmð og flmmtíu meðlimir Falun Gong látist af völdum pyntinga í fangelsi. Meira en þúsund manns hafa verið dæmdir í allt að 18 ára fangelsi eða lokaðir inni á geðveikrahælum og rúmlega tíu þús- und sendir í endurhæflngu á vegum flokksins. Ennfremur segir að kínverska stjómin dreifi röngum upplýsingum um iðkendur Falun Gong og að stuðn- ingsmenn þeirra í Evrópu hafl orðið fyrir óþægindum og jafnvel verið hótað öllu illu af útsendurum stjórnarinnar í Peking. Meölimir Falun Gong fremja ekki sjálfsmorð „Það urðu margir hissa þegar stjóm- in í Kína hélt því fram að iðkendur Falun Gong hefðu framið fjöldasjálfsmorð í fangelsi. Þetta stenst ekki þvi ein af grunnhugmyndum Falun Gong er að taka ekki líf, hvorki sitt né annarra. Á blaðamannafundi í tengslum viö atburðinn var talsmaður stjómarinn- ar spurður hvemig yfir- völd gætu haldið því fram að saklaust fólk sem væri pyntað og drepið í fangelsi hefði framið sjálfsmorð. Svarið sem fékkst var á þá leið að stjómin hótaði fóngunum lífláti ef þeir skrifuðu ekki undir yfir- lýsingu sem fordæmdi Falun Gong. Ef þeir neita áfram að skrifa undir jafn- gildir það sjálfsmorði því þeir vita að þeir verða drepnir." Námskeið í Hljómskálagaröinum Lilian Staf mun, ásamt fleiri kennurum, verða með kynningamámskeið á aðferðum og heimspeki Falun Gong í Hljómskála- garðinum, undir styttunni af Jónasi Hallgrímssyni, klukkan 18:00 í dag. Lilian verður sjálf með svipað námskeið á sama stað og tíma 31. júlí. -Kip t>. ancNIUNli JIAUHI FA Þessi æfing eykur aft og styrkir „gong“ orku. Iðk- endur virkja Falun með búddískum handahreyf- ingu. Mjög mikil orka safnast í kringu fólk á með- an það gerir þessa æfingu. Henni var lengi haldið leyndri fyrir almenningi. Falun Gong bannað í Kína: Hættulegur sér- trúarsöfnuður Kínversk stjórnvöld bönnuðu starfssemi Falun Gong í Kína 22. júlí 1999 og sökuði Li Hongzhi, stofnanda samtakanna, um að ljúga að almenningi og grafa und- an stjórninni. í yfirlýsingu stjórn- arinnar var sagt að samtökin væru bönnuð vegna þess að kín- versk alþýða krefðist þess. Gervivísindi Stjórnvöld hófu snemma af- skipti af Li Hongzhi og Falun Gong. Árið 1996 birti Guangming Daiiy, eitt stærsta dagblað í Kína, langa grein þar sem bók Li, Zhu- an Falun, var fordæmd sem þvæla og gervivísindi. I apríl tveimur árum seinna var greint frá þvi í fjölmiðlum í Kina að nokkrir meðlimir Falun Gong hefðu látist eftir að þeir neituðu læknisaðstoð af trúarlegum ástæðum og mánuði síðar var sagt frá læknisnema sem lamast við iðkun Falun Gong. „The Killer Cult“ Samkvæmt skilgreiningu stjóm- valda í Kína er Falun Gong hættu- legur sértrúarsöfnuður sem stefnir lífi og heilsu meðlima sinna í hættu og aö Li Hongzhi hafi ein- ungis áhuga á að hagnast sem mest á samtökunum til að geta lifað rík- mannlegu lífi það sem eftir er æv- innar. í sendiráðum Kína um allan heim er hægt að nálgast upplýsing- ar um afstöðu stjórnarinnar til samtakanna. Stjómvöld hafa gefið út fjölda bæklinga og að minnsta kosti tvo mynddiska sem fjalla um Falun Gong. Á diskunum, sem því miður eru á kínversku og nefnast „Falun Gong - The Killer Cult“ og „The Lesson And Price of Evil Cults" eru myndir sem sýna Li Hongzhi „lækna“ safnaðarmeðlimi með handayfirlagningu og trúar- hita. í framhaldi af því eru viðtöl viö fársjúkt fólk sem hefur yfirgef- iö samtökin og leitaö sér lækninga á sjúkrahúsi. Diskarnir sýna einnig myndbrot þar sem hermenn berjast við að slökkva eld á fólki sem kveikti í sér á Torgi hins himneska friðar til að mótmæla banni stjórnarinnar á Falun Gong. Þar má einnig sjá hræðilega brunnin lík sjálfsmorðssveita Falun Gong. Stjórnvöldum er alvara Kínversk stjómvöld hika ekki við að kalla Falun Gong sértrúar- söfnuð og líkja söfnuðinum við fylgjendur Davids Koresh í Waco og Aum í Japan sem olli dauða fjölda saklausra borgara með því að sleppa saríngasi í neðanjarðar- kerfi Tokyo-borgar fyrir nokkrum árum. Aðgerðir kínverskra stjórnvalda sýna ótvírætt að þau taka Falun Gong alvarlega, hvort sem það stafar af umhyggju fyrir velferð fólksins eða einhverri annarri ástæðu. -Kip Amnesty International: Ofsóknir gegn Falun Gong Að sögn Jóhönnu K. Eyjólfsdótt- Kínversk ur, forstöðumanns íslandsdeildar stjórnvöld Amnesty International, hafa með- hafa hert að- limir Falun Gong verið handteknir, gerðir gegn hlotið óréttláta dómsmeðferð og ver- Falun Gong ið fangelsaðir og pyntaðir af stjórn- og eru hundr- völdum í viðleitni þeirra til að uð meðlima í stööva starfsemi samtakanna. endurhæf- Kínversk stjórnvöld bönnuðu ingu um óá- Falun Gong í Kína í júlí 1999 og er kveðinn tíma talið að 93 iðkendur hafi látist í ásamt nokkur fangelsi. Sum dauðsföllin eru rakin hundruö þús- til sjálfsmorða en önnur eru talin und öðrum stafa af meiðslum sem fangarnir landsmönn- hlutu þegar matur var neyddur ofan um. í þá. Flest eru þó rakin til pyntinga. -Kip Torg hins himneska frlðar Stór hóþur iökenda Falun Gong var handtekinn á Torgi hins himneska friðar 1. janúar 2001. Sérstaklega snyrtilegt Sigrún Jóhannsdóttir og Heiöar Alexandersson að Englavegi 71 á Selfossi fengu viðurkenningu fyrir sérstaklega snyrtilegan garð. Það sem vekur ekki síst athugli er baklóðin sem er búið að ieggja mikla vinnu í. Skrautblómin sól- vermd í hlýjum garði - fallegustu garðar á Suðurlandi verðlaunaðir. Það hefur stundum verið haft á orði að á Selfossi sé einhver falleg- asti og gróðursælasti bær landsins - og sagt hefur verið að þar fari fólk í gróðurstörfin áður en það flytur inn í nýbyggð hús sín. í Sveitarfélaginu Árborg - sem Selfoss er nú orðinn hluti af - hefur til fjölda ára tíðkast að velja á sumri hverju fallegustu garðana og veita eigendum þehra. viðurkenningu. Fjölmargar ábendingar bárust um- hverfisnefnd sveitarfélags- ins þegar skera átti úr um fallegustu garðana að þessu sinni, enda eru víða „... skrautleg suðræn blóm, / sólvermd í hlýjum garði“ ,eins og Jón Helgason yrkir í Áföngum. Niðurstaðan varð loks sú að þrír garðar á Selfossi fengu viðurkenn- ingu í ár og einn á Stokks- eyri og annar á Eyrar- bakka. Afreksvöllur - en nú unaðsreitur Meðal þeirra i Árborg sem fengu viðurkenningu fyrir fallegan heim- ilisgarð voru hjónin Hafsteinn Þor- valdsson og Ragnhildur Ingvarsdótt- ir sem búa að Engjavegi 28 á Sel- fossi. „Við höfum ekki lagt miklar rækt við garðyrkjustörfin fyrr en nú á allra síðustu árum eftir að við hættum að vinna,“ segir Ragnhildur Ingvarsdóttir. Þau Hafsteinn fluttu inn í hús sitt fyrir réttum fjörutíu árum og segir Ragnhildur að lengi Blómstur í Baugstjörn Fanney Stefánsdóttir og Guðjón Þór Emilsson í garðinum sínum að Baug- stjörn 29 sem fékk viðurkenningu fyrir ungan garð í mikilli uppbyggingu með mikla framtíðarmöguleika. framan af hafi garðurinn góði verið íþróttavöllur fyrir krakkana í hverf- inu. „Þau gátu hvergi annars staðar verið að leika sér.“ - En garðurinn kom þó að góðu gagni þannig, enda hafa börn Ragnhildar og Hafsteins verið mikið afreksfólk í íþróttum, þeirra á meðal er Vésteinn Haf- steinsson kringlukastari. Hafsteinn segir að í garðinum góða séu ýmsar trjáplöntur, svo sem birki og barrtré en einnig mikið af sumarblómum. „Stjúpurnar eru fal- legastar,“ segir hann - og bætir við að í garðinum hafi hann sett upp sólpalla og á veggi hafi hinn drátt- hagi húsamálari Selfyssinga, Her- bert Granz, málað landslagsmyndir. Einnig hefur Hafsteinn í garðinum gömul amboð og eftirlíkingu af gömlum íslenskum torfbæ - og kveðst með því vera að rifja upp gamla daga í sveitinni heima. Glæsilegar garöyrkjustöðvar Þá afhenti Samband sunnlenskra kvenna í vikunni viðurkenningu til eigenda fjögurra snyrtilegustu garð- yrkustöðvanna í Árnessýslu. Þær viðurkenningar fóru að þessu sinni til Áslaugar Sverrisdóttur og Sveins Á. Sælands sem reka garðyrkjustöð- ina Espiflöt í Hrunamannahreppi; Ragnars Kristjánssonar og Mildrid Irene Steinberg í Flúðasveppum; Guðjóns Birgssonar og Helgu Karls- dóttur á Melum á Flúðum og Helgu Rögnu Pálsdóttur og Helga Eggerts- sonar að Kjarri í Ölfusi. -NH/-sbs Vel gróinn Garður Hafsteins Þorvaldssonar og Ragnhildar Ingvarsdóttur við Engjaveg á Selfossi. Vel gró- inn og ákaflega snyrtilegur eldri garður sem áður var íþróttavöllur. Glæsilegar garðyrkjustöðvar Eigendur fjögurra snyrtilegustu garöyrkjustöövanna í Árnessýslu, ásamt for- ystukonum Samþands sunnlenskra kvenna er, samþandið verölaunaði þá.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.