Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Blaðsíða 46
54 LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001 Islendingaþættir________________________________________________________________________________________________________r>V Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 85 ára________________________ Lára J. Árnadóttir, Aflagranda 40, Reykjavík. Guöbjörg J. Runólfsdóttir, Auðsholti, Selfossi. 80 ára________________________ Hulda Guðlaugsdóttir, Víðimel 42, Reykjavík. 75 ára________________________ Kristjana Kristjánsdóttir, Sóltúni 11, Reykjavík. 70 ára________________________ Rudolf Ásgeirsson, Laugarnesvegi 116, Reykjavík. Arnþór Kristjánsson, Rfuhvammi 37, Kópavogi. Guðbjörg Jónsdóttir, Breiövangi 22, Hafnarfirði. Hulda Jóhannsdóttir, Hjallalundi 20, Akureyri. Guðborg Sigtryggsdóttir, Leirubakka 2, Seyðisfirði Margrét Karlsdóttir, Fossheiði 40, Selfossi. 60 ára________________________ William Sigurjón Tracey, Hvassaleiti 153, Reykjavík. Valur Helgason, Vesturhúsum 14, Reykjavík. Valdimar H. Jóhannesson, Brekkutanga 1, Mosfellsbæ. Arndís Óskarsdóttir, Framnesi, Skagafirði. 50 ára________________________ Agnethe J. Aðalsteinsdóttir, Hverafold 66, Reykjavík. Hafsteinn Ellertsson, Lóuási 30, Hafnarfirði. Aðalbjörg Þorsteinsdóttir, Austurtúni 4, Hólmavík. Steinfríður Alfreðsdóttir, Bakkavegi 3, Þórshöfn. 40 ára________________________ Jóhann Jóhannsson, Kvistalandi 16, Reykjavík. Kristín Þorgrímsdóttir, .undahólum 2, Reykjavík. athleen Valborg Clifford, arðhúsum 4, Reykjavík. mna Margrét Einarsdóttir, oðatúni 24, Garóabæ. gnr.r Kári Sævarsson, .yngbrekku 15, Húsavík. Útför eiginkonu minnar, Halldóru Vagnsdóttur, fer fram í ísafjaröarkirkju miövikudaginn 1. ágúst kl. 14.00. Jarðsett verður í Þingeyr- arkirkjugarði. F.h. barna, tengdabarna, barnabarna. Jón Þorsteinn Sigurðsson Brekkugötu 24 Þingeyri Hulda Gísladóttir frá Skógargerði, Spít- alavegi 21, Akureyri, og Hulda Björg Stefánsdóttir, Hrafnagilsstræti 14, Akur- eyri, veröa jarðsungnar frá Akureyrar- kirkju föstudaginn 3. ágúst kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast þeirra er bent á Heimahlynningu á Akureyri eöa Krabba- meinsfélag Akureyrar. Jóhann Guðmundur Jóhannsson, Byrgi, Akureyri, fyrrum bóndi að Giljum, Vestur- dal, veröur jarósunginn frá Goödalakirkju þriðjudaginn 31. júlí kl. 14.00. Pálmi Gíslason, Eikjuvogi 25, Reykjavík, veröur jarösunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfiröi mánudaginn 30. júlí kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamleg- ast afþakkaöir en þeim, sem vilja minn- ast hans er bent á Landssamtök hjarta- sjúklinga. Svanhild J. Ágústsson, Bauganesi 7, Reykjavik, veröur jarðsungin frá Dóm- kirkjunni mánudaginn 30. júlí kl.13.30. Brynhildur Eyjólfsdóttlr, Arnbjargarlæk, Þverárhlíð, andaðist á Sjúkrahúsi Akra- ness þriðjudaginn 24. júlí. Ottó Sigurðsson, bakarameistari frá Neskaupstað, lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi, fimmtudaginn 25. júlí. Guðriður BJörg Sörladóttir, frá Önundar- firöi, síöast til heimilis í Hátúni lOb, Reykjavík, lést á Landspítalanum viö Hringbraut miðvikdaginn 25. júlí. Valdimar H. Jóhannesson framkvæmdastjóri Valdimar Hergils Jóhannesson framkvæmdastjóri, Brekkutanga 1, Mosfellsbæ, verður sextugur í dag, 28. júlí. Nám og starfsferill Valdimar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp en dvaldi nokkuð í Danmörku. Hann var í sveit Borgar- firðinum og á Héraði í 5 sumur, auk fjölbreyttra starfa til lands og sjávar öll skólaárin. Hann lauk stúdents- prófi frá MR 1962, tók upphafsprófm í læknisfræði og viðskiptafræði við HÍ og dvaldi við nám í Sorbonne. Valdimar var blaðamaður á Vísi 1964-73 og fljótlega ritstjómarfull- trúi þar, sá um vikulegan útvarps- þátt, Daglegt líf, 1969-71, var um- sjónarmaður Kastljóss í sjónvarp- inu 1973-75, rak eigin fataverslanir og stundaði innflutning og heild- verslun 1971-80, stofnaði ásamt öðr- um og veitti forstöðu sælgætisgerð- inni Marklandi hf., var sölustjóri Vísis 1980 og fram að sameiningu DB og Vísis, annaðist happdrætti Ólympíunefndar íslands 1982, ‘84 og ‘91 og gjafasöfnun SÁÁ 1983. Hann stofnaði með öörum veitingahúsið Duus 1984 en seldi sinn hlut 1985. Þá veitti hann forstöðu Alþýðublaðinu og prentsmiðjunni Alprenti á árun- um 1985-88. Hann stýrði og annaðist fjáröflun og kynningu fyrir Landgræðslu- skóga-Átak 1990 á árunum 1989-90. Annaðist söfnunarátak fyrir HSÍ (gullboltann) 1991. Ritstýrði og gaf út afmælisbók fyrir Fák (Á FÁKI FRÁUM) 1992 Valdimar stýrði og var aðal- hvatamaður að átakinu Stöðvum unglingadrykkju 1994-96 og upp- hafsmaður að stofnun og fyrsti framkvæmdastjóri Gróðurs fyrir fólk f landnámi Ingólfs árið 1997. Hann stofnaði Samtök um þjóðar- eign 1997 í tengslum við málarekst- ur gegn ríkisvaldinu vegna kvóta- laganna. Flutti sjálfur málið og vann það fyrir Hæstarétti í ilesem- ber 1998. I dóminum, sem hefur fengið nafniö Valdimarsdómurinn, féllst Hæstiréttur á að fiskveiði- stjórnunarlögin væru i andstöðu við stjórnarskrána. Valdimar skipaði efsta sæti í framboði fyrir Frjálslynda flokkinn í Reykjanesi 1999. Hann er stofnandi og aðaleigandi Corbon ehf. Valdi- mar hefur veriö með eigin rekstur frá 1971 Valdimar var í stjórn Blaða- mannafélags íslands, var formaður launamálanefndar BÍ, formaður skipulagsnefndar Fáks, formaður foreldrafélags Ártúnsskóla, í for- eldraráði Varmárskóla, í fram- kvæmdastjóm Vímulausrar æsku, í miðstjóm Frjálslynda flokksins. Fjölskylda Maki I: Fanný Jónmundsdóttir, f. 21. apríl 1945. Þeirra börn eru Jó- hannes Hergils f. 18. ágúst 1966, tæknifræðingur, Guðrún Hergils f. 23. febrúar 1973, hagfræðingur, og Gréta Hergils f. 14. desember 1976, skrifstofumaður. Fanný átti síðar Sigrúnu Fannýju Jónsdóttur, f. 13. febrúar 1985. Maki II: Margrét Gústafsdóttir f. 29. mars 1949. Þeirra börn eru Mar- ín Hergils, f. 12. mars 1986, og Kara Hergils, f. 25. nóvember 1987. Mar- grét átti fyrir Davíð T. Davíðsson, f. 14. febr. 1971, flugmann hjá Flugleið- um. Systkini Valdimars eru Björn Hergils Jóhannesson, f. 18.9. 1942, arkitekt í Reykjavík, og Hildur Her- gils, f. 17.12. 1946, kennari í Kaup- mannahöfn. Stjúpbræður Valdimars eru Odd- ur Bjarnason, f. 10.4. 1935, geðlækn- ir; Örn Bjarnason, f. 13.11. 1937, rit- höfundur; Halldór Bjarnason, f. 15.11. 1940, framkvæmdastjóri; Gunnar Bjarnason, f. 13.12. 1951, jarðfræðingur. Foreldrar Valdimars eru dr. med. Jóhannes Björnsson, f. 7.7. 1907, d. 7.9. 1966, læknir, í Reykjavík, og Guðrún N. Holm, f. Erlendsson, f. 13.11. 1917, húsmóðir í Danmörku. Ætt Jóhannes er sonur Bjöms, prests í Laufási, Bjömssonar, „sterka“ á Breiðabólstað á Álftanesi, Björns- sonar, b. á Tungufelli í Lundar- reykjadal, Ólafssonar. Móðir Björns í Laufási var Oddný Hjörleifsdóttir, prests á Skinnastað, Guttormssonar en frá honum eru m.a komnir dr. Kristján Eldjárn forseti og Hjörleif- ur Guttormsson ráðherra. Meðal barna föðurbræðra Valdi- mars má nefna Magnús Jónsson óp- erusöngvara, Björn Björnsson, póst- meistara í Reykjavík, Hafstein Stef- ánsson skólameistara og Magnús Theodór Magnússon (Tedda) mynd- höggvara. Móðir Jóhannesar var Ingibjörg dóttir Magnúsar Jónssonar, prests á Hofi á Skagaströnd, Skorrastað í Norðfirði, Grenjaðarstað og í Lauf- ási við Eyjafjörð, og Vilborgar Sig- urðardóttur frá Hóli í Kelduhverfi. Bræður Ingibjargar voru Jón Magn- ússon forsætisráðherra og Sigurð- ur, yfirlæknir á Vífilsstöðum. Séra Magnús var mikill baráttumaður gegn áfengisdrykkju. Hann var m.a. forystumaður í stofnun 65 bindind- isfélaga um land allt seint á 19. öld- inni og skrifaði bókina Bindindis- fræði handa íslendingum, sem kom út með 412 síðum 1884 Bróðir Guðrúnar er Finnur Er- lendsson, læknir, alþingismaður og íslenskur konsúll í Danmörku. Guð- rún er dóttir Valdimars, læknis í Frederikshavn, bróður Stefáns á Grásíðu, föður Þórarins, bóksala á Húsavík, föður Stefáns iðnrekanda og Ingvars, bóksala á Húsavík. Stef- án var einnig faðir Boga á Kópa- skeri, föður Stefáns, læknis hjá Tryggingastofnuninni. Valdimar var einnig bróðir Jóns Eldons, rit- stjóra Heimskringlu, foður Hlínar er bjó í Herdísarvík með Einari Benediktssyni og ömmu Eyjólfs Kjalars Emilssonar heimspekings. Valdimar var sonur Erlends, skálds, hreppstjóra, oddvita og alþingis- manns í Garði og í Ási i Keldu- hverfi, bróður Magnúsar, afa Bene- dikts Sveinssonar alþingisforseta, föður Bjarna forsætisráðherra og systkina hans. Erlendur var einnig bróðir Guðmundar, afa Jóns Trausta. Erlendur var sonur Gott- skálks, b. í Nýjabæ og á Fjöllum í Kelduhverfi, Pálssonar, ættföður Gottskálksættarinnar. Móðir Guðrúnar var Ellen Margrethe Heegaard-Jensen, dóttir Ludvigs Jensens kaupmannsgarðs- eiganda og Juttu Henriette Höyer Heegaard sem var dóttir Pouls Hen- riks Heegaards, herragarðseiganda á Sjálandi. Valdimar hélt upp á tímamótin í gærkvöld við Einhyrning í leitar- skála Fljótshlíðinga með nánustu ættingjum og vinum. GuJlhrú&Kaup Aðalbjörg Jónsdóttir og Sigtryggur Árnason Á morgun, sunnudaginn 29. júlí, eiga gullbrúðkaup hjónin Aðalbjörg Jónsdóttir og Sigtryggur Árnason á Litlu-Reykjum í Suður-Þingeyjar- sýslu. Þau verða að heiman. Qnwur íifmsbU&fwrn heJ^arinoar Jón Arnar Magn- ússon tugþrautar- kappi er 32 ára í dag. Jón Arnar hefur verið einn af okkar bestu frjálsíþróttamönnum síðustu ár og undirbýr sig nú að kappi fyrir tugþrautar- keppnina á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fram fer í Edmonton í Kanada í ágúst næst- komandi. Jón Amar hefur aldrei náð að klára tugþraut á heims- meistaramótum en hafnaði í öðru sæti á HM innanhúss í sjöþraut í vetur og er því til alls líklegur í Ed- monton. Besti árangur hans í ár í tugþraut er 7.938 stig. — ^ | Ragnheiður Davíðs- I dóttir, forvarnarfull- irui hja \'IS. i-r -17 ára í dag. Hún stundaði J. V- / meðal annars nám í lögregluskólanum og var lögregluþjónn í Reykjavík í niu ár. Ragnheiður hef- ur einnig starfað mikið á íjölmiðl- um, bæði sem dagskrárgerðarmað- ur og blaðamaður. Síðustu ár hefur hún starfað að forvörnum í um- ferðarmálum hjá VÍS en fyrirtækið hefur nú hafið herferð gegn bættri umferðar-menningu þar sem fólk er hvatt til að þess að skrifa undir tíu heit sem það ætlar að fara eftir í umferðinni. Sigurður Örlygs- son myndlistarmaður **■ er 55 ára í dag. Sigurð- -Jk ur stundaði myndlist- M arnám við Det Konge- '■ lige Akademi í Kaup- mannahöfn í eitt ár og við Art Students League of New York í þrjú ár. Sigurður hefur haldið fjölda myndlistarsýninga, bæði hér á landi og í útlöndum. Hann hefur auk þess starfað við að kenna myndlist. Sigurður hefur fengið viðurkenningar fyrir störf sín. Til að mynda fékk hann Menn- ingarverðlaun DV í myndlist árið 1989. cc c (ö 550 5000 @ vísir.is u 3 CU é=£l 550 5727 'CB Þverholt 11, 105 Reykjavík t/>
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.