Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001 37 X>V_______________________________________________________________________________________Helgarblað DVJilYND GVA I stjórn aödáendaklúbbs ■Davíö telur augljóst að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fari úr borgarmálunum til Samfylkingarinnar: „Össur Skarphéðinsson hefur sagt að hún muni koma inn í Samfylkingarhópinn um næstu þingkosningar. Össur er svili Ingibjargar og i stjórn aðdáendakiúbbs hennar og ekki færi hann að skaða hana aö gamni sínu. “ þaö. Þessir karlar sátu allir eins og ekkert hefði gerst og dæmin eru fleiri. Albert Guðmundsson, Jón Sólnes, Árni Johnsen, allir sjálf- stæðismenn, öxluðu á hinn bóginn ábyrgð." - Menn segja aó endurskoða þurfi starfsemi Framkvœmdasýslu ríkis- ins vegna þessa múls. „Það er augljóst að það þarf að endurskoða þá starfsemi." Ábyrgöarlaus R-listi - Vikjum afi borgarmúlum. Þaö er rœtt um brotthvarf þitt úr stjórnmál- um en þaó er líka mikiö skrafaó um aó Ingibjörg Sólrún muni fara úr borginni. Finnst þér liklegt aó hún muni leiða R-listann og fara svo til Samfylkingarinnar? „Ég tel það augljóst. Össur Skarp- héðinsson hefur sagt að hún muni koma inn í Samfylkingarhópinn um næstu þingkosningar. Össur er svili Ingibjargar og í stjórn aðdá- endaklúbbs hennar og ekki færi hann að skaða hana að gamni sínu. Þetta er fólk sem talar saman. Ef þessi orð eru ekki algjör heimska hjá Össuri, sem ég vil ekki ætla honum, þá er þetta meðvituð og út- hugsuð tilkynning. Það merkilega er hins vegar að ef Ingibjörg hyrfi úr stóli borgarstjóra og spurt væri hverju hún hefði fengið áorkað í átta ár þá þyrftu menn að rannsaka það mjög nákvæmlega. Ekki man ég eftir neinu. Jú, það er að vísu rétt og sanngjarnt að gleyma ekki hol- ræsaskattinum og hrikalegri skuldasöfnun borgarinnar. Annað sé ég ekki að hún muni skilja eftir sig.“ - Hvernig líkar þér frammistaóa R-listans á kjörtímabilinu? „R-listinn hefur þá stefnu að taka ekki ábyrgð á einu né néinu. Ég skil ekki af hverju þetta fólk vill vera í meirihluta því það þykist engu stjórna. Segir að allt sem aflaga fer sé ríkinu að kenna. Áðan vorum við aö tala um ábyrgð. R-listinn bauð fram tvo vafasama karaktera í sið- ustu borgarstjórnarkosningum og nálægt 8000 manns úr stuðnings- mannaliðinu var svo ofboðið að þeir strikuðu þá út. Ekki voru þeir látn- ir hætta þótt kæmi á daginn að flest var rétt sem sagt var. Þvert á móti. Þeir voru gerðir að borgarráðsfull- trúa og forseta borgarstjórnar. Þetta er munurinn á viðbrögðum Sjálf- stæðisflokks annars vegar og vinstra fólks hins vegar. Þaö talar mikið um siðbót en tekur ekki ábyrgð á neinu þegar það sjálft á í hlut.“ - Er forystukreppa í röóum sjálf- stœóismanna í borginni? „Mér fmnst Inga Jóna standa sig afar vel og hafa gert góða hluti í stjórnarandstööu. Hún fær ekki sömu athygli og borgarstjórinn fær. Það er ekkert óeðlilegt. Borgarstjór- inn á að fá athygli, það er eðli starfsins. Hins vegar er Ingibjörg Sólrún eini stjórnmálamaðurinn sem fjöl- miðlar spyrja aldrei gagnrýninna spurninga. Miðað við það kemur mér á óvart að í skoðanakönnunum skuli staða D- og R-lista vera svo jöfn.“ - Myndiróu vilja missa Björn Bjarnason úr stóli menntamálaráó- herra í borgarstjórasœti? „Nei. Við Bjöm höfum starfað afar vel saman. Hann er einn öflug- asti ráðherra sem við höfum séð til lengi. Annað er að í öllum sínum miklu önnum skrifar hann skemmtilegustu pólitísku skýringar sem nú eru skrifaðar. Hann er ekk- ert að setja sig í hátignarlegar stell- ingar heldur skrifar út frá sínum bæjardyrum. Ég þarf ekki að vera sammála hans niðurstöðu, en það breytir engu um að ég dáist að hon- um fyrir að gera þetta og skammast mín nokkuð fyrir að gera ekkert af þessu sjálfur." Get ekki fundfö til öfundar - Já, hvað með þig. Þú hefur sagt að þú hafir ekki áhuga á aö skrifa ævisögu þína. Verður þú ekki seinna að gera upp stjórnmálaferil þinn að einhverju leyti í rituóu mál? „Það má vera að maður eigi að gera það. Það er sagt að þegar stjórnmálamenn eldist taki þeir að hugsa um það hvernig andi þeirra muni svífa yfir vötnum þegar búið er að hola þeim niður í jörðina. Ég er ekki kominn á þennan aldur og treysti sagnfræðinni til meta þetta rétt.“ - Nú segir Hallgrímur Helgason í einstaklega skemmtilegri grein i Weekendavisen aö hér sé efna- hagslœgð vegna þess að þú sért upp- tekinn við aö skrifa jólabók sem þjóóin bíði eftir með óþreyju. „Þetta er fallega sagt af honum en ég hef lent í því að tíminn sem ég ætlaði að nota til að ljúka skriftun- um hefur farið öðruvísi en ég ætl- aði. Þetta hefur verið erfiður vetur, mál hafa hlaðist upp og tíminn orð- ið naumari fyrir vikið. Ég vona að mér takist að klára smásagnasafnið, sakamálasagan er flóknari." - Erfiö mál segirðu, hvaöa mál var erflðast? „Það hafa ýmis mál verið erfið eins og ég sagði en ég er ánægður með dóm héraðsdóms í sjómanna- og útgerðarmálinu. Frá því sá dóm- ur féll hefur ekki verið rætt við stjórnarandstöðuna sem hélt því fram að það að setja lög á sjómanna- verkfallið væri stjórnarskrárbrot. Óðinn Jónsson, fréttamaður á RÚV, mætti á sínum tíma, eins og jafnan, eins og hann væri blaðafulltrúi Öss- urar, og Össur sagði lögin vera brot á stjórnarskránni. Eftir dóminn hef- ur Össur ekki verið spurður um niðurstöðu héraðsdóms. Skrýtið." - Smásagnasafn þitt, Nokkrir góó- ir dagar án Guðnýjar, er aö koma út í Þýskalandi. Bíðuröu ekki spenntur eftir erlendum dómum? „Nei. Ég geri það nú ekki vegna þess að ég geri mér ekkert alltof háar hugmyndir um mig sem rithöf- und. Það er bara gaman að sjá bók- ina koma út og ég get þá sent þýsku- mælandi vinum mínum eintök." - Fœr Kohl eintak? „Hann fær örugglega eintak. Og Schröder ábyggilega líka. Ég verð úti á einhverjum kynningarfundi en ég veit ekki hvort ég mun lesa upp á þýsku, Ég var í menntaskóla ein- hver lélegasti þýskunemandi sem sögur fara af.“ - Einhvern tíma kemur aó því aö þú hefur meiri tima fyrir sjálfan þig. Hefuróu þá áhuga á því að skrifa meira en þú hefur gert? „Já, ég hef mikinn áhuga á því ef ég verð ekki alveg búinn aö tapa skáldgáfunni.“ - Þú hefur náð ansi langt í lífinu. Ertu ekki sáttur og ánœgóur meó þitt lífshlaup? „Ég hef alltaf verið sáttur og ánægður hvar sem ég hef verið. Þeg- ar ég var barn var ég sannfærður um að það leikfang sem ég lék mér með þá stundina væri það fallegasta sem nokkur ætti í lífinu. Þegar móð- ir min hafði saumað á mig fót upp úr kápu af sér eða buxum af afa var ég sannfærður um að enginn ætti aðrar eins flikur. Þannig hef ég allaf verið og þess vegna kvíði ég ekki til- veru minni þegar ég fer héðan. Ég mun örugglega sannfæra mig um það á hálfum mánuði að það sem ég sé þá að fást við sé það skemmtileg- asta af öllu. Ég ímynda mér aldrei að eitthvað sé betra hjá öðrum. Ég get ekki fundið til öfundar. Mér finnst ég eiga það besta sem til er. Bestu móður í heimi. Bestu eigin- konu í heimi. Yndislegasta land í heimi. Þegar Guðni kom heim frá Kentucky, eftir að hafa verið í út- reiðartúr með Jóni Baldvini í 40 stiga hita, sagði hann að ein mesta auðlind íslendinga væri kuldinn. Þá hugsaði ég: Alltaf hittir Guðni naglann á höfuðið. Kuldi og trekkur íslands, gulls ígildi. Ég vona að þessi eiginleiki minn sé ekki of ruglandi fyrir þjóðina, en sem persónulegur eiginleiki er hann afskaplega góður. Ég segi eins og gamla fólkið: Ef maður heldur heilsu þá kvíðir maður ekki neinu. Ég er svo sannfærður um að þjóðin geti án mín verið að ég mun ekki hafa samviskubit þegar ég fer. Það hefur sem betur fer ekki enn flögrað að mér að ég sé ómissandi. Ég ít- reka að þann dag sem þau einkenni koma fram þá eiga menn að samein- ast gegn mér og sparka mér eins langt út í hafsauga og þeir geta. Engir menn eru jafn óþolandi og þeir sem halda að þeir séu ómissandi."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.