Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Page 4
4
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001
DV
Fréttir
Málari á Húsavík lenti í ótrúlegu slysi þegar vinnupallur féll:
Slapp lítt meiddur
eftir 11 metra fall
- 5 sentímetra djúp för í grasinu þar sem hann lenti
„Ég var alveg gáttaöur þegar ég
reyndi fyrst aö standa á fætur og gat
það, fann ekkert til og virtist vera
óbrotinn," segir Björgvin Sigurðs-
son á Húsavík sem varð fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu að hrapa
10-11 metra þegar vinnupallur féll
undan honum.
Björgvin var að vinna við að
mála þriggja hæða blokk í vikunni
og hafði reist stiga á efsta palli still-
ansans til að komast upp á þakið.
Þegar hann var að stíga inn á þakið
úr stiganum þá byrjaði vinnupallur-
inn skyndilega að falla frá hús-
veggnum.
“Þetta geröist mjög hægt. Um leið
og pallurinn sveiflaðist frá stökk ég
niður úr stiganum og hélt mér í
handrið á efsta pallinum. Síðan hlýt
ég að hafa kastað mér út frá pallin-
um á leiðinni niður því ég lenti ekki
undir honum heldur flaug mun
lengra og kom niður á fæturna tölu-
DV-MYND GVA
Landlyst tjörguð
Fétagarnir Davíð Halldórsson og Davíö Egils-
son voru í óöaönn aö tjarga Landlystarhúsið á
Skansinum i Vestmannaeyjum þegar Ijósmynd-
ara og blaöamann DV bar aö garöi. Landlyst
er sögufrægt hús og þarna er búiö aö byggja
þaö upp að nýju. Davíö Egilsson segir þó aö
fáar sþýtur séu úrgamla húsinu.
vert utan við pallendann en raunar
geri ég mér ekki alveg grein fyrir
hvernig þetta gerðist," segir Björg-
vin. Hann hins vegar kvaðst hafa
verið að hugsa um það á niðurleið-
inni að nú myndi hann í besta falli
meiðast illa og var þegar farinn að
kvíða fyrir rosalegum sársauka.
En það varð honum m.a. til happs
að hann lenti á grasi og þar voru
greinileg 5 cm djúp för þar sem hæl-
ar Björgvins höfðu markað svörðinn.
Halldóra Theodórsdóttir, íbúi í
húsinu, varð vitni að þessum at-
burði en vinnupallurinn stóð utan
við glugga á íbúð hennar. Halldóra
segir að Björgvin hafi brugðist hár-
rétt við. „Mér brá óskaplega þegar
ég sá út um gluggann að pallurinn
var að falla frá húsinu og að maður
var efst í honum. Flestir hefðu sjálf-
sagt ósjálfrátt haldið sér dauðahaldi
í pallinn á leiðinni niður og þá lent
undir honum og þá hefði varla þurft
----- að spyrja að leikslokum. En
Björgvin stóð á efsta pallin-
um og hélt sér í slána þar til
stillansinn var fallinn lang-
leiðina niður og þá allt í einu
vippaði hann sér upp á slána
og sveiflaði sér út frá pallin-
um og lenti greinilega á fót-
unum og kútveltist síðan í
grasinu. Hann gerði allt rétt
og það öðru fremur bjargaði
honum en ég trúði því varla
þegar ég kom út og sá að
hann var staðinn á fætur og
virtist ómeiddur," sagði Hall-
dóra í samtali við DV.
Björgvin fór ekki strax til
læknis, enda kenndi hann sér
hvergi meins. En við skoðun
kom svo í ljós að hann hafði
tognað lítillega í baki en
reiknaði með að fara að
vinna aftur strax eftir helgi.
En hann gerði ekki ráð fyrír
að fara alveg á næstunni upp
á þak „því satt að segja hef ég
alltaf verið dálítið lofthrædd-
ur og það skánar varla eftir
þetta“. Björgvin fótbrotnaði
mjög illa í knattspyrnuleik
með Völsungi fyrir tveimur
árum og hann sagði að það
væri greinilegt að vel hefði
DV-MYND JS.
Vitniö og fórnarlambiö
Björgvin er hér ásamt Halldóru Theodórsdóttur sem horföi á hann falla
niöur metrana ellefu.
tekist að lappa upp á löppina á sér
fyrst hún hefði þolað þessa lend-
ingu.
Þarna hefði augljóslega getað orð-
ið stórslys og aðeins hárrétt við-
brögð Björgvins og heppni komu í
veg fyrir það. Eftir á voru menn dá-
lítið að gantast með þetta eins og al-
gengt er þegar betur fer en á horfist.
Þannig sagði Jón Friðrik Benónýs-
son, múrari og frjálsíþróttaþjálfari
með meiru, sem var að vinna við
húsið, að Björgvin hefði þarna aug-
ljóslega sett heimsmet í langstökki
með þvi að svífa yfir 11 metra og
það án atrennu! Og Björgvin sjálfur,
sem spilar á gítar i rokkhljómsveit-
inni Innvortis, sagði að því miður
hefði hann ekki getað notað tæki-
færið þegar hann sveif þarna um
loftin blá og spilað á alvöru luftgít-
ar! -JS
Enn ágæt
loðnuveiði
Enn er ágæt loðnuveiði á miðun-
um norður af landinu, og loðnan á
suðurleið eins og að undanförnu.
Heildarveiðin á sumarvertíðinni
var í gær orðin 130 þúsund tonn,
samkvæmt upplýsingum frá Sam-
tökum fiskvinnslustöðva. Erlend
skip höfðu landað 47 þúsund tonn-
um á vertíðinni og því alls um 177
þúsund tonn borist á land.
Hæstu löndunarstaðir eru allir á
Norðurlandi enda þangað styst að
fara af miðunum. Til Þórshafnar
höfðu borist 27.458 tonn, til Siglu-
fjarðar 223.879 tonn, til Akureyrar
19.176 tonn og til Raufarhafnar
16.721 tonn.
Undanfarin ár hefur veiðin dottið
niður strax fyrstu dagana í ágúst en
veiðibann tekur gildi 15. ágúst.
Menn eru spenntir að sjá hvað loðn-
an gerir nú, hvort áframhald verður
á veiðinni næstu daga eða hvort
loðnan hraðar sér upp á landgrunn-
ið og „týnist", eins og gerst hefur
undanfarin ár. -gk
íslenska ákvæöid
bíður haustsins
„Nei, það er ails ekki hægt að
túlka þetta sem svo að bakslag hafi
komið í málið,“ segir Halldór Þor-
geirsson, aðalsamningamaður ís-
lands á Loftslagsráðstefnunni í
Bonn, en síðdegis í gær kom í ljós að
ekki yrði unnt að afgreiða neina end-
anlega texta frá ráðstefnunni. Þar á
meðal er hið svokallaða islenska
ákvæði en því ásamt öðrum textum
hefur verið frestað til næsta fundar
Loftslagsráðstefnunnar sem haldin
verður í Marokkó í nóvember.
Halldór telur að þessi frestun
muni ekki hafa nein áhrif á stöðu
málsins því hér sé ekki um neinar
efnislegar ástæður að ræða hvað
þetta varðar. Líkurnar á að þetta
ákvæði verði samþykkt hafa því
ekki minnkað að hans mati. Niður-
staðan hafi verið sú að loka engum
málum á þessari ráðstefnu umfram
það. sem náðist með hinu sögulega
pólitíska samkomulagi.
Aöspurður um hvers vegna ekki
hefði tekist að klára málin í Bonn
sagði Halldór að það stafaði af
tæknilegum ástæðum að verulegu
leyti og auk þess hefði komið upp
ýmis ágreiningur um útfærslu á
hinu pólitíska samkomulagi sem
tæki einfaldlega talsverðan tíma að
vinna úr. -BG
Voðrlð i kvold
Léttir til
Hæg suðlæg átt og dálítil súld eða rigning
með köflum. Um landið norðanvert léttir til.
Hiti 12 til 19 stig, hlýjast í innsveitum
norðaustanlands.
SoLirj*,*iiifl»ir og sjðvaiftiH
REÝKJAViK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 22.45 22.50
Sólarupprás á morgun 02.44 04.00
Síödegisflóð 12.48 17.21
Árdegisflóö á morgun 01.13 05.46
Skýringar á veðurtáknum
^VINDÁTT. 10°—HITI 15) -10° 'J\viNDSTYRKUR \ra0ST í metrum á sekúndu HDDSKIRT
lÉTTSKÝJAO ■íD HÁLF- SKÝJAÐ íD SKÝJAÐ o ALSKÝJAO
RIGNING SKÚRiR SLYDÐA fgi SNJÓKOMA
ÉUAGAN8UR fjRUIVUi- VEÐUR ■F SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Stöku skúrir
Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og rigning austan til en annars stöku
skúrir. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast suðvestanlands.
Vmdur: (
3—8
Hiti 6° til 14°
N og NV 3-8 m/s og skúrir
noröaustanlands, en
annars þurrt aö kalla. Hiti
6 tll 14 stig.
lMiO|mf-<K>ii M.Omíui,
Vindun ( vL—\ 3-8tiv**-- \ Kiti 8° «1 16° Vindur: - L—. Mm/S íl) Hiti 8° til 18“ '
Hæg breytileg átt og stöku síödegisskúrir Hæg breytileg átt og
vestan til en annars skýjaö stúku síödegisskúrlr
meö köflum. Heidur vestan tll en annars skýjaö
hlýnandl. meö köflum.
vmm
AKUREYRI hálfskýjaö 17
BERGSSTAÐIR skýjaö 16
BOLUNGARVÍK alskýjað 12
EGILSSTAÐIR 17
KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 12
KEFLAVÍK rigning 11
RAUFARHÖFN hálfskýjaö 12
REYKJAVÍK rigning 11
STÓRHÖFÐI rigning 10
BERGEN skýjað 19
HELSINKI léttskýjaö 26
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 23
ÓSLÓ skýjaö 25
STOKKHÓLMUR 24
ÞÓRSHÖFN 9
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 15
ALGARVE skýjaö 23
AMSTERDAM léttskýjaö 28
BARCELONA léttskýjaö 26
BERLÍN léttskýjaö 28
CHICAGO hálfskýjað 19
DUBLIN skýjaö 21
HALIFAX léttskýjaö 14
FRANKFURT léttskýjaö 31
HAMBORG léttskýjað 27
JAN MAYEN skýjaö 5
LONDON skýjaö 27
LÚXEMBORG léttskýjaö 28
MALLORCA heiöskírt 29
MONTREAL heiöskírt 15
NARSSARSSUAQ skýjað 9
NEWYORK léttskýjaö 18
ORLANDO hálfskýjaö 25
PARÍS léttskýjaö 30
VÍN skýjaö 27
WASHINGTON alskýjaö 17
WINNIPEG þoka 17