Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Síða 6
LAUGARDAGUR 28. JULI 2001
Fréttir
r>v
Örn Arnarson sundkappi hlaut tvenn verðlaun á HM í sundi í Fukuoka í Japan:
Enginn of sterkur
- segir afreksmaðurinn Örn sem er kominn að kaflaskiptum
Fáir íslendingar hafa verið jafn sig-
ursælir á vettvangi íþrótta og Örn
Arnarson. Þessi 19 ára piltur er löngu
orðinn besti sundmaður íslendinga
fyrr og síðar og er nú búinn að festa
sig í sessi meðal allra bestu baksunds-
manna heims i dag.
Nú stendur sem hæst heimsmeist-
aramótið í sundi og fer það fram í
Fukuoka í Japan. íslendingar senda
þrjá keppendur til leiks, þau Jakob
Jóhann Sveinsson, Láru Hrund Bjarg-
ardóttur og Örn Arnarson. Öll hafa
þau staðið sig glæsilega og eru landi
og þjóð til sóma en þó verður að við-
urkennast að sá síðastnefndi er í al-
gerum sérflokki.
Fjórða sæti í Sydney
Vikan byrjaði á því að hann keppti
í 100 m baksundi, grein sem hefur set-
ið á hakanum á æfingum og telst ein-
göngu vera aukagrein hjá Erni. Hans
aðal er 200 m baksundið - í þeirri
grein varð hann í íjórða sæti á Ólymp-
íuleikunum í Sydney fyrir tæpu ári
sem frægt er orðið. Hann byrjaði á því
að bæta íslandsmetið í undanrásum,
svo aftur í undanúrslitum og áður en
menn vissu af var hann kominn í úr-
slit og það á öðrum besta tímanum.
Hann gerði enn betur í úrslitasund-
inu, bætti metið aftur og tryggði sér
silfrið. „Sannarlega góöur bónus,“
eins og Örn sagði sjálfur í samtali við
DV. Þá hafði hann bætt íslandsmet
sitt um 1,24 sekúndur á þessum tveim-
ur dögum.
Um leið fylltist landinn áhuga og
beið spenntur eftir 200 m baksundinu
sem fór fram í gær. Og Örn olli ekki
vonbrigðum. Aftur tryggöi hann sér
sæti á verðlaunapalli, í þetta
sinn brons. Glæsilegur
árangur hjá Erni,
tvenn verðlaun
í tveimur
greinum.
í und-
anrás- j
um og
undan-
úrslit-
um
sundsins var kappinn
ekki upp á sitt besta.
Hann komst þó í úrslit,
var sjötti maður inn en
á tíma sem er langt frá
hans besta. í úrslita-
sundinu kom hann þó
tvíefldur til leiks og setti
í fluggírinn.
„Mér fannst sundið
hans líta mjög vel út,“
sagði Brian Marshall,
þjálfari Arnar, „sérstak-
lega af því að það gekk
ekki of vel í gær (á
fimmtudag) i undanrás-
um og svo undanúrslit-
um. Hann synti miklu
betur núna, það er alveg
ljóst.
Við ákváðum fyrir
sundið að byrja miklu
hraðar og svo bara gefa
allt í síðari hlutanum.
Það var nauðsynlegt að
byrja hratt til að halda í
við hina sundmennina
og mér fannst það koma
ágætlega út.“
Ætlaði á pall
Ég er mjög ánægður
með mitt, það verður að segjast eins
og er,“ sagði svo Örn um árangurinn.
- Var markmióinu sem þú settir þér
fyrir keppnina náö þegar þú tókst
bronsiö í 200 m baksundinu?
„Já, ég æflaði mér á pall í þeirri
grein. Ég er mjög sáttur viö árangur-
inn og þá sérstaklega að hafa náð aö
bæta mig. Það gekk í raun allt eftir."
- Ýmsir vongóóir menn voru búnir
aö spá þérgullinu í þessari grein,
var þaó óraunhœft?
„Já, eins og er.
Það hefði verið
nærri lagi að
spá því eftir
2 ár, á
'Á næsta
■ heims-
fi meistara-
móti en
það gat
» reyndar
allt
r gerst í
þessu
sundi. Ég
hefði þess
vegna getað
bætt mig um
meira en sek-
úndu með 100%
sundi en þrátt
fyrir allar slik-
ar vangaveltur
get ég ekki verið
annað en ánægður
með mitt.“
Stoltur af bronsinu
Örn sýnir Ijósmyndaranum
bronspeninginn sem hann
hlaut í gær, stoltur og ánægöur.
Þar meö er Ijóst aö hann kemur
minnst meö tvo
verölaunapeninga heim frá
Fukuoka I Japan, nokkuð
sem engan óraöi fyrir áöur
en mótiö hófst. Reuters
Silfur- og bronshafar
Austurríkismaöurinn Markus Rogan og Örn Arnarson óska hér hvor öörum til hamingju meö
árangurinn og þakka um leið fyrir drengilega keppni. í bakgrunni sést Ástralinn Matthew
Welsh sem varö fjóröi í sundinu. Reuters
Eiríkur Stefán Ásgeirsson
blaöamaður
Sterkari líkamlega
- Hvernig hagaóiróu œftngum þín-
um fyrir keppnina, samanboriö vió œf-
ingatímabilió fyrir Ólympíuleikam?
„Þetta var í raun svipað og þá. Ég
náöi samt lengri og betri æfingatíma
núna en fyrir Ólympíuleikana og allt
gekk mjög vel. Ég finn líka fyrir því
að ég er töluvert sterkari líkamlega
núna en í fyrra þannig að þaö hjálpaði
mér líka, sérstaklega í 100 m baksund-
inu.“
Örn synti í gær á einni minútu,
58,37 sekúndum og bætti þar með ís-
lands- og Norðurlandamet sitt um 62
hundraðshluta úr sekúndu. Það eitt
og sér er árangur sem er einstaklega
góður. Fyrstur varð Bandaríkjamað-
urinn Aaron Peirsol og annar Markus
Rogan frá Austurríki. Sá síðamefndi
kom mönnum sjálfsagt á óvart því fyr-
ir mótið átti hann ekki jafn góðan
tíma og þeir bestu en hins vegar er
Peirsol silfurhafi frá Ólympíuleikun-
um í greininni. Örn náði samt að
skjóta Matthew Welsh, bronshafanum
frá Sydney og sigurvegaranum í 100 m
baksundinu, ref fyrir rass því Welsh
varð fjórði í sundinu. Örn lýkur svo
keppni í Fukuoka á sunnudaginn,
þegar hann keppir í 400 m fjórsundi.
Þegar íslenska landsliðið kemur
heim i næstu viku tekur við langþráð
sumarfrí hjá Emi og félögum. Þegar
hausta tekur heldur hann svo utan til
Bandaríkjanna þar sem hann mun
stunda nám og æf-
^ ingar við há-
y skóla þar-
j / V \ lendis. í
\ / honum er
einn fremsti
sundþjálf-
ari
heims og verður því vel hugsað um
hann á næstu árum. Þá mun æfingafé-
lagi hans vera meðal annarra Lenny
Krayzelburg, heimsmethafmn í 50,100
og 200 m baksundi og Ólympiusigur-
vegari í öllum þessum greinum. Brian
Marshall, núverandi þjálfara Amar,
list vel á þetta en segir þetta alfarið
hafa verið ákvörðun Arnar að fara til
Bandaríkjanna.
„Hann þarf að komast í öðruvísi æf-
ingastöðu og hafa aðgang að ööruvisi
keppniskerfum. Hann verður vita-
skuld að æfa með fleiri afreksmönn-
um þar og svo eru sundmót háskól-
anna þar ytra auðvitað fimasterk. Til
viðbótar má nefna 50 m innilaug sem
hann mun þá hafa aðgang að en hún
er ekki til hér á íslandi í augnablik-
inu. Þetta veröur örugglega mikið æv-
intýri fyrir hann og komið að nýjum
kafla í lífi hans.“
Næsta stórmót á dagskrá er Evr-
ópumótið í 50 m laug sem haldið verð-
ur í Berlín næsta sumar. í millitíðinni
er svo einnig sams konar mót í 25 m
laug en hvort Örn tekur þátt í því
verður hann að ræða við sinn nýja
þjálfara, sagði Brian. Örn hefur tvo
titla að verja þar.
Tveggja og hálfs árs I sund
Örn er fæddur 31. ágúst 1981 og hef-
ur verið syndur frá tveggja og hálfs
árs aldri. í gegnum tiðina hefur hann
sett ófá íslandsmetin og er nú methafi
í 26 greinum, þar af 16 í 25 m laug. 23
piltamet standa enn sem hann setti á
sínum tíma og hið sama má segja um
6 drengjamet. Hann hefur fimm sinn-
um unnið til gullverðlauna á Evrópu-
mótinu í 25 m laug og hefur margsinn-
is orðið íslandsmeistari, bæði í ein-
staklingsgreinum sem og í hópgrein-
um með Sundfélagi Hafnarfjarðar.
Hann varð fjórði í 200 m baksundi á
Ólympíuleikunum í Sydney sem er
vitaskuld besti árangur íslensk sund-
manns á Ólympíuleikum. Listinn
heldur áfram en honum verða aldrei
gerð fullkomlega skil í þessum fáum
línum.
Þrátt fyrir þennan glæsilega árang-
ur hjá Erni virðist sem svo að einn
maður sé alráður í baksundi. Banda-
ríkjamaöurinn Lenny Krayzelburg er
sem áöur segir heimsmethafinn í öll-
um baksundsgreinunum og vann
Ólympíugullin sín ótrúlega öruggt.
Hann ákvað þó að taka ekki þátt i HM
í Japan þar sem hann kaus frekar að
keppa á heimsleikum gyðinga sem
fara fram á svipuðum tíma. Aðspurð-
ur um þetta segist Örn samt ekki vera
áhyggjufullur og svarar einfaldlega:
„Það er enginn of sterkur þannig að
ekki sé hægt að ná honum. Það þarf
bara að æfa og æfa, æfa, æfa.“ -esá
Umsjön: Bírgir Guðmundsson
Á leið um víkurnar
Forusta Framsóknarflokksins er
þekkt fyrir miklar gönguferðir um
hálendið og um óbyggðir bæði
austan lands
og vestan. Und-
anfarin ár hafa
helstu foringjar
flokksins farið í
langar ferðir og
árið í ár virðist
ekki ætla aö
verða nein und-
antekning, í þaö
minnsta ekki'
hvað Valgerði Sverrisdóttur varð-
ar. Á heimasíðu hennar kemur í
ljós að hún er á leiðinni ásamt
fjölda annarra í gönguferð um vík-
urnar frá Borgarfirði eystra til
Seyðisfjarðar. „Þannig kynnist
maður landinu best á tveimur jafn-
fljótum en það tekur sinn tíma og
er ekki á allra færi,“ segir Valgerð-
ur um þetta ferðalag...
Árni Steinar
í pottinum hafa menn mikið ver-
ið að velta fyrir sér pólitískri fram-
tíð Árna Steinars Jóhannssonar,
þingmanns
Vinstri
grænna á
Norðurlandi
eystra. Ljóst er
að þegar kjör-
dæmin verða
sameinuð í ,
Norðausturkjör-
dæmi myndi
Árni lenda í
þriðja sæti á lista á eftir þeim
Steingrími J. Sigfússyni og Þur-
íði Backman sem nú leiðir listann
í Austurlandskjördæmi. Ólíklegt
þykir að VG komi þremur mönn-
um að í þessu nýja kjördæmi og
því hafa menn til þessa efast um að
Ámi hafi áhuga á þessu. En nú
hefur bæst viö alveg ný vídd í póli-
tíska stöðu Árna því menn eru
farnir að velta því fyrir sér, eftir
að mál Áma Johnsens komust í
hámæli, hvort það sé yfirleitt hægt
að vera stjórnmálamaður í fram-
boði og heita þessu nafni - „Árni
Steinar"!...
Kristín í bæjarstjórn?
Sú saga hefur líka verið lífseig
að VG muni tefla Árna Steinari
fram sem odd-.
vita listans á
Akureyri þó I
Árni hafi sjálf-
ur hafnað því í
fjölmiðlum. |
Ljóst er þó að I
Vinstri grænir I
telja sig ekki I
hafa neinn aug-1
ljósan kandídat'
til að leiða lista sinn á Akureyri en
auk Áma Steinars hefur nafn
Kristínar Sigfúsdóttur, systur
Steingríms, heyrst nefnt. Kristín
hefur verið þátttakandi í bæjarpóli-
tík á Akureyri og nú síðast starfaði
hún sem ötull formaður vímuvarn-
arnefndar í bænum...
Framsókn og íhald?
Og úr því umræðan er farin að
snúast um bæjarstjórnarmál á Ak-
ureyri er rétt að greina frá um-
ræðu sem
heyrist
meðad ým-
issa fót-
gönguliða
úr röðum
bæði fram-
sóknar-
manna og sjálfstæðismanna í bæn-
um. Telja menn tíma til kominn að
þessir tveir flokkar slíðri sverðin
eftir áralöng átök og fjandskap og
snúi bökum saman á ný eftir
næstu bæjarstjórnarkosningar.
Benda menn á að vel gangi í sam-
starfinu á landsvísu og tími sé
kominn til að gefa „krötum og
kommum" frí, eins og það er orð-
að. Sjá menn þá í hillingum sam-
starfsár Jóns Sólness og Jakobs
Frímannssonar í „gamla daga“.
Skylt er þó að taka fram að þessar
hugmyndir hafa fengið misjafnar
undirtektir flokksmanna!...