Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Page 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001
I>V
Silvio Berlusconi
Ekki honum aö kenna. Ætlar ekki aö
hylma yfir meö lögreglunni.
Engin yfirhylming
á G8-ofbeldi
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, hét þvi í gær að stjóm
hans myndi ekki reyna að hylma yf-
ir með lögreglunni sem sökuð er um
að hafa beitt mótmælendur við G8-
fundinn í Genúa síðustu viku
óþarfa ofbeldi. Atferli ítölsku lög-
reglunnar hefur verið mótmælt víða
í Evrópu. Itölsk yfirvöld eru með
framgang lögreglunnar í rannsókn.
Meðal annars skaut lögreglan ung-
an ítala í höfuðið og drap hann. Þá
er hún sökuð um að hafa gengið í
skrokk á mótmælendum, ekki síst
eftir handtöku.
Berlusconi reyndi i gær að firra
sig og stjórn sína ábyrgð á atvikun-
um í kringum fundinn. Hann sagði
síðustu ríkisstjórn hafa skipulagt
fundinn og ráðið alla lögreglufor-
ingjana sem komu að gæslunni.
Rússar kalla á
innflytjendur
Á meðan flest ríki hafa áhyggjur
af straumi innflytjenda vilja Rússar
fá miklu fleiri. Rússnesk yfírvöld
hafa sett á laggirnar áætlun um að
draga 700 þúsund innflytjendur til
hins víðfeðma lands á hverju ári.
Rússum fækkar hvert ár um 700
þúsund manns. Fari svo sem horfir
mun þjóðinni fækka úr 145 milljón-
um í ár í 80 miUjónir árið 2050.
Heiftarlegur skortur á vinnuafli er
yfirvofandi ef ekki tekst að snúa
þróuninni við sem allra fyrst.
Helsta vandamálið í fólksfjölda-
þróuninni er lágur lífaldur og fáar
fæðingar. Nú þegar koma 300 þús-
und innflytjendur til landsins ár
hvert en betur má ef duga skal.
George W. Bush
„Efnahagslífið ekki nærri eins sterkt
og þaö ætti aö vera."
Efnahagslífið í
nýju lágmarki
Bandarískt efnahagslíf er aö nálg-
ast stöðnun, samkvæmt nýjum töl-
um frá öðrum ársfjórðungi þessa
árs. Hagvöxtur hefur ekki verið
minni á síðustu átta árum. Síðasta
ársfjórðung jókst landsframleiðsla
aðeins um 0,7 prósent, sem er 0,2
prósentum minna en gert var ráð
fyrir. Fyrirtæki og neytendur eru
að draga saman útgjöld og við-
skiptafjárfesting minnkaði um 13,6
prósent á milli ársfjórðunga sem er
met frá árinu 1982.
George Walker Bush Bandaríkja-
forseti sagði í gær að nýju efnahags-
tölumar sýndu að efnahagslífið
væri ekki eins sterkt og það ætti að
vera.
Kennaramorð í Flórída:
Unglingur fékk
28 ára fangelsi
Nathaniel Brazill, 14 ára gamall
kennaramorðingi, var í gærdag
dæmdur til 28 ára fangelsisvistar
fyrir glæp sinn. Réttað var yfir hon-
um sem fullorðnum en í Flórída
tíðkast harðar refsingar á börnum
sem fremja glæpi. Brazill þarf auk
þess að sitja tvö ár i stofufangelsi,
og fimm ár þar á eftir afplánar hann
skilorðsbundinn dóm. Því næst er
honum skylt að sækja námskeið til
að stjórna reiði sinni og ná sér í
próf úr menntaskóla.
Brazill skaut uppáhaldskennara
sinn á milli augnanna með skamm-
byssu afa síns eftir að honum hafði
verið meinað að tala við stúlkur í
bekknum sínum. Hann hafði þá ver-
ið rekinn úr tíma fyrir að kasta
vatnsblöðrum. Þetta var uppáhalds-
kennari Brazills, að því er hann seg-
Nathaniel Brazill
Glaöur aö fá ekki lífstíöardóm. Verö-
ur 41 árs þegar hann sleppur.
ir. Hann segist hafa skotið kennar-
ann óvart þar sem skotið hrökk úr
skambyssunni. Drengurinn var 13
ára gamall þegar atvikið átti sér
stað.
Ákærendurnir í málinu kröfðust
þess að Brazill fengi ævilangan dóm
án möguleika á reynslulausn.
Brazill, sem var handjárnaður á fót-
um þegar dómurinn var lesinn, virt-
ist létta við árin 28. Hann verður
orðinn 41 árs þegar hann sleppur úr
fangelsinu, árið 2028. Nú þegar hef-
ur hann setið af sér 428 daga.
í mars síðastliðnum var annar 14
ára piltur dæmdur fyrir morð í
Flórída. Hann fékk lífstíðarfangelsi
fyrir að drepa 6 ára gamla telpu úr
vinafjölskyldu sinni með því að æfa
á henni glímutök.
Utanríkisráöherra sýnir kabarett
Colin Powell, utanríkisráöherra Bandaríkjanna, sést hér syngja ástarsönginn El Paso fyrir japanskan starfsbróöur sinn
á ráöherrafundi bandalags Suður-Asíuríkja í Víetnam í gær. Powell valdi aö heilla japönsku yndismeyna meö kúreka-
söng sem hann söng ósjaldan sem hermaöur í Víetnamstríöinu. Kabarett utanríkisráöherranna er siður á fundinum. Á
síðasta ári fór Madelaine Albright á kostum fyrir hönd Bandaríkjanna.
Condit þingmaður
yfirheyröur á ný
Fulltrúadeildarþingmaðurinn
Gary Condit frá Kaliforníu hefur
verið yfirheyrður fjórða sinni af
bandarísku alríkislögreglunni í
tengslum við hvarf lærlingsins
Chöndru Levy. Alkunna er að þing-
maðurinn hefur játað að hafa átt í
ástarsambandi við lærlinginn sem
er 29 árum yngri en hann. Lögregl-
an neitar að upplýsa um innihald
yfirheyrslunnar og itrekar enn að
þingmaðurinn sé ekki grunaður um
aöild að hvarfi Levy sem hefur ekki
sést í tæpa 3 mánuði.
Condit er undir vaxandi þrýstingi
frá starfsbræðrum sínum um að
segja af sér. Fjölskylda Levy segist
nú íhuga þann möguleika að lög-
sækja þingmanninn til þess að fá
hann til að svara fleiri spurningum
Chandra Levy
Lögreglan leitar aö líki.
um málið. Áður hafði hún þrýst að
honum aö taka lygapróf og eftir
nokkurt þóf tók hann próf sem lög-
fræðingar hans útbjuggu. Hann
stóðst allar 10 spurningarnar, líka
þær 4 sem fjölluðu um hvarf lær-
lingsins. Hins vegar íjallaöi engin
spurning um ásakanir flugfreyjunn-
ar Anne Marie Smith um að hann
hefði reynt að fá hana til að ljúga að
lögreglunni.
Nýlega hafa fjölmiðlar gert því
skóna að eiginkona Condits hafi átt
þátt í hvarfi lærlingsástarinnar.
Hún er sögð hafa hringt í ibúð
Condits og lærlingurinn svaraði.
Áttu þær 5 mínútna símtal. Ekki er
vitað hvað fór þeim í milli en vitað
er að eiginkonan var í Washington
þegar Levy hvarf.
Kostunica gagnrýnir SÞ
BVojislav Kostun-
ica, forseti Júgó-
slavíu, gagnrýndir
Hans Hækkerup,
landsstjóra SÞ í
Kosovo, fyrir að
hygla Albönum á
kostnað Serba í hér-
aðinu. Hann segir
Hækkerup vera hræddan við öfga-
sinnaða Albana.
Átak gegn kynsjúkdómum
Bresk yfirvöld kynntu í gær
metnaðarfulla áætlun í baráttunni
gegn kynsjúkdómafaraldri sem
herjar nú á Breta. Lekandi hefur
ekki verið algengari í landinu í ára-
tug. Tæpum 7 milljörðum króna
verður varið til verkefnisins.
Nasisti í Skotlandi
Skosk yfirvöld gáfu í gær út
skipun að handtaka 85 ára gamlan
mann sem eftirsóttur er fyrir stríðs-
glæpi i Litháen í seinni heimsstyrj-
öld. Litháen bað um framsal í mars.
Óeirðaseggja leitað
Lögreglan í Bretlandi hefur sent
frá sér myndir af 20 óeirðaseggjum í
verstu kynþáttaóeirðum í iandinu í
tvo áratugi sem voru í Bradford fyrr
í mánuðinum. 320 lögreglumenn
slösuðust í óeirðunum og eru
óeirðaseggirnir eftirlýstir.
Sprengt í Baskahéraði
Sprengja sprakk í anddyri fjölbýl-
ishúss í Vitoriu, höfuðborg Baska-
héraðs, í gær. Engan sakaði. Talið
er að skæruliðasamtök ETA hafi
staðið að ódæðinu.
Krabbameinið hefur betur
Hugo Banzer, for-
seti Bólivíu, hefur
ákveðið að segja af
sér 6. ágúst næst-
komandi. Hugo er
haldinn lungna- og
lifrarkrabbameini.
Hann er 75 ára og
stjórnaði Bólivíu
fyrst í herforingjaeinræði.
Sparnaðaráætlun stöðvuð
Dómari í Argentínu hindraði í
gær ákvörðun Fernandos de la Rua
forseta um að lækka laun ríkis-
starfsmanna um allt að 13 prósent.
Áfram í einangrun
Meinti stríðsglæpamaðurinn, Slo-
bodan Milosevic,
verður áfram í ein-
angrun í fangelsi
Stríðsglæpadóm-
stólsins í Haag
næsta mánuðinn.
Milosevic bað sjálf-
ur um það að hann
yrði ekki innam um
hina 39 fangana. Hann fer aftur fyr-
ir réttinn í lok ágúst.
Dæmd fyrir lestarslys
Bresk hjón á fertugsaldri hafa
verið dæmd fyrir manndráp vegna
þess að ung dóttir þeirra og vinur
hennar létust í lestarslysi þegar þau
voru öll saman í lautarferð. Hjónin
voru dæmd sek um vítaverða van-
rækslu.
Sýna trúlofunarhringinn
Heitparið Paul McCartney og
Heather Mills sýndu fréttafólki trú-
lofunarhringa sína í gær. Bítillinn
fyrrverandi fór á hnén á fimmtudag-
inn og bað Mills sem er 33 ára.