Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Síða 12
12
Helgarblað
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001
I>V
Fjölmennasta múslímaríki heims:
Þrígift husmoðir
verður forseti
Megawati Sukamoputri var 18
ára að aldri þegar reiður múgur
nam föður hennar á brott úr forseta-
höllinni í Jakarta. Hann var fyrsti
forseti Indónesíu. Síðasta mánudag
fylgdi Megawati í fótspor föður síns,
Sukamo, og varð fimmti forseti fjöl-
mennasta múslímaríkis veraldar.
Kona skýjanna
í Indónesíu búa 210 milljónir
manna. Aðeins Kína, Indland og
Bandarikin eru fjölmennari. Það
hlýtur þvi að teljast metnaðarmál
hver stjórnar þessu fjölmenna ríki.
Megawati Sukarnoputri er tiltölu-
lega óreynd í stjórnmálum. Hún er
húsmóðir og hefur í meinhæðni ver-
ið sökuð um að hafa ekki nóg vit á
stjórnmálum. Nafn hennar merkir
„kona skýjanna". Andstæðingar
hennar hafa kallað hana Miniwati,
sem merkir kona í skýjunum. Þeir
segja hana vera húsmóður með höf-
uðið fullt af skýjum. í nýlegu viðtali
svaraði Megawati ásökunum and-
stæðinga sinna: „Hvað er að þvi að
vera húsmóðir? Ég segi við þá sem
gera lítið úr húsmæðrum, að þótt
einhver sé húsmóðir merkir það
ekki að hún skilji ekki stjórnmál."
Megawati er þrígift og þriggja
barna móðir. Hún átti öll börnin
með fyrsta eiginmanni sínum, her-
flugmanni sem lést í flugslysi. Eftir
það hljópst hún á brott með egypsk-
um diplómat. Bróðir hennar lét
ógilda hjónabandið og sendi
diplómatann aftur til Egyptalands.
Þriðji eiginmaðurinn og sá núver-
andi er fyrrverandi fylgismaður
Sukarno fóður hennar, auðugur við-
skiptamaður að nafni Taufiq
Kiemas.
Vinur Megawati sagði við fjöl-
miðla að hún hefði í raun engan
áhuga á stjórnmálum. Áhuginn lægi
hjá Kiemas sem ýtti henni áfram á
metorðastiga stjórnmálanna. Vinur-
inn sagði að Kiemas hafi viljað nýta
sér Sukarno-nafnið, en það er al-
gengt í Suður-Asíu að börn eða eig-
inkonur ráðamanna fylgi í fótspor
þeirra. Eiginmaðurinn hefur stað-
fastlega neitað þessum sögum. „Ég
er eiginmaður hennar en ég get
ekki stjórnað henni. Ef maður reyn-
ir að þrýsta á hana berst hún á
móti. Væri hún stjómmálalegur
hálfviti hefði ég aldrei kvænst
henni,“ segir hann.
Meira að segja Abdurrahman Wa-
hid, forseti þar til á mánudaginn
var, gerði lítið úr Megawati, þáver-
andi varaforseta. Hann hafði uppi
grínagtug ummæli um gáfnafar
hennar og reyndi sjaldan að hafa
„litlu systur“ með í ráðum.
Megawati hafði ekki að sið að svara
árásunum á sig.
Ræða er silfur, þögnin gull
Þegar Megawati ræddi við vin
sinn skartgripasmiö um árásimar á
hendur henni mátti greina þá taktík
sem kom henni í forsetastólinn:
„Ræða er silfur, þögnin er gull. Lát-
um vatnið renna sinn farveg. Það
kemst þangað sem það þarf að fara,“
sagði hún jafnan.
Atburðarásin sem leiddi til þess
að hún varð forseti minnir um
margt á farveg vatnsins. Eftir að
Suharto hafði varpað föður hennar
af stóli var honum í mun að hvorki
Megawati Sukarnoputri og Abdurrahman Wahid
Varaforsetinn, forsetinn og dóttir hans á meðan allt lék í lyndi. Megawati hefur nú tekið viö af Wahid sem forseti Indónesíu. Skiptar skoðanir eru uppi
um hvort hinni þrígiftu húsmóður takist að stýra indónesíu frá skipbroti.
hún né fjögur systkini hennar færu
aftur í stjórnmál. Því bauð hann
þeim bensínstöðvar, fasteignir og
fyrirtæki fyrir vilyrði um að þau
hefðu sig hæg. Þau tóku því og lof-
uðu að halda sig frá stjórnmálum.
Það hélt um sinn.
Árið 1993 lagði alþjóðasamfélagið
hart að Suharto að koma á lýðræð-
isumbótum í Indónesíu. Viðbrögðin
voru að leyfa börnum Sukarnos að
taka sæti í leppþingi landsins. Þá
þegar var Megawati orðin vinsæl af
fátækum borgarbúum í Indónesíu,
enda byggði flokkur hennar á
marxískri hugmyndafræði
Sukarnos. 1996 var flokkurinn orð-
inn of vinsæll fyrir Suharto forseta.
Hann kom af stað uppreisn gegn
Megawati og lét steypa henni af
stóli sem leiðtoga flokksins. Þetta
var upphafið að falli Suhartos, í
kjölfarið fylgdu götuóeirðir til
stuðnings Megawati. Tveimur árum
siðar reið efnahagslægð yflr Asíu og
eftir mannskæð átök neyddist
Suharto til að segja af sér. Eftirmað-
ur hans, B.J. Habibie stoppaði stutt.
Árið 1999 vann Lýðræðisbaráttu-
flokkur Megawati stórsigur í þing-
kosningum og fékk þriðjung þing-
sæta. Hins vegar tókst vini hennar
múslímaklerkinum Wahid að stela
undan henni forsetastólnum. Hon-
um reyndist auðvelt að finna högg-
stað á húsmóðurinni. Fylgismenn
hennar mótmæltu þar til hún fékk
varaforsetaembættið í sárabætur.
Mörgum er aðdragandinn að falli
Wahids kunnur. Indónesíska þingið
vann að því síöustu mánuðina að
ákæra Wahid fyrir spillingu og van-
hæfni. Hálfblindur og veikur eftir
tvö hjartaáfóll missti Wahid stuðn-
ing hersins og var síðan rekinn á
mánudaginn með 591 atkvæði gegn
engu. Hann hafði þá fyrirskipað
upplausn þingsins og boðað til
nýrra kosninga. Þrjóskur barði Wa-
hid hausnum í steininn og neitaði
að yfirgefa forsetahöllina. Veikindi
hans gáfu honum útgönguleið, hann
þurfti að leita lækninga í Bandaríkj-
unum og fór þangað á fimmtudag,
íklæddur bláum stuttbuxum, skyrtu
og hvítum strigaskóm frá Nike.
Megawati Sukarnoputri var ein-
róma samþykkt sem forseti á eftir
Wahid, við mikinn fögnuð vest-
rænna ríkja og alþjóðastofnana.
Þetta eru friðsamlegustu valdaskipt-
in í ríflega 55 ára sögu Indónesíu.
Svanasöngur Wahids
Við brottförina frá Indónésíu á
fimmtudag varaði Wahid við því að
landið væri á leið aftur undir stjórn
hersins og spillingartímar væru yf-
irvofandi. Hann vildi einnig upp-
lýsa að ævilöng vinátta hans við
Megawati væri liðin tíð. Wahid lýsti
því fyrir fréttamönnum hvernig
stjórnmálamenn væru nú þegar
byrjaðir að berjast um brauðmol-
ana. „Farið verður ránshendi um
Indónesíu og mannréttindi verða
virt að vettugi," sagði hann.
Wahid útilokar ekki framboð til
forseta árið 2004. Stuðningur við
hann mun skera úr um það. Jafn-
framt neitaði hann alfarið að vinna
með Megawati. Að hans sögn
hringdi eiginmaður Megawati í
hann að kvöldi miðvikudags og bað
hann að sýna henni samstarfsvilja.
Neyðarástand í bíói
Skiptar skoðanir eru uppi um
hvernig Megawati muni takast að
leiða Indónesíu. Á fimmtudags-
morgun var karlremba kjörin vara-
Abdurrahman Wahid
Hrakinn úr forsetastóli og farinn til Bandaríkjanna. Hann segir ævilanga
vináttu við Megawati, núverandi forseta, vera fyrir bí.
forseti. Fyrir tveimur árum barðist
Hamzah Haz hatrammlega gegn til-
raunum Megawati til að verða for-
seti. Hann sagði að konur væru
óhæfar til að stjórna fjölmennasta
múslímaríki heims. Hins vegar
studdi Megawati kjör Hamzahs til
varaforseta. Hún þarf á stuðningi
ílokks hans að halda, enda hefur-
hún aðeins þriðjung þingsæta á bak
við sig. Gera má sér í hugarlund að
samstarfið verði stirt á þeim bæn-
um. Hins vegar gæti annað vegið
þar á móti. Hamzah er sanntrúaður
múslími, á tvær eiginkonur og 12
börn. Þar sem Megawati er þjóðem-
issinnuð gæti blandan reynst árang-
ursrík frá hugmyndafræðilegu sjón-
arhorni.
Þjóðernishyggja Megawati gæti
jafnframt orðið henni að falli. Mörg
þjóðarbrot í Indónesíu berjast fyrir
sjálfstæði frá yfirvaldinu í Jakarta.
Það gæti orðið freistandi fyrir hana
að láta herinn sjá um að bæla niður
sjálfstæðistilhneigingar. Þannig
gæti hún glatað einingu ríkisins,
með hörmulegum afleiðingum.
Margir hafa viljað gera minna úr
mikilvægi Megawati og bent á að
það skipti höfuðmáli hvernig ráð-
herralið hún fái sér. Aðrir segja ill-
mögulegt að stjórna Indónesíu
vegna þess að stofnanir landsins
voru geldar á valdatíma Suhartos.
Eina stofnunin sem heitið getur er
herinn og hann krefst sífellt meiri
sjálfstjórnar. Andstæðingar
Megawati greina hættulegt hugar-
far í atferli hennar. Á meðan landið
var á barmi upplausnar að kvöldi
sunnudags og Wahid hótaði neyðar-
ástandi fór Megawati forsetaefni í
bíó með börnin að horfa á banda-
rísku teiknimyndina um Skrekk.
Byggt á greinum frá New York
Times, Chicago Tribune, Reuters
ofl.