Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Side 16
16
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001
Helgarblað____________________________________d
Örkin hans Nóa og
eldgamlar krossgátur
- ráðleggingar vegna rigningarhelgar í sumarhúsi
Hjónakorn í hreiörinu sínu
Margt má sér til gamans gera í sumarhúsi en enginn skal aö því ganga gruflandi aö sólin skín ekki alltaf, hvort sem er í eiginlegri eöa óeiginlegri merkingu.
Og þá er mikilvægt aö geta þrugöist viö því meö þeim ráöum sem duga.
Kotiö í kjarrinu
Hver á sér ekki draum um að eiga sér sumarhús þar sem gott er aö vera um indælar helgar? Þegar sólin hátt á
himni skín — rétt eins og máninn sem sungiö er um í laginu.
Við þekkjura öll strolluna sem fer
út úr bænum seinnipartinn á föstu-
dögum þegar borgarbúar í þúsunda-
tali flykkjast í sumarbústaði og
sveitasælu. Mamma, pabbi, börn og
bífl sem búið er að drekkfylla skott-
ið á af grillkjöti, kartöflusalati og
kóki, enda tilheyrir slíkt mataræði
helgardvöl í sumarhúsi. í bílskott-
inu eru líka stuttbuxur, sundföt,
boltar og keilusett því eitthvað verð-
ur fólk að hafa sér til dægradvalar í
bústaönum. Og gerir það líka. En
allt á ísaköldu landi er veðráttunni
undirorpið. Ekkert er súrara fyrir
sumarbústaðafólk en þegar flóðgátt-
ir himinsins opnast og allar fyrir-
ætlanir um sælu í sólinni verða að
engu. Margir hafa lent í þessum
hremmingum. En hvaö er til ráða?
Hvernig er hægt á svipstundu að
umpóla öllum áætlunum um veruna
i sumarbústaðnum en takast engu
að siður að gera hana prýðisgóða?
Saga af ógnaratburðum
Það stendur auðvitað alltaf fyrir
sínu að líta í góða bók, ekki síst þeg-
ar himnamir gráta. Ýmsar góðar
rigningarbækur koma auðvitað til
greina. Ætli sú sem nærtækust er sé
ekki Örkin hans Nóa. Sagan er
bráðskemmtileg og stendur alltaf
fyrir sínu. Þar segir frá Nóa og son-
um hans þremur; þeim Sem, Kam
og Jafet. Hvernig þeir komust með
konum sínum og öllum dýrum
merkurinnar sakir hygginda og dul-
vits gamla mannsins. Auðvitað eru
engir viðlíka ógnaratburðir í heim-
inum í uppsiglingu og segir frá í
þessari mögnuðu sögu. En góð saga
er alltaf góð saga og getur gagnast
vel um rigningarhelgi.
Fyrir þá sem verða húkt á veðr-
áttunni og vilja kanna uppruna
rigningarinnar bendum viö á bók-
ina Veðrið eftir Pál Bergþórsson.
Húsið er að gráta
Síðan má auðvitað líka stilla á út-
varpið og athuga hvort ekki eru ein-
hverjir rigningarsmellir á popprás-
unum. Ýmsir þekktir slagarar eru
til. „Regndropar falla við hvert
skref,“ söng Engilbert Jensen með
sinni silkiblíðu flauelsrödd. „Mér
finnst rigningin góð,“ söng Helgi
Bjömsson um árið með hljómsveit-
inni Grafík. „Húsið er að gráta al-
veg eins og ég,“ söng Helgi - og átti
þar væntanlega við sumarhúsið. En
auðvitað er goðgá að fólk gráti tár-
um krókódílsins þótt skýin skvetti
úr sér. Rigningin hefur nefnilega
ýmsa góða kosti. Innivera í sumar-
bústaðnum getur styrkt fjölskyldu-
böndin. Lítum á nokkra möguleika.
Krossgátur og Jón Óttar
í sumarbústöðum eru gjarnan til
heilu bunkarnir af gömlum tímarit-
um. Sum með ó- eða hálfráönum
krossgátum sem gaman getur verið
að ljúka við. Slíkt örvar málþroska
og orðaforða. Það getur líka verið
bráögaman að fletta þessum tímarit-
um, bara til þess aö spá í andblæ,
tísku og viðhorf liðinna stunda.
Skoða tíu ef ekki tuttugu ára gömul
eintök af Vikunni, Heimsmynd og
Mannlífi þar sem Jón Óttar er i for-
síðuviðtali og segist elska Völu
Matt. Ef til vill hafa þau átt sínar
sælustundir í sumarhúsi forðum
daga - og það getur verið áhugavert
að velta upp þeirri spurningu
hvernig þeirra rigningarhelgar þar
hafa verið. Svarið er að vísu ekki að
finna í þessum gömlu blöðum
þannig að fólk verður að láta
imyndunaraflið ráða ferðinni um
ævafom ævintýri sjónvarpsstjórans
fyrrverandi og arkitektsins sem
alltaf brosir.
Spurt um Napóleon
Trivial Pursuit er spilið sem
stendur alltaf fyrir sínu. Við lesum
stundum í minningagreinum í
Mogganum um að fólk minnist jól-
anna með ljúfsárum trega og nefnir
þá að stundum hafi þeir með hinum
látna eytt jólunum í þessu skemmti-
lega spurningaspili. En þarf heilaga
hátíð til að leggjast í spilamennsk-
una, dugar ekki rigningarhelgi í
sumarbústað? Er ekki hægt að
skemmta sér þar og þá við að tékka
með þessu spili á kunnáttu fólks um
Napóleón keisara, fæðingarár Jóns
forseta, hver sé stærsti þéttbýlis-
staðurinn á Snæfellsnesi og fleira
slíkt sem teljast vera almenn þekk-
ingaratriði.
Spurningabækur Hemma Gunn
geta gert sama gagn enda margan
fróðleiksmolann þar að finna.
(Saknar þú sjónvarpsþátta Hemma
Gunn?)
Regndropa í munninn
Gönguferðir í rigningu geta verið
ágætar. Blotna alveg frá hvirfli til
ilja, það er að segja ef maður er ekki
í skjólgóöum regnfötum. En þau
geta sjálfsagt verið hriplek. Sund-
laugarferðir í rigningu eru líka af-
skaplega notalegar. Hvað er annars
betra en liggja í heitum pottinum og
fá kalda regndropana ofan á sig?
Jafnvel galopna munninn og láta
dropana detta ofan í sig. Það hlýtur
að vera ágætt.
Kótelettur í sólarolíu?
Fólk fer tæpast að bisa við grill-
mennsku úti á verönd þegar úr
himnunum rignir svo hressilega að
líkast er sem úr fötu sé hellt. Þá
verður fólk að færa eldamennskuna
inn í hús. Þó menn vilji komast í
sólskinsskap við matargerðina er
samt ekki ráðlagt að steikja kótel-
etturnar upp úr sólarolíu heldur
nota hefðbundnari feiti. Og þarna
gefst líka tilvalið tækifæri til að
koma bömunum á bragðið af sól-
þurrkuðum saltfiski. Ekki taka hið
minnsta mark á mótmælaaðgerðum
ungviðisins!
Léttar glettur lyfta geði
Ekki eru allir landsmenn svo vel
settir að eiga börn og buru og þurfa
því að dvelja einir í sumarbústaðn-
um. Hér eru nokkur heilræði fyrir
sumarhúsaeinbúa þegar spáð er
rigningu:
• Taktu með þér afrit af öllum
getraunaseðlunum þínum síðustu
20 árin og farðu yfir þá. Hver veit
nema einhvers staðar leynist ósótt-
ar milljónir og bíði eiganda sins.
• Vertu þér úti um heildarútgáfu
ísfólksins og hafðu með þér í bú-
staðinn. ísfólkinu var líka stundum
kalt og lestur eflir andann.
• Leigðu þér farsólbekk og há-
fjallasól á hjólum.
• Leigðu þér spólu með Singing
in the Rain og dansaðu i rigning-
unni. Dancer in the Dark virkar
ekki eins vel.
• Ekki hætta við að fara. Kannski
verður úrkoman bara í Grennd og
bæjunum þar í kring.
• Gerðu ráðstafanir til að jafna
rakastigið úti og inni. Öls er þörf og
annarrar kverkavætu.
• Hafðu með þér ferðatölvuna og
lestu heimasíðu Björns Bjarnasonar
frá upphafi. Léttar glettur lyfta geði.
• Taktu mið af aðstæðum og
búðu þig undir að semja blautlegar
vísur i massavís.
• Hafðu með þér indíána og láttu
hann dansa regndansinn rangsælis.
Þá hættir strax að rigna.
-sbs / -JS