Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Side 24
24
Helgarblað
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001
DV
Síðasti eftirlifandi skipverjinn af Hood:
Hinsta
kveöjan
- Ted Briggs rifjar upp orrustuna
við Bismarck
Það lá vel á Ted Briggs, fyrrver-
andi skipverja á HMS Hood, þegar
blaðamaður og ljósmyndari DV
hittu hann á hafnarbakkanum í
Grindavík á fimmtudaginn. Briggs
var að koma úr minningarathöfn
um þá sem létust með Hood sem
skipulögð var af bresku sjónvarps-
stöðinni Channel 4. Sjónvarpsstöðin
gerði út leiðangur til að finna flak
skipsins og fannst það loks á mánu-
daginn og var minningarathöfnin
haldin í kjölfarið. Minningarskjöld-
ur var lagður á flakið þar sem það
liggur á 3000 metra dýpi og Ted
Briggs lagði blómsveig á hafflötinn
til minningar um félaga sína. „At-
höfnin í dag var afar hjartnæm og
einfóld og ég held að hún hafi sagt
allt sem segja þurfti," sagði Ted
Briggs við komuna til Grindavíkur
og var ekki laust við að hann væri
svolítið klökkur i rómi.
Mikill léttir
Briggs er tiltölulega lágvaxinn
maður, þéttur á velli og léttur í lund
og svo em að maður á bágt með að
trúa því að hann skuli vera kominn
hátt á níræðisaldur. Hann kom fyrst
um borð í Hood í júnimánuði árið
1939 og hafði þvi verið á skipinu í
tæp tvö ár þegar því var grandað af
þýska herskipinu Bismarck í lok
maí 1941. Alls fórust 1416 manns
meö Hood, aðeins þrír skipverjar
komust af og er Briggs sá eini
þeirra sem enn er á lífi. En hvernig
tilfinning skyldi það vera að geta
loksins vottað félögum sínum virð-
ingu sína á þeim stað þar sem hinn
örlagaríki atburður átti sér stað?
„Þetta er mikill léttir fyrir mig að
þeir skuli hafa fundið skipið og að
ég skuli loksins geta kvatt það og fé-
laga mína hinstu kveðju,“ segir Ted
Briggs. „Þetta er mér mjög mikils
virði, bæði persónulega og einnig
sem forseta Hood-samtakanna.“
Þess má geta að HMS Hood-samtök-
in samanstanda af fyrrverandi skip-
verjum, fiölskyldum þeirra á Hood
og öðrum áhugamönnum um hið
fomfræga fley sem var á sínum
tíma stolt breska flotans.
Sökk á þremur mínútum
Þrátt fyrir að 60 ár séu liðin frá
sjóorrustunni milli Hoods og Bis-
marcks er hún Ted Briggs enn í
fersku minni. „Hood og Prince of
Wales voru send til að hefta fór Bis-
marcks og Prinz Eugens á Græn-
landssundi. Að morgni hins 24. maí
um klukkan fimm mínútur í sex
hófust átökin. Við komum þeim al-
gerlega i opna skjöldu og höfðum
reynt að ógna þeim i um sex stund-
ir áður en þeir tóku við sér. Þeir
skutu á okkur. Fyrsta skotið dreif
ekki alla leið, annað skotið fór yfir
skipið og það þriðja hæfði skipið og
mikill eldur braust út. Við reyndum
að koma byssunum í gang þegar
enn eitt skotið skall á okkur. Það
hæfði skotfærageymsluna og skipið
sprakk í loft upp og sökk á þremur
mínútum," segir Briggs og setur
hljóðan um stund.
Réttur maður á réttum stað
Það er ótrúlegt að Briggs skuli
hafa komist lifandi úr þessum
mikla hildarleik og lék blaðamanni
DV-MYNDIR EINAR J.
Þreyttur en glaður
Ted Briggs var léttur í lund en svolítiö þreyttur þegar hann sigldi inn í Grindarvíkurhöfn á fimmtudaginn eftir aö
hafa tekiö þátt í minningarathöfn um félaga sína á Hood.
Prinsinn af Wales kemur
til hjálpar
Félagarnir þrír þurftu að bíða dá-
góða stund áður en hjálp barst.
Breska herskipið Prince of Wales
sem fylgdi Hood þennan örlagaríka
morgun hafði hörfað undan skot-
hríð Þjóðverja eftir að skipið hafði
laskast. Skipinu var þó ekki grand-
að eins og Hood og kom því í hlut
skipverja þess að svipast um eftir
því hvort einhverjir hefðu lifað
sprenginguna af. „Skipverjar á
Prince of Wales sem voru með okk-
ur í fór voru vonlitlir um að ein-
hverjir hefðu komist lífs af. Til allr-
ar lukku tók yfirforinginn ekki
mark á þeim og sendi tvo tundur-
spilla til að leita að okkur. Þegar
þeir komu á staðinn þremur og
hálfri klukkustund síðar fundu þeir
aðeins okkur þrjá. Það var allt og
sumt.“ Briggs og félögum hans var
bjargað um borð og færðir til hafn-
ar í Reykjavík. Hefur hann ekki
komið til íslands aftur fyrr en nú
þegar honum gafst loksins tækifæri
til að kveðja félaga sína hinstu
kveðju með viðeigandi hætti.
EÖJ
Hetjan í höfn
Ted Briggs fékk aöstoö starfsmanna Channel 4 viö aö komast upp úr lóösbátnum upp á hafnarbakkann
enda er hann ekki jafnfimur á fæti nú og fyrir 60 árum.
því forvitni á að vita hvernig hann
bjargaðist. „Við vorum uppi í stýris-
húsi þegar sprengingin varð og
flýttum okkur niður stigann á þil-
farið og lentum þá í sjónum," segir
Briggs. Hann segir annan félaga
sinn sem komst lífs af hafa verið
uppi á þilfari og farið út yfir borð-
stokkinn og náð að synda frá
sökkvandi skipinu. „Ég synti í
burtu eins hratt og ég gat og þegar
ég leit til baka var skipið horfið. Ég
sá aðeins félaga mína tvo. Það
komst enginn annar af,“ segir Ted
Briggs tregafullri röddu.
Sviösljós
Shannen rekin
úr vinnunni
Shannen Doherty, sem á Berverly
Hills þáttunum að þakka frægð
sína, hefur lent illa upp á kant við
fyrrum samstarfskonu sína, Tori
Spelling. Ástæða þess er aö
Shannen hefur opinberlega ráðist á
Aaron Spelling, föður Tori, og kall-
að hann öllum illum nöfnum.
Aaron var yfirmaður leikaranna í
Beverly Hills á sínum tíma og útvegaði
Shannen hlutverk í þáttunum Charmed
eftir að hún var bókstaflega hrakin burt
frá Beverly Hills-þáttunum.
Shannen var á dögunum líka lát-
in fiúka frá Charmed þar sem henni
lyndir ótrúlega illa við Alyssu Mila-
no sem einnig leikur i þáttunum.
Shannen hefur sagt að Aaron hafi
leikið hana grátt og ekki virt hæfi-
leika hennar fyrst hann taldi réttast
að reka hana. Um Alyssu segir hún
að hún hafi verið mjög erfið í um-
gengni og ekki gert annað á töku-
stað en að væla yfir launum og að-
búnaði þrátt fyrir að vera með rok-
tekjur.
Shannen tollir llla í vlnnu.
Vill kjöltudans
Rusell Crowe lifir
hröðu lífi, raunar svo
hröðu að slúðurblöðin
eiga í erfiðleikum með
að halda í við kappann.
Fyrir tveimur vikum
bárust fregnir af því að
Russell hefði varið nóttu
með Heather Graham en
nokkrum dögum síðar
sást til hans með gömlu
kærustunni Meg Ryan.
Blöðin töldu þá víst að þau væru
tekin saman á ný. í síðustu viku fór
Russell svo til Fiji með Nicole Kid-
man sem sleikir sárin þessa dagana
eftir að talsmaður Tom Cruise ját-
aði að leikarinn hefði
farið á nokkur stefnu-
mót með Penelope Cru-
iz.
Það nýjasta af Russell
er að hann er víst afar
iðinn við að sækja næt-
urklúbb sem heitir Scor-
es. Russell hefur ekki
látið lítið fyrir sér fara á
þeim stað og hans uppá-
haldsiðja er að sögn
þeirra sem til hafa séð að sleikja
rjóma af líkömum nektardansmeyj-
anna. Þá kann hann vel að meta
kjöltudansinn sem er svo móðins
hér á landi nú um stundir.