Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Side 27
27
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001
x>v _________________________________________________________________________________________________Helgarblað
Hestakona í Mosfellsbæ í þriðja sæti:
Feimin framsóknarstúlka
það er íris Dögg Oddsdóttir sem kveðst ekki vera á leiðinni með lítið kríli
„Hamingjan er ábyggilega það sem
skapar fegurðina," segir íris Dögg
Oddsdóttir sem varð í 3. sæti sem ung-
frú ísland sl. vor. Hún mun í krafti
þess fara út til Tokyo i Japan í septem-
ber og taka þar fyrir íslands hönd þátt
í keppninni um Miss Intemational.
Þátttaka írisar þar var raunar afráðin
strax í júní sl., talsvert löngu áður en
Ragnheiður Guðnadóttir gerði upp-
skátt að hún gengi með barn undir
belti. „Við erum öll mannleg," segir
íris Dögg um óléttu Ragnheiðar. „Þó
að við íris Björk tökum nú að okkur að
fara í þær keppnir sem Ragnheiði var
ætlað að sækja þá er hún auðvitað hin
eina og sanna fegurðardrottning ís-
lands og verður áfram. Nei, ég er ekk-
ert á leiðinni með lítið krDi í bráð, þótt
maður viti aldrei hvað gerist."
Náttúrubarn og sveitastelpa
íris Dögg hefur löngum þótt öðram
stúlkum fegurri. Það fékk hún ung að
heyra og vita. Var til dæmis kjörin feg-
urðardrottning Gagnfræðaskólans í
Mosfellsbæ þegar hún var þar í 8., 9. og
10. bekk. Þá tók hún þrettán ára göm-
ul þátt í Elite-keppninni, sigraði hér
heima og fylgdi því svo eftir með þátt-
töku í sýningum erlendis. Allt hefur
gengið írisi í haginn síðan en henni
var þó ofurlítið bragðið þegar hún
frétti sl. miðvikudag að hún yrði fyrir-
varalaust að taka við skyldum ungfrú
ísland. „Vinkona mín hringdi í mig eft-
ir hádegi þennan dag og spurði mig
hvort ég væri búin að lesa DV þar sem
frá því væri sagt að Ragnheiður væri
ólétt. Ég hringdi strax í Elínu Gests-
dóttur, framkvæmdastjóra Fegurðar-
samkeppni Islands, og hún sagði mér
hvemig í málinu lægi. En annars
breytir þetta ekki miklu fyrir mig,
áður hafði verið afráðið að ég færi
utan til Japans í keppnina um fegurstu
konu heims,“ segir íris Dögg.
„Ég er náttúrabarn og sveitastelpa. í
Mosfellsbæ á ég heima og þar þekki ég
nánast annan hvem mann,“ segir Iris
þegar biaðamaður biður hana um að
segja frá sjálfri sér. Hún kveðst hvergi
una sér betur en í sveitasælunni í
heimabæ sinum. Af sama meiði og
sveitamennskan í blóði írisar er sjáif-
sagt líka áhugi hennar á hestum. í sum-
ar starfar hún til dæmis uppi við Reyn-
isvatn þar sem fólk getur keypt sér
veiðileyfi og farið á hestbak. Hestaferðir
eru eftirlæti írisar sem sjálf á tvo hesta.
„Ég hef ekkert komist á bak í sumar
en mig langar mikið að komast austur í
Mýrdal á hestbak þar. Síðan er lika
alltaf skemmtiiegt að fara i Borgarfjörð-
inn.“
Kærasti með skítuga putta
Unnusti írisar Daggar er Geir Óskar
Hjartarson sem starfar á Bifvélaverk-
stæði Reykjavíkur með bróður hennar.
Á hestaleigunni
Fegurðardísin íris Dögg Oddsdóttir á
hestaieigunni og veiðiparadísinni við
Reynisvatn þar sem hún starfar í sum-
ar. „Ungu fólki á mínu reki í dag finnst
það yfirleitt vera alþjóðasinnað og
þess vegna finnst mér rasisminn sem
er víða að festa sig í sessi vera svo
hræðilegur. “
MYND-BRINK
í gegnum hann, það er Vigni, bróður
írisar, bar fundum hennar og Geirs
fýrst saman - og ekki var að sökum að
spyrja - jafhvel þótt Geir Óskar sé 28
ára, tíu árum eldri en hans
heittelskaða. Hún kveðst ekkert setja
fyrir sig þótt unnustinn sé bifvélavirki
og þar af leiðandi stundum með
skítuga putta. „Ég vil bara hafa hann
eins og hann er, mestu máli skiptir að
ég er búin að komast að því hvem
mann hann hefur að geyma."
íris er yngst fimm systkina, bama
þeirra Guðrúnar Jónsdóttur skrifstofu-
„Ég hef eitthvað af þessum kostum
en ekki alla. Ég er til dæmis pínulltið
feimin en ég er nú að reyna að yfir-
stíga það.“
Æskan er alþjóðasinnuð
En íris Dögg Oddsdóttir er ekki bara
falleg stúlka i Mosfellsbæ, fegurðar-
drottning íslands í viðlögum. Hún hefur
líka sínar meiningar um það hvemig
þjóðfélagið eigi að vera og liggur ekki á
skoðunum sínum þar. „Ég hef alltaf
talið mig vera framsóknarmegin í póli-
tískum skoðunum, ég veit ekki hvers
vegna. Kannski af þvi ég er svo mikil
sveitastelpa i mér. Ungu fólk á mínu
reki i dag finnst það yfirleitt vera al-
þjóðasinnað og þess vegna finnst mér
rasisminn, sem er víða að festa sig í
sessi, vera svo hræðilegur. Þetta erlenda
fólk auðgar íslenskt mannlif á ýmsa
lund og af því er mikill fengur, hvemig
sem á málið er litið.“ -sbs
Brosað framan í heiminn
„Hamingjan er ábyggilega það sem skapar fegurðina. “
I túnlnu heima
„Ég ætlaði mér alltaf, þegar ég varyngri, að fara í Bændaskólann á Hólum en þegar
ég vissi hver afkoma sveitafólks er féll ég alveg frá þeim hugmyndum mínum. “
manns og Odds Þórðarsonar sem
starfar hjá Rannsóknastofnun bygging-
ariðnaðarins. Hún stundar nám á
verslunarbraut Borgarholtsskóla. Hún
segist nú stefna að því að ljúka versl-
unarprófi en ætlar siðan yfir á mála-
braut og ljúka stúdentsprófi af henni.
„Ég ætlaði mér alltaf, þegar ég var
yngri, að fara í Bændaskólann á Hól-
um en þegar ég vissi hver afkoma
sveitafólks er féO ég alveg frá þeim
hugmyndum minum.“
Pínulítiö feimin
í tímaritsviðtali nýlega gagnrýnir
Lilja Pálmadóttir, löngum kennd við
Hagkaup, fegurðarsamkeppnir harð-
lega og nefnir margt í því sambandi.
Segir meðal annars að fráleitt sé að
mæla gáfur stúlknanna sérstaklega í
keppnum af þessum toga. íris Dögg er
ekki sammála þessu, telur raunar mik-
Ovægt að stúlkur sem taka þátt í
keppni um fegurð hafi „eitthvað í
hausnum" eins og hún kemst að orði.
Stúlkur þurfi, ekki síst þær sem fara
utan sem fagrir fuOtrúar þjóðarinnar,
að vera ófeimnar, vel máli famar, með
bein í nefmu - og auðvitað sætar líka.
RÆSIR HF Nýr bíll
Til sölu
Eigum til afgreiöslu strax:
Mazda MX-5 Sporty. Eftirtalinn búnaður innifalinn í verði:
ABS-hemlar, LSD-tregðulæsing, blæja og harður toppur
(samlitur), hiti í sætum, upphitaðir og rafstýrðir útispeglar,
leðuráklæði, leðurklætt stýri og gírstöng, sportfjöðrun,
loftpúðar, x2, hvítir mælar, hljómtæki, rafdr. loftnet, 16“
álfelgur, hjólb. 205/45/16, 6 gíra beinskipting.
Verðkr. 2.550.000.
Ræsir hf.
Skúlagötu 59
105 Reykjavik
S. 540-5400
www.raesir.is