Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Qupperneq 41
48
LAUGARDAGUR 28. MARS 2001
Tilvera
Ágúst Ásgeirsson F1 sérfræðingur:
Telur titilinn í
höfnáMonza
Ágúst Ásgeirsson hefur ver-
ið landsmönnum kunnugur
fyrir fleira en að vera íslands-
meistari í langhlaupum því
undanfarin ár hefur hann ver-
ið maðurinn á bak við For-
múlu 1 vef Mbl.is. DV spurði
hann nokkurra spurninga
varðandi Formúlu 1.
Sextíu stig eftir í pottin-
um og Michael Schumacher
með 37 stiga forskot, getur
einhver stöðvað hann og
Ferrari úr þessu?
„Líklega ekki. Ég bind þó
enn vonir við aö David Coult-
hard hleypi spennu í keppn-
ina um heimsmeistaratitil
ökuþóra svo hún verði ekki
búin löngu fyrir mótslok. En
til þess þarf hann að vinna
flest mótanna sem eftir eru og
miöað við hve Ferrari-bíllinn hefur verið sprækur á árinu hljómar
það meira sem óskhyggja en raunhæfur möguleiki. Mér finnst meiri
likur á að Schumacher verði krýndur heimsmeistari í Monza!“
Hvað hefur verið að hjá McLaren? Og er David Coulthard
megnugur að berjast við Schumacher um titilinn?
„Coulthard og Mika Hakkinen hefðu tvímælalaust slegist við
Schumacher ef McLaren-bíIlinn hefði verið í lagi frá fyrsta móti. Á
það hefur vantað og þróun bílsins á undirbúningstímanum eitthvaö
misheppnast. Eftir að vængaflið batnaði og bílar McLaren virtust
orðnir áþekkir Ferrari tók misheppnuð gripstýring að gera ökuþór-
unum grikk til skiptis."
Hvaða ökumaður hefur komið þér mest á óvart á tímabilinu?
„Kimi Ráikkönen hefur komið mér einna mest á óvart sakir mun
betri frammistöðu en maður bjóst við. Ég hélt að Juan Pablo
Montoya myndi afreka meira en hann hefur gert. Þá hefur Jenson
Button valdið mér vonbrigðum, ég hélt mikið upp á hann í fyrra en
líklega skrifast slakt gengi á brösugan Benetton-bílinn."
Áfall í Formúlu 1, Heinz H. Frentzen rekinn frá Jordan.
„Algjörlega óskiljanlegt en þeir sem þekkja Eddie Jordan eru ann-
arrar skoðunar svo líklega hefur þetta eitthvað með skapgerð hans
og stjórnarhætti að gera. Frentzen hefur að visu ekki unnið stig í sjö
mótum í röð en ég held það hafi meira með bilinn að gera því Heinz-
Harald er afburða ökuþór, samanber 1999. Þegar á móti blæs held ég
líka að ekki sé rétt að reka ökuþórinn og Jordan hafði framlengt
samning hans fyrir mánuði.“
Hverju spáir þú um mannabreytingar fyrir næsta ár?
„Óbreytt skipan virðist ætla að verða hjá Ferrari, McLaren.Willi-
ams, Sauber, BAR og Jagúar. Jean Alesi vill keppa áfram fyrir Prost
en fjárhagsmál gætu leitt til annars. Ætli Trulli verði ekki áfram hjá
Jordan þótt Benetton eigi rétt á honum, ekki síst vegna brottfarar
Frentzens. Áleitin spurning er þó hvort Benetton og Jordan skiptist
á Trulli og Button. Ég hef ekki trú á að Zonta verði fastur ökuþór hjá
Jordan nema þá að hann borgi mjög með sér. Ég myndi frekar veiða
Fernando Alonso frá Minardi væri ég Eddie Jordan, þar er mikið
efni á ferð. Og semjist ekki með Hakkinen og McLaren, sem er fjar-
stæðukennt, opnaðist pláss fyrir Frentzen hjá Benz-knúna liðinu
fremur en Alexander Wurz.“
Formúlu 1 vefur mbl.is hefur verið mjög vinsæll, hvernig
varð hann að veruleika?
„Ætli vefurinn skrifist ekki á mig, ég hef séð um hann og skrifaö
frá byrjun. Ég hef starfað á Fréttavef Morgunblaðsins frá upphafi og
í ljósi vinsælda formúlunnar í Sjónvarpinu stakk ég upp á því að við
hleyptum af stað sérstökum vef um íþróttina til að svala frétta- og
upplýsingaþrá formúluunnenda. Hann hóf göngu sína rétt fyrir upp-
haf keppnistímabilsins 1999. Góðar mótttökur hafa hvatt okkur til
dáða í þeim efnum en formúluvefurinn er fjölsóttari en allar síður
Fréttavefjarins nema forsíða mbl.is og innlenda fréttasíðan." -Ómar
1. Michael Schumacher 84 1. Ferrari 118
2. David Coulthard 47 2. McLaren 66
3. Rubens Barrichello 34 3. Williams 46
4. Ralf Schumacher 31 4. Sauber 19
5. Mika Hákkinen 19 5. Jordan 15
6. Juan Pablo Montoya 15 6. BAR 12
7. Nick Heidfeld 10 7. Jaguar 5
8. Kimi Raikkonen 9 8. Prost 3
9. Jarno Trulli 9 9. Arrows 1
10. Jaques Villeneuve 7 10. Benetton 1
Schumachers
- jafnar hann met Alains Prosts á morgun?
Stærsti og magnað-
asti sirkus heimsins
er nú staddur í Þýska-
landi og mun sirkus-
stjórinn ræsa á Hoc-
kenheim-ring-brautinni tólftu keppni
Formúlu 1-mótaraðarinnar í ár.
Langt inni í skóginum við hlið lítils
þorps í suðurhluta landsins er þessi
6,823 km langa braut sem hefur verið
hluti af sögu Formúlu 1 síðan 1970 er
Jochen Rindt sigraði á Lotus 72C-bíl
sínum. Þetta er ein hraðasta og
lengsta brautin á dagatalinu og hefur
hún mátt sæta gagnrýni af hálfu
Bemie Ecclestone fyrir legu sína sem
hefur neytt brautareigendur til
breytinga sem koma munu í gagnið
fyrir næsta ár. Hafa þeir með því
tryggt sér Formúlu 1 fyrir næstu sjö
ár. Núverandi lega brautarinnar er i
raun eins og tvær ólíkar brautir.
Löngu beinu kaflamir sem hverfa
inn í skóginn og svo „statium" og
ráshluti hennar (sjá graf). Þetta
krefst tveggja stillinga á bílana eins
og gefur að skilja. Til að fá góðan
hraða innan trjánna þarf litla væng-
pressu en öfugt á hinum hluta braut-
arinnar. Þetta setur ökumenn og
keppnislið í vanda, því eru æfmga-
tímar fostudags og laugardags mikil-
vægari en oft áður. Hockenheim-ring
er þekkt fyrir að vera vélabani.
Ástæðan er löngu kaflamir þar sem
bílamir ná allt að 340 km/klst. þar
sem vélamar eru í fullri gjöf 60% af
hverjum hring. Álagið á bremsur er
líka mikið því til að minnka þennan
gífurlega hraða á örfáum metmm
niður í 90 km/klst„ fyrir krókbeygj-
urnar þrjár sem eru milli beinu kafl-
anna, þarf öflugt og endingargott
bremsukerfl.
Þjóðverjar brjálaðir
í Formúíu 1
Ef Formúla 1 er vinsæl á íslandi
þá er hún hrikalega vinsæl í Þýska-
landi. Þá ekki síst vegna þjóðarhetju
þeirra, Michaels Schumachers, sem
er á góðri leið með að tryggja sér
fjórða titilinn og getur um helgina
jafnað met Alains Prosts og unnið
sinn 51. sigur. Einnig hefur bróðir
hans, Ralf, verið að koma sterkur
inn. Þeir Nick Heidfeld og hinn
nýrekni Jordan-ökumaöur, Heinz
Harald Frentzen, era líka vinsælir.
Þýskir bilaframleiðendur, Mercedes
og BMW, eru risar í Formúlu 1 og
eiga ekki síst sinn þátt í vinsældum
kappakstursins í landinu. Fyrir
þennan mikla áhuga hefur Ecclesto-
ne launað Þjóðverjum með tveimur
„heima“-keppnum á ári og eru þeir
eina þjóðin utan ítala sem njóta þess
heiðurs. Núrburgring hefur verið
fastur hluti af dagatali Fl síðan 1951,
er Alberto Ascari sigraði á Ferrari
375, og nýja Núrburg síðan 1997.
Stemningin á Hockenheim er alltaf
mikil í áhorfendastúkunum þar sem
rauðu blysin til heiðurs rauðklæddu
hetjunni eru áberandi. Þjóðverjar
era líka duglegir að heimsækja ná-
grannakeppnimar í Belgíu, Austur-
riki og jafnvel alla leið niður til ítal-
íu. Þeir era sannarlega Formúlu-
óðir.
Stigakeppnin orðin
aukaatriði
Þrátt fyrir spennandi keppnir á
þessu tímabili er ekki hægt að segja
að sama spennan sé í stigakeppninni.
Michael Schumacher hefur nú 37
stiga forskot á David Coulthard með
84 stig á móti 47 stigum Skotans. Það
er nánast því ekkert sem getur kom-
ið í veg fyrir að heimsmeistarinn
þrefaldi lyfti þeim fjórða á næstu vik-
um. Jafnvel áður en september lýk-
ur. Michael Schumacher hefur að-
eins fallið út í einni keppni og í öll-
um hinum hefur hann lent ýmist í
fyrsta eða öðra sæti. Sex sinnum ver-
ið fyrstur, fjóram sinnum annar.
Hver getur keppt við svona ótrúlegan
árangur? Ekki McLaren-ökumaður-
inn David Coulthard. Hann gerði út
um titilbaráttu sína á Silverstone fyr-
ir hálfum mánuði með aulalegum
mistökum í ræsingu er hann ók i veg
fyrir Jarno Trulli í fyrstu beygju.
„Hann er ekki í keppni um heims-
meistaratitilinn og á að vikja,“ sagði
númer 4 um Jordan-ökumanninn en
svona tala ekki sannir keppnismenn.
Coulthard virðist líka vera farinn að
sætta sig við að þetta sé ekki hans ár.
LAUGARDAGUR 28. MARS 2001
49
Tilveral
Hann ætlar að taka
eina keppni í einu og
er farinn að stefna á
annað sætið. „Það
eru sex keppnir eftir
á FIA Formúlu 1-
mótaröðinni og við
hjá McLaren ætlum
að byggja ofan á ann-
að sætið sem við
höldum bæði í öku-
manns- og liðakeppn-
inni.“ Eini maðurinn
sem virðist hafa
sama hraða og snilld
og Michael
Schumacher er sá
sem sannarlega flaug
i síðustu keppni á
Silfursteins-braut-
inni. Mika Hákkinen
sýndi loks sitt rétta
andlit og er greini-
lega engu búinn að gleyma og er von-
andi kominn í gírinn á ný. Tíu
keppnum of seint. „Sigurinn á Silver-
stone er mér mikils virði og sannaði
að ég er jafnákveðinn að vinna og
áður,“ segir kappinn sem sigraði síð-
ast á Hockenheim árið 1998. „Þessi
braut er mikil áskoran sem býður
upp á nokkra möguleika á framúr-
akstri. Andrúmsloftið er líka frá-
bært. Maður heyrir lætin í áhorfend-
um þegar maður kemur inn á „stadi-
um“-hlutann og er það mjög óvenju-
legt í Formúlu l.“
Ferrari með mikla forystu
Staða Ferrari er orðin nokkuð
sterk ef litið er á forskotið í stiga-
keppninni, þegar komið með 118 stig
á móti 66 stigum McLaren. Þeir
ítölsku hafa verið jafngóðir á öllum
brautum í sumar og virðast enn vera
að sækja í sig veðrið þvi þeir hafa
verið að þróa nýja vél sem hugsan-
lega verður notuð í keppninni á
morgun. „Við prófuðum vélina í síð-
ustu viku og fóram 73 hringi og allt
fór vel. Þetta er ekki ný vél heldur
þróun frá þeirri gömlu og ég held að
við getum notað hana í keppninni
um helgina. Endahraðinn er alltaf
mjög mikilvægur á Hockenheim og
ég tel að við og vélin komum til með
að gera góða hluti um helgina," sagði
brasilíski ökumaður Ferrari-liðsins,
Rubens Barrichello, fyrir helgi. Hann
átti einn eftirminnilegasta sigur síð-
ari ára er hann ræsti í átjánda rás-
stað, vann sig upp á léttum bíl - setti
hraðasta hring og þegar það byrjaði
að rigna á seinni hluta keppninnar
hélt hann áfram án þess að fara inn
á regndekk og sigraði. Ófeiminn grét
hann á verðlaunapallinum og var
borinn í gullstól af McLaren-félögun-
um sem komu í öðru og þriðja sæti.
Hann var ekki eins glæsilegur, sigur
fyrrum nr. 2 ökumanns hjá Ferrari,
Eddie Irvine, árið 1999. Mika Salo,
sem þá ók í stað Michaels
Schumachers, „gaf‘ íranum fyrsta
sætið. Irvine ætlar að leggja allt í söl-
umar með Jagúar í timatökum í dag
og ekki síst í keppninni á morgun
þar sem hann vonast til að rafeinda-
búnaður bílsins hjálpi honum. „Hoc-
kenheim er ekki mjög krefjandi frá
sjónarhóli ökumannsins. Bara fara á
fullu niður beinu kaflana og afgang-
urinn snýst um gripið út úr hægu
beygjunum. Og með það í huga þá
virðist sem gripstýringin geti orðið
mikilvæg og okkar kerfr virðist virka
mjög vel.“
Skarð fyrir skildi
Sú ákvörðun Eddies Jordans að
reka Heinz H. Frentzen, aðalöku-
mann sinn til þriggja ára, kemur
mörgum gersamlega í opna skjöldu.
En árangur Frentzens og Jordan-liðs-
ins hefur ekki verið neitt til að hrópa
húrra fyrir og hafa þeir verið slegnir
út af Sauber sem er reyndar að eiga
sina bestu keppnistíð í sögu liðsins.
Prufuökumaður Jordans, Ricardo
Zonta, sem ók í stað Frentzens í
Kanada, tekur sæti hans um helgina
og það sem eftir er tímabilsins. Staða
Frentzens í Formúlu 1 er í uppnámi
og óvíst hvort nokkurt lið sér sér hag
í að ráða hann. Ekki er víst að þjón-
ustu hans verði vænst nokkurs stað-
ar í framtíðinni. En það var sárt fyr-
ir kappann að vera rekinn með
skömm og ekki síst nokkrum dögum
fyrir heimakappakstur sinn.
-ÓSG
Ostkurve
Legnd brautar: 6.825k m
Jim Clark
Kurve
Eknir hringir: 45 hringir/ 307.125 km
Clark
Ostkurve 6
Ayrton Senna
Kurve _
Nordkurve
Sachs
Agip Kurve
Siidkurve
Hockenheim
, Lítil vængpressa...
- ...hraðari bilar
• Framúrakstur mögulegur
s ■ Áætlanir til aö breyta (stytta) brautina
• Krappar beyjur
• Mikiö dekkjarslit
[hoc.
Upprifjun á 2000 Tími (rásmark) Brautarmet 2000
Rubens Barrichello 1:25:34.418 4
Mika Hakkinen +0:07.452 3
David Coulthard +0:21.168 5
Jenson Ðutton +0:22.685 7
Mika Salo +0:27.112 6
Pedro De ia Rosa
+0:29.079
11
Keppnistími (klst:mln.sek)
Tímamunur og hraöi í timatökum 2000
Hraðasti hringur Rubens Barrichello
235.570 km/klst (hringur 20)
1:44.300 sek.
Ráspóll: David Coulthard
1:45.697 sek.
Svona er lesið
o) Gir
Timamarkmið
Svæði Samanlagt
—|
Hraði Togkraftur
Númerbeyju —g
P3: Fislchella
229.347km/h
Pole: Coulthard
232.456 km/klst
P6:Trulli P£ De la Rosa P< Hakklnen P2: M Schumacher
227.852 km/klst 227.951 km/klst 229.279 km/klst 229.491 km/klst
Graflk: © Russell Lewis & SFAhönnun _______________________
AFtFtOWSJT
COMPAQ. yfirburðir Taeknival
Nákvæmnin fyriröllu
Hversu oft höfum við heyrt
ökumenn kvarta yfir þvi að
eiga erfitt með að
koma afli vélanna
almenniiega niður í hjól?
Gripstýringin hjálpar að
sjálfsögðu en þetta er
flóknara en svo. Að meta
vilja hægri fótar ökumanns
yfir í vélarorku er erfiðara
en í fljótu bragði virðist. En
enn og aftur kemur
rafmagnið til hjálpar.
I einfaldri mynd byrjar
aflstýringin á bensínstiginu
(1) , síðan safnar
stjórntölvan
upplýsingum frá vél --
(2) , girkassa (3), - £
og drifi (4).
mlðstöð en láta þér ekki detta
/: ‘ I hug að það fækki víralögnum i
bllnum sem búinn er yfir 200
skynjurum. Raflögnin I „venjulegum" F1 -
bíl er yfir 1000 m og tekur vanann fagmann
yfir fimm daga að leggja og tengja.
Ve"juie
Venjuleg stilling gefur, ekki
ólikt og I fjölskyldubíl,
V stööuga og jafna
inngjöf.
Inngjöf (%)
Að hemja yfir 800 hestöfl í
næmum og viðkvæmum bíl
kallar á meira en bara
að „stiga i botn". Að stilla
bensíngjöfina er jafn
mikilvægt og aðra hluti í
uppsetningu bílsins.
Staða
fótstigs
Skynjai
Sieðl, fastur við fótstlglð,
ákvarðar styrk merkls. ,
Til að henla hinum /i
mismunandi brautum og
ökumönnum er hægt \
n. að finstilla styrk
\ inngjafar I stjóm-
. \ tölvu.
Samspilið milii stöðu fótstigs og áfls
—getur verið breytilegt milli
•'TTf.-t keppnisbrauta.
Stjórntölva verður að
,vita“ um allar ójöfnur á
yfirborði brautanna.
Með þvi
er hægt að þurrka út
allar "óþarfa"
hreyfingar á fótstigi.
Næmari
Grafík: © Russell Lewis & SFAhönnun
I stuttu máli
í hverjum F1
bil er um það
bil 1 km af
rafmagns-
leiðslum. í
einum löngum
vír mundi það
ná héðan ...
Stíglaus skynjari
(inngjafar-mælir) nemur
hreyfingar fótstigsins
og sendir jafnóðum
merki til stjórntölvu.
Á