Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Page 42
50
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001
Tilvera
DV
Mokka
1 hverfulum og síbreytilegum heimi
er það góð tilfinning að koma inn á
Mokkakaffi og sjá og finna að þar er allt
eins og það var. Eins og það á að vera.
Ég hef ekki komið þar í áraraðir. Samt
er allt óbreytt. Sætaskipan nákvæmlega
eins. Súkkulaðið með sama bragðinu,
já, jafhgott og mig minnti og í sömu
brúnu bollunum. Gestir sem sækja
staðinn enn með sama yfirbragði; leik-
arar og listaspírur, eldri menn með yf-
irskegg og ungt gáfufólk af báöum kynj-
um. Veggimir það eina sem öðruvísi er
yfir að líta. Síðast þegar ég kom voru
þeir þaktir myndum sem tengdust
dauðanum. Nú hanga þar nýjar tölvu-
grafikmyndir, liflegar. Lengi lifi
Mokka.
Kaffitár
Aðdáendur góðs kaffis ættu að drífa
sig á Kaffitár í Bankastræti ef þeir
þekkja staðinn ekki nú þegar. Ég er bú-
inn að stunda Tárið reglulega i mörg ár
og hef ekki enn þá ekki fengið betra
kaffi, hvorki hér á landi né annars stað-
ar. Kökumar á Tárinu em einnig til
fyrirmyndar, þó bananatertan hafi ver-
ið í þurrara lagi þegar ég smakkaði
hana síðast.
Margir telja það kost að Tárið sé
reyklaust. Verðið á kaffinu er sanngjart
og meðlætið vel útlátið en fremur dýrt,
sérstaklega þegar maður fer þangað oft.
Hittumst á Tárinu.
Kaffi Nauthóll
í Nauthólsvík er að finna lítið og
huggulegt kaffihús sem ber nafnið Kaffi
Nauthóll. Þar er hægt að fá sér kaffi og
veitingar í hlýlegu umhverfi og upplagt
að setjast þar út þegar sólin skin. Hægt
er að fá sér ýmsa rétti á Kaffi Nauthól.
Meðal þess sem boðið er upp á em tvær
gerðir af súpum, súpa dagsins og sjáv-
arréttasúpa. Hún var bæði bragðgóð og
smekkfull af sjávarfangi, til að mynda
rækjum og hörpuskel. Eftir súpuna var
bragðað á Café au lait sem bragðaðist
ágætlega. Andrúmsloftið í Nauthólsvík-
inni er vinalegt og þjónustan til fyrir-
myndar.
Við árbakkann
Sjaldgæft er að finna „ekta“ kaffihús
á smærri stöðum á landsbyggðinni.
Kafifihúsið Við árbakkann á Blönduósi
er því í sérflokki. í snoturri stofu er
boðið upp á kaffi og fleiri drykki, ásamt
brauðréttum og kökum. Einnig súpu
dagsins. Listafólk sýnir á veggjum. Á
ferðalagi um Norðurland var notalegt
að setjast þar inn og fá sér gott kaflfi og
rúnstykki. Ekki spillti það ánægjunni
þegar þjónustustúlka bar inn nýsteikt-
ar kleinur óumbeðin og sýndi að ís-
lensk gestrisni er enn við lýði.
-Gun/Kip/MA
Tómatar
Tómatar eiga uppruna sinn í Suður-Ameríku
og eru sömu ættar og kartöflur og tóbak. Orðið
tómatur er upphaflega komið úr máli Azteka,
hinnar voldugu indíánaþjóðar. Oft gengu þeir
lika undir nafninu „ástarepli" framan af. Tómat-
jurtin barst til Evrópu með Spánverjum í lok
miðalda og nú eru tómatar uppistaðan í matar-
gerð þjóða við Miðjarðarhaf. íslendingar lærðu
það af Dönum að nota sér þetta græn-
meti og nú orðið er mikið ræktað af
tómötum í gróðurhúsum á íslandi. Sum-
ir eiga tómatplöntu í eldhúsglugganum
og njóta þess að borða eigin ræktun. Þá
eru tómatarnir teknir af plöntunni meðan
þeir eru grænir og látnir þroskast í myrkri, ann-
ars verða þeir linir um leið. Auðvelt er að afhýða
DV-MYND BRINK
Sigurlaug Jónasdóttir
„Skemmtilegast aö nota ferska tómata ef maöur þarf ekki að taka bankalán til aö kaupa þá.“
Ástríða að matreiða
úr tómötum
- segir Sigurlaug Jónasdóttir, ritstjóri Mataryndis
„Ætli það væri ekki bara alltaf
fiskur og flot heima hjá mér ef ég
hefði ekki tómata?" segir Sigurlaug
Jónasdóttir hlæjandi þegar hún er
beðin að lýsa því hvaða þýðingu
tómatar hafi í hennar matargerð. Sig-
urlaugu þekkja allir sem dagskrár-
gerðarkonu en hún er líka ritstjóri
klúbbsins Mataryndi.
„Það er eigin-
lega ástriða
borða þá fyrst, héldu að þeir væru
eitraðir. En þegar þeir áttuðu sig á
kostum þeirra voru þeir fljótir að
snúa við blaðinu og kölluðu þá gull-
epli.
Ég sé fátt fallegra en breiður af
tómötum sem
að búa
til eitt-
hvað úr
tómötum,"
segir hún og
heldur áfram:
Oft kaupi ég
þá niður-
soðna en
skemmtileg-
ast er auðvit-
að að nota
ferska ef maður
þarf ekki að taka
bankalán til að kaupa
þá. Möguleikarnir í mat-
reiðslu úr tómötum eru óend-
anlegir, enda er til urmull af
uppskriftum þar sem þeir
koma við sögu.
Einstaklega
rómantískt
Svo finnst mér hin ítalska ást
arsaga tómata og pasta alveg mögnuð.
Italir voru nefnilega tregir til að
Snittubrauð er skorið í sneiðar og
grillað í ofni augnablik. Sneiðunum
er raðað á fat og
tómatmaukið sett
ofan á.
Gott að eiga í
frysti
Sigurlaug seg-
ir einnig upp-
lagt fyrir fólk
að búa sér til
eigin tómatsósu
til að eiga í
smákubbum í
frysti, nú þegar
hráefnið er á góðu
verði. Sósuna má
síðan nota á pitsur,
í pottrétti, lasagne
og spaghettirétti.
búið er að
skola og droparnir perla á. Það er
einstaklega rómantískt - og svo er
bragðið unaðslegt!"
Crostini
1/2 dl ólífuolía,
500 g tómatar
5 hvítlauksrif
handfylli
af ferskum basil
salt og pipar
Olían er sett á pönnu.
Hvítlaukurinn saxaður
og steiktur létt. Tómat-
amir eru afhýddir,
skornir í litla bita og
látnir malla í olíunni í
smátíma. Síðan er basil tætt
yfir og maukið látið sjóða í hálftíma.
Síðast kryddað með salti og pipar.
Crostini er
vinsæll for-
rétturá
Ítalíu.
Tómatsósa
500 g tómatar
5 geirar hvítlaukur
1 gulrót
1 laukur
handfylli af steinselju
handfylli af basil
salt og pipar
Allt saxað niður og látið malla í
klukkutíma. Hrært i öðru hverju.
-Gun
vel þroskaða
tómata ef þurfa
þykir. Hina má setja
augnablik í sjóðandi
vatn og síðan undir kalt.
Til eru fleiri en eitt afbrigði
tómata. Þar má nefna mjög smáa
tómatar sem við þekkjum sem „sérrítómata".
Grískt
tómatsalat
Sex meðalstórir tómatar eru
þvegnir og þerraðir, jafnvel af-
hýddir og skomir í þunnar
sneiðar. Hálfur til einn laukur
er líka skorinn í sneiðar, ör-
þtmnar, og hringimir skildir að.
Tiu ólifur eru skomar í tvennt
eftir endilöngu og eitt til tvö
hvítlauksrif söxuð fint. Þessu er
öllu blandað saman í skál.
Tveimur matskeiðum af ólifuol-
íu og einni teskeið af hvít-
lauksediki er dreypt yfir. Gott
er að láta salatið standa smá-
stund áður en það er borið fram.
Pastaréttur med
rækjum og
tómötum
Hálft kíló af pasta er soðið
með salti og olíu. Vatnið er látið
renna vel af því og það er
þerrað og kælt. Hundrað og
fimmtíu grömm af tómötum og
annað eins af rækjum er tekið
til. Tómatarnir em afhýddir og
skornir í báta. Þessu er blandað
saman við pastað og einni
teskeið af aromat kryddsalti.
Lítil rauð paprika er skorin í
litla teninga. Þeim er stráð yfir
ásamt nokkrum söxuðum stein-
seljugreinum.
Tómatsúpa
Hitið smáslettu af olíu á stórri
pönnu og steikið einn lauk, tvær
gulrætur og eitt hvítlauksrif,
allt niðursaxað, f 3-4 mínútur.
Bætið einu kílói af söxuðum
tómötum,
einni teskeið
af tabasco-
sósu, tveim-
ur desílítr-
um af
hvítvíni,
fimm desí-
litrum af
kjúklinga-
eða græn-
metissoði,
tveimur mat-
skeiðum af
tómat-puré
og tveimur
matskeiðum
af graslauk
saman við.
Látiö suðuna
koma upp,
setjið lok á
pönnuna og
látið malla í
30 mín. Hrærið i við og við. Gott
er að hræra súpuna í mat-
vinnsluvél í lokin eða hella
henni gegnum sigti. Síðan er
einni matskeið af sykri bætt út í
og smárjómasletta er sett út í
lokin. Fallegt er að skreyta með
söxuðum graslauk.
Næringargildi
Tómatar eru auöugir af A-, B-, C- og E-vítamínum og í þeim eru líka steinefni
sem eru mikilvæg líkamanum. Þeir eru hitaeiningasnauöir og hollastir hráir.
I hundraö grömmum eru m.a.:
17 hitaeiningar
0,8 g prótein
0,3 g fita
3 g kolvetni