Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Blaðsíða 44
52
Tilvera
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001
I>V
Stærsta land í
heimi
Rússland er stærsta land heims,
17 milljónir ferkílómetra að stærð,
166 sinnum stærra en ísland. Það
— nær yfir 11 tímabelti. í landinu búa
um 120 mismunandi þjóðir og þjóða-
brot, eskimóar í norðri en Persar og
þjóðir af tyrkneskum ættum í suðri.
Rússar eru 82% landsmanna.
Rússneska sambandsrikiö sam-
anstendur af 89 héruðum eða sýsl-
um með ákveðna sjálfstjórn.
Ólík náttúra og
menning
Mörg trúarbrögð eru í landinu.
Mest er um ortódoxkristni,
múslíma og gyðinga, Jakútar trúa á
stokka og steina, búddatrúarmenn
eru mest á sléttum Kalmikíu við
Kaspíhaf. Landið nær yfir öll gróð-
urbelti, frá N-íshafi til eyðimarka
Mið-Asiu.
Þingbundið
lýðrædi
Stjórnarfyrirkomulag er sam-
bandsríki með þingbundið lýðræði.
Þingið starfar í tveimur deildum -
Sambandsráði og Dúmu. Núverandi
forseti er Vladimir V. Pútin.
Harðstjórar
Þjóðin hefur gengið í gegnum
miklar raunir. Þar hafa ráðið rikj-
um menn á borð við ívan grimma,
Pétur mikla og Jósep Stalín. Fyrsti
forfaðir keisaraættarinnar, Hrærek-
ur fursti í Kænugarði, sem tók við
völdum árið 862, var af norrænu
bergi brotinn.
Meginlands-
' loftslag
í Rússlandi er meginlandsloftslag.
Veturinn er frægur fyrir kulda og
hefur hann veitt innrásarherjum
þungar skráveifur, samanber ófarir
Karls 12. Svíakonungs, Napóleons
Bónaparte og Adolfs Hitlers. í janú-
ar fer kuldinn oft niður fyrir 20
\ gráður í Moskvu. Heitt er á sumrin,
25-30 stig er eðlilegur sumarhiti.
Moskva og Pétursborg:
Menning,
glaumur og saga
Undanfarin ár hefur orðið mikil
aukning á framboði á ferðum til
Austur-Evrópu og Rússlands. í
haust gefst íslendingum kostur á
að heimsækja tvær sögufrægar
borgir í Rússlandi, Moskvu og Pét-
ursborg.
Listasöfn og skemmtigarðar
í Moskvu búa um 12 milljónir
íbúa og borgin er miðstöð menning-
ar og viðskipta í Rússlandi. í borg-
inni er grafhýsi Leníns og hin
heimsfræga Vasili-dómkirkja sem
stendur á Rauða torginu, auk íjölda
listasafna og sögulegra minja. Á
Pushkin-listasafninu er hægt að
skoða fomgrísk og egypsk listaverk
auk verka evrópskra meistara eins
og Picasso og Van Gogh. í Moskvu
er líka aö fmna frægt safn um
seinni heimsstyrjöldina, Alex-
androvsky-garðinn og Izmailovo-
prúttmarkaðinn þar sem hægt er að
fá framandi muni á kostakjörum.
Neðanjarðarlestin í Moskvu þyk-
ir einstakt mannvirki og flytur um
9,5 milljónir manna á sólarhring.
Við Kreml er stór neðanjarðar-
verslunarmiðstöð sem heitir
„Manezh" og er vel þess virði að
heimsækja.
Þeir sem heimsækja borgina ættu
ekki að láta „VDNX“-skemmtigarð-
inn fram hjá sér fara. Garðurinn er
í stalínískum stíl með minnisvörð-
um og gullstyttum. Hann var byggð-
ur á sínum tíma tO að sýna fram á
efnahagsárangur þjóðarinnar í kjöl-
far byltingarinnar 1917.
Næturlífið í Moskvu er fjölskrúð-
ugt. Einn frægasti skemmtistaður
borgarinnar heitir „Golodnaja útka“.
Andrúmsloftið á staðnum þykir
„heitt“ og oft dansa gestir fáklæddir
uppi á borðum langt fram á morgun.
Þeir sem kjósa aftur á móti fág-
aðri menningu geta heimsótt Bols-
hoi-leikhúsið sem býður upp á besta
ballett sem völ er á í heiminum.
Kunstkamera Péturs mikla
Pétursborg var á sínum tíma höf-
uðborg keisararíkisins og þykir
mjög ólík Moskvu. Pétur mikli lét
byggja borgina frá grunni 1703. Þar
er að finna listasafn Katrínar
miklu, „Hermitage", sem hefur að
geyma ótrúlegt safn listmuna og er
oft kallað mesta listasafn allra tíma.
Sumarhöll keisaranna er skammt
fyrir utan borgina og í henni nýtur
stórkostlegur íburðurinn sín vel.
Þjóðverjar lögðu hallirnar í rúst í
síðari heimsstyrjöldinni en Rússar
endurbyggðu þær í sinni uppruna-
legu mynd.
í Pétursborg er líka hið fræga
Kunstkamera eða náttúrugripasafn
Péturs mikla sem enginn áhuga-
maður um menningu og sögu ætti
að láta fram hjá sér fara. -Kip
Kirkja í Pétursborg
Pétur mikli lét byggja borgina frá
grunni 1703, borgin var á sínum
tíma höfuðborg keisararíkisins.
Orar þjóðfélgsbreytingar
Miklar breytingar hafa orðið í rússnesku samfélagi eftir fall kommúnista og ekki er séð fyrir endann á þeim.
Lipurtá
Boishoi-ieikhúsið býður upþ á
besta baliett sem völ er á í heim-
inum.
Einn af mörgum skemmtigörðum Moskvu
/ Moskvu er aö finna fallega skemmtigarða og þeir sem heimsækja borgina
ættu ekki að láta „ VDNX“-skemmtigarðinn fram hjá sér fara. Garðurinn er í
stalínískum stíl með minnisvörðum og gullstyttum.
Kavíar
Þeir sem ferðast til Rússlands láta
að sjálfsögðu eftir sér aö smakka
styrjuhrogn og skola þeim niður með
kampavíni.
Novodvick-nunnuklaustrið
/ Rússlandi er víða aö finna glæsilegar þyggingar sem minna á keisaratíma-
bilið og sterk ítök kirkjunnar.
Sumarhöllin í Pétursborg
Nasistar lögðu höllina í rúst í 900 daga umsátri sínu en hún var endurbyggð
i sinni upprunalegu mynd.