Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Page 49

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Page 49
57 LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001 DV Tilvera Afmælisbörn Bill Bradley 58 ára Stjórnmálamaðurinn og fyrrum körfuboltastjarnan Bill Bradley á afmæli í dag. Ferill Bradleys i körfubolt- anum er glæsilegur. Áður en hann gerðist atvinnumað- ur nam hann við Oxford-háskólann í Englandi og gerð- ist síðan atvinnumaður hjá New York Knicks og var um tíma hæstlaunaði leikmaðurinn í NBA-deildinni. Þegar körfuboltaferlinum lauk sneri hann sér að stjórnmálum og varð öldungadeildarþingmaður 1978 fyrir demókrata og sat sleituiaust á þingi til ársins 1996 þegar hann fór að huga að forsetaframboði. Var hann aðalkeppinautur þáverandi varaforseta A1 Gores um tilnefningu demókrata og tapaði. Peter Jennings 63 ára Á morgun verður einn þekktasti sjónvarpsfrétta- maður Bandaríkjanna, Peter Jennings, 63 ára. Jenn- ings, sem hefur leitt fréttir á ABC-sjónvarpsstöðinni síðan 1984, er ekki ókunnugur íslendingum en hann var hér á landi þegar hinn frægi fundur Gorbatsjovs og Reagans var haldinn. Auk þess sem Jennings hef- ur gert marga eftirminnilega fréttaþætti þá er honum umhugað um umkomulaus börn og eyðnisjúklinga og hefur látið gott af sér leiða í þeim málum. Jennings er margverðlaunaður, hefur meðal annars fengið tólf Emmy-sjónvarpsverðlaun auk viðurkenninga frá merkum stofnunum. ' Stjörnuspá Gildir fyrir sunnudaginn 29. júlí og mánudaginn 30. júlí Vatnsberinn (20. ian.-l8. febr.): Spá sunnudagsins: ' Vinabönd styrkjast á næstunni. Þú tiimur fyrir stuðningi við áform þín en jafnframt er ætlast til þess af þér að þú sýnir öörum áhuga og stuðning. pa mánudagsins: Farðu varlega í fjármálum og ekki treysta hverjum sem er. Þú ættir að gefa þér tíma til að slappa af og gera eitthvað nýtt og skemmtilegt. Hrúturinn (21. mars-19. apríl): pá sunnudagsíns: ' Vinnan gengur fyrir þessa dagana enda mikið um að vera. Þetta kemur niður á heimilislifinu og kann að valda smávægilegum deilum. Spá mánudagsins: Vinnan á hug þinn allan þessa dagana. Þú verður að gæta þess að særa engan þótt þú hafir litinn tima til að umgangast ástvini. Tvíburarnir (21. maí-21. iúní): Vertu hreinskilinn og heiðarlegur í samskiptum við aðra. Óheiðarleiki borgar sig aldrei og kemm- mönnum í koll. Kvöldið verður fjörugt. Spá mánudagsins: Ýmislegt skemmtilegt gerist í dag og þú verður fyrir óvæntu happi seinni hluta dagsins. Nú er góður timi til að gera breytingar. Liónið (23. iúlí- 22. ágústl: Spá sunnudagsins: ’ Ferðalag liggur í loft- inu og hlakkar þú mik- ið til. Ef þú ert já- kvæð(ur) mim ferðin verða afar skemmtileg og eftirminnileg. Spá manudagsins: Einhver er í vafa um að það sem þú ert að gera sé rétt. Þú skalt hlusta á það sem aðrir hafa að segja en endanlega ákvörðunin verður þó að vera þín. Vogin (23. sept,-23,_skt.): Oy Það verður mikið um að yjr vera fyrri hluta dagsins r jr og þú tekur þátt í þvi að skipuleggja viðbm-ð í félagslífinu. Kvöldið verður afar eftirminnilegt. Spá mánudagsins: Þú ættir að láta meira að þér kveða í félagslifinu. Vertu óhræddur við að láta skoðanir þinar í ljósi og koma hugmyndum þinum á ffamfæri. Bogamaður (22. nóv.-21. des.): pá sunnudagslns: fEitthvað sem þú hefur beðið eftir lengi verður loksins að veruleika. Þú ekki eftir að verða fyrir vonbrigð- . Rómantíkin liggur i loftinu. Spá mánudagsins: Þú átt rólegan dag í vændum sem einkennist af góðum samskiptum við fjölskyldu og ástvini. Róman- tikin liggur í loftinu. Fiskarnir (19. febr.-20. marsi: Spá sunnudagsins: •Þú færð að heyra gagn- rýni varðandi það hvem- ig þú verö tima þínum. Þér finnst þú hafa mikið að gera en sumum finnst þeir vera vanræktir. Spá manudagsins: Þér gengur vel að leysa verkefni sem ollu þér vandræðum fyrir nokkru. Þú ert i góðu jafnvægi og dagurinn verður skemmtilegur. Nautið (20. anril-70. maí.l: Spa sunnudagsins: Þú kynnist einhverjum nýjum á næstunni og það veitir þér ný tæki- færi í einkalifinu. Þú ættir að íhuga breytingar í félagslífinu. Spá manudagsms: Einhverjar tafir verða á skipulaginu en ekki láta þær koma þér úr jafn- vægi. Dagurinn verður að öðru leyti ágætur og ekki verður kvöldið verra. Krabbinn (22. iúní-22. iúií): Spa sunnudagsins: | Þú færð fréttir sem þú átt eftir að vera mjög hugsandi yfir. Þú verð- ur að vega og meta stöðu þína áður en þú hefst nokkuð að. Spá mánudagsins: Vinur þinn á í bash með eitthvað og þú hefur aðstöðu til að hjálpa honum. Þú gerir eitthvað sem þú hefur ekki gert lengi og sérð ails ekki eftir því. Mevian (23. ágúst-22. sept.l: Spá sunnudagsins: Þú færð ósk þina upp- j^fyllta, verið getur að gamall draumur sé loks- ins að rætast. Þetta veldm- þér mikilli gleði en jafnframt nokkurri undrun. Spá mánudagsins: Þú kynnist manneskju sem á eftir að hafa djúpstæð áhrif á þig. Rómantíkin liggur i loftinu og þú ert afar ánægður með gang mála. Sporðdrekl (24. okt.-2i, nðv,): Þú gerir einhveijum fgreiða sem átti alls ekki von á slíku. Þetta veldur skemmtilegri uppákomu sem þú átt eftir að minnast í nokkum tima. Spa mánudagsins: Ekki eyða timanum í alltof mikla skipulagningu. Þú veist hvað þú þarft að gera og ættír að koma þér strax að efninu. Dagurinn verður ánægjulegur. Stelneeltln (22. des.-19. ian.): Spá sunnudagsins: Það er ekki alls sem sýn- ist og þó að einhverjum II virðist ganga betur en þér á ákveðnum vettvangi skaltu ekki láta það angra þig eða koma inn öfund. Spa mánudagsins: Dagurinn verður fremur við- burðasnauður en kvöldið veröur hins vegar fjörugt og þú skemmtir þér vel í góðra vina hópi. DV-MYNDIR EINAR J. Ritstjórinn í góóum félagsskap Ragnar Hattdórsson (annar frá vinstri) í útgáfuhófinu ásamt Önnu Margréti Guöjónsdóttur, Elisabeth Weiser, Guö- mundi Emitssyni, Guöbergi Bergssyni, Vigdísi Finnbogadóttur og Signýju Pátsdóttur. Fálkinn flýgur á ný Tímaritið Fálkinn hefur verið vakið til lífsins eftir að hafa legið í dái áratugum saman. Ritstjóri nýja Fálkans er Ragnar Halldórsson en ritnefnd skipa þau Salvör Nordal heimspekingur og Matthías Johann- essen, skáld og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Fyrsta tölublaðið er þegar komið út og til að fagna því héldu aðstandendur blaðsins út- gáfuhóf á veitingastaðnum Vídalín í Aðalstræti. Málin rædd Hallgrímur Helgason rithöfundur er einn þeirra sem skrifa í fyrsta tölublaö Fáikans. Hér spjailar hann viö Ragnar Halldórsson ritstjóra. Blásið í básúnu Samúel J. Samúelsson básúnuleikari lék léttan djass fyrir gesti ásamt féiögum sínum. i , ». DV-MYND ORN Keppni í Ijóðum Hagyröingarnir sem Ijóöuöu óspart á Siglufiröi á dögunum. Siglufjörður: Kátt á hjalla með hag- yrðingum Það var glatt á hjalla og mikið hleg- ið og kveðið á hagyrðingakvöldi á Siglufirði fyrir skömmu. Samkoman var haldin á vegum Félags um Þjóð- lagasetur á Siglufirði. Hagyrðingamir sem fram komu voru Halldór Blöndal alþingismaður, séra Hjálmar Jónsson, Ósk Þorkelsdóttir, útgerðarstjóri á Húsavík, og Þórarinn Eldjárn rithöf- undur. Stjórnandi var fyrrverandi Siglfirðingur og forseti Alþingis, Ólaf- ur G. Einarsson. Það var afar létt yfir skáldunum sem fóru víða eftir yrkisefni og fengu heimamenn sinn skammt af skeytum þehra. Ekki spillti fyrir að stjórnand- inn hafði margar vísur sem uppruna eiga í Aiþingi í farteski sínu og skaut hann þeim inn í annað veifið. Höfðu gestir það á orði að þessi skemmtun heföi heppnast frábærlega vel hjá þeim sem að stóðu og hagyrðingar heíðu farið á kostum. Þess má svo geta að á eftir var haldinn dansleikur sem einnig var til fjáröflunar fyrir Þjóðlagasetrið. -ÖÞ Sérfraeðingar í fluguveiöi Mælum stangir, splæsum línur og setjum upp. Sportvörugerðin lif.. Skipholt 5. s. 562 «3«3. hawiingju dagar CITROÉN 16. júlí-3. ágúst 2001

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.