Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2001, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2001
Fréttir DV
Bygging fjölnota íþróttahúss á Akureyri:
Málið í uppnámi
- segir Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri sem segir fjárveitingar komnar langt fram úr áætlun
Kristján Þór
Júlíusson
,,Þetta er komið
iangt upp fyrir
þær tölur sem
menn voru að
vinna með í
upphafi.
„Það má segja
að málið sé í upp-
námi að því leyt-
inu til að það
liggur engin
ákvörðun fyrir
um framhald
verka. Sú ákvörð-
un verður ekki
tekin fyrr en við
erum búnir að
meta alla þætti
sem lúta að mál-
inu, s.s. fjárhag-
inn, fram-
kvæmdatímann
og fjárveitingar
málaflokks," segir
til viðkomandi
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri
á Akureyri, um fyrirhugaða bygg-
ingu fjölnota íþróttahúss á svæði
íþróttafélagsins Þórs en samkvæmt
upphaflegum ákvörðunum áttu jarð-
vegsframkvæmdir vegna byggingar-
innar að hefjast í haust.
Upphaflegar kostnaðaráætlanir
vegna hússins, þar sem verður
knattspyrnuvöllur í fullri stærð,
gerðu ráð fyrir um 250 milljóna
króna kostnaði. Málið var mikið í
umræðunni fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar 1998 og í málefna-
samningi núverandi meirihluta í
bæjarstjórn segir að framkvæmdir
verði hafnar á kjörtímabilinu. Nú
stefnir í að svo verði ekki og fram-
kvæmdum seinki í a.m.k. eitt ár.
Framkvæmdaáætlun hefur farið si-
hækkandi og var komin í um 400
milljónir króna, og þegar tilboð í
byggingu hússins voru opnuð á dög-
unum nam lægsta tilboð 447,5 millj-
ónum króna.
„Þetta er komið langt upp fyrir
þær tölur sem menn voru að vinna
með í upphafl. Nú verða menn að
meta málið í ljósi ýmissa stærða,
s.s. kostnaðartalna milli áætlunar
og áætlaðrar niðurstöðu út úr verk-
inu. Menn verða að gera sér grein
fyrir þeim mun sem þar er á, það
þarf að huga að fjármögnun og það
þarf að horfa til þess hvað við erum
að leggja inn í viðkomandi mála-
flokk sem er íþrótta- og tómstunda-
mál. Það eru margir þættir sem við
verðum að vega og meta þegar við
tökum ákvörðun um það hvort og
hvenær við höldum þessu verki
áfram," segir Kristján.
- Átt þú við að „kvótinn" til þessa
málaflokks sé uppurinn?
“Við erum búnir að leggja miklu
meiri fjármuni inn í málaflokkinn
en gert hefur verið ráð fyrir í fjár-
hagsáætlunum, það er alveg ljóst.
Nú síðast vorum við að taka inn 150
miiljónir króna í fjárhag íþrótta-
hreyfingarinnar sem við höfðum
ekki reiknað með en það eru samn-
ingarnir við KA, Þór og Golfklúbb-
inn. Á þessu stigi get ég ekkert sagt
fyrir um framhaldið varðandi fjöl-
notahúsið. Það verður bara að koma
í ljós eftir fekari vinnu hvert það
verður," segir Kristján Þór. -gk
íslensku menntasamtökin kynna hugmyndafræði sína:
Skólamenn þinga
- Dwight Allen vill færa námsefni yfir á grunnskólastig
Á Ásvöllum í Hafnarfirði hefur í
vikunni staðið yfir námskeið fyrir
kennara og skólafólk þar sem kynnt
er hugmyndafræði alþjóðasamtak-
anna „The Council for Global Ed-
ucation" (CGE) um áherslur í skóla-
starfi. Það eru islensku menntasam-
tökin sem standa að námskeiðinu í
samvinnu við CGE en íslensku
menntasamtökin eru sem kunnugt
er að hefja rekstur á leikskóla og
grunnskóla í Áslandi í Hafnarfirði
þar sem þessi hugmyndafræði verð-
ur höfð að leiðarljósi.
Yfir 100 aðilar hafa sótt nám-
skeiðið. Leikskóla- og grunnskóla-
kennarar viðs vegar af landinu eru
fjölmennastir en einnig eru starfs-
menn skólaskrifstofa, t.d. í Hafnar-
flrði, áberandi, svo og ráðgjafar
Menntasamtakanna, m.a. Herdís
Egilsdóttir, sem kenndi í ísaksskóla
í marga áratugi, og Áslaug Brynj-
ólfsdóttir, fyrrverandi fræðslustjóri
í Reykjavík. Þá heldur Karl Frí-
mannsson, skólastjóri Hrafnagils-
skóla í Eyjafirði, erindi en þar hef-
ur þessi hugmyndafræði verið not-
uð við kennslu. Einn leikskólakenn-
ari kemur á námskeiðið frá Færeyj-
um en þar sem annars stað-
ar er mikifl áhugi á hug-
myndafræði CGE.
Fyrirlestrar dr. Bills
Huitts og dr. Dwights
Allens vöktu mikla athygl.
Bill Huitt kynnti svokallað
„stjömu-líkan“ sitt sem er
eins konar leiðarvísir hvers
einstaklings til að ná vel
skilgreindum og metnaðar-
fullum markmiðum til inni-
haldsfyllra og hamingjurík-
ara lífs. Dwight Aflen, sem
meðal annars hefur skrifað
metsölubók um menntun
ásamt nemanda sínum, Bill
Cosby, vakti óskipta athygli
námskeiðsgesta fyrir afdráttarlaus-
ar skoðanir sínar á úreltum viðhorf-
um í menntastofnunum og meint
stefnu- og metnaðarleysi. Allen tel-
ur að hægt sé að flýta árangri með-
al annars með því að færa hluta
þess námsefnis sem kennt er á fram-
haldsskólastigi á grunnskólastig.
Allen vakti, líkt og aðrir fyrirlesar-
ar, athygli á þeirri byltingu á að-
gangi að upplýsingum sem Netið
hefur skapað og klykkti út með
þeirri fuflyrðingu að helmingur
þess sem við lærum í dag sé úreltur
innan þriggja ára. Slíkur sé hraðinn
á framkomu nýrra og nákvæmari
upplýsinga á flestum sviðum hug-
og raunvísinda.
Hugmyndafræði skólans
Frá námskeiðinu á Ásvöllum þar sem
hugmyndafræði „ The Council for
Global Education “ var kynnt.
DV-MYND GVA
517 metra þverhnípi
Þau standa þrjú á tindinum og sá fjórði lítur hjá. Sútnatindar teygja sig til
himins, listilega sneiddir af Skeiðarárjökli í aidanna rás. Þverhníþið við fætur
göngufóiksins er 517 metrar.
DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON
Norskt siglingafólk
Kristine Pryssande, Atle Opheim og börn í Akraneshöfn á seglskútunni Fortuna.
Á siglingu
M m •• ^
i tvo ar
DV, AKRANESI___________________
Það hlýtur að vera mikið æv-
intýri að sigla á seglskútu um
heimsins höf í tvö ár. Þetta hafa
þau gert Kristine Pryssande frá
Svíþjóð og kærasti hennar, Atle
Opheim frá Noregi, en frétta-
maður DV hitti þau við Akra-
neshöfn með þremur bömum
þeirra.
„Við hófum ferðina í Noregi í
ágúst 1999 og sigldum um Evr-
ópu til Madeira og til Kanarí-
eyja og yfir til Karíbaeyjanna
þar sem viö vorum í hálft ár.
Síðan sigldum við suður til
Venesúela og Brasilíu og fórum
svo aftur af stað i janúar. Þá
sigldum við til Dóminíska lýð-
veldisins, Kúbu, Flórída, New
York, Nova Scotia, Grænlands
og svo til íslands. Við höfum
verið hér á íslandi í eina viku
og ætlum svo að sigla suður til
Vestmannaeyja og svo til Fær-
eyja, Hjaltlands og heim til Nor-
egs,“ segir Kristine við DV.
Hún segir að börnin séu á
veturna í skóla og þau hafi
komið í heimsókn til þeirra um
jólin og áramótin til Karíbaeyj-
anna og Brasilíu en þau hafa
rosalega gaman af því að sigla á
skipinu og em farin að kunna
vel við sig. Kristine segir að
mjög gott sé að sigla skipinu og
þar fari vel um þau. Hún býst
ekki við því að þau sigli meira
því að hún ætlar að fara að
sinna viðskiptum og býst við
því að þau verði í Noregi eða
Svíþjóð. -DVÓ
Umsjón: Birgir Guömiindsson
Fleyg ummæli
í pottinum var verið að ræða
tímamótaummæli Haralds Jo-
hannessens ríkislögreglustjóra
sem hann lét
fafla í viðtali
við Þóru Krist-
ínu Ásgeirs-
dóttur, frétta-
konu í Ríkisút-
varpinu, i gær.
Haraldur var
spurður hvort I
það takmarkaði |
ekki möguleika
lögreglumanna til sjálfstæðra rann-
sókna að aðgangur að klámi á Net-
inu í tölvum lögreglunnar væri
bannaður. Haraldur sagði svo ekki
vera en það gengi náttúrlega ekki
upp að „700 lögregluþjónar væru að
vafra um á klámlínum á Netinu í
vinnunni". Þegar hann var spurður
hvort hann teldi hættu á að lög-
regluþjónar legðust í klámið ef
þessi tenging væri opin sagðist rík-
islögreglustjóri vilja láta það liggja
milli hluta. Pottverjar minnast þess
ekki að hafa fyrr heyrt yfirmann á
stofnun draga upp jafn krassandi
lýsingu á starfsfólki sínu ef ekki
yrði efnt til sértækra mótaðgerða...!
Löggan óhress
En í pottinum heyrist líka að
ekki séu ekki allir jafn hrifnir af
þessari yfirlýsingu ríkislögreglu-
stjóra og
talsverður
kurr hefur
komið upp
meðal lög-
regluþjóna
sem telja að
sér vegið
með þessu
svari Har-
alds Johannessens. Segja þeir að
það sé sérkennilegt ef ekki megi
treysta mönnum sem eiga að halda
uppi lögum og reglu í landinu - oft
við krefjandi og erfiðar aðstæður -
til þess að hafa sama aðgang að
Internetinu og allur almenningur
hefur vegna hættu á að þeir leggist
í stórum hópum í klámlínur í
vinnutímanum! „Okkur er ekki
skemmt," sagði lögreglumaður í
heita pottinum þegar þessi mál bar
á góma í gær...
Siv og Kolbrún
Á kreml.is eru nú birtir nokkrir
palladómar um þingmenn sem ým-
ist eru sagðir heitir eða kaldir.
Dæmi um heita
þingmenn eru
þær Kolbrún
Halldórsdóttlr
og Siv Frið-
leifsdóttir. Um
Kolbrúnu Hafl-
dórsdóttur segir
þar: „Eins og eð
alvínin batnar
Kolbrún með
hverju árinu. Það er ótrúlegt að
hún skuli vera jafngömul og
flokksbróðir hennar, Steingrímur
J. Sigfússon." Og um Siv Frið-
leifsdóttur segir: „ Frúarlegu dragt-
irnar og alger skortur á umhyggju
fyrir umhverfinu breyta því ekki
að Siv er einn laglegasti þingmað-
urinn.“
Guöni og Steingrímur
En Kremlverjar stimpla menn
líka sem „kalda þingmenn" og í
þeirra hópi eru þeir Steingrímur
J. og Guðni
Ágústsson. Um
Guðna segir:
„Þungar brún-
irnar, pírð aug-
un og skakkt
brosið minna
helst á grasker
á hrekkjavöku.
Stöðugt kossa-
flangs Guðna
utan í búfénaði jaörar líka við að
vera óheilbrigt." Og um Steingrím
J. Sigfússon segir: „Ágætlega
mælskur en er uppi á rangri öld.
Steingrímur lítur út eins og hann
eigi að ganga í gæruskinni og sauð-
skinnsskóm um öræfi landsins að
leita kinda."