Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2001, Page 11
11
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2001
py__________________________ Útlönd
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farió fram útdráttur húsbréfa í
eftirtöldum flokkum:
JLX 4x4 • ALVORU JEPPI
Meðaleyðsla 7,8 I
1 595.000,-
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
John Reid
Norður-írlandsmálaráðherra bresku
stjórnarinnar. Stjórnin reynir nú að
lokka IRA aftur að samningaborðinu.
Breska stjórnin
höfðar til IRA
Breska stjórnin ákvað í morgun
að einbeita sér að tveimur lykiltillög-
um til að tryggja friðinn á Norður-ír-
landi. Þetta er gert til að reyna að fá
írska lýðveldisherinn, IRA, aftur í
friðarferlið, eftir að hann dró til
baka boð sitt um afvopnun. Talið er
að tillögur bresku stjórnarinnar
muni fela í sér boð um minnkandi
hersetu breska hersins á Norður-ír-
landi og umbætur á lögreglunni i
héraðinu, en mótmælendur eru þar
ráðandi.
Friðurinn á Norður-írlandi komst
í uppnám í gær þegar IRA ákvað að
hætta við boð sitt um afvopnun,
vegna dræmra undirtekna hjá mót-
mælendum. Bandaríkin hafa hvatt
IRA til að endurskoða ákvörðun
sína. Afvopnun skæruliðahópa þykir
forsenda fyrir friði á Norður-írlandi.
ísraelsher:
Umkringir Betlehem
með skriðdrekum
skotárásir ólöglega landnemabyggð i
Hebron þar sem um 400 strangtrúað-
ir gyðingar hafa hreiðrað um sig
innan um 100.000 Palestínumenn. Um
60 Palestínumenn hafa nú fallið
vegna þeirrar stefnu ísraela að ráða
framámenn innan hernaðarsamtaka
Palestínumanna af dögum.
Haft var eftir Sharon í einu ísra-
elsku dagblaði að skotárásir á GOo
yrðu ekki liðnar og hótaði eins og áð-
ur sagði að senda skriðdreka og jarð-
ýtur inn í þorpið. Shimon Peres, ut-
anríkisráðherra ísrael, kom hins veg-
ar í veg fyrir tafarlausar aðgerðir
þegar hann taldi Sharon á að leyfa
sér að leysa skotbardagana við Gilo
með viðræðum við Palestínumenn.
ísraelar eru undir stöðugt auknum
þrýstingi frá leiðtogum erlendra
ríkja en virðast láta sér fátt um finn-
ast. Bandáríkjastjórn gagnrýndi
skriðdreka- og jarðýtuárás ísraela á
tvær palestínskar lögreglustöðvar í
bænum Jenin harkalega og kallaði
þær ögrun. GeorgeW. BushBand-
ríkjaforseti skoraði einnig á Arafat
að reyna að gera meira í að koma í
veg fyrir sjálfsmorðsárásir palest-
ínskra hryðjuverkasamtaka. Arafat
heldur áfram að kalla á alþjóðlegar
eftirlitssveitir til Palestínu til að
tryggja frið og öryggi Palestínu-
manna.
ísraelsher hefur umkringt Betle-
hem og þopið Beit Jala með skrið-
drekum og jarðýtum. Þetta er talið
vera vegna stöðugra skotárása á
íbúa og hermenn í ólöglegum land-
nemabyggðum ísraela í Gilo. Ariel
Sharon, forsætisráðherra ísraels,
sagði David Satterfield, sendifull-
trúa Bandarikjanna við botn Mið-
jarðarhafs, að ef Palestínumenn
hættu ekki skotárásunum þá
myndu þeir ráðast inn í Beit Jala.
Þá var meðlimur i Fatah-hreyf-
ingu Yassers Arafats, leiðtoga
Palestínumanna, myrtur af ísrael-
um. Að sögn vitna var morðinginn í
bíl með palestínskum númeraplöt-
um og ók upp að hinum myrta,
Imad Abu Sneineh, og skaut hann
10 skotum í brjóstkassa og maga.
Heimildir úr ísraelska stjórnkerfinu
segja að morðið á Abu Sneineh sé
hluti af áætlun ísraelsmanna að
taka af lífi þá sem skipuleggja árás-
ir á ísraelska borgara og hermenn.
Hann var talinn hafa skipulagt
Skriðdrekar mikið notaðir af Israelum
ísraelskir skriðdrekahermenn taka það rólega eftir vel heppnaða árás á tvær
lögreglustöðvar í bænum Jenin á yfirráðasvæði Palestínumanna.
Ummerki mikilla flóða í Iran
Hópur íranskra karla situr hér hjá rústum vörubíls sem gereyöilagðist í miklum flóðum og ofsaveðri um síðastliðna
helgi sem varð um 300 manns að fjörtjóni. Þetta eru talin vera verstu flóð í íran í ein 200 ár.
Albanar samþykkja afvopnun:
Breskir hermenn gætu
farið af stað á morgun
Hundruð breskra hermanna gætu
lagt upp til Makedóniu á morgun til
að ryðja leiðina fyrir 3500 manna
sveit Nató sem væntanleg er til að
tryggja friðinn í landinu. Þetta hef-
ur Reuters-fréttastofan eftir aðilum
í varnarmálaráðuneyti Breta. Hlut-
verk bresku hermannanna væri að
kanna ástand á jörðu niðri fyrir
komu Nató-sveitarinnar. Reiknað er
með að Bretar leiði friðargæslu-
sveitir Nató í Makedóníu. Þeim er
ætlað að afvopna albanska upp-
reisnarmenn.
Albönsku uppreisnarmennirnir
samþykktu i gær að afhenda vopn
sin Nató. Þetta er mikil hvatning
fyrir friðarferlið í landinu sem stóð
á tímamótum á mánudag þegar und-
irritað var friðarsamkomulag milli
Lesiö um friöinn
Makedónskur hermaður les sér til
um friðarsamkomulagið.
albanskra og slavneskra íbúa
Makedóníu. í því felst að Albanar
hljóta mun umfangsmeiri lýðrétt-
indi en áður. Meðal annars verður
tungumál þeirra viðurkennt sem
opinbert mál.
Mikilvægi þess að friðarsamkomu-
laginu verði fylgt eftir var undir-
strikað í gær þegar lík 5 Albana
fundust í þorpinu Ljuboten, norður
af höfuðborginni Skopje. Makedóníu-
her og albanskir uppreisnarmenn
deila um hvort um sé að ræða upp-
reisnarmenn eða óbreytta borgara.
Öryggissveitir Makedóníumanna
felldu mennina um helgina.
Sendiherrar Nató hittust í Brus-
sel í morgun og hófu að funda um
að senda friðargæsluliða til
Makedóníu.
1. flokki 1991
3. flokki 1991
1. flokki 1992
2. flokki 1992
1. flokki 1993
3. flokki 1993
1. flokki 1994
1. flokki 1995
1. flokki 1996
2. flokki 1996
3. flokki 1996
-39. útdráttur
-36. útdráttur
-35. útdráttur
- 34. útdráttur
- 30. útdráttur
- 28. útdráttur
- 27. útdráttur
- 24. útdráttur
- 21. útdráttur
- 21. útdráttur
- 21. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. október 2001.
Öil númerin veróa birt í Lögbirtingabiaðinu. Auk þess eru númer
úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt í Morgunbiaóinu
miðvikudaginn 15. ágúst. Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja
frammi hjá íbúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og
veróbréfafyrirtaelcjum.
iii.
íbúðalánasjóður
Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800