Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2001, Side 24
28
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2001
Tilvera I>V
1 í f i ft
HBwmI
Djass
á Vídalín
Kvartett Kára Árnasonar heldur
tónleika á Vídalín (gamli
Fógetinn) í kvöld kl. 21.00. Á
efniskránni eru þekktir húsgangar
sem allir djassáhugamenn og
konur þekkja. Kvartettinn skipa
Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar,
Ómar Guðjónsson á gítar, Kári
Árnason á trommur og Ólafur
Stolzenwald á bassa. Skemmtunin
kostar aðeins kr. 500.
Fyrirlestur
FYRIRLESTUR UM NJALU Prófessor
Andrew Wawn, háskólanum í Leeds
á Bretlandi, formaöur Víkinga-
félagsins breska, flytur opinberan
fyrirlestur í boöi Stofnunar Sigurðar
Nordals, í dag klukkan 17.00 í
Norræna húsinu. Fyrirlesturinn
veröur fluttur á ensku og nefnist
„Njáls saga and the Victorians” og
fjallar um viötökur á Brennu-Njáls
sögu á Bretlandi á 19. öld. Dr.
Wawn hefur veriö kennari viö
háskólann í Leeds síöan 1983. Á
síðustu árum hafa rannsóknir hans
einkum beinst aö áhuga Breta á
íslandi og íslenskri menningu á 19.
öld, einkum hversu jsekktar
norrænar bókmenntir voru á
Bretlandi, hvernig þeim var miölað
og hvernig þær voru túlkaðar.
Klassík
TONLEIKAROÐ BLAU KIRKJUNNAR
Næstu tónleikar í tónleikaröö Bláu
Kirkjunnar á Seyöisfiröi verða í
kvöld kl. 20.30, en þá mun Peter
Tompkins, óbóleikari og Guöríöur
St. Sigurðardóttir píanóleikari, flytja
tónlist eftir Madeleine Dring, Oliver
Kentish, Francis Poulenc og Camille
Saint-Saéns, allt frá 20. öld og í
ýmsum stíl. Miöa á tónieikana má
fá á skrifstofu Bláu kirkjunnar,
Ránargötu 3 á Seyöisfirði, og í kirkju
fyrir tónleikana. Aögangseyrir er
krónur 1000 og frítt fyrir 16 ára og
yngri.
KRISTINN SIGMUNDSSON SYNGUR
A HOFN I kvöld halda þeir Kristinn
Sigmundsson óperusöngvari og
Jónas Ingimundarson píanóleikari
tónleika í Hafnarkirkju á Höfn í
Hornarfiröi kl. 20.30. Á
efnisskránni, sem er afar fjölbreytt,
eru lög eftir Schubert, Sibelius og
ariur eftir Verdi auk margra
alþekktra laga eftir íslensk
tónskáld. Samstarf Kristins og
Jónasar er löngu landsþekkt og
hefur staöiö um árabil. í undir-
búningi eru tónleikar á listahátíö í
Suður-Frakklandi um miöjan
september þar sem þeir félagar
Kristinn og Jónas flytja sömu erindi.
Myndlist
KRISTINN IVIAR INGVARSSON
SYNIR A MOKKA Síðastliðinn
sunnudag var opnuö sýning á
verkum Kristins Más Ingvarssonar
Ijósmyndara á Mokka-kaffi viö
Skólavörðustíg. Þar sýnir hann 8
nýjar Ijósmyndir sem flestar eru
unnar á þessu ári. Sýningin ber
titilinn „Sending” og er þetta þriöja
einkasýning Kristins en hann hefur
meöal annars sýnt í Reykjavík,
Akureyri og Kaupmannahófn. Sýning
Kristins er opin á afgreiöslutíma
Mokka milli klukkan 9.30 og 23.30
alla daga vikunnar en henni lýkur 4.
september.
Síðustu forvör
SYNINGU DAÐA GUÐBJORNS-
SONAR LYKUR Mvndlistarsýningu
Daöa Guöbjörnssonar í Gallerí Sölva
Helgasonar aö Lónskoti í Skagafiröi
lýkur í dag. Á sýningunni er
vatnslitamyndir sem allar eru unnar
á þessu ári.
Sjá nánar: Lífiö eftir vlnnu á Vísi.is
íslandsvinurinn Don Felix, einn úr Los Paraguyos:
Lærir Undir blá-
himni í Hveragerði
Maöur lifandi
KRí
sviðsljósinu
DV, HVERAGERDI:
Tónlistarmaðurinn Don Felix er
einn af hinum upprunalegu Los
Paraguyos sem kynntu íslendingum
suðræna tónlist, eins og „Labamba"
og „Guantana Mera“ árið 1968. í
sumar er Felix einn á ferö. Hann er
frá Paragvæ en býr á Kanaríeyjum.
Tvímenningarnir Felix og Frans-
isco (Dos Paraguyos) komu síðast til
íslands fyrir þremur árum en Felix
hefur oft komið til landsins áður.
í sumar hefur hann ferðast um
landið og helst sungið og spilað fyr-
ir börn, sjúklinga og aldraða á stofn-
unum - alltaf án endurgjalds. „Ég er
mjög nægjusamur og þarf enga pen-
inga nema bara til að fæða mig og
klæða. Um þessar mundir bý ég á
Suðurlandi en fer heim í lok sept-
ember. Næst skemmti ég á Djúpu-
víkurhátíðinni sem verður um
Leikiö í „kuldanum"
Felix tekur í gítarinn augnablik úti,
þrátt fyrir aöeins 18 stiga hita.
Hrifning
Don Felix lék á als oddi fyrir hrifna dvalargesti Áss/Ásbyrgis i Hverageröi - vanur maöur sem naut mikillar frægöar
meö fétögum sínum í Los Paraguyos á árum áöur.
næstu helgi. Heima á Kanaríeyjum
er ég fullbókaður í allan vetur eins
og venjulega," segir Felix í lauslegri
þýðingu fréttaritara.
Það er ekki alltaf tekið út með
sældinni að hafa tónlist að atvinnu.
Felix þarf að hugsa vel um fingur
sína og rödd. Vinir hans hafa undr-
ast þennan áhuga á íslandi, sérstak-
lega þar sem hann þolir illa kalt
loftslag. í Hveragerði nú fyrir
skömmu, þegar úti var um 15 stiga
hiti, var hann búinn vetrarklæðn-
aði á leið til þess að skemmta dval-
argestum á Ási/Ásbyrgi. „Ég segi
öllum vinum mínum að ísland sé
stórkostlegt land,“ heldur Felix
áfram á sinni sjarmerandi ensku.
„Icelanders are fantastic people,"
segir hann. Hann segist auk þess oft
spila fyrir þá á Kanaríeyjum á vet-
urna.
Felix er nýorðinn sextugur og
tónlist er hans lif. Örlað hefur á
liðagigt hjá honum og hann býst
ekki við að ferðast öllu lengur til
kaldari landa. Þegar fréttaritari
hitti Felix þar sem hann býr í
Hveragerði, var hann önnum kafinn
við að læra (af geislaplötu) og spila
á gítarinn lagið Undir bláhimni.
Textann skrifaði hann niður eftir
eigin framburði sem var nokkuð
skrautlegur í augum íslendings. En
þetta eitt vinsælasta lag á íslandi til
langs tíma hljómaði mjög vel í út-
setningu Felix og hann hyggst læra
nokkur önnur vinsæl lög sem hann
getur boðið gestum Kanaríeyja í vet-
ur. -eh
Kolbrún
Bergþórsdóttir
skrifar.
KR er víst í fallhættu í Símadeild-
inni. Niðurlæging KR haföi á ein-
hvem furðulegan hátt farið fram hjá
mér þar til kvöld eitt fyrir skömmu
þegar alvöruþrungnar umræður
hófust í þættinum Island í dag um
það hvernig bregðast ætti við hinni
slæmu stöðu. Ég varð svo hvumsa að
ég gleymdi að skipta yfir á fréttatíma
RUV. Hvemig stendur á því að KR
tekst alltaf að koma sér í fréttirnar,
hvort sem liðið er aö tapa eða vinna?
Nú em önnur lið í deildinni: Valur
og Fram og Þróttur og fleiri sem tapa
leikjum og vinna leiki, en aldrei fá
þau sama rými í fjölmiðlum og KR.
Maður hefur komist í gegnum lifið
án þess að vita nafn á einum einasta
knattspyrnuþjálfara þar til fyrir ein-
hverjum mánuðum að þjálfari KR-
inga hætti mjög skyndilega. Ég man
ekki af hverju hann hætti en mig
minnir að ein skýringin hafi verið sú
að það væri svo vanþakklátt verk að
stjórna KR. Og Pétur Pétursson varð
skyndilega nafn sem dúkkaði upp í
öllum fréttatímum.
Maður hefur líka getað lifað sínu
lífi án þess að vita hverjir veröa
meistarar í knattspyrnu, en þann tit-
il tókst KR að vinna tvö ár í röð eftir
áratuga niðurlægingu og maður átti
sko ekki að fá að gleyma því næstu
vikurnar á eftir.
Ég man eftir fyrri sigurdeginum.
Lýðurinn gekk um hverfið, blindfull-
ur, og söng hástöfum þvælukenndan
og montlegan texta um að KR-ingar
væru bestir. Menn þeyttu bíltlautur
„Nú er KR að tapa og tapa og tapa. Þetta eru víst
orðnir nokkrir tapleikir í röð og tapið tekur á. Það er
farið að gœta alvarlegrar taugabilunar í vesturbœn-
um. Það að vera KR-ingur er víst ekki áhugamál. Það
er lífshugsjón. Því eru vonbrigðin svo mikil þegar lið-
ið bregst. “
og börn veifuðu fánum. Ég man að ég
hljóp undan lýðnum, inn í öruggt
skjól heimilis míns og fór ekki meira
út þann daginn. Ég hugsaði með mér
að vonandi hampaði KR ekki titlin-
um að ári. Einn KR-sigurdagur
nægði mér fyrir lífstíð. Þegar KR-ing-
ar endurtóku leikinn næsta ár gætti
ég þess vandlega að fara ekki úr húsi.
Nú er KR að tapa og tapa og tapa.
Þetta eru víst orðnir nokkrir tapleik-
ir í röð og tapið tekur á. Það er farið
að gæta alvarlegrar taugabilunar í
vesturbænum. Það að vera KR-ingur
er víst ekki áhugamál. Það er lífshug-
sjón. Því eru vonbrigðin svo mikil
þegar liðið bregst. Breiðablik og
Fram klikka líka stundum en stuðn-
ingsmenn þeirra liða bera harm sinn
í hljóði. En ekki stuðningsmenn KR
sem væla þar til þeim er vorkennt.
Og niðurlútir KR-ingar mæta í viðtöl
þar sem fjölmiðlamenn veita þeim
áfallahjálp í formi skilningsríka
spurninga á borð við: „Er ekki eitt-
hvað til ráða?“ og huggunarríkra yf-
irlýsinga eins og: „Þetta hlýtur að
lagast."
Satt að segja er mér alveg sama
hvaða lið vinnur þessa svokölluðu
Símadeild og ekki nenni ég að horfa
á einn einasta leik. Þeir eru hvort eð
er allir eins þessir íslensku knatt-
spyrnumenn, fólbleikir og væskils-
legir á velli. Þannig að ég ætla að
reyna að leiða hjá mér knattspym-
una í Símadeildinni, en mun senni-
lega ekki ná árangri þar, fremur en
KR.