Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2001, Síða 25
29
Óvenjulegur ratleikur mun fara fram viö Mývatn um helgina þegar fram fer keppni sex þýskumælandi liöa sem síöar veröur gert aö
spennandi sjánvarpsefni og loks aö auglýsingu fyrir Varta-fyrirtækiö.
Varta-rafhlöður í stóru hlutverki í rafmagnaðri hugmynd:
Tugmilljóna ratleikur
á þýsku við Mývatn
- öflug sveit fjölmiðla mun fylgjast með tveggja daga keppni
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2001
DV
„Þetta er bæði einstakt og svo
náttúrlega gríðarlega stórt,“ segir
Ingvi Ragnar Kristjánsson, hótel-
stjóri á Sel Hóteli við Mývatn. í
vikunni mun fara fram alþjóðleg-
ur ratleikur í Mývatnssveit sem fá
mun gríðarlega íjölmiðlaathygli
um allan hinn þýskumælandi
heim, enda sá fyrsti sinnar teg-
undar í heiminum að því sagt er.
Blaðamenn frá einum 16 blöðum
og tveimur sjónvarpsstöðvum
munu koma til landsins ásamt 24
keppendum og skipuleggjendum
ferðarinnar en hér á landi munu
fjölmargir aðilar úr ferðageiran-
um og ferðamannaþjónustunni
við Mývatn koma að málinu - trú-
lega hátt í 40 manns. Það er stór-
fyrirtækið Varta, sem meðal ann-
ars framleiðir rafhlöður, sem
stendur fyrir þessum leik. Fyrir-
tækið mun hafa leitað til þekktra
ráðgjafa til að fríska upp á ímynd
fyrirtækisins og fengið þau ráð að
standa fyrir ratleik á íslandi með
tilheyrandi íjölmiðlaathygli. Mál-
ið var síðan sett af stað og skipu-
lagt í samstarfi við Ingva Ragnar
Kristjánsson og hefur undirbún-
ingurinn staðið í eina 8 mánuði.
Þýsku aðilarnir sem standa í
þessu með Ingva Ragnari hafa
komið hingað til lands fjórum
sinnum og í júlí var leikurinn
prufukeyrður. Ingvi Ragnar segir
að þegar málið hafi fyrst verið
reifað við hann hafi hann ekki
talið það mikið mál að skipuleggja
ratleik fyrir eitt fyrirtæki en þeg-
ar til kom reyndist þetta talsvert
meira verkefni en hann hélt í
fyrstu. Búast má við að kostnaður
Varta-fyrirtækisins vegna þessa
máls hlaupi á tugum milljóna og
kunnugir skjóta á þetta 70-100
milljónir.
Þýskt „Survivour"
Leikurinn mun fara þannig
fram að sex manns munu verða í
hverju liði og liðin verða alls sex.
Keppt verður á tveimur megin-
leiðum þar sem keppendur munu
m.a. þurfa að vera á hestbaki,
ganga, hjóla og róa. Þannig hafa
vegna þessarar keppni verið tekn-
ir til handargagns 11 jeppar, um
20 hestar, 40 fjallahjól, fjórir kanó-
ar og átta róðrarbátar. Auk þess
fylgja þessu tjaldbúðir og matur
og annað því um líkt. í hverju liði
eru sex manns eins og áður segir
en einungis fjórir þeirra koma til
íslands; hinir tveir í liðinu verða i
sérstakri miðstöð í Hamborg. Að-
spurður um hvort þetta sé ein-
hvers konar þýsk útgáfa af
„Survivour" segir Ingvi að ýmis-
legt minni á það. Þessi fjögur í
hverju liði sem koma til íslands
vita ekkert hvert þau eru að fara,
nema að þau eiga að fara til ís-
lands. Síðan eru það félagar
þeirra í Hamborg sem eiga að leið-
beina þeim og hjálpa í leiknum.
Þar sem liðin eru i tvennu lagi
þurfa þau að vera í stöðugu fjar-
skiptasambandi hvert við annað
og fyrir vikið verður þetta há-
tæknilegur fjarskiptaleikur í leið-
inni - og að sjálfsögðu verða not-
aðar i þetta Varta-rafhlöður! Liðin
verða í stöðugu internet- og GSM-
sambandi allan tímann sem mun
enn auka á sérkennileika þessa
ratleiks. Sjónvarpsstöðvar munu
síðan sýna þessa keppni - sem
stendur yfir I tvo daga - í
nokkrum þáttum en eftir að sýn-
ingu þeirra er lokið mun Varta
klippa þættina niður í auglýsing-
ar fyrir fyrirtækið. Ingvi Ragnar
telur að hér sé á ferðinni gríðarleg
landkynning fyrir ísland og Mý-
vatn sem muni til lengdar gagnast
vel ferðaþjónustu í landinu.
-BG
Tilvera
Dregur sig í hlé
Leikarinn góðkunni, Hugh Grant,
hefur ákveðið að draga sig í hlé frá
skemmtanaiðnaðinum um stund.
Grant er miður sin vegna fráfalls
móður sinnar sem dó fyrir mánuði.
í viðtali við dagblaðið Daily Ex-
press skýrði Grant frá því að móðir
hans hefði verið honum afar hjartfólg-
in og hann þurfl að venjast lífinu án
hennar. Annars segir leikarinn að
helsta ástæðan fyrir ákvörðun sinni
sé ágangur fjölmiðla á meðan á jarða-
fór móður hans stóð. Það fer mjög fyr-
ir brjóstið á Grant að ljósmyndarar
eltu hann á röndum í jarðarförinni.
Hann telur þetta brot á friðhelgi
einkalífssins og vill draga sig úr sviðs-
ljósinu til að fá frið. Grant segist ekki
hafa ákveðið hvort hann snýr aftur í
sviðsljósið.
Á erfitt með að
bindast ödrum
Breski óskarsverðlaunahafinn
Gwyneth Paltrow segist eiga erfitt
með að bindast öðrum. Hún segist
hlaupast á brott þegar hitna fer í
kolunum. Gwyneth hætti að vera með
kvennagullinu Brad Pitt fyrir þremur
árum og fyrir nokkru losaði hún sig
við Ben Affleck. Síðan þá hefur
Afíleck lent í klóm Bakkusar og
hneigst að sama kyni.
Það hefur reynst ómögulegt fyrir
Gwyneth að haldast í sambandi til
lengdar. „Þegar það er búið er það bú-
ið,“ segir hún og bætir við að karl-
menn skilji ekki þegar sambönd séu
búin.
Vill vera
kyntákn
Jennifer Love Hewitt
Vill miklu frekar vera kyntákn heldur
en litla sæta stelpan.
Jennifer litla Love Héwitt segist
vera orðinn leið á því að vera litla
sykursæta og saklausa stúlkan. í
viðtali við sænska blaðið Aftonblad-
et lýsir Hewitt því að henni fmnist
hún standa á krossgötum í lífi sínu.
Tuttugu tveggja ára að aldri hef-
ur hún fengið nóg af því að leika
hlutverk litlu sætu stelpunnar eins
og hún var fræg fyrir í þáttunum
Party of Five sem m.a. hafa verið
sýndir á Stöð 2. Núna þyrstir Hewitt
í meira krefjandi hlutverk, hvort
sem það er í alvarlega þenkjandi
hlutverki eða hlutverk ögrandi kyn-
bombu. Hún segist líka alveg vera
tilbúin til að vera álitin kyntákn.
Hewitt viðurkennir einnig í við-
talinu að hafa orðið verulega svekkt
með vera kosin ein af verst klæddu
konum heims af vikublaðinu People
Weekly. Hún leggi mikið upp úr
flottum fötum og gangi m.a. í fötum
frá Prada.
M.BENZ ML 270 CDI,
sk. 01/00, ek. 85 þús. km,
ssk. Geisli, ABS,
hraðastillir, álfelgur,
dráttarkrókur, rafdr. og fl
Ásett verð kr.
4.390.000. Ath. skipti.
\Zsiiö**y
Bíldshöfða 5 • S. 567-4949
bilahollin.is