Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2001, Page 23
27
Bíógagnrýni
Ast, svik og lygar
Bíóborgin - Tailor of Panama: ic'jr-k
Sif
Gunnarsdóttir
skrífar gagnrýni
um kvikmyndir.
F
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2001
DV
Tilvera
Paul leikur og
syngur í NY
Liónlð (23. iúlí- 22. áeústl:
Einhverjar hindranir
sem verið hafa á vegi
þínum varðandi fram-
kvæmdir virðast nú
horfnar. Ný og betri þróun í per-
sónulegum málum þínum er hafin.
Mevian (23. áeúst-22. sept.):
Ekki borgar sig að
reyna að ráða í hegðun
\X^ik.kunningja sem kemur
^ f stöðugt á óvart. Betra
er að snúa sér að öðru fólki í dag.
Háppatölur þínar eru 1, 8 og 12.
Vogin (23. sept.-23. okt.l:
J Dagurinn byrjar vel og
Oy þú ert bjartsýnni en
V f þú hefur verið lengi.
r f Ekki láta neitt uppi
um áætlanir þínar fyrr en þær
eru komnar í höfn.
<T\
hlustao á þi
Frumkvæðið er hjá
'öðrum í dag en þú
leggur sitthvað til mál-
anna og það verður
iþig-
Happatölur þínar eru 6, 16 og 33.
Krabbinn (22. iúní-22. iúií):
Þó að þessi vika hafi
) ekki byrjað vel verður
’ þér samt vel ágengt og
árangurinn verður
Isverður í vikulok. Þér gengur
vel í ástarmálunum.
Paul McCartney, fyrrum Bítill, ætl-
ar að halda tónleika til styrktar
slökkviliðsmönnum í New York, sem
misstu marga starfsfélaga sína þegar
World Trade Center turnarnir hrundu
í kjölfar hryðjuverkaárásanna.
„Ég ætla að halda tónleika hér í
New York í næsta mánuði eða svo til
styrktar öllum slökkviliðsmönnum,"
sagði Palli Bítill í yfirlýsingu sem
hann sendi frá sér á dögunum. Hann
minnti jafnframt á að málið væri hon-
um ekki alveg óskylt þar sem faðir
hans hefði verið slökkviliðsmaður í
Liverpool í heimsstyrjöldinni síðari.
Kylie tók krydd-
píuna í nefið
Ástralski smásöngfuglinn Kylie
Minogue tók kryddpíuna Victoriu Ad-
ams og Beckham í nefið um helgina,
ef svo má að orði komast.
Stúlkurnar gáfu út smáskifu í Bret-
landi á sama tíma og er skemmst frá
því að segja að skífa Kylie þaut upp í
efsta sæti vinsældalistanna en Victor-
ia greyið varð að láta sér lynda sjötta
sætið.
„Ég er svo spennt að ég er að
springa,“ sagði Kylie um velgengni
plötunnar. Fjölmiðlar höfðu fyrir
fram gert mikið úr væntanlegri bar-
áttu stúlknanna tveggja.
Sporðdreki (?4. nkt.-21. nóv.l:
SÞér miðar vel áfram á
eigin spýtur og virðist
lítið hafa til annarra
að sækja. Vertu viðbú-
ínn oinoi a milli ástvina.
Happatölur þínar eru 9, 17 og 26.
Bogamaður (22. nóv.-21. des.l:
heldur fast við þina
skoðun og kemur það
sér vel í vinnunni. Það
er bjart fram undan í
Happatölur þínar eru 2,14 og 29.
Steingeitin (22. des.-l9. ianö:
^ ^ Þú ert ekki alveg örugg-
ur um stöðu þína á
* Jr\ vinnustaðnum og getur
ekki leyft þér að slaka
þar á. Kvöldið bætir þér það upp
enda verður þú alveg dauðuppgefinn.
Fyrst fáein varúðarorð: Skraddar-
inn í Panama er ekki James Bond-
mynd þótt hún fjalli um njósnara og
Pierce Brosnan sé í aöalhlutverki.
Þar eru engar sprengingar, engir
æsilegir eltingaleikir og nánast ekk-
ert deyr, nema þá kannski mannorð
- og hvers virði er það á stað sem er
lýst sem hetjulausu Casablanca?
Skraddarinn í Panama, Harry
Pendel (Rush), er mjúkur maður,
giftur glæsilegri konu (Curtis) og á
með henni tvö yndisleg börn en
hann á líka ljótt leyndarmál í fortíð
sinni og stóra skuld í banka sem
gerir hann tilvalið fórnarlamb fyrir
njósnarann Andy Osnard (Brosn-
an), skithæl sem er nýkominn til
Panama til að hafa auga með stjórn
Panamaskurðarins. Osnard ákveð-
ur að koma sér út úr Panama aftur
með því að koma upp um einhver
bragðmikil svik og þvingar Pendel
til að hjálpa sér. Pendel lætur und-
an og fer að spinna upp ótrúlegustu
lygasögur fyrir Osnard gegn vænum
greiðslum, lygasögur sem setja allt
á annan endann bæði í London og
Washington.
Það var snilld að fá Brosnan í
hlutverk Osnards. Alveg frá fyrstu
mínútu, þegar Osnard er að fá fyrir-
mælin hjá yfirmanni sínum í MI6,
sér maður á augnaráðinu, líkams-
beitingu og heyrir það á röddinni að
hér er enginn heiðursmaður á ferð.
Njósnarinn
Pierce Brosnan í hlutvérki Andy Osnards sem er enginn breskur heiðursmaöur.
En vegna þess hve vel Brosnan hef-
ur fyllt út I Bondbúninginn býst
maður við hinum hæðna séntil-
manni og þess vegna er það enn
meira áfall hvað hann er algjörlega
sjálfselskur, svikull og samvisku-
laus.
Geoffrey Rush hefur réttilega
hlotið frægð fyrir að leika sérkenni-
lega menn, eins og Helfgott í Shine
og Markgreifann de Sade í Quills,
en hér er hann hlédrægur maður
sem hefur byggt sér upp mannorð
og gott líf úr engu. Viðskiptavinir
hans virða hann fyrir yfirburða
hæfni hans og konan hans elskar
hann heitt. Til að bjarga þessu
draumalífi þarf hann að ljúga en
málin vandast þegar lygarnar læð-
ast inn í raunveruleikann.
Þeir sem hafa lesið hina frábæru
Our Man in Havana eftir Graham
Greene eiga eftir að sjá að miðplott-
ið er það sama: Stórveldi láta ginn-
ast af ótrúverðugum lygasögum ein-
faldlega vegna þess að þau vilja ekk-
ert frekar en að fara í strið. Skradd-
arinn í Panama er vel ofin saga þar
sem áhorfandinn er lengi í vafa um
hver sé i raun og veru að nota
hvern. Hún sjokkerar ekki með
sprengingum, morðum og eltinga-
leikjum heldur græögi, yfirhylming-
um og svikum því að hér er hver
sjálfum sér næstur.
Boorman er í flnu formi og hefur
gert stemningsríka svarta kvik-
mynd um „alvöru njósnir" í stað
„kvikmyndanjósna"; það bjargar
enginn heiminum hér, honum er
ekki við bjargandi. Helst get ég
kvartað yfir hversu lítið hin ágæta
leikkona, Jamie Lee Curtis, er not-
uð og hlutverk hennar marklaust þó
að það hljóti að eiga aö vera eins
konar mórölsk miðja myndarinnar.
Góða skemmtun.
Leikstjóri og framlei&andi: John Boor-
man. Handrit: Andrew Davies, John Le
Carré og John Boorman, eftir samnefndri
skáldsögu John Le Carré. Kvikmynda-
taka: Philippe Rousselot. Tónlist: Shaun
Davey. A&alleikarar: Pierce Brosnan,
Geoffrey Rush, Jamie Lee Curtis o.fl.
Barbara Walters sjötug
Ein kunnasta frétta-
kona Bandaríkjanna,
Barbara Walters, á
stórafmæli í dag. Þrátt
fyrir sjötugsaldurinn
er hún enn á fullu og
er með sína eigin við-
talsþætti sem eru mikilsvirtir og þyk-
ir mjög eftirsótt að komast í viðtöl hjá
Walters. Meðal afreka hennar má
nefna að hún var fyrst kvenna til að
stjórna fréttatímum á stóru sjónvarps-
stöðvunum og þá hefur hún tekið við-
töl við alla forseta Bandaríkjanna frá
því Richard Nixon var við völd. Walt-
ers á þrjú hjónabönd að baki og eina
dóttur, Jacqueline, sem er kjörbarn.
Gildir fyrir miövikudaginn 26. september
DV-MYNDIR EINAR J.
Váleg veður
Ef til vill var þaö táknrænt að þaö skuii hafa hellirignt á friöarsinna á iaugardaginn. Þeir létu þaö ekki á sig fá heldur
drógu hetturyfir höfuö eöa spenntu upp regnhlífarnar.
Bænastund
Á Ingólfstorgi fór fram helgistund þar sem fuiitrúar
ólíkra trúarbragöa fóru meö bænir eöa áheit fyrir friði
og kærleika í mannheimum.
Gengið í þágu friðar
Samkoman hófst meö friöargöngu frá Hallgrímskirkju
niöur á Ingólfstorg. Þar fóru þessar hnátur fremstar í
flokki.
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.L
Þú færð fréttir sem
koma róti á huga þinn.
Ekki er þó ástæða til
að hafa áhyggjur. Ást-
hjá þér.
Happatölur þínar eru 3, 22 og 25.
Fiskamlrnð. fehr.-?0. marsl:
Gerðu eins og þér
Ifinnst réttast í máli
sem þú þarft að taka
ákvörðun í. Þú
ættir ékki einu sinni að leita
ráða, málið er þess eðlis.
Hrúturinn (21. mars-19. anríh:
Þér gengur vel að ná
sambandi við einhvem
sem hefur verið fjar-
lægur undanfarið og
gætuð þið komist að
gagnlegri niðurstöðu.
Nautið (20. aoril-20. mah:
Þú gerir þér miklar
vonir í ákveðnu máh og
þú gætir þurft að fóma
einhverju til að ná
settu marki. Vertu varkár ef þú
skipuleggur eitthvað með öðram.
Tvíburarnir (2i. maí-?i. iúníi:
Friðarganga í Reykjavík:
Beðið fyrir friði
Váleg veður hafa geisað um heimsbyggðina eftir
hryðjuverkin í Bandaríkjunum og er ekki laust við að
margir kvíði frekari átökum. Af því tilefni var haldin
samkoma á Ingólfstorgi á laugardaginn þar sem saman
komu fulltrúar ólíkra trúarbragða og kynþátta og báðu
fyrir friði og sátt í heiminum. Fjölmargir tóku þátt í sam-
komunni og lét fólk ekki úrhellisrigningu og rok buga
sig heldur klæddi sig eftir veðri eða spennti upp regnhlíf-
arnar. Ýmsir tónlistarmenn lögðu málefninu lið og má
þar nefna hljómsveitirnar Lúnu, Vígspá og Pollock-bræð-
ur. Þá var enn fremur fluttur seiðmagnaður tónlistar-
spuni á didjeridoo-pipur og djembee-trommu sem veitti
köldum og blautum friðarsinnum yl í kroppinn og efldi
andann.
Kynngimagnaöir tónar
Hópur tónlistarmanna flutti tónlistarspuna á ástralskar
didjeridoo-pípur og senegalska djembee-trommu.