Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2001, Síða 24
28
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2001
Tilvera
I>V
1 í f i A
Glúntarnir aftur
í Salnum
í kvöld verða söngtónleikar í
Salnum í Kópavogi. Glúntarnir
eftir Gunnar Wennerberg verða
endurfluttir og sem fyrr syngja
Bergþór Pálsson baríton og Ólaf-
ur Kjartan Sigurðsson baríton
við píanóundirleik Jónasar Ingi-
mundarsonar. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 20.
Popp ________________________
STEFNUMÓT I kvöld verður eins og
venjulega Stefnumót á Gauki á
Stöng.
Klassík
SINFONIUHUOMSVEIT ÍSLANDS
LEIKUR A EGILSSTOÐUM Sinfón-
íuhljómsveit Islands leggur land
undir fót um þessar mundír og heim-
sækir Austurland. I dag verða tvenn-
ir tónleikar í íþróttahúsinu á Egils-
stööum. Eru þeir fyrri skólatónleikar
sem hefjast kl. 14 og hinir seinni
eru síöan almennir tónleikar og hefj-
ast kl. 20.
Fundir og fyrirlestrar
FORSPA UM ENPURTEKIN
AFBROT Fvrsta málstofa,
sálfræðiskorar í Háskóla íslands á
haustönn verður á morgun,
miövikudag, kl. 12-13 i Odda, stofu
201. Þar mun Maríus Peersen,
Chand. Psych, sálfræðingur hjá
Fangelsismálastofnun ríkisins, flytja
erindið: Forspá um endurtekin
afbrot íslenskra fanga. Málstofan er
öilum opin.
KRATAFUNDUR í
RUGBRAUÐSGEROINNI
Aðalfundur Alþýöuflokksfélags
Reykjavikur verður haldinn kl. 18 í
dag í Rúgbrauösgeröinni viö
Borgartún. Á dagskránni eru
venjuleg aðalfundarstörf.
Sýningar
SÝNING TENGD EINARI LAXNESS
I ÞJOÐSKJALASAFNI Nvleea var
opnuð sýning í Þjóöskjalasafni
Islands að Laugavegi 162, tileinkuð
Einari Laxness sem er sjötugur um
þessar mundir. Sýnd eru skjol sem
snerta nokkrar af ritgerðum hans,
m.a. um sjálfstæðisbaráttu
íslendinga og Skaftárelda.
LINDA í CAFÉ PRESTO
Linda Oddsdóttir opnaöi sína fyrstu
einkasýningu á Café Presto í
Hlíöasmára 15 nýlega. Þar eru
eingöngu olíumálverk sem hún hefur
málað á þessu ári. Myndefniö sækir
hún aðallega í náttúru landsins.
FRUMHERJAR í ÍSLENSKRI
MYNDUST I LISTASAFNI
AKUREYRAR I Llstasafni Akureyrar
stendur yfir sýningin Frumherjar í
íslenskri myndlist. Þar eru meðal
annars verk eftir Þórarin B.
Þorláksson, Ásgrim Jónsson, Jón
Stefánsson, Jóhannes Kjarval,
Júlíönu Sveinsdóttur, Kristínu
Jónsdóttur, Guömund
Thorstelnsson, Guömund Einarsson,
Gunnlaug Blöndal, Jón Þorlelfsson
og Rnn Jónsson.
SJá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Maður l'rfandi
Stórafmæli stofnana Styrktarfélags vangefinna:
Pakka blöðum, kortum og kryddi
Stofnanir Styrktarfélags vangef-
inna, Lyngás, Bjarkarás, Lækjarás
og Ás, eiga allar stórafmæli á þessu
ári. Lyngás 40 ára, Bjarkarás 30 og
Lækjarás og Ás 20 ára. Af því tilefni
var haldinn fagnaður í Bjarkarási
og Lækjarási nýlega þar sem mættu
um 300 manns. Að sögn Guðrúnar
Eyjólfsdóttur og Laufeyjar Gissurar-
dóttur, forstöðuþroskaþjálfa í Bjark-
arási og Lækjarási, heppnaðist af-
mælið mjög vel.
„Þetta var dagur endurfunda því
margir voru að hittast eftir nokk-
urra ára aðskilnaö. Allir í góðu
skapi og mikil gleði ríkjandi," segir
Guðrún.
Sameinast í sorg
Kolbrún
Bergþórsdóttir
skrifar.
Dagvist fyrir 150 manns
Guðrún og Laufey sitja í notalegri
setustofu Bjarkaráss og saman lýsa
þær því hvað fram fer á þessum
stofnunum dags daglega, þegar ekki
eru afmælisveislur. „Hjá Styrktarfé-
laginu eru um 150 manns i dagvist á
íjórum stöðum," byrjar Laufey og
skilgreinir síðan þá staði nánar:
„Lyngás er fyrir börnin. Lækjarás
er þjálfunarstöð, Bjarkarás hæflng-
arstöð og Ás er verndaður vinnu-
staður. Síðan erum við með öldrun-
ardagvist í Blesugrófinni sem er ein
deild út frá Lækjarási."
Guðrún segir um 42 manns koma
daglega til starfa í Bjarkarási frá kl.
9-4. Verkefnin eru af ýmsu tagi og
flest unnin fyrir fyrirtæki úti í bæ.
Að hennar sögn er pökkun stór
hluti af vinnunni, pökkun á blöð-
um, kortum og kryddi, svo dæmi
séu tekin. Auk þess nefnir hún nýja
deild i Bjarkarási sem heiti Smiðj-
an. „í Smiðjunni erum við að vinna
með tré og leir. Það er nokkurs kon-
ar afþreying frá hinum daglegu við-
fangsefnum og við erum aðeins
byrjuð að selja framleiðslu þaðan.“
Guðrún segir daginn í Bjarkarási
ganga mest út á vinnuna en stund-
um bregði fólk á leik og jafnvel sé
slegið upp böllum.
Karlarnir að veiða
Bjarkarás og Lækjarás standa
næstum hlið viö hlið. í Lækjarási
eru 32 einstaklingar sem nýta þjón-
ustuna þar. Meginmarkmið er að
veita þjálfun og umönnun sem mið-
í vlnnustofu Bjarkaráss
Laufey Gissurardóttir og Guörún Eyjólfsdóttir, yfirþroskaþjálfar Lækjaráss og Bjarkaráss, í forgrunni.
DV-MYND HILMAR ÞÓR
ar að því að efla alhliða þroska og
sjálfstæði. Sjúkraþjálfarar eru með
aðstöðu í Lækjarási og sinna fólki af
báðum stofnununum. Stuðningsfull-
trúar og þroskaþjálfar starfa á þess-
um stöðum. I Lækjarási er ýmiss
konar hópstarf í gangi. Laufey nefn-
ir til dæmis dekurklúbb, leikræna
tjáningu og skapandi starf. „Okkur
fannst konurnar virkari í félags-
starfinu og stofnuðum sérstakan
klúbb þar sem karlarnir fengju not-
ið sín. Hann hittist einu sinni í
viku. Karlarnir fara í veiðiferðir
saman, stundum er lesið eitthvað
sem höfðar til þeirra eða þeir fara
að heimsækja herramenn á öðrum
heimilum," segir hún.
Selja grænmeti í nágrenninu
Fyrir utan Bjarkarás er sundlaug
og þær stöllur segja hana nýtta á
hverjum degi á sumrin. Á góðviðris-
dögum sé lika farið með vinnuna út
á pall. Á lóðinni er gróðurhús sem
Bjarkarás rekur og Guðrún segir
þaö afar vinsælan vinnustað. Þar er
grænmeti af ýmsum tegundum, gul-
rætur, tómatar, paprika, agúrkur,
kartöflur, blómkál - allt lífrænt
ræktað. „Bæði er þetta til eigin nota
og svo fer fólkið hér í söluferðir um
nágrennið," segir Guðrún og bætir
við að ef verkefnastaðan leyfi á
heimilinu sé fariö út að ganga. Ekki
skorti góðar gönguleiðir í nágrenn-
inu, bæði í Elliðaár- og Fossvogsdal.
-Gun.
Áhrifarík minningarathöfn um
þá sem fórust í árásinni á Amer-
iku var á Yankee Stadium í New
York síðastliðinn sunnudag. Ég sá
hana í beinni útsendingu á Sky. í
sorg leitar fólk huggunar i trúnni
og það gerðu þúsundirnar sem
sameinuðust í bæn. Ræður voru
haldnar og vitanlega tók Rudolph
Giuliani borgarstjóri til máls.
Giuliani hefur staðið sig frábær-
lega á erfiðum tímum og kann að
tala til fólks og hjálpar því þannig
að vinna úr sorginni. Hann hét
því að endurbyggja borgina og
gera hana að betri staö. Vonandi
fær hann tækifæri til þess.
Við þessa athöfn var mikið
sungið og þá kom svo berlega í ljós
það sem maður veit innra með
sér: að tónlistin sameinar fólk.
Placido Domingo söng Ave Maria
svo sérlega faUega að maður stað-
festist í trúnni á almættiö. Blökku-
maöur og kór sungu We Shall
Overcome og fólk hélst í hendur
undir söngnum. Bette Midler söng
Wind Beneath My Wings, lag þar
sem manneskja segir vini sínum
að í hennar augum sé hann hetja.
Midler hefur sjálfsagt aldrei sung-
ið þetta lag af meiri tilfinningu og
á leikvanginum hágrét fólk meðan
það lyfti upp myndum af látnum
ástvinum. Maður varð þátttakandi
i þessum miklum tilfinningum og
táraðist. Það er ekki rétt að því
fleiri myndir sem maður sjái af
„Giuliani hefur staðið sig frdbœrlega á erfiðum tím-
um og kann að tala til fólks og hjálpar því þannig að
vinna úr sorginni. Hann hét því að endurbyggja borg-
ina og gera hana að betri stað. Vonandi fœr hann
tœkifœri til þess. “
árásinni eða syrgjandi aðstand-
endum því kaldlyndari verði maö-
ur gagnvart atburðunum. Maður
finnur enn til.
Til er fólk sem segir að nú eigi
Bandaríkjamenn að líta í eigin
barm og íhuga af hverju þessi árás
var gerð. Ég get ekki tekið undir
þetta sjónarmið. Það er ekki hægt
að snúa glæpnum upp á fórnar-
lambið.
Vissulega hefur þessu stórveldi
orðið ýmislegt á, bæði í innan- og
utanrikispólitík en ekkert, aUs
ekkert afsakar þessa viðbjóðslegu
árás. Hefur virkilega einhver
áhuga á að hlusta á réttlætingar
Osama bin Ladens eða annarra
sem stóðu að árásinni? Þeir sem
skipulögðu árásina, og enn eru lif-
andi, eiga að taka út sina refsingu.
Ég hef hitt fólk sem virðist telja
að samningaviðræður við ill-
menni heims muni færa okkur
frið á jörð. Þvi miður er það
þannig að Ulskan verður sjaldnast
kjöftuð úr fólki, það þarf að upp-
ræta hana. Nú vona ég aö gengið
verði í það verk af einhverju viti
og að Talibönum verði mætt af
fullri hörku, en ekki verði farið að
bombardera saklausa borgara.
Maður má náttúrlega ekki tala um
djöfla i mannsmynd en það ætla
ég að gera þegar Talibanar og
Osama bin Laden eiga í hlut.
Stundum er einfaldlega ekki
ástæða tfl umburðarlyndis.