Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2001, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2001
DV
Fréttir
Hagkaup hefur þróast upp í risaverslun í Smáralind:
Skrefið stigið til fulls
- segir verslunarstjórinn og telur stutt í afnám ríkiseinokunar á áfengissölu
Tilbúinn í slaginn
Finnur Árnason, framkvæmdastjóri Hagkaups, hefur sannarlega látiö hendur standa fram úr ermum aö undanförnu
viö aö koma nýju risaversluninni í gang.
Stórverslun Hagkaups í Smáralind í
Kópavogi er nú tilbúin fyrir opnunina
á miðvikudaginn. Að undanfórnu hafa
iðnaðarmenn og starfsfólk unnið baki
brotnu við að ganga frá innréttingum
og koma á annað hundrað milljóna
króna vörulager fyrir í hillum þessarar
tiu þúsund fermetra risaverslunar.
Finnur Árnason, framkvæmdastjóri
Hagkaups, segir allt til reiðu og nú sé
bara unnið að því að finpússa alla
þætti áður en viðskiptavinir fara að
streyma inn um dyr verslunarinnar.
Hagkaup í Smáralind er mun stærri
verslun en áður hefur þekkst í þessum
geira hér á landi. Hún er einn hektari
að stærð, eða eins og góð sumarbústað-
arlóð. Að flatarmáli er hún því álika og
sex Laugardalshallir eða 14 handbolta-
vellir í fullri stærð. Það er því drjúgur
göngutúr fyrir fólk að rölta á milli allra
deilda verslunarinnar. Finnur segir að
með tilkomu þessarar nýju verslunar
sé verið að gera aðgengi fyrir fólk auð-
veldara til að versla, auk þess sem
vöruflokkum er fjölgað til muna.
Skrefiö stigið til fulls
„Það má segja að fyrsta skrefið í
þessari þróun hafi verið Hagkaups-
verslunin á Smáratorgi. Hún er 20 til
30% stærri en verslunin í Skeifunni.
Þar voru teknar inn nýjar deildir sem
ekki voru í Skeifunni.
Þessi nýja verslun er hönnuð af
bandarískum arkitekt og fyrirmyndin
er stærri verslanir erlendis. Verslunin
hér í Smáralind er í raun beint fram-
hald af Smáratorgi og nú stígum við
skreflð til fulls. Við erum með fyrir-
myndir að þessari blönduðu verslun
víða í Evrópu og Bandaríkjunum þar
sem seld er matvara og sérvara.
Hér styrkjum við fatadeildir okkar
verulega, sérstaklega i barnafatnaði
þar sem staða okkar er orðin mjög
sterk. Einnig styrkjum við umsvif okk-
ar í dömu- og herrafatnaði. Þar fyrir
utan held ég að leikfóngin og raftækin
séu þeir þættir sem sýna að þetta eru
yfirburðadeildir, miðað við það sem
viö sjáum hér á höfuðborgarsvæðinu."
- Munuð þið áfram keppa á fullu á
lágu verði?
„Já, að sjálfsögðu. Við erum að
styrkja kjamadeildir okkar sem eru
fatnaður og matvara. Verslunin keppir
í öðrum vöruflokkum líka. Hagkaup er
t.d. að bjóða lægsta verð á leikfóngum
á íslandi í dag og það stendur ekki til
að gefa þar neitt eftir. Þá koma raftæk-
in og tölvur þar til viðbótar."
Öflugri bókaverslun
-- Munuð þið líka auka umsvifm í
bókaverslun?
„Undanfarin jól hefur Hagkaup
blandað sér í baráttuna um að bjóða
lægsta verðið á bókum. Við munum
gera það áfram. Þá er það nýjung að við
komum til með að selja bækur allt árið.
Þar er Edda-Miðlun að vinna með okk-
ur og við verðum með meiri fjölbreytni
en áður. Við gerum ráð fyrir að vera
með tilboð í hverjum einasta mánuði á
bókum.“
- Hvaða væntingar gera menn sér um
afkomu?
„Það má segja að umsvifm i svona
verslun séu veruleg þótt ég vilji ekki
nefna neinar tölur í því sambandi.
Væntingar okkar taka mið af þessum
umsvifúm."
- Eru menn ekkert hræddir við efna-
hagslægð?
„Við höfum verið að reka stóra versl-
un hér hinum megin við götuna, um
5000 fermetra búð. Við höfum góða
reynslu af því. Sennilega myndu margir
fremur segja að okkar áætlanir varð-
andi þessa nýju verslun væru mjög hóg-
værar. Ég held að við séum ekki að
spenna bogann of hátt. Ég hef því góða
tilfinningu fyrir framhaldinu, miðað við
hvemig búðin er upp sett.“
Það verður grísjun
- Er þá enginn ótti við að verið sé að
ofgera markaðnum?
„Ég er ekki tilbúinn að segja að ein-
hver ákveðinn verslunarkjami, hvort
heldur er við Laugaveg, í Kringlunni
eða í Smáralind, standi uppi sem sig-
urvegari. Ég held miklu frekar að
ákveðnar einingar, þ.e. einstök fyrir-
tæki innan þessara kjama, standi sig
og bjóði upp á vörur á því verði sem
fólk vill kaupa. Þá em það þær eining-
ar sem munu standa upp úr. Það verð-
ur grisjun en hún verður ekki bara á
einum stað. Það má alveg reikna með
að það taki tvö til þrjú ár fyrir mark-
aðinn að jafna sig á tilkomu Smára-
lindar. Til lengri tíma litið er þessi
aukning hins vegar bara eðlilegin- þátt-
ur í þróuninni."
Afnám einkasölu áfengis
- Nú erað þið að Cölga vöruflokkum
til muna. Maður veltir þvl fyrir sér
stórri ríkisverslun hér hinum megin
við ganginn sem verslar með áfengi.
Erað þið í stakk búnir að bæta áfengi
við ykkar vörulínu ef smásala á því
yrði gefin frjáls?
„Við teljum okkur vera það og eram
tilbúnir í það. Við munum því taka
upp sölu á áfengi samkvæmt þeim skil-
yrðum sem sett verða."
- Áttu von á að það gerist innan tíð-
ar?
„Ég hef trú á að það gerist fyrr en
síðar. Ég tel ekki eðlilegt að ÁTVR sé
að reka smásöluverslanir. Það hefur
komið fram í reikningum hennar að
hagnaður hennar er af sölu tóbaks en
ekki af áfengissölu. Það styður þá stað-
reynd að það er kostnaðarsamt að reka
þessar ríkisverslanir. Ég held að kraf-
an um að geta keypt t.d. léttvín og bjór
í matvöruverslum sé að verða sterkari.
Það er mjög eðlilegt. Við ættum vel að
geta uppfyllt þau skilyrði sem sett
yrðu.“
Engin rök fyrir ÁTVR
- Era þá engin rök í þínum huga
fyrir því að ríkið standi í smásölu á
áfengi?
„Ég er ekki viss um að þau rök hafi
nokkurn tímann verið til staðar. Menn
geta sett allar þær reglur sem þurfa
þykir til að sátt sé um sölu á áfengi í
matvöruverslunum. Ég held þvi að það
sé algjör tímaskekkja hjá hinu opin-
bera að vera að fjárfesta í verslunar-
húsnæði undir áfengissölu eins og hér
í Smáralind."
Aflétt innan þriggja ára
- Hvað telur þú að verði langt í að
einkaleyfi á smásölu ÁTVR verði
afnumið?
„Ég tel að það verði í síðasta lagi eft-
ir þijú ár. Þetta er bara sjálfsögð krafa
og við erum tilbúnir að taka við
þessu,“ segir Finnur Ámason, fram-
kvæmdastjóri Hagkaups, og er meira
en tObúinn í þann slag
-HKr.
Fjárhagserfiðleikar hrjá Leikfélag íslands:
Vilja samninga við ríki og borg
- að öðrum kosti stöðvast reksturinn, segir leikhússtjóri
Iðnó
Ekki lengur hægt aö haida starfseminni úti nema
samningar náist viö opinbera aöila um aö styrkja
starfsemina.
Verulegir fjár-
hagserfiðleikar
hafa hrjáð starf-
semi Leikfélags
íslands undan-
fama mánuði.
Var svo komið að
skrifstofur fyrir-
tækisins voru
innsiglaðar um
tíma á föstudag
meðan stjórnend-
ur greiddu úr málum. Leikhússtjóri
segir ekki lengur hægt að halda
starfseminni úti nema samningar
náist við opinbera aðila um að
styrkja starfsemina.
„Undanfarnir mánuðir hafa verið
erfiðir,“ segir Magnús Geir Þórðar-
son leikhússtjóri. „Við höfum verið
í miklu samstarfi við atvinnulífið
þau sjö ár sem við höfum haldið úti
leikhússtarfsemi. Niðursveifla i
efnahagslífinu hefur því komið
mjög við okkur. Fyrirtækin í land-
inu eru greinilega ekki jafn aflögu-
fær og áður. Á sama tíma stóð til að
endurfjármagna rekst-
urinn vegna skulda af
sjö ára rekstrarupp-
byggingu. Sú fjár-
mögnun hefur ekki
gengið sem skyldi og
fyrirtæki hafa haldið
að sér höndum. Hins
vegar höfum við átt í
viðræðum viö ríki og
borg og farið fram á
samstarfssamning. “
- Er hætta á að LÍ
hætti starfsemi?
„Það er alveg ljóst
að á þessum erfiðu
tímum mun Leikfélag íslands ekki
geta haldið úti þessari starfsemi
nema með tilkomu áðurnefnds
samnings. Ef þessum samningum
verður ekki lokið er sá möguleiki í
stöðunni að leikfélagið hætti leik-
hússtarfsemi."
- Er útilokað að leikhús geti starf-
að sjálfstætt án styrkja?
„Eins og umhverfið er í dag með
gríðarlega mikið styrktum stórum
leikhúsum sem stýra miðaverði þá
er þetta ekki hægt. Allavega ekki
nema með öflugum stuðningi," seg-
ir Magnús. Hann segist þó fullur
bjartsýni á að samningar við ríki og
borg takist.
Vilja meira
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri í Reykjavík, segir að
Leikfélag islands sé nú þegar styrkt
af borginni. „Fyrr á árinu var gerð-
ur samningur milli Reykjavíkur-
borgar og Leikfélags íslands um
fjárstuðning til þriggja ára.“
Að sögn borgarstjóra hefur Leik-
félagið leigulaus afnot af Iðnó og er
sá stuðningur metinn á um fjörutíu
milljónir króna. „Það er búið að
fara yfir málin með forsvarsmönn-
um leikhússins og fulltrúum frá
menntamálaráðuneytinu og við vit-
um að reksturinn er mjög erfiður.
Eftir þá yfirferð sjáum við hjá borg-
inni ekki forsendur fyrir því að
borgin setji meiri peninga í félagið
að svo komnu máli. í dag er um ein-
hliða samning að ræða miili Reykja-
víkurborgar og Leikfélags íslands.
Ég get aftur á móti vel hugsað mér
þríhliöa samning þar sem ríkið
kæmi inn og legði félaginu lið.“
Ingibjörg segir að borgin leggi fé-
laginu til talsverða peninga nú þeg-
ar en Leikfélag íslands vilji meira.
„Ef það getur komiö meö peninga
annars staðar frá höldum við stuðn-
ingi okkar áfram. -HKr/Kip.
Magnús Geir
Þóróarson.
Umsjón: Birgír Guömumlsson
netfang: biggi@dv.is
Kristján í innheimtuna
Eins og fram kom í heita pottin-
um fyrir nokkru er Kristján Már
Unnarsson,
fréttamaður á
Stöð 2, kominn í
ársleyfi til að fara
að vinna sem
markaðsstjóri hjá
öðru fyrirtæki.
Pottverjar hafa nú
fregnað að fyrir-
tækið sem Krist-
ján er að fara að vinna hjá heiti
Premium innheimtulausnir og
muni sérhæfa sig i nútímalegri
innheimtu sem i þessum bransa er
sögð vera andstæðan við hand-
rukkun. Með Kristjáni í þessu nýja
fyrirtæki eru kunn nöfn úr við-
skiptalífinu og má þar nefna að
framkvæmdastjórinn er Páll Þór
Jónsson og stjómarformaðurinn er
Sveinn Guðmundsson ...
Styrkir bæjarins
Á fjölmiðlakynningu fyrir nýja
auglýsingaherferð Akureyrarbæjar
fyrir helgina flutti Kristján Þór
Júliusson bæjar-
stjóri inngangser-
indi þar sem
hann fór yfir að-
komu bæjarins að
þessu kynningar-
verkefni. Eitt af
því sem bæjar-
stjórinn fjallaði
um í erindi sínu
var stuðningur bæjarins við at-
vinnulífið og nefndi hann m.a. að
bærinn væri aðili að Atvinnuþró-
unarfélagi Eyjafjarðar og fjárfest-
ingarsjóðnum Tækifæri. Síðan
sagði hann að aðrir styrkir til at-
vinnumála væru umtalsverðir og
nefndi sérstaklega Glerártorg,
Skinnaiðnað, Ako Plastos og skipa-
smíðar. Af þessari upptalningu er
það einungis Glerártorg sem ekki
er í bullandi vandræðum og í pott-
inum töldu menn að þessi upptaln-
ing hlyti að þjóna þeim tilgangi
einum að fæla fyrirtæki frá að
sækjast eftir styrkjum frá bænum.
Slík fyrirtæki rúlluðu augljóslega
frekar en önnur ...
Óbreytt bæjarstjórn?
í pottinum er fullyrt að sérstak-
lega skemmtilegt sé að sitja í bæj-
arstjórninni á Selfossi. Það er haft
til sann-
indamerk-
is um
þetta að
nú er útlit
fyrir að
allir bæj-
arfulltrúarnir í bænum muni sitja
áfram og freista þess að ná endur-
kjöri. Ein undantekning mun þó
vera á þessu en hún er sú að Sig-
ríður Ólafsdóttir, sem var oddviti
A-listans á því kjörtímabili sem
brátt lýkur, hefur sagst ekki ætla í
framboð í kosningunum í vor ...
Vinsæll skemmtikraftur
Þótt sól Áma Johnsens sem al-
þingismanns hafi hnigið um mitt
sumar, og það nokkuð hressilega,
virðist hann þó
enn vinsæll sem
skemmtikraftur.
Þannig átti hann
eftirminnilegt
„come back“ á
þjóðhátíð og hann
hefur verið að
troða upp vítt og
breitt um Suður-
land við góðar undirtektir. Nú hef-
ur frést af því að hann muni verða
einn skemmtikrafta á sérstakri
vetrarhátíð sem halda á á Glerár-
torgi á Akureyri fyrsta vetrardag.
Er frægðarsól Árna þá farin að
skína í fleiri fjórðungum en Sunn-
lendingafjórðungi sem rímar raun-
ar við þann þráláta orðróm að
Árni hugsi sér að taka fullan og
virkan þátt í landsfundi sjálfstæðis-
manna um næstu helgi og stefna
síðan lóðbeint i prófkjör á Suður-
landi að því loknu ...