Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2001, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2001, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2001 37 -EIR á mánudegi Eina húsið ... /' byggingu viö Laugaveg. Davíð og ... Laugavegurinn lætur ekki undan síga þó Smáralindin opni. Á meðan verið er að byggja rúmlega 60 þús- und fermetra i Smáranum byggja miðbæjarmenn 2 þúsund fermetra við Laugaveg og gengur vel. Það er við Laugaveg 53 sem verið er að byggja verslunarhúsnæði með íbúð- um á efri hæðum. íbúðimar eu ailar seldar og innan skamms verða opnaðar þama þrjár nýjar verslanir. Þetta mun vera eina húsið sem er í byggingu við Laugaveginn. Lykill ... í röngum höndum. Lyklaþjófar Þjófagengi í Reykjavík hafa kom- ið sér upp lyklabúnaði svipuðum þeim sem lásasmiðir nota til að komast inn i læstar íbúðir. cs. Þetta staðhæfa rannsóknarlög- reglumenn við fómarlömb inn- brotsþjófanna þegar þau kæra innbrot. Matthías Bjamason er einn þeirra sem urðu fyrir barðinu á lyklaþjófum þegar tölvu hans var stolið úr læstu her- bergi í Hhðunvun á dögunum. Matthías hafði bragðið sér af bæ í stutta stund og á meðan hvarf tölv- an. Engin merki sáust um innbrot. Þjófamir höfðu bersýnilega lykil sjálfir. „Þetta er IBM Intelli Station M PRO tölva sem gagnast þjófunum ekkert. Ég hef verið að klippa mynd- bönd og vil vinnuna mina aftur. Þjófamir geta haft meira upp úr því að semja við mig en að reyna að selja tölvuna,“ segir Matthías sem biðxu- við símann; 699 4556. Fann pabba Fimmtíu og sex ára gömul kona í Reykjavík fann loks foður sinn eftir að hafa leit- að hans allt lifið. Faðir konunnar hafði gegnt her- þjónustu á Keflavikurflugvelli og snúið aftur til Bandarikjanna án þess að vita af þeim ávexti sem hann skildi hér eftir og síðar varð kona sú sem um er rætt. Eftir mikla vinnu, krókaleiðir á Netinu og ótald- ar ferðir í bandaríska sendiráðið við Laufásveg fannst faðir konunnar í Alaska, orðinn 79 ára gamall. Kon- an flaug utan til fundar við karl og urðu fagnaðarfundir sem urðu til- efni frétta i dagblöðum og sjónvarpi í Alaska. Dvaldi konan í þrjár vikur hjá föður sínum ytra í síöasta mán- uði og fór vel á með þeim. Ekki er hægt að greina frá nöfnum þeirra að svo stöddu. Frá Alaska Fagnaöarfundir í síöasta mánuöi. Setningin „Það er eins og þetta fólk hafi aldrei farið úr sokkunum í fjölmenni." (Úr fjölmiölarýni um kynfræöslu í sjónvarpi. DV 4. október.) Leiðrétting Ekki er rétt sem haldið hefur ver- ið fram að Geir Haarde fjármálaráð- herra kunni ekki að reikna. Fjár- málaráðherra hefur próf í reikn- ingi. Hann er hagfræðingur. FYRIR VIKUNA UV-MTNU rjt I UK Margrét og húsið Ætlaöi aö kanna markaöinn en óraöi ekki fyrir undirtektunum. Stórtíðindi á Stokkseyri: Margrét Frímanns selur húsið sitt - of stórt eftir að börnin fóru Margrét Frímanns- dóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, hefur sett stórhýsi sitt á Stokkseyri á sölulista og hyggst flytja. Hvert veit hún ekki enn. „Þegar síðasta bamið er farið til Reykjavíkur í há- skóla er húsið allt of stórt fyrir okkur tvö,“ segir Margrét og á þar við sig og eigin- mann, Jón Gunnar Ottósson, forstjóra Náttúruffæðistofnun- ar, sem byggði húsið einmitt með Margréti snemma á níunda áratugnum. Húsið er margrómað fyrir feg- urð og ekki síst fyrir garðinn sem Mar- grét hefur sinnt af sömu alúð og kjós- endum sínum svo áratugum skiptir og blómstrar jafnvel betur en Samfylking- in. „Við höfum ailtaf verið með stóra fjölskyldu héma, saman eigum við Jón Gunnar flmm böm og svo hafa foreldr- ar mínir einnig búið héma. En nú emm við bara tvö og þá horfir málið öðmvisi við,“ segir Margrét sem vill fá tilboð i húsið og setur því ekki á það fast verð. Irageroi 12, Stokkseyn. Timbur. Byggt: 1983. Einbýlishús. Herb: + 2 stofur. Stærö 202 m!. Sú eign sen hér um ræðir er á einstðkum stað vii strönd Stokkseyrar. lyijög fallegur garð ur umlykur húsið. A vinstri hönd vii forstofu er flisalagt gestasalerni. Þi komið inn í stórt hol a vinstri hönd e rúmgott eldhús með korki á gólfi upprunalegri innréttingu. Þvottahús oi búr með hillum þar innaf. Eitt herbergi e Auglýsingin Húsiö auglýst til sölu í Sunnlenska. Hún segist ekki ætla að selja nema fá við- unandi verð og aldrei láta undan tombóluprísum eins og tíðkast hafa á landsbyggðinni. Hún segir að á Stokkseyri hafi menn verið að selja stór hús á sama verði og litla blokkaríbúð í Reykjavík. Hús Margrétar og Jóns Gunnars á Stokkseyri er 202 fer- metrar, byggt 1983, fimm herbergi og tvær stofúr. Margrét segir engar lúx- usinnréttingar í hús- inu en það sé fallegt og vel byggt enda hafi Jón Gunnar verið iðinn við smíð- amar; lagtækur og handlaginn svo eftir sé tekið. Af svölum er einstakt útsýni yfir Atlantshafið en húsið stendur svo gott sem í fjörunni á Stokkseyri og þar má heyra sinfóníur lofts og lagar þegar vindur hvín og brim skellur á stórgrýti. Og inni er gott því glerið er nýtt og gluggamir franskir. - Ætlið þið hjónin að flytja til Reykja- víkur? Hallur og Bjarni Haukur S takast á viö breytingar: I Ostalandi „Það höfum við ekki hugmynd um. Við ætluðum bara að kanna málin og fá viðbrögð og þau hafa verið miklu meiri en okkur óraði fyrir," segir Margrét Frí- mannsdóttir. karlmanna handbokin Snyrtilegt Karlmannahandbókin sem var að koma út hjá Forlaginu. Kennir karl- mönnum að snyrta sig og hirða. Eða eins og segir í tilkynningu frá útgefanda: „Til að vera karlmenni þarf að hafa karlmannlegt út- lit.“ Það er ekki sama hvernig neglur eru klipptar, hár þvegið eöa haka rök- uð. Sérstaklega ekki ef þú ert karlmaður. Snyrtilegt. Hollt Síðdegislúr að loknum vinnudegi. Leggið ykkur I 20 mínútur og sprettið síðan upp alhress fyrir síðari hiuta dags sem verður allt annar eftir lúrinn. Hollt. Gott Sleppið innkaupum einn dag og borðið hafragraut í kvöldmat. Með hunangi, rúsinum og hnetum er grauturinn veislumatur sem rennur Ijúflega niður i börn jafnt sem fullorðna. Kostar lítið og fyrir sparn- aðinn geta tveir farið i bíð um kvöldið. Gott. Gaman Liggið uppi f rúmi, tvö saman, með Fasteignablað Mogg- ans og kaupið hús eins og ykkur lystir. Morguninn eftir eruð þið búin að gleyma þessu öllu en það er gaman á meðan. Þetta gerðu John Lennon og Voko Ono - en þau keyptu i alvöru. Athyglisvert Farið á Næsta bar í Ingólfsstræti á milli klukkan 17 og 19 á virkum degi og fylgist með fastagestunum. Það er eins og að fara í sirkus. Skemmtilegasta atriðið er þegar allir sitja og þe@a og hlusta á bjórkælinn suða. At- hyglisvert. . J w Stuðmenn geimfarar t „Hugmyndin er tilkomin vegna áeggjan og tilstuðlan indverskra aðila og kvilunynd- in verður tekin bæði á ís- landi og á Indlandi ef af verð- > ur,“ segir Jakob Frímann Magnússon um nýju Stuð- mannamyndina sem hingað til hefur gengið undir nafn- inu Með allt á hreinu 2. Nú er nafnið komið: Geimfar- ar eða Moon Trippers á ensku. Eins og nafnið bendir til fjallar myndin um geim- ferð Stuðmanna sem á sér skrautlegan aðdraganda „... en þegar maður stend- ur frammi fyrir stórum hlutum í lifi og list þá Nafnlð komið Geimfarar - Moon Trippers. Rétta myndin <&}* L !Íttítl .1,5 *•%«!, er best að hafa sem fæst orð,“ segir „ Jakob Frí- mann sem er kom- inn vel á veg með að út- vega þær 200 millj- ónir sem kvikmynd- in á að kosta og er leitað fanga bæði hér heima og á Indlandi. tta\W’ , enn a Kernur óvart. Væntanleg er á markað bókin I Ostalandi eftir met- söluhöfundinn Spencer Johnson í þýðingu Halls Hallssonar (Keikó) en með fylgir leikgerð sem Bjarni Haukur Þórsson (Hellisbú- inn) er að semja. í framhaldinu ætla þeir félagar svo að gangast fyrir námskeiðum í anda bókarinnar en hún fjallar um hvernig fólk bregst við breyting- úm sem snögglega dynja yfir. „Þetta er dæmisaga fyrir krakka um mýsnar Þefu og Þeyting og svo tvo náunga, Loka og Láka. Þeir búa í Ostalandi við allsnægtir en svo er osturinn allt í einu tekinn frá þeim,“ segir Hallur sem telur að bókin, leikritið og ekki síst nám- skeiðin eigi brýnt erindi við fólk í nútímasamfélagi þar sem stórfelld- ar breytingar á högum fólks með litlum sem engum fyrirvara eru að verða æ algengari. „Allt íjallar þetta um hvemig við bregðumst við breytingum," segir Hallur sem er fund- vís á bókarefni fyrir íslenska lesendur. Hann hefur svo árum skiptir skotist inn á jólabókamark- aðinn með nýstárleg rit sem undantekning- arlítið hafa raðað sér á metsölulista og komið þar með öðrum og eldri útgefendum í opna skjöldu. Enn á ný tekur hann tilhlaup og nú með Ostalandið í annari hendi og Hellis- búann í hinni. Getur ekki klikkað. Haukur .hellinum ’ Lpstinn. Þaö fór vel á meö svíninu og hestinum þar sem þau stóöu'saman á beit í Svarfaöardalnum á dögunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.