Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2001, Blaðsíða 11
11
MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2001
DV
Utlönd
SKOTMÖRK I AFGANISTAN
Bandarískar flugvélar og skip gerðu árásir á Kabúl og aðrar
afganskar borgir í gærkvöld og skutu allt að 50 flugskeytum
X "S’i!
USBEKISTAN Li
Hverjir ráða hvar
I • I talibanar
I I andstæðingar
I I umdeilt
Sprengjum og
mat varpað á
Afganistan
REUTERS#,
Donald Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, lýsti í gær á
blaðamannafundi i Hvita húsinu
hvaða vopnum væri beitt í árásum á
Afganistan til að byrja með.
Fyrstu árásirnar í gær voru gerðar
með sprengjuflugvélum, langdrægum
eldflaugum og árásarflugvélum.
Sprengjuflugvélarnar eru fimmtán og
af gerðinni B-l, B-2 og B-52. B-2 flug-
vélarnar eru afar langdrægar og hófu
sínar ferðir frá Whiteman-flughers-
stöðinni í Missouriríki í Bandaríkj-
unum. Eldflaugum, sem eru af Toma-
hawkgerð, er skotið frá herskipum á
Rússneski herinn í uppskerustörfum
Rússneskir hermenn eru hér aö taka upp gulrætur á rússneskum sveitabæ. Á hverju ári tekur rússneski herinn þátt í upp-
skerustörfum með bændum landsins. í staöinn fær herinn hlut í uppskerunni sem léttir aðeins á fjársvelti hans.
Indlandsflóa, auk þess sem breskir
kafbátar taka þátt í að skjóta Toma-
hawkflaugum. Alls var um 50 Toma-
hawkflaugum skotið í gærdag og í
nótt. Hver flaug kostar litlar 100
milljónir króna.
Samkvæmt upplýsingum Rums-
felds hafa skotmörkin verið valin
með það í huga að veikja hernaðar-
lega stöðu talihananna og samtaka
bin Ladens. Þetta þýðir að hernaðar-
lega mannvirki eins og vopnageymsl-
ur, flugvellir og loftvarnabyssur eru
skotmörk. Einnig eru opinberar
byggingar skotmörk og síðast en ekki
sist búðir bin Ladens og fylgismanna
hans. Samkvæmt erlendum frétta-
miðlum eru fámennar sveitir banda-
rískra hermanna í Afganistan. Þeirra
hlutverk er til að byrja með aðeins að
merkja byggingar og önnur skotmörk
svo hægt sé að stýra eldflaugum og
stýrðum sprengjum i rétta átt. End-
anleg markmið með fyrstu árásunum
sagði Rumsfeld vera að eyða ógnum
gegn bandaríska hernum þegar til
frekari aðgerða verður gripið. Einnig
er verið að laga hernaðarlega stöðu
andstæðinga talibana.
Rumsfeld sagði einnig frá því að
meira en sprengjum væri nú varpað
á Afganistan. Flutningavélar vörp-
uðu mat og lyfjum yfir stöðum þar
sem afganskir fióttamenn halda til.
Mikil neyð ríkir meðal þessa fólks
sem hefur flúið borgirnar og haldið
til í óbyggðum eða við landamæri
nágrannaríkjanna. 37.000 skömmtum
var varpað niður í gær.
REUTER-MYND
Chirac ávarpar þjóö sína
Jacques Chirac Frakkiandsforseti
kom fram í sjónvarpi í gærkvöid og
sagði að Frakkaryrðu með í hernað-
inum gegn Afganistan.
Frakkar ætla að
taka þátt í hern-
aðaraðgerðunum
Franskar hersveitir munu taka
þátt hernaðaraðgerðunum í Afgan-
istan með Bandaríkjamönnum og
Bretum, að því er Jacques Chirac
Frakklandsforseti sagði í gærkvöld.
Frakkar hafa þegar opnað loft-
helgi sína fyrir bandarískum her-
flugvélum og Chirac benti á að
frönsk skip veittu bandaríska flot-
anum á Indlandshafi aðstoð.
í sjónvarpsávarpi til frönsku
þjóðarinnar gaf Chirac hins vegar
til kynna að þáttur Frakka í aðgerð-
unum yrði meiri.
Alain Richard, landvarnaráð-
herra Frakklands, sagði í gær að á
næstu dögum yrði ákveðið með
hvaða hætti Frakkar tækju þátt í
hernaðaraðgerðunum.
Frakkar hafa ekki farið leynt með
þá ósk sína að losna við talibana-
stjórnina í Afganistan, sem hefur
skotið skjólshúsi yfir sádi-arabíska
hryðjuverkamanninn Osama bin
Laden undanfarin ár.
Rover
Musso
Isuzu
ALLT PLAST
Kænuvogi 17 • Sími 588 6740
V/SA
>■' ■ heimasíða:
www.simnet.is/aplast
Framleiðum brettakanta, sólskygnl og boddíhluti á flestar gerðir jeppa,
einnig boddíhluti í vörubíla og vanbila. Sérsmiði og viðgerðir.
Innköllun
vegna rafrænnar skráningar hlutabréfa í Fjárfestingarfélaginu Straumi hf.
Straumur
FJÁRFESTiNGARFÉLAG
Kirkjusandi 2,155 Reykjavík, s. 560 8900
Mánudaginn 15. október 2001 veróa hlutabréf í Fjárfest-
ingarfélaginu Straumi hf. tekin til rafrænnar skráningar hjá
Verðbréfaskráningu íslands hf. í samræmi við ákvörðun stjórn-
ar Fjárfestingarfélagsins Straums hf. þar að lútandi. Þar af
leióandi verða engin vióskipti með hlutabréf félagsins þann
dag. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í fyrir-
tækinu í samræmi við ákvæði laga og reglugerðar um raf-
ræna eignarskráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Fjárfestingarfélaginu
Straumi hf. tekin til rafrænnar skráningar. Þau eru gefin út á
nafn hluthafa og útgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur hlutabréfa í félaginu
sem telja nokkurn vafa leika á að eignarhald þeirra sé rétti-
lega fært í hlutaskrá Fjárfestingarfélagsins Straums hf. að
staðreyna skráninguna með fyrirspurn til hlutaskrár Fjár-
festingarfélagsins Straums hf., Kirkjusandi 2,155 Reykjavík
eða f síma 560 8900. Komi í Ijós við slfka könnun að eig-
endaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönn-
ur á þau gagnvart félaginu fyrir nefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð rétt-
indi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma
þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka,
verðbréfafyritæki eða sparisjóð sem gert hefur aðildar-
samning við Verðbréfaskráningu íslands hf., fyrir skrán-
ingardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf
félagsins verða ógild sjálfkrafa og því er ekki þörf á að skila
þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli á að ferli raf-
rænnar skráningar hefur engin áhrif á möguleika hluthafa til
að eiga viðskipti með hluti sína í félaginu að undanskildum
sjálfum skráningardeginum.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikn-
ingsstofnun umsjón með eignarhlut sínum í félaginu til að
geta framselt hluti sína svo sem vegna sölu eða skipta. Reikn-
ingsstofnun mun í þessu skyni stofna VS-reikning í nafni við-
komandi hluthafa.
Stjórn Fjárfestingarfélagsins Straums hf.