Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2001, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2001, Blaðsíða 23
35 MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2001 I>V Tilvera i&u ælisbarnið Jesse Jackson sextugur Blökkumannaleiðtoginn Jesse Jackson verður sex- tugur í dag. Hann er sá leið- togi blökkumanna sem nýtur mestrar virðingar i Bandaríkjunum. Jackson er prestlærður og strax að loknu námi fór hann að vinna að réttindamálum svartra og eitt af því fyrsta sem hann gerði var að fá atvinnurekendur til að ráða svarta í vinnu á sama grundvelli og hvíta. Hann reyndi fyrst að fá kosningu sem frambjóðandi demókrata árið 1984. Jackson hefur verið margheiðraður fyr- ir störf sín og er oftar en ekki leitað til hans þegar þarf á sáttum að halda í erf- iðum málum. Gildir fyrir þriöjudaginn 9. október Vatnsberinn (?Q. ian.-.18. fehr.i: I k Óvæntir atburðir eiga sér stað í dag. Þú færð § einhverja ósk þína * uppfyllta, verið getur að gamall draumur sé loks að rætast. Fiskarnir (19. febr.-20. marsl: Þér finnst þú hafa mikið W^^Mað gera og verður þvi að vera afar skipulagður. \ Þú þarft líka að læra að segja nei við verkefnum sem einhver er að reyna að koma á þig. Hrúturinn (21. mars-19. aoríH: Það verða miklar * framfarir á einhverj- um vettvangi í dag. Peningamálin valda þér samt einhverjum áhyggjum og erfiðleikum. Nautið 120. aaril-20. maí>: l Morgunninn verður frekar rólegur og þú eyðir honum í ánægju- \ilegar hugleiðingar. Vertu óhræddur við að láta skoð- anir þínar í ljós. Tvíburarnir (21. maí-21. iúnít: Fjðlskyldan þarf að //mr' taka ákvörðun og mik- il samstaða ríkir um ákveðið málefni. Félagslífið tekur mikið af tíma þínum á næstunni. Krabbinn (22. iúní-22. iúin: Varastu að sýna fólki | tortryggni og van- treystu því. Þér gengur betur í dag ef þú vinn- ur með fólki heldur en að vinna einn. Liónið (23. iúlí- 22. ágústl: Þú þarft að gæta þag- mælsku varöandi verkefni sem þú vinn- m- að. Annars er hætt við að minni árangur náist en ella. IVIevian (23. áeúst-22. sept.t: Þú hefur f mörgu að 'Vvtt snúast í dag. Þú færð y»hjálp frá ástvinum og ' það léttir þér daginn. Viðskipti ganga vel seinni hluta dagsins. Vogin (23. sept.-23. okt.l: Þú sýnir mikinn dugn- að í dag. Þér verður mest úr verki fyrri *g hluta dagsins, sérstaklega ef þú ert að fást við erfitt verkefni. Sporðdrekinn i?4. okt.-2i. nóv.t: IÞú átt erfitt með að taka ákvörðun í sam- bandi við mikilvægt I mál. Einhver bíður þess að þú ákveðir þig. Hugsaðu málið vel og anaðu ekki að neinu. Bogamaðurinn (22. nóv.-21. ries.l: .Þér finnst ekki rétti rtíminn núna til að taka erfiðar ákvarðan- ir. Ekki gera neitt að óhugsuðu máli og þiggðu aðstoð frá þínum nánustu. Steingeitin (22. des.-!9. ian.): ^ Fólk treystir á þig og leitar ráða hjá “þér í dag. Þú þarft að sýna skilning og þolinmæði. Happatölur þínar eru 7,11 og 24. Gallerí opnað í Skuggahverfi Þó að sölugallerí séu fjölmörg í Reykjavík hafa góð og metnaðar- full sýningargallerí því miður ver- ið teljandi á fingrum annarrar handar. Eitt slíkt var opnað um helgina í Skuggahverfinu og hlaut það nafnið Gallerí Skuggi. Hið nýja gallerí mun einbeita sér að sýningarhaldi á verkum innlendra sem erlendra listamanna auk þess að standa fyrir ýmsum uppákom- um. Opnunarsýning gallerísins ber yfirskriftina Hver með sínu nefi en þar getur að líta verk lista- mannanna Guðmundar Odds, Lilju Bjarkar Egilsdóttur, Birgis Andréssonar og tvíeykisins AKUSA. DV-MYNDIR EINAR J. Með glott á vör Hallgrímur Helgason, myndlistar- maður og rithöfundur, og Friðrik Weisshappel sjónvarpsmaður voru meðal gesta í nýja galleríinu. Systur spjalla Hanna Gunnarsdóttir, einn að- standenda Gallerís Skugga, ræðir við systur sína Bergljótu Gunnars- dóttur. Fleiri myndlistarmenn Myndlistarmennirnir Kristinn Hrafnsson og Guðmundur Oddur stinga saman nefjum. Umsjónarmennirnir Það lá vel á umsjónarmönnum Gallerís Skugga, þeim Heiðu Jóhannsdótt- ur og Önnu Jóa, á opnunardaginn. Birgir og Húbert Birgir Andrésson er einn þeirra sem eiga verk á sýningunni. Hér er hann ásamt Húbert Nóa myndlistarmanni. Britney vill eiga æskuástina sína Táningastjarn- an Britney Spears hefur örugglega valdið mörgum ungum mannin- um vonbrigðum þegar hún lýsti yf- ir því um daginn að ef einhver fengi að leiða hana að altarinu yrði það æskuástin Justin Timberlake. Brit- ney og Justin eru kærustupar og hafa þekkst frá því þau voru tólf ára. „Orð fá ekki lýst sambandi okkar og því sem við erum hvort öðru. Það sem Justin deilum er svo sér- stakt og heilagt," segir poppstjarnan í viðtali við dagblaðið Daily Record. Britney segir að hún sé gagntekin af eilífri ást og að hún muni elska Justin sinn til æviloka. HÁRTOPPAR Frál BHRGMANN? og HERKULES Margir verðflokkar 5513010 Rakarastofan Klapparstíg Kynningar- fundur og sýning .... . | Tillaqa að svæðisskipulaqi höfuðborqarsvæðisins verður til sýnis oq kynninqar í Ráðhúsi Reykjavíkur á morqun, þriðjudaqinn 9. október frá kl. 16:00-21:00. • Skipulagssérfræðingar kynna svæðisskipulagstillöguna og sitja fyrir svörum kl. 16:30-17:30. • Forsvarsmenn skipulagsmála sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu svara fyrirspurnum ki. 18:00-19:00. • Skipulagstillagan verður áfram til sýnis íTjarnarsal Ráðhússins miðvikudaginn 10. október og fimmtudaginn 11. október. Fólk er hvatt til að mæta og kynna sér framtíðarsýn sveitarféiaganna á höfuðborgarsvæðinu á uppbyggingu og þróun byggðar næsta aidarfjórðunginn. 5 Samvinnunefnd um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins. %

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.