Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2001, Page 7
r
Mislæg gatnamót Breiðholtsbrautar, Nýbýlavegar og Reykjanesbrautar
- ■ ;'t:
Opnar brautir til framtíðar
Mánudaginn 8. október verða mislæg gatnamót Breiðholtsbrautar,
Nýbýlavegar og Reykjanesbrautar tekin formlega í notkun. Þá verða
allar akreinar ásamt að- og fráreinum opnar fyrir umferð bifreiða.
Ætla má að 50 þúsund bifreiðar fari um gatnamótin á hverjum sólarhring
og er gert ráð fyrir að þeim fjölgi í 100 þúsund innan þriggja áratuga.
Nýju gatnamótin stuðla að greiðri og öruggri umferð og markar opnun
þeirra tímamót í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu.
Öryggi gangandi vegfarenda verður einnig tryggt á gatnamótunum.
Lagðir verða göngustígar um svæðið og halda framkvæmdir því áfram
í vetur en öllum frágangi lýkur næsta sumar.
Vegagerðin, Reykjavíkurborg og Kópavogsbær standa saman að
framkvæmdunum. Aðstandendur óska verktökum til hamingju með
mannvirkið og vegfarendum heilla í umferðinni.
Kort af gatnamótunum meö framtíðarskipulagi göngustiga er að finna á upplýsingavefnum gatnamotis
)-
bixí
taEr
cnouru