Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Blaðsíða 2
eriir \oru hvor? Helgin hófst formlega með tónleikum hljómsveitarinnar Trans am á Gauknum á fimmtudeginum en þar sátu þau óli Palli, Andrea Jóns, Eyjólfur Kristjáns, Björn Jörundur og Stefán Hilmars saman að tali á efri hæðinni. Fyrir neðan þau voru hins vegar Frosti Mínusmaður, Bjarni og Aron Úlpumenn og Birgir Mausverji að tjútta við tóna hljómsveitarinnar. Gaukurinn var svo aftur þétt- skipaður næstu tvö kvöld á eftir en þar voru meðal annars Sævar Á móti sót, íris og Valur buttercup ásamt Agli og Davíð sem einnig eru úr þeirri sveit. Maggi úr Landi og sonum var á staðnum ásamt Einari og Pétri Dúndurfréttum en þeir blönduðu geði við Heimi og Magna Á móti sól. Meistari Jón Ólafs- son leit við en var ekki lengi að forða að Begga Nýherja og Lilja Nótt eskimói fóru að hreyfa sig um gólfin. Hanni skímó lét sjá sig eins og aðrir úr stétt sveitapoppara en Eggert prik og Kalli Vegamót fengu þó að vera með. Agnes ungfrú ísland lét líka sjá sig en Rakel sautján spókaði sig einnig um rétt eins og Þórunn og Muggur. Síðust til að yfirgefa staðin var svo Imma af Hverfisbarnum. Astró var hertekinn af knattspyrnumönnum og konum að loknu lokahófi KSÍ en þar voru gömlu kempurnar Guðmundur Torfa, Siggi Grétars og Sævar Jóns Leonard. Þorgrímur Þráins gekk svo um og bað menn að drepa í á meðan að Arnór Guðjohnsen blandaði geði við Móeiði og Eyþór Arnalds verðandi borgarstjóra. Bylgju- lestin stoppaði fyrir utan Astró og úr henni komu Rúnar Róberts og ívar Guðmunds ásamt sinni heittelskuðu en Ásta Stundin okk- ar mætti ásamt Steina Sportkaffi. Simmi og Jói PoppTíví stopp uðu stutt en Dóra Takafusa var öllu lengur að líkt og Þór Jónsson Stöð2 og kollegar hans þær Helga Guðrún og Sólveig voru líka á svæðinu. Bjössi Stef herra ísland gekk um ásamt Sigga B og Tóta frænda og áttu þeir hreinlega staðinn þetta kvöld. Útvarpsmenn- irnir Gassi Gír, Jói Jó FM957 og Hvati létu sig ekki vanta frekar en Júlli Kemp, Steini þjónn og ívar Burkni. Berlind fegurðardrottning lét Ijós sitt skína ásamt Hlín Hawaiian Tropic stúlku en Robbi kokkur horfði bara á ásamt Jóni Kára, Sigga dans, Dóra hausverk og Árna Gunnars Allians. Ólöf Rún var í góðum gír ásamt stöllu sinni Telmu Tómasar á Stöð2 en Guðjón 0/, Halldóra Mótor og Hebbi skímó tóku því heldur rólega að sögn kunnugra. Ungfrú Skandinavía íris Björk drakk diet kók allt kvöldið en aðra sögu er að segja um Marín Möndu sem kýkti í stutta heimsókn á klakan frá Danaveldi. Sjónvarpsstjórinn Ámi Þór lét svo fara vel um sig ásamt Andési Pétri eign.is en Haukarnir Harpa Melsted og Aron Kristjáns voru innan um KR stelpurnar Olgu Ferseth og Hrefnu Jóhannes en sú fyrr nefnda var að fagna verðlaunum sínum fyrir knattspyrnu- konu ársins. Valtýr Björn gekk bitur um svæðið en það sá þó ekki nokkur maður því Valgeir Gestsson verðbréfasali sá um að halda mannskapnum ígóðu stuði með hetjusögum sínum frá USA. Nanna dansari dansaði af innlifun en Þórunn Lárus og Stefán Karl leikarar létu minna fara fyrir sér. Popp parið Birgitta Haukdal og Hanni fóru mikinn en Arnar Grant fitnessmeistari tók því rólega eftir átök dagsins ásamt Bjarnólfi Lárus eyjamanni. Á Skuggabamum var margt um manninn að vanda en Erpur BlazRoca fór mikinn en þar voru einnig Gfeli fyrirsæta og Hjalti hamar. Ofurhuginn Arne Aarhus sýndi listir þeim Jóa og Simma af PoppTiví til mikillar ánægju en íris Bjök var ekki jafn hrifinn en hún var þarna með Marín Möndu ókrýndri Séð og heyrt drottningu. Birna sautján mætti með vinkonu sinni Gúrý en saman dáðust þær að Magnúsi Ver sem hnikklaði vöðvanna fyrir sína frú og aðrar. Zinkstúlkan Harpa var einnig á staðnum en með henni íför voru óli kokkur og Ommi sam. Harðjaxlanna vantaði ekki en Krummi í Mínus var aldrei þessu vant á Skugganum ásamt GK liðinu. lan Dent lék svo á alls oddi ásamt Þorfinni Ómars. „Hugmyndin er sú að skapa grundvöll fyrir unga foreldra þar sem þeir geta hist með börnin sín f skemmtilegu umhverfi,“ segir Berg- lind Hásler, skipuleggjandi þessara samkoma. „Þarna er fullt af dóti sem krakkarnir geta leikið sér með meðan foreldrarnir sitja og spjalla saman eða leika við börnin. Þetta er kjörið tækifæri fyrir ungt fólk með börn að koma saman til þess að spjalla um hlutverk foreldra og annað í þeim dúr auk þess sem börnin fá einhverja til þess að leika sér við.“ Ekkert betra að gera „Þetta fór af stað í fyrra en þá hittumst við á laugardögum og þá var þátttaka mjög góð. Þá myndað- ist mjög góður kjarni af fólki sem mætti reglulega og hafði gaman af þessu,“ segir Berglind. Ollum ung- um foreldrum er frjálst að mæta á þessar samkomur en þær hafa færst yfir á nýjan og betri tfma en nú hittist hópurinn á fimmtudagS' morgnum klukkan tíu og stendur samkoman í u.þ.b. tvo tíma. Að- staðan í Hinu húsinu hentar líka afar vel fyrir þennan aldurshóp sem þarna kemur saman enda er margt fleira hægt að gera á samkomunum en að hugsa um börnin og ræða saman um málefni tengd þeim. „Þetta er í raun hugsað fyrir fólk sem er í barneignarleyfi og hefur ekkert betra við tímann að gera en að sjálfsögðu er þetta opið öllum sem áhuga hafa. Tímasetningunni var breytt vegna þess að um helgar er fólk oft mjög upptekið við eitt- hvað annað og við erum með þvf að reyna að koma til móts við það. Annars er mjög góð aðstaða fyrir ungt fólk að koma saman niðri í Hinu húsi. Þarna getur fólk líka komist í tölvur og annað slíkt ef það hefur ekki tök á því annars staðar og svo hjálpumst við öll að þegar kemur að barnagæslunni,“ segir Berglind. Leyndardómur barnanna Sú nýbreytni verður á starfinu í ár að annan hvern fimmtudag mun einhver gestur mæta og halda fyrir- lestur til að upplýsa foreldrana um hin og þessi málefni. „Það koma ýmsir góðir gestir í heimsókn til okkar og er ætlunin að láta þá fræða okkur um það sem við ekki áður vissum um leyndardóm barnanna. Ungir foreldrar eiga nefnilega allir það sameiginlegt að líf þeirra hefur tekið gríðarlegum breytingum eftir barneignina. Þess vegna er alltaf gott að geta hist og spjallað við fólk sem deilir þessari reynslu. Tilgang- urinn er þvf í raun að börn og for- eldrar geti haft það gaman saman og kannski lært eitthvað í leiðinni. Þetta er í raun félagsskapur fyrir fólk sem hefur sömu áhugamál eða er kannski frekar í svipuðum að- stæðum," segir Berglind að lokum. Eins og áður hefur komið fram fara þessar samkomur fram f Hinu hús- inu við Ingólfstorg á fimmtudags- morgnum frá klukkan 10-12 og eru þær opnar öllum ungum foreldrum sem hafa áhuga. Nýverið fór af stað verkefni í Hinu hús- inu þar sem ungum foreldrum gefst kostur á því að mæta með börn sín til þess að ræða saman um uppeldi barna og önnur máiefni sem koma að því erf- iða hlutverki að vera foreldri. Við ræddum stuttlega við Berglindi Hásler, umsjónarmann þessa verkefnis, og fengum að vita hvað þar færi fram. Bornm fai leikfélaga Það besta Uingað ti „Það besta sem henti mig í síð- ustu viku var fitness-keppni sem ég tók þátt í ásamt fjölda annarra stúlkna. Þar náði ég að setja nýtt íslandsmet í arm- beygjukeppninni en gamla met- ið var eitthvað í kringum 45 armbeygjur en metið sem ég setti hljóðaði upp á 60 stykki. Þetta var nokkuð erfitt en engu að sfður algerlega þess virði. Þessa helgi er svo aðalkeppnin í fitness og ég steflii að sjálfsögðu á sigur þar og ekkert annað." Aðalheiður Jensen, fitness- stúlka Ian Dent: LÍnudans er verkfæri djöfulsins fslenskar rjúpnaskyttur: Rammvilltar 09 vitlausar Jon fltli Jonasson: Hefur aldrei ótt Kraft-galla Ensími og Ulpa: Rokk f USfl Tíska í Spútnik: Notaðir gullmolar Quarashi og Botnleðja:^ Rokk og rapp með Sinfó Magnús Sigurðsson: 2001 hjó öndunum Netvideo.is: Sendast með sfgarettur Höfundar efnis Ari Eldjám Hafsteinn Thorarensen Sissa ritstj orn@fokus. is Agúst Bogason Höskuldur Daði Magnússon Trausti Júlíusson auglysingar@fokus. is Finnur Þór Vilhjálmsson Sigtryggur Magnason fokus@fokus.is ForsíSumyndina tók Hari af Joni fltla JÓnassyni f ó k u s 2 19. október 2001

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.