Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Blaðsíða 28
Spaum ekki f framtfsina
Low var stofnuð 1993 en þið Alan höfðuð þekkst nokkuð
lengi fyrir þann tíma, ekki satt?
„Við vorum níu ára þegar við kynntumst en Alan var
þá nýfluttur til hins litla heimabæjar mín. Þar sem við
tilheyrðum hópi aðeins 30 nemenda var það í raun óum'
flýjanlegt að kynnast hvort öðru. Ó, já - síðan giftum við
okkur.“
Fæðing frumburðar ykkar hlýtur að hafa valdið miklum
straumhvörfum í lífi ykkar en hvemig áhrif hafði hún á tóm
listina?
„Hollis breytti miklu f lífi okkar. Allt sem við tökum
okkur fyrir hendur er skipulagt með hana í huga. Tón-
listarlega séð held ég að áhrifin sjáist mest á mér sjálfri
og á Things We Lost in the Fire, eru tvö lög, In Metal
og Embrace, einmitt sungin beint til hennar. Ég held að
hún hafi haft gríðarleg áhrif á hugsunarhátt okkar því
það er ómögulegt að breytast ekkert við að sjá svona
mikla fegurð og kærleika á hverjum degi. Sem mann-
eskjur erum við ef til vill jákvæðari en það skilar sér þó
ekkert endilega í tónlistinni."
Pið spiluðuð hérna fyrir tveimur árum og þekkið því ágæ t-
lega til landsins. Hafið þið hugsað ykkur að gera eitthvað
annað en að halda tónleika þegar þið komið hingað í nóvem-
ber?
„Okkur þykir afar vænt um Island en gafst því miður
fá tækifæri til að skoða landið f síðustu heimsókn. V6
reynum kannski að sjá aðeins meira í þetta sinn. Hvað
tónleikana sjálfa varðar þá efast ég um að uppbyggingin
verði eitthvað frábrugðin. Við munum leika lög af
Things We Lost in the Fire í bland við eldra efni. Alan
er alltaf að vinna að nýju efni og ég reikna fastlega með
að spila eitthvað af því.“
Segðu okkur aðeins frá túmum sem þið eruð að fara á...
„ísland er fyrsti viðkomustaður okkar. Því miður er
Alan með dagskrána og hann er ekki heima eins og
stendur. Ef mig minnir rétt ætlum við að halda nokkra
tónleika á Bretlandi og fara síðan til Hollands, Frakk-
lands og Belgíu... ég biðst afsökunar á því að vera ekki
alveg með röðina á hreinu. Þessi túr verður í styttra lagi.
Vonandi mun heimurinn leggjast á eitt með okkur og
forða okkur frá því að lenda f háska. Þetta eru mjög
hættulegir tímar sem við lifum á.“
Þið virðist geta töfrað fram frábærar plötur eins og ekkert
sé. Hver er galdurinn þar á bak við?
„Takk fyrir hrósið! Ég vildi að það væri einhver ein
leið til að búa til góða plötu en svo er ekki. Það má því
eiginlega segja að við skjótum bara í myrkrinu. Við erum
með ýmsar hugmyndir í kollinum og óskum þess að þær
öðlist líf í höndum okkar. Við reynum að semja góð lög
og ef öll lykilatriðin eru fyrir hendi eru vaxandi líkur á
því að útkoman verði einnig góð. Síðan höfum við unn-
ið með mörgum frábærum upptökustjórum og tækni-
mönnum sem hafa skipt miklu máli fyrir okkur.“
Fyrir mér virðast þið og Steve Albini smellpassa saman en
hvemig er samstarfi ykkar á bak við tjöldin háttað. Eg get
ímyndað mér að hann líti lífið allt öðrum augum en þið.
„Kemur góður þá getið er... Það hefur verið frábært að
vinna með Steve og það kemur vel í ljós þar sem við höf-
um svo oft leitt saman hesta okkar. Sem upptökustjóri
er hann ekki með puttana ofan í öllu og vill meira að
ál
Low leikur
nóvember.
Islandi 15. og 16.
segja frekar vera
kallaður tækni-
maður heldur en
upptökustjóri.
Það er hverju orði
sannara. Töfrarnir felast í vali á hljóðnemum, staðsetn-
ingu þeirra og svo framvegis. Hann kann sitt fag og þó
að við virðumst ólík á yfirborðinu eigum við mjög margt
sameiginlegt."
Hljómsveitir eins og Ida, Rivulets og Songs-.Ohia eru all-
ar undir áhrifum Low en hvað listamenn eru hins vegar í
mestum metum hjá ykkur?
„Eg held að ég geti svarað þessari spurningu fyrir okk-
ur öll. Sem hljómsveit höfum við helst litið til Nick
Cave, Joy Division, Neil Young, Johnny Cash og svo
framvegis. Aðalástæðan er lfklega andinn sem þessir
listamenn hafa í kringum sig og svo eru þeir allir gædd-
ir miklum hæfileikum. Ég held að við kunnum að meta
hæfni þeirra til að koma fram og skemmta fólki og ósk-
um að við getum náð fram svipuðum áhrifum."
Hverju megum við búast við afLow í framtíðinni?
„Við leggjum aldrei í að spá fyrir um framtíðina. Það er
öruggt að við munum halda áfram eins lengi og okkur
þykir réttast. Við höfum þegar samið nokkur ný lög. Eft-
ir að við eignuðumst Hollis hefur það verið mun flóknara
að túra og því gæturn við þurft að draga aðeins úr því. Það
er yndislegt að vera í hljómsveit og við höfum áorkað
meiru en okkur óraði nokkurn tímann fyrir og ef við get-
um haldið því áfram verðum við afar þakklát... Aðdáend-
umir okkar eru þeir allra bestu.“
Fyrsta hluta Vetrardagskrár
Hljómalindar lýkur 19. nóvem-
ber með heimsókn Wolfs nokk-
urs Colonels. Lo-fi tónlist í
hæsta gæðaflokki.
Óreiðu-
kennd
Idg-
stemning
Vetrardagskrá Hljómalindar lýkur
á ljúfu nótunum þegar Wolf Colonel
mætir á klakann með gítarinn og tek-
ur nokkur lög. Umgjörð þessara tón-
leika verður öll afar lágstemmd og í
fullkomnu samræmi við hugsunarhátt
indierokkaranna og um leið mannsins
á bak við Wolf Colonel, Jasons And-
ersons.
Þegar Jason er ekki að spila og
semja lög á gítarinn sinn lemur hann
húðir í sveimrokksveitinni Yume
Bitsu sem er á mála hjá K Records.
Sömu sögu er að segja af Wolf Colon-
el, sem hefur gefið út tvær breiðskífur
til þessa auk einnar sjö tommu. Fyrri
platan nefndist Vikings of Mint og
leit dagsins ljós í byrjun ársins 2000
og seinna um haustið fylgdi The
Castle í kjölfarið.
Andstæðurnar á þeim voru sérstak-
lega áberandi, annars vegar hinn
óreiðukenndi lo-fi hljómur og hins
vegar einfaldar og sjarmerandi laglín-
urnar sem gerði það að verkum að tón-
listin hljómaði eins og Dinosaur Jr.
væri að spila nokkur vel valin Bítla-
lög. Guided By Voices og Elliott
Smith hafa einnig haft sitt að segja
en sjálfur segist Anderson einfaldlega
vera undir miklum áhrifum frá þeirri
tónlist sem foreldrar hans hlustuðu á
auk þess sem hann bætir ýmsu við
eftir sínu höfði. Melódískt kassagítar-
spönk er líklega besta lýsingin og það
er einmitt það sem við fáum að sjá og
heyra þegar þessi hógværi tóníista-
maður byrjar að plokka strengina
þann 19. nóvember.
Úlpa
Olpan þeirra Bjama, Magnúsar, Haraldar og Ar-
ons hefur á undanförnum misserum verið að smeygja
sér yfir axlir fleiri og fleiri rokkunnenda um leið og
spennan í kringum fyrstu breiðskífu hennar hefur
magnast. Eftirvæntingin var gríðarleg eins og glögg-
lega mátti sjá á viðtökum smáskífunnar Dinzl sem kom út ekki alls fyrir löngu og fór rak-
leiðis f eitt af efstu sætum Radíó-X listans. Platan sjálf, sem ber heitið Mea Culpa, kom
síðan út 12. október en tveimur dögum áður hitaði sveitin einmitt upp fyrir Trans Am í
annað sinn á rúmu ári.
Sem tónleikasveit er Ulpa fyrir löngu búin að sanna gildi sitt og það er alls engin til-
viljun að hún var fengin til að hita upp fyrir Trans Am, Stephen Malkmus og Blonde
Redhead. Þar fyrir utan hefur sveitin haldið fjölmarga tónleika upp á eigin spýtur og
óhætt er að segja að hún verði jafnvel enn betri í hvert sinn sem hún spilar, þrátt fyrir að
vera fjandi góð fyrir, nánar tiltekið ein sú allra besta á landinu.
Singapore
Sling
Það er engum blöðum um það að fletta að Singa
pore Sling er ein mesta töffararokksveit landsin
og þvf ekki nema eðlilegt að hún spili á undan sjálfum ofur-töffurunum í Trans Am.
Hljómsveitin, sem hefur tekið gagngerum mannabreytingum frá stofnun hennar, hef-
ur verið dugleg við lagasmíðar undanfarið og hyggst því gefa tónleikagestum smáfor-
smekk að því sem koma skal í framtíðinni. Það er nánar tiltekið eitt stykki plata sem
kemur vonandi út áður en langt um líður. Það hafa jú allir gott af smárokki með stóru
R-i og því er um að gera að skella smágeli í hárið, setja upp sólgleraugun og koma sér
í réttu stellingarnar fyrir einhverja svölustu tónleika síðustu ára.
8
vetrardagskrá hljómalindar 19. október 2001