Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Blaðsíða 18
u
i
>
w
a
... Á VETRARDACSKRÁ HUÓMALINDAR
Tónlist er það heitasta um þessa helgi og
Hljómalind stendur fyrir blússandi innflutn-
ingi á hæfileikafólki til landsins. Þeir sem fóru
á TranS'Am tónleikana í seinustu viku geta
staðfest að um gæðavörú er að ræða ...
... Á Airwaves
Hin hátíðin er ekki síðri en þar koma ótal-
margir talentar fram og hápunkturinn er án
efa tónleikar hinnar kynngimögnuðu Sigur
Rósar sem hefur haldið fáa en góða tónleika það
sem af er árinu. Hægt er að kaupa passa sem
tryggir manni aðgang á allar skemmtanir (að
Sigur Rós undanskilinni) sem kemur sér vel
fyrir tónlistarfrík bæjarins sem geta ráfað stans-
laust á milli staða eins og fíklar í leit að nýjum
skammti ...
F6STIVAL
... Á Nelly’s
Þar sem aðgangur á tónlistarhátíðir er ekki
fríkeypis er nauðsynlegt að leita á JSdýrari mið
þegar ölkneyfingar eru annars vegar. Þar kem-
ur Nelly’s sterkur inn, bjór á hálfvirði út mán-
uðinn og svo þurfa tónlistarunnendur ekki að
missa af neinu þegar þeir skjótast á barinn því
Popptíví er alltaf í gangi þarna inni. Alltaf!
... í NUDD
Góð leið til að slappa af eftir erfiða tónlistar-
hátíð og knæpusetu er að fara í sálarhreinsandi
nudd daginn eftir. Sérstaklega er spennandi
tæknin sem kínversku nuddaramir beita en
þeir eiga það til að hreinlega ganga á bakinu á
manni! Þó er ekki mælt með þessu fyrir þá sem
hafa sturtað ( sig eilítið hressilegar en hinir
kvöldið áður...
erða hvar?
Flestir kannast við þau leiðindi sem oft fylgja því að þurfa að fara
út í sjoppu og stundum er fólk einfaldlega svo illa upp lagt að það
nennir ómögulega að leggja á sig það erfiði að standa upp og rölta
út í næsta videoleigu. Nú er kominn lausn á þessu máli en félagarn-
ir Jón Stefán Einarsson og Ingvar Halldórsson hafa stofnað verslun-
ina Netvideo.is þar sem fólk getur farið á Netið, pantað þær vörur
sem það vill fá og fengið þær svo sendar um hæl.
Sendast me5 sígarettur
„Til að gera langa sögu stutta er Netvideo myndbandaleiga,
sælgætis' og skyndibitasala á netinu sem er löngu tímabær
. nýjung fyrir tæknisinnaða íslendinga. Þetta þýðir að sjálfsögðu
aukin þægindi fyrir viðskiptavini, því ekki eru allir í stakk
búnir til að rölta sér út í sjoppu hvenær sem er og oftar en ekki
erum við Islendingar mjög svo tímabundnir við eitthvað ann-
að. Méð þessari þjónustu erum við sem sagt að bjóða einfalda
lausn á þessu vandamáli," segir Jón Stefán, einn af eigendum
verslunarinnar. Saman reka þeir Ingvar Halldórsson verslun-
ina Netvideö.is þar sém að fólk jgetur pantað vörurnar í gegn-
um Netið. „Fólk getur líka pantað í gegnum síma ef þannig ber
undir“, bætir Ingvar svo við.
Fyrst oc fremst videoleiga
Þeir félagar reka fyrir aðra verslun en Netvideo.is er nýjasta
verslun þeirra félaga og einnig nýjasta viðbótin í skyndi-
bitaflóru Islendinga. Þar getur fólk pantað allar þær vörur sem
fást í hefðbundnum sölutumum og videoleigum en einnig er
hægt að fá sér einhvem góðan skyndibita líkt og hamborgara
eða grillaðar samlokur. „Við bjóðum upp á allt helsta sælgætið
sem fæst í venjulegri verslun en auk þess getur fólk fengið eitt-
hvað af grillinu hjá okkur. Við emm með hamborgara, fransk-
ar, heita báta, kjúkling, samlokur og pylsur en að sjálfsögðu
emm við líka með gos, snakk og tóbak,“ segir Ingvar en Jón
bætir svo við: „Þetta er samt fyrst og fremst videoleiga þar sem
að fólk getur valið spóluna á Netinu en svo getur það fengið sér
eitthvað að borða í leiðinni og við sendumst svo með allan
pakkann upp að dymm hjá fólki. Fólk getur svo skilað spól-
unni á næstu bensínstöð Skeljungs eða pantað aðra og látið
sendilinn taka þá gömlu.“
Tóbak upp að dyrum
Margir munu eflaust taka þessari nýju þjónustu fagnandi
enda eru það ófáir sem vakna á sunnudögum ansi þyrstir og
margir hverjir tóbakslausir þ.e. ef menn nota slíkt á annað
borð. Blaðamann fýsti þá að vita hvort hann gæti t.d. ein-
göngu fengið sendar t.d. sígarettur og gos. „Við sendum heim
svo framarlega sem fólk pantar fyrir 1000 krónur eða meira, þá
skiptir okkur að sjálfsögðu engu máli hvort viðkomandi fær sér
tóbak, mat eða videospólu. En við seljum að sjálfsögðu ekki
hverjum sem er tóbak því við förum að settum reglum og krefj-
um fólk um persónuskilríki ef þess er þörf,“ segir Ingvar. Versl-
unin er opin til að miðnættis um helgar og á föstudögum en
lokað hálftíma fyrr á virkum dögum og er öllum frjálst að
versla hjá þeim, svo framarlega sem viðkomandi er búsettur á
höfúðborgarsvæðinu. „Það eina sem að fólk þarf til að geta nýtt
sér þjónustu Netvideo.is er aðgangur að Intemetinu, gilt net-
fang og heimilisfang svo að hægt sé að senda vömmar. Send-
ingin tekur svo allajafna ekki lengri tíma en 40 mínútur og
hægt er að greiða með ávísunum, kortum og að sjálfsögðu pen-
ingum,“ segir Jón Stefán og bætir við: „ Hvort sem fólk er fast
við vinnu, bamapössun, flensu eða hreinlega nennir ekki út í
íslenska veðráttu þá getur það alltaf komist á Netið og reddað
kvöldinu á netvideo.is."
Tónlistog fjöll
„Það er nú ekki mikið plan-
að fyrir helgina. Nema það að
á föstudagskvöldið ætla ég að
kíkja á útgáfutónleika á Kaffi
Reykjavík. Þar er strákur sem
ég þekki ásamt félögum sín-
um í sveitinni Stnala-
drengimir að halda upp á út-
gáfú geisladisks sem þeir
gerðu. Restin af helginni er
síðan óljós. Ef veður verður
gott þá er aldrei að vita nema
ég bregði mér upp á fjöll.
Annars verð ég að slappa af í
rúminu á milli þess sem ég
æfi mig á orgelið, sem er það
sama og flesta aðra daga.“
Lára Bryndís Eggertsdóttir
organisti.
Fagrir kroppar
„Eg verð að sjá um fit-
nesskeppnina sem fer fram um
helgina. Við byrjumí dag í Vetr-
argarðinum í Smáralind en þar
fer forkeppnin fram og aldrei
þessu vant eru fleiri stelpur en
strákar sem taka þátt í henni, en
það er náttúrlega alveg frábært.
Það eru 20 stelpur og 18 strákar
sem byrja en svo munu 12 fagrir
kroppar af hvoru kyni halda
áfram í keppnina á morgun sem
fer frarn í íþróttahúsinu í Reykja-
nesbæ. Svo verður bara brjálað
fitness alla helgina en þetta verð-
ur alveg pottþétt skemmtun.11
Hjalti „Úrsus“ Amason, afl-
raunamaður og kerfisfræðingur
í GÓÐUM GÍR
„Eg ætla að fyigja
frönskum kunningjum
mínum, í góðum gír, um
bæði sveit og borg. Einnig
mun ég neyta matar, í
góðum gír, og sofa tölu-
vert um helgina og svo
ætla ég eingöngu að tala
við fólk sem er með vit í
haus. Einnig ætla ég að
vera í góðum gír.“
Barði Jóhannsson tónlist-
armaður