Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2002, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002
I
Tilvera"
Corazon Aquino 69 ára
Fyrrum forseti Fil-
ippseyja, Corazon
Aquino, á afmæli í dag.
Þessi virti stjórnmála-
leiðtogi kom fyrst af al-
vöru fram á sjónar-
sviðið eftir að eigin-
maður hennar, frelsis-
leiðtoginn Benigno Aquino, var myrt-
ur 1983. Tveimur árum síðar fór hún,
fimm barna móðir með enga reynslu í
stjórnmálum, í framboð til forseta-
embættisins og sigraði. Hún lét af
embætti 1992. Aðalstarf hennar nú er
að veita forstöðu sjóði sem stofnaður
var til minningar um eiginmann
hennar og veitir fátækum skólastyrki.
Hruturinn m.
rX*
Tviburarmr (2:
</ :
Gildir fyrir laugardaginn 26. Janúar
Vatnsberlnn (20. ian.-rs. fehr.i:
I Stjömumar era þér
" hliðhollar í dag og allt
virðist ganga þér í
haginn. Kvöldið verð-
ur sérstaklega ánægjulegt.
Happatölur þíanr era 19, 27 og 36.
Fiskarnlr (19. fehr.-?0. marsl:
\ Teikn eru á lofti um
I -^lað nýir tímar séu að
renna upp. Vin-
gjarnlegt andrúmsloft
leiðir til jákvæðrar þróunar.
Happatölur þínar eru 3, 5 og 7.
Hrúturinn (21. mars-19. aprih:
. Nú er hagstætt að
'leggja hugmyndir sín-
ar fyrir aðra til að fá
þeirra álit. Þú ættir að
beita talsverðri sjálfsgagnrýni.
Happatölur þíanr era 10,13 og 28.
Nautið (20. april-20. maíl:
Þú munt hafa í nógu
, að snúast á næstunni.
Þú kynnist nýju fólki
sem á eftir að
hála' mikil áhrif á líf þitt
í langan tíma.
Tvíburarnir (21. mai-2i. iúníu
Þú þarft á öllu þínu
''þreki að halda þar
sem þú gengur í
gegnum miklar
breytingar. Þú færð áhuga
á nýjum verkefnum.
Krabbinn (22. iúni-2?. iúin:
Þú þarft að gera þér
kgrein fyrir hvar áhuga-
' svið þitt liggur. Þú
____ skipuleggur
sumarfríið með fjölskyldunni
og á hún hug þinn allan.
Uónið (23. iúlí- 22. áeúsú:
I Hætta er á að þú verð-
' ir óánægður ef þú ger-
ir of miklar kröfur til
annarra. Vertu raun-
sær ef þú þarft að treysta á aðra.
Happatölur þíanr era 13, 21 og 33.
Mevian (23. ágúst-22. sept.l:
Breytingar taka á í
bili, bæði hvað varðar
.fjármál og fyrirhöfn,
en þegar til lengri
tima er litið verða þær bæði til
hagræðis og ábata.
Vogin (23. seDt.-23. okU:
Þú færð fréttir sem
valda þér mikilh furðu.
Þær snúast um per-
sónuleg málefni. Þér
flrinst einhver hafa leikið á þig.
Happatölur þínar eru 9, 24 og 32.
Sporðdrekinn (24. okt.-2i. nóv.):
Ferðalag sem er á döf-
inni, að vísu ekki al-
■veg strax, á hug þinn
' ? allan og mikið er um
það rætt. Vertu viðbúinn því að
einhver sýni þér illvilja.
Bogmaðurinn (22. nðv.-21. des.):
-Mannleg samskipti eru
"einkar góð. Þú heyrir
eitthvað eða lest sem
þú getur notað þér
til góðs. Heimilislífið gengur
mjög vel.
Steingeitin (22. des.-19. ian,):
Þar sem kringumstæð-
umar eru einkar hag-
stæðar skaltu nota
tækifærið til að þoka
þínum málum áleiðis. Það er upp-
lagt að reyna eitthvað nýtt.
vogn (23. se
ueingeitin
n
Boðorðin 9 frumsýnd í Borgarleikhúsinu
minn,
í kvöld:
vertu
sjálfum þér trúr
- er lykilsetning verksins, að sögn Viðars leikstjóra
DVJMYND BRINK
Brúðguminn ásamt tveimur gestum
Björn Ingi Hilmarsson, Ellert Ingimundarson og Gísli Örn Garöarsson í hlutverkum sínum.
Bresta í söng
Snorri Freyr
Hilmarsson er höf-
undur leikmyndar
og þar er mest
áberandi gríðar-
stór eftirmynd af
frægu málverki
Jóns Stefánssonar,
Lómum. Aðspurð-
ur um þýðingu
hennar segir Við-
ar: „Leikmyndin á
að sýna kyrrstöðu
til að mynda mót-
vægi við óróleika
tilfinninganna sem
brjótast út á svið-
inu.“ Þarna er
greinilega sálfræði-
leg pæling á bak
við og svo reynist
einnig vera um
Boðorðin 9 - hjónabandssaga á
augabragði verður frumsýnd í kvöld
kl. 20 á stóra sviði Borgarleikhúss-
ins. Þetta er nýtt verk eftir Ólaf
Hauk Símonarson í leikstjórn Við-
ars Eggertssonar. Þar gefa brúðhjón
(sem þau Jóhanna Vigdís Arnar-
dóttir og Björn Ingi Hilmarsson
leika) og gestir í brúðkaupsveislu
áhorfendum bæði spari- og hvunn-
dagsmyndir af sér. Auk þess að vera
í veislu þar sem glaumur og gleði
ríkir og hátíðleg orð falla renna þeir
sér bæði fram og aftur í lífi sínu og
við blasa harmur, svik og von-
brigði, innan um ánægjulegar
stundir.
Þegar einni æfingu var lokið nú í
vikunni og leikurum höfðu verið
gefnar „nótur“ var leikstjórinn Við-
ar Eggertsson fyrst spurður hvort
hann hefði nokkuð mikið þurft að
skammast. „Nei, á síðustu dögum
fyrir sýningu fer leikstjórinn að
bakka út,“ segir hann brosandi en
neitar því ekki að eiga mikla vinnu
að baki við uppfærsluna. „Viö eig-
um það öll. Það er alltaf ögrandi að
takast á við verk sem enginn hefur
séð áöur og verður að miklu leyti til
á æfingartímanum.
Þá er það hlutverk
leikstjórans að
finna lausnir í sátt
við höfundinn."
sönginn sem setur svip á sýning-
una. „Þetta er veisla og þar er gjam-
an sungið. Þó eru persónumar ekki
beint að syngja til áheyrenda heldur
bresta þær í tilfinningalega útrás
með söng, innan þess heims sem
sviðið er,“ útskýrir Viðar.
Öll boðoröin nema eitt
Um efnið hefur Viðar meðal ann-
ars þetta að segja: „Við komum þar
að sem flestir veislugestir eru farn-
ir aðrir en nánustu ættingjar og
vinir brúðhjónanna. í byrjun sjáum
við ekki annað en það sé að öllu
leyti vel heppnað fólk. Meðan brúð-
guminn dansar við brúðina verður
skammhlaup í höfði hans og hann
sér í sjónhending hvemig hugsan- ~
legt líf hans verður. Þar heldur
brúðkaupið áfram. Grimur falla og
fólkið sýnir sín réttu andlit. Lykil-
setning verksins er í ræðu Hannes-
ar, íoður brúðgumans: „Andri
minn, vertu sjálfum þér trúr.“ Það
mistekst hins vegar hrapalega. í lok
sýningar rankar brúðguminn við
sér og veislan er í fullum gangi.
Verður líf hans eins og hann sá það
fyrir sér?
Síðast er Viðar spurður út í nafn
verksins. „Ég held að öll boðorðinj.
séu brotin í þessu verki nema eitt:
Þú skalt ekki morð fremja. Þó má
auðvitað spyrja eins og gert hefur
verið áður: Hvenær drepur maður
mann?“
Gun.
REUTER-MYND
Brosaö breitt í London
Tom Cruise og Penelope Cruz voru í
besta skapi þegar þau komu til
frumsýningar myndarinnar Vanilla
Sky í London í vikubyrjun.
Cruise
og Cruz
á frum-
sýningu
Krúsidúllukrúttin Tom Cruise og
Penelope Cruz, heitasta parið í
Hollywood um þessar mundir, létu
Ijós sitt skína í London þegar þau
komu til frumsýninar nýju myndar-
innar sinnar, Vanilla Sky.
Múgur og margmenni hafði tekið
sér stöðu við Leicestertorg í mið-
borg London til að freista þess að
sjá glitta aðeins í stjörnuparið.
Cruise og Cruz brostu breitt til
ljósmyndaranna og var ekki annað
að sjá en þau væru hress og al-
mennt ánægð með lífið og tilveruna.
„Vanilla Sky er metnaðarfull
mynd,“ sagði Tom við blaðamenn á
meðan Penelope ritaði nafn sitt.
Tom og Penelope kynntust við
gerð Vanilla Sky. Hann var þá skil-
inn við Nicole Kidman, eiginkonu
sína til margra ára.
„Við unnum saman og okkur
varð vel til vina. En eftir því sem
fram liðu stundir þróaðist samband-
ið í eitthvað meira. Ég hef alltaf átt
gott með að tala við Tom,“ sagði
Penelope einhverju sinni í viðtali
við breska ríkisútvarpið BBC.
Old&iiœ
AFTER SHAVE
LOKSINS
KOMINN
Stofnuð 1918
Rakarastofan
Klapparstíg
Sími 5513010
r syfe
^Port CaVfe
Bæjarlind 4 • 201 Kópavogi • Sími 544 5514
FOSTUDAGSKVÖLD
LAUGARDAGSKVÖLD
HLJÓMSVEITIN
SIXTIES
HLJÓMSVEITIN
SÓLDÖGG
Allir íþróttaviöburöir í beirtni á risaskjám. Pool. Góður matseðill.
Tökum að okkur hópa, starfsmannafélög. Stórt og gott dansgólf.
PÉiff