Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Qupperneq 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002
I>V
Tony Blair
Tony Blair, forsætisráöherra Bret-
lands, segir stjórnarandstööuna
á villigötum.
Blair svarar
gagnrýni Smiths
í stefnuræðu
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, sakaði í gær breska íhalds-
flokkinn um að beita öllum brögðum
við aö sverta félagsþjónustuna í land-
inu. Ian Duncan Smith, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar, sótti hart að
Blair í fyrirspumartíma í þinginu á
miðvikudaginn, þar sem hann sakaði
bresku stjórnina um slaka frammi-
stöðu varðandi heilsugæsluna og tók
sem dæmi af 94 ára konu sem hefði
fengið lakari bráðaþjónustu en hund-
ur að hans sögn.
Þessi ummæli Blairs komu fram á
fundi með starfsfólki félagsþjónust-
unnar í Newcastle í gær, en þar boð-
aði hann aukna aðstoð við almenning
og sagði að þrátt fyrir að heilbrigðis-
kerfið væri ekki fullkomið fengju
flestir góða umönnun. „Þessar aðferð-
ir stjórnarandstöðunnar gera ekki
annað en skilja starfsfólk heilbrigðis-
þjónustunnar eftir í sárum. Þeir gera
ailt til að sverta félagsþjónustuna til
að fólk missi tiltrúna á alla fjárfest-
inguna sem við höfum staðið fyrir.
Þeir vilja draga úr fjárveitingum rík-
isins til þjónustunnar og láta fólkið
borga sjálft," sagði Blair.
Smith var fljótur til svara og sagði
ummæli Blairs aumkunarverð. „Mál-
inu er alls ekki lokið og við munum
halda gagnrýni okkar á kerfið áfram.
Hann reynir að telja fólki trú um að
gagnrýni okkar sé bein árás á starfs-
fólkið, en það veit betur,“ sagði Smith.
Colm Murphy
- hlaut 14 ára dóm.
14 ára dómur í
Omagh-málinu
Colm Murphy, 49 ára gamall Norð-
ur-lri var í gær dæmdur til fjórtán ára
fangelsisvistar fyrir þátt sinn i
Omagh sprengjuárásinni á Norður-ír-
landi fyrir þremur árum, þar sem 29
manns létu lífið og hundruð annarra
slösuðust. Hann var fundinn sekur
um samsæri við að koma fyrir
sprengju í þeim tilgangi að drepa og
limlesta fólk án þess að taka sjálfur
beinan þátt í því, en hann mun hafa
útvegað meðlimum Real IRA tvo far-
síma sem hann vissi að yrðu notaðir
til voðaverka, en Real IRA gekkst
seinna við sprengjutilræðinu sem var
það mannskæðasta í þrjátíu ára sögu
ófriðarins á Norður-írlandi. Meðal
þeirra sem létu lífið í árásinni var
ung kona sem gekk með tvíbura. Að
sögn dómarans sem kvað upp úr-
skurðinn er Murphy þekktur öfga-
maður, en hann er fyrrverandi bygg-
ingavertaki og vel auðugur af aurum
og löndum. Til þessa er hann éini sak-
borningurinn sem hlotið hefur dóm í
Omagh-málinu.
Sjálfsmoröárás á stóra verslunarmiðstöð í Tel Aviv:
Varað við hefndarað-
gerðum á báða bóga
Palestinskur hryðjuverkamaður
gerði í gær sjálfsmorðsárás á versl-
unarmiðstöð í miðborg Tel Aviv, með
þeim afleiðingum að minnsta kosti 24
særðust, þar af þrír mjög alvarlega,
auk þess sem hann sprengdi sjálfan
sig i loft upp í árásinni sem er sú
fyrsta síðan 2. desember.
Að sögn sjónarvotta kom tilræðis-
maðurinn akandi að verslunarmið-
stöðinni á mótorhjóli og var sprengj-
an svo öflug að hjólið flaut langar
leiðir og fólk kastaðist langar leiðir í
allar áttir.
Að sögn lögreglunnar fannst poki
á vettvangi sem tilræðismaðurinn er
talinn hafa borið sprengjuna í, en í
honum voru naglar sem ætlað var að
valda enn þá meiri limlestingum á
fólki. Skammt frá fannst annar poki
sem innihélt byssu og skotfæri, sem
gefur til kynna að frekari skotárás
hafi verið fyrirhuguð í kjölfar
sprengingarinnar.
Á sprengjuvettvangi í Tel Aviv
Israelskur öryggisvöröur kemur konu
til hjálpar þar sem hún sat föst í
íbúö sinni eftir sprenginguna.
Enginn hafði tilkynnt ábyrgð á
árásinni þegar síðast fréttist í gær,
en hún er gerð aðeins klukkustund-
um eftir að Hamas-samtökin hótuðu
hefndum fyrir dráp ísraelsmanna á
enn einum foringja þeirra í þyrlu-
árás á Gaza-svæðinu í fyrrinótt. Þá
höfðu nýlega borist fréttir af því að
ísraelsk hersveit hefði gert sprengju-
árás á tvo vopnaði Hamas-liða sem
reyndu að komast fram hjá eftirlits-
stöð við bæinn Gush Katif á Gaza-
svæðinu, en talsmaður ísraelskra
stjórnvalda sagði þá grunaða sjálfs-
morðsliða.
Að venju saka ísraelsk stjórnvöld
Arafat um að bera ábyrgð á árásinni,
en á móti fordæma palestínsk stjórn-
völd árásina eins og allar fyrri árás-
ir, en Nabil Abu Rdainah, einn helsti
ráðgjafi Yassers Arafats, hafði í gær,
stuttu fyrir árásina, varað ísraels-
menn við hugsanlegum aðgerðum og
bað menn að vera í viðbragðsstöðu.
Brendan Costin í vitnastúkunni
Brendan Costin, 14 ára sonur Michaels Costins frá Boston í Massachusetts, er hér í vitnastúku fyrir rétti í Boston,
þar sem hann vitnaöi gegn Thomasi Junta, 40 ára vörubílstjóra sem bariö haföi fööur hans til bana eftir aö komiö
haföi til deilna á íshokkíæfingu hjá félaginu hans í júlí í sumar. Thomas Junta, sem eins og faöir Brendans var kom-
inn á æfinguna til aö fylgast meö sínum syni, Quinlan, missti stjórn á skapi sínu og endaöi deilan meö fyrrnefndum
afleiöingum. Junta hlaut 6-10 ára dóm, ákæröur fyrir manndráp afgáleysi.
Skotárásin á bandarísku menningarmiðstöðina í Kalkútta:
Interpol hefur gefið
út handtökuskipun
Indversk stjórnvöld sögðu í gær að
alþjóðalögreglan Interpol hefði gefið
út handtökuskipun á grunaðan árás-
armann á bandarísku menningarmið-
stöðina í Kalkútta á þriðjudaginn þar
sem fjórir byssumenn gerðu skotárás
með þeim afleiðingum að fjórir lög-
reglumenn lágu í valnum og að
minnsta kosti tuttugu manns særðust
utan við bygginguna.
Að sögn Lal Krishan Advani, inn-
anríkisráðherra Indlands, er hinn
grunaði Indverji að nafni Farham
Malik, en indverska leyniþjónustan
telur hann tengjast hvorum tveggja
öfgasamtökunum sem gengist hafa við
árásinni, en það eru Asif Raza Comm-
andos samtökin og Harkat-ul Jehadi,
sem bæði eru af íslömsk og þau síðar-
nefndu með aðalbækistöðvar sínar
innan Pakistans.
Hvor tveggja samtökin eru talin
hafa sterk tengsl við bræðrasamtök sín
Indverskir lögreglumenn
Öflug öryggisgæsla var í Kalkútta
eftir skotárásina á bandarísku
menningarmiöstööina.
í Bangladesh og af öryggisástæðum
hafa 35 manns verið handteknir, sem
nýlega hafa farið ólöglega yfir landa-
mærin frá Indlandi til Bangladesh og
er búist við það þeir verði í haldi að
minnsta kosti tvær næstu vikurnar.
Handtökuskipun Interpol leyfir að
Malik verði handtekinn innan aflra
landa sem aðild eiga aö Interpol og
sagði Advani að hann væri i beinu
sambandi við stjómvöld í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum, en grunur
leikur á að Malik hafi flúið þangað.
Á myndbandsupptöku af árásar-
vettvangi, sem indverska lögreglan
hefur undir höndum, sést greinUega
framan í einn árásarmannanna, þar
sem hann kemur akandi á mótorhjóli
með hríðskotarUTil undir hendinni og
mun þar vera um umræddan Malik að
ræða. Kennsl hafa ekki verið borin á
hina þrjá, en þó talið ólíklegt að þeir
séu frá Pakistan eða Kasmír.
H
Fyrrum framkvæmdastjóri
Enron fremur sjálfsmorð
Gjaldþrot bandaríska orkufyrirtæk-
isins Enron dregur heldur betur dilk
á eftir sér, en í gær tilkynnti lögregl-
an í Texas að Clifford Baxter, fyrrum
varastjórnarformaður og einn fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins til
margra ára, hefði framið sjálfsmorð
með því að skjóta sig í höfuðið í bif-
reið sinni í nágrenni heimUis síns í
Houston í Texas. Baxter sagði upp
störfum hjá Enron í maí á síðasta
ári og hugðist þá setjast i helgan
stein og sinna fjölskyldunni, en
starfaði þó áfram hjá fyrirtækinu í
hlutastarfi sem ráðgjafi stjórnenda.
Ekki er Ijóst um aðild Baxters að
gjaldþrotamálinu, en hann mun að
sögn eins uppljóstrarans í málinu
hafa átt í nokkrum útistöðum við
Jeff SkUling, fyrrum aöalfram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins, um
vafasamar ákvarðanir við fjármála-
stjórnun þess.
Sönnunargögn frá Bush
Bush Bandaríkja-
forseti hefur afhent
forystumönnum
þriggja vinveittra
arabaríkja gögn sem
hann segir að sanni
sekt palestínskra yf-
irvalda f vopna-
smyglsmálinu, þar
sem reynt var að
smygla 50 tonnum af vopnum frá fran
til óróasvæðisins fyrir botni Miðjarð-
arhafs. Það eru yfirvöld í Sádi-Arabíu,
Jórdaníu og Egyptalandi sem fengu
gögnin boðsend, en ekki er enn vitað
hvort þau tengja vopnasendinguna
beint við Yasser Arafat.
Viðskiptabann á Kínverja
Bandarísk stjórnvöld hafa fyrir-
skipað viðskiptabann á tvö kínversk
fyrirtæki og einn einstakling, fyrir að
selja írönum tæknibúnað til fram-
leiðslu efnavopna. Richard Boucher,
talsmaður bandaríska dómsmálaráðu-
neytisins, sagði að fyrirtækin sem
heita Liyang Chemical Equipment
Company og China Machinery and El-
ectric Import & Export Company, auk
kaupsýslumannsins QC Chen, hafi
verið úrskurðuð í tveggja ára við-
skiptabann vegna viðskiptanna.
Boucher gaf engar frekar skýringar
á meintum viðskiptunum við írana,
en kínverska utanríkisráðneytið for-
dæmdi bannið harðlega og fer fram á
að það verði afturkallað.
Penny vill soninn aftur
Katherine
Penny, unga
konan sem
skildi þriggja
mánaða gamlan
son sinn eftir á
víðavangi í Al-
bufeira í Portú-
gal fyrr í mán-
uðinum, sagðist
í gær vilja fá
barnið sitt til
baka. „Ég gerði
hræðileg mistök og nú nagar samvisk-
an mig. Ég vil fyrir alla muni fá
Charlie litla aftur til að bæta fyrir
mistökin," sagði Penny. Þetta er í
fyrsta skipti sem hún talar opinber-
Ilega síðan hún og sambýlismaður
hennar stungu af frá barninu í Portú-
gal, en þau bíða nú ákvörðunar yfir-
valda um það hvort þau verða fram-
seld til Portúgals til að svara til saka.
Stríö eina leiöin
Sheikh Hassan Nasrallah, leiðtogi
Hizbollah-samtakanna í Líbanon,
sagði í gær að stríð gegn Israel væri
eina leiðin fyrir Palestínumenn eins
og komið væri. „Samningaviðræður
viö ísraela mun engu skila fyrir þá og
því ekki um annaö að ræða en fara í
stríð,“ sagði Nasrallah.
*