Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002
Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf.
Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson
Aéalrítstjóri: Óli Björn Kárason
Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson
Aöstoöarrítstjórí: Jónas Haraldsson
Fréttastjóri: Birgir Guömundsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Kaupvangssræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001
Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerð: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viðtöl viö þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim.
Fjórir mánuðir
Björn Bjarnason menntamálaráðherra mun í dag til-
kynna að hann ætli sér að leiða lista sjálfstæðismanna í
borgarstjórnarkosningunum í vor. Sjaldan hefur lengur
verið beðið eftir einni pólitískri ákvörðun á íslandi. Fyrir
rífu ári, 2. janúar 2001, var á það minnst í þessu blaði að
Björn væri æ oftar nefndur sem líklegt borgarstjóraefni D-
listans í næstu kosningum. Mörgum lesendum fannst það
fráleitt. En pólitíkin er blessunarlega ófyrirséð á köflum.
Og reyndist það í þetta sinn.
Sjálfstæðismenn eru að safna vopnum sínum í Valhöll í
dag. Þeir þurfa á þeim að halda sem aldrei fyrr. Framboð
Björns mælist vel fyrir mjög viða. Ljóst er að hann er sig-
urstranglegasta leiðtogaefni flokksins í borginni. Fræg
könnun DV tók þar af öll tvímæli. Framboði Björns mun
fylgja nauðsynleg endurnýjun á lista flokksins fyrir kosn-
ingar og verður forvitnilegt að sjá hverjir raðast á milli út-
varðanna, Björns og Ingu Jónu, sem engin leið er að neita
um baráttusæti listans. Flokkurinn ætlar sér í alvöruslag.
Framboð Björns sýnir ekki síst að Sjálfstæðisflokkur-
inn leggur nú allt undir í kapphlaupinu um völdin í víg-
inu mikla, sjálfri höfuðborginni. Meirihluti flokksins i
Reykjavík var lengst af síðustu öld eins og hvert annað
náttúrulögmál. Borgin ól upp hvern leiðtoga flokksins af
öðrum. Á fimmta, sjötta, sjöunda og lengst af áttunda ára-
tug síðustu aldar var sigur sjálfstæðismanna í borginni
svo vís að kosningar voru vart annað en góð ástæða fyrir
ærslafullu teiti. Fyrir vikið varð flokkurinn værukær.
Kosningaúrslitin 1978 voru flokknum gríðarlegt áfall, en
skýrast af vinstri sveiflunni á þeim tíma. Engan óraði fyrir
því að höfuðandstæðingurinn, Alþýðubandalagið, hreppti
fimm borgarfulltrúa. Nýi meirihlutinn var brotgjarn, með
Alþýðubandalag sem skyggði á litlu samstarfsflokkana.
Ópólitískur borgarstjóri var í ofanálag ein af verri hug-
myndum vinstri manna í árafjöld. Sjálfstæðismönnum var
því létt verk að ná nýjum meirihluta með ungan og orðhvat-
an mann við stýrið, hápólitískan borgarstjóra.
Á það hefur verið bent að vandi sjálfstæðismanna í
borgarstjórn á síðustu tveimur kjörtímabilum hefur verið
og er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Á undraskjótum tíma
kom hún sér í hóp afburðamanna í íslenskri pólitík. Minna
hefur verið rætt um missinn. Sjálfstæðisflokkurinn missti
í reynd meira við brotthvarf Davíðs Oddssonar úr borgar-
málefnum en hann gat þolað. Vel má segja að Davíð hafi
verið flokknum of sterkur borgarleiðtogi og hafi skyggt svo
mjög á arftakana að enginn þeirra var augljós.
Leiðtogakreppa sjálfstæðismanna í borginni hefur tekið
á sig margar myndir á síðustu árum. Það er rétt hjá nú-
verandi borgarstjóra að hefð er komin fyrir þvi að D-list-
inn skipti um hest í miðri á. Eftir missinn tóku mögru
árin við. Markús tók við af Davíð, Árni af Markúsi, Inga
Jóna af Árna og Björn nú af Ingu Jónu. Þetta lýsir ekki
staðfestu. Þetta er óöryggi. Og það tók þann mann sem i
dag tekur loksins af skarið svo langan tíma að ákveða sig
að andstæðingum hans fyrirgefst að nefna það verkkvíða.
Réttir fjórir mánuðir eru til kosninga. Það er eilífð í
pólitík. Baráttan verður hörð og kappsfull. Baráttan verð-
ur á milli tveggja sterkra borgarstjóraefna sem eru þaul-
vanir stjómmálamenn með farsælan feril að baki. Nokkur
von er til þess að baráttan verði málefnaleg. Björn og Ingi-
björg eru bæði kunn fyrir það að vanda sig í stjórnmálum.
Nú þegar listar tveggja stórfylkinganna í borginni fara að
skýrast spyrja kjósendur um hvað verður kosið. Nú þarf
að sýna pólitíkina og brýna áherslur.
Sigmundur Ernir
X>V
Maöur og hamstur
Reynir
Traustason
ritstjórnarfulltrúi
l rrnr^rm FTTgrjTp iTf :
Hann gekk ákveðnum skrefum að
stofuborðinu og með eldsnöggri sjálf-
virkri hreyfingu skaust hægri hönd
hans ofan í sælgætisskál á miðju
borðinu. Áður en samband komst á
milli huga og handar voru tveir
konfektmolar í munni hans. Hann
fólnaði upp á því sekúndubroti þegar
heilanum bárust þau boð að sykur
væri í frumúrvinnslu við upphaf
meltingarvegarins. Maðurinn kúgað-
ist þegar hann uppgötvaði að hann
væri enn einu sinni að falla í þá
freistingu sem rústaði því markmiði
að minnka umfang likamans. Það
færðist hörkusvipur yfir andlit hans
og munnurinn opnaðist upp á gátt.
Styrkum skrefum, opnum munni og
með skýrt markmið í huga gekk hann
fram i eldhús og opnaði ruslaskáp-
inn. Svo hrækti hann tveimur molum
af Nóakonfekt'i. Enn var munnur
hans upp á gátt þar sem hann lét
renna í vatnsglas og saup á og skol-
aði. Þar sem sykurbragðið dó út
hríslaðist sælutilfinning um æðar
hans. Hann hafði unnið áfangasigur á
flkninni.
„Mamma, pabbi er að hrækja,"
kallaði barnunginn á sjötta ári og
undirstrikaði yfirlýsingu sína með
því að lýsa því að á leikskólanum
væri bannað að hrækja á almanna-
færi. „Karlinn er kominn með anor-
exíu,“ sagði unglingurinn á heimil-
inu og glotti.
Grunur um átröskun
Konan horfði hlýlega á mann sinn
með spum í augum. Gat verið að
hann væri haldinn þessum voðalega
sjúkdómi, átröskun, sem var frekar
tengdur unglingsstúlkum og fyrirsæt-
um en miðaldra manni með fortíð
sem heljarmenni í helsta atvinnuvegi
íslenskrar þjóðar? Maðurinn ákvað
að létta óvissunni af heimilisfólki
sínu. Hann reif sig upp úr sigur-
vimunni sem fylgdi hinum full-
komna sigri á stærsta veikleikan-
um og gaf yfirlýsingu: „Ég hef
ákveðið í samráði við sjálfan mig
að léttast um 25 kíló. Þetta mun ger-
ast á nokkrum mánuðum og mark-
miðið er að taka 220 grömm á dag mellum dag sem nótt?“ hugsaði hann
með aðferð sem ég hef sjálfur þróað," og keypti 10 mánaðarskammta af ljúf-
sagði hann og sannfærði fólk um að metinu.
hann væri ekki haldinn lystarstoli, Vandi hans var ekki fólginn í því
átröskun eða lotugræðgi. „Ég mun nú að finna leiðir til að megra sig. Hann
færa mig til i fæðukeðjunni á heimil- komst engan veginn yfir allar aðferð-
inu og i stað þess að tróna efstur með irnar sem í boði voru og varð að velja
ykkur mannfólkinu ætla ég að vera á og hafna. Eftir að hann sprakk á
sama plani og hamsturinn næstu karamellunum með sjö mánaða
mánuðina," bætti hann við og hugs- birgðir á lager skipti hann yfir í kúr
aði tU þess eitt andartak að þar með sem byggðist á því að dufti var hrært
þyrfti hann kannski að vara sig á í vatn. Sá kúr entist ekki nema í þrjá
kettinum. „Þú lætur fóðrið mitt daga enda voru viðbrigðin frá kara-
vera,“ sagði unglingurinn sem var mellunum ægUeg.
réttmætur eigandi hamstra og fóðurs. Engu skipti hvaða kúr hann tók.
„Og mitt líka,“ sagði barnið sem var Ævinlega fundust leiðir til að svindla
umsjónarmaður gullfisksins á heimil- á megruninni og vigtin upplýsti jafn-
inu. óðum um svikin með tilheyrandi sál-
. rænum truflunum hjá manninum
Karamellur og svindl sem deyfði harm sinn með góðri steik
Maðurinn sem nú hafði sjálfviljug- af feitum sauði.
ur stigið úr efsta þrepi fæðjukeðjunn-
ar niður á plan hamstra og annarra Beikonkúr ráöherrans
grasbíta, átti að baki langa baráttu- Eftir því sem árin færðust yfir
sögu vegna einstaklingsbundins yfir- hætti hann að leggja sig eftir hinum
þunga. Hann mundi ekki nafnið á öll- ýmsum megrunarkúrum. Þó féll
um þeim kúrum sem hann hafði tek- hann í freistingu eitt sinn þegar hann
ið allt frá því Scarsdalekúrinn fól í las um beikonkúr sem sjálfur forsæt-
sér fyrirheit um lausn á öllum hans
Lesið
HaukurLárus
Hauksson
blaðamaður
Sjónarhorn
Það dylst fæstum sem fylgst
hafa með atburðarásinni í fram-
boðsmálum sjálfstæðismanna fyr-
ir borgarstjórnarkosningarnar að
skoðanakönnun DV, sem birt var
í síðustu viku, var þar örlagavald-
ur. Samkvæmt niðurstöðum
könnunarinnar reyndist Björn
Bjarnason hafa mikla yfirburða-
stöðu meðal mögulegra leiðtoga-
kandídata. Gilti einu hvort litið
var til viðhorfa allra kjósenda í
úrtaki DV eða einungis þeirra er
sögöust mundu kjósa D-listann.
Björn var sterkastur. Eftirleikur-
in er kunnur en þegar þetta er
skrifað eru hverfandi líkur á að
fyrirhugað leiðtogaprótkjör verði
haldið heldur verði stillt upp á
lista. Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem kannanir DV reynast örlaga-
valdar. í blaðinu í gær var rakið í
stuttu máli hvaða áhrif kannanir
DV höfðu á samstarfsviðræður
minnihlutaflokkanna í borgar-
stjórn 1993, tilurð R-listans og
hvemig Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir varð í einu vetfangi leiðtogi
í þjóðarsálina
þess lista. Að Ingibjörg yrði for-
inginn var reyndar eitthvað sem
menn höfðu almennt „vitað“ en
gátu ekki stutt þá vitneskju með
áþreifanlegum hætti fyrr en nið-
urstööur könnunar DV voru
kynntar.
Vel getur verið að stuðnings-
menn annarra en Björns Bjama-
sonar í leiðtogamálum sjálfstæðis-
manna hafi hugsað DV þegjandi
þörfina eftir að niðurstöður skoð-
anakönnunar blaðsins voru
kynntar á dögunum. Á sama hátt
voru sumir stuðningsmenn D-list-
ans ekki sérlega hrifnir af könn-
un blaðsins fyrir átta árum og
gengu einhverjir svo langt að
segja aö R-listinn og Ingibjörg
hefðu verið „búin til“ á DV. Hér á
ritstjórn DV erum við eðlilega
með augu og eyru opin gagnvart
viðbrögðum við niðurstöðum
skoðanakannana blaðsins. Fyrir
okkur vakir hins vegar ekki ann-
að en að taka púlsinn á afstöðu
landsmanna til hinna ýmsu álita-
mála eins og hún kann að vera á
hverjum tíma. Skoðanakannanir
eru fráleitt gerðar til þess að hafa
áhrif í eina átt eða aðra. Fram-
kvæmd þeirra og tímasetning
miðar ekki aö öðru en því að upp-
lýsa lesendur um hug kjósenda,
hvort sem það er afstaða til
stjórnmálaflokka, stjórnmála-
manna eöa málefna sem setja svip
sinn á þjóðfélagsumræðuna
hverju sinni.
Skoðanakannanir eru engin
nýlunda í starfsemi blaðsins.
Skoðanakannanir hafa verið gerð-
ar allt frá stofnun þess. Forverar
DV, bæði Dagblaðið og Vísir,
Skoðanakannanir og úrs
m%
Síöustu skoöanakamianir fyr’
DVkom
úrsliti
meöalfrávikið aðeins 0,15 Prfl
SUoífeuwkfmmm t)V,
v«r hI fimmtwíakskvöW nwðal
kjfrvznáA i hirt á
hh(tuíí»s?* kom*t wm* ur»)itum
hat«tiHttkSawliiö«nÍwga»tfta