Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Qupperneq 43
51
LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002
DV
Helgarblað
Víðtæk samstaða
flokksmanna veit á gott
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavtk heldur fund í dag þar
sem búist er við að leiðtogaprófkjör
verði blásið af. Fullvíst er talið að
Björn Bjamason tilkynni þennan
sama dag um framboð sitt til borg-
arstjórnar. Því hefur verið haldið
fram að hugmyndin um leiðtogaval
innan Sjálfstæðisflokksins hafi ver-
ið hönnuð til að koma Birni Bjarna-
syni á framfæri.
„Það er fráleit kenning og algjör-
lega úr lausu lofti gripin," segir
Margeir Pétursson. „Hugmyndin
um leiðtogaval er einfaldlega árang-
ur af langri vinnu og undirbúningi
sem leiddi til þeirrar niðurstöðu að
farsælasta leiðin til að velja fram-
boðslista hér í borginni væri að
kjósa einungis
um fyrsta sætið í
prófkjöri og að
kjörnefnd stillti
upp í önnur sæti
á listanum. Einn-
ig kom fram sú
hugmynd að gerð
yrði könnun í
fulltrúaráðinu um
ný nöfn á listann.
Ég held að árang-
urinn af þessari
vinnu hafi verið
mjög góður og
viðtökur flokks-
manna og stjórn-
málaskýrenda
hafa verið framar
okkar björtustu
vonum.“
- En hugmynd-
in um leiðtoga-
prófkjör hlýtur að
vera fallin nú þegar Inga Jóna hef-
ur vikið fyrir Birni Bjarnasyni?
„Ég vil ekkert um það segja á
þessari stundu. Það er fulltrúaráðs-
fundur sem tekur endanlega
ákvörðun um það í dag.“
- Segjum sem svo að það verði
ekkert leiðtogaprófkjör verður þá
ekki skoðanakönnum um ný nöfn á
lista?
„Jú, sú könnun er i fullum gangi
og algerlega óháð prófkjöri um
fyrsta sætið. Ég veit um marga full-
trúaráðsmenn sem eru að leggja
heilann í bleyti og velta því fyrir
sér hvaða sjálfstæðismenn, sem
ekki eru í sviðsljósinu frá degi til
dags, eigi erindi inn á listann. Þetta
er frábær leið til að koma á fram-
færi fólki sem er miklum kostum
prýtt en er tregt til að trana sér
fram sjálft. Þessum tilnefningum
þarf aö skila fyrir 6. febrúar og hvet
ég alla þessa trúnaðarmenn okkar
til að gera það. Síðan vinnur kjör-
nefnd úr þessum tilnefningum og
sér um að stilla upp á 30 manna
lista.“
Eftirlíking aldrei betri en
frummynd
- Hvað finnst þér um þá ákvörð-
un Ingu Jónu að víkja fyrir Birni og
taka áttunda sæti á listanum?
„Sú ákvörðun kom mér algjör-
lega í opna skjöldu en við í stjórn
fulltrúaráðsins virðum hana. Auð-
vitað höfðu menn misjafnar skoð-
anir og Inga Jóna er mjög vinsæl í
sjálfstæðisfélögunum sem mynda
fulltrúaráðið. Það er alveg ljóst að
Inga Jóna hefur fórnað persónulega
metnaði fyrir þaö sem hún telur
vera Sjálfstæðisflokknum fyrir
bestu. Eftir kynni mín af henni
kemur mér þó ekki á óvart að hún
skuli hafa gert það. Það er sjaldséð
í stjórnmálum að einhver taki
svona stórmannleg skref. Aðrir
borgarfulltrúar okkar eru mjög
samstiga henni hvað þetta varðar.
Júlíus Vífill var reyndar sá eini
þeirra sem hafði hug á að taka þátt
í prófkjöri um fyrsta sætið en dró
sig í hlé á svipuðum forsendum.
Við í sjálfstæðisfélögunum höfðum
áhyggjur af því fyrir aðeins viku
síðan að það yrði mjög hörð próf-
kjörsbaráttu og samherjar myndu
skiptast í fylkingar timabundið. Nú
heyra þær áhyggjur sögunni til og
hægt að einbeita sér að starfinu fyr-
ir vorið."
- Hvernig líst þér á Björn sem
leiðtoga?
„Fulltrúaráðsfundurinn er í dag
og þar mun Björn kveða upp úr um
það hvort hann gefur kost á sér.
Eigum við ekki bara að sjá hvað
setur með það? En auðvitað þarf
ekki að tíunda
kosti Björns sem
forystumanns.
Björn er mjög
skeleggur baráttu-
maður vestrænn-
ar samvinnu þeg-
ar það þótti ekki
sjálfsagt mál, þótt
öllum þyki það
núna. Hann gaf
nýlega út greina-
safn með eldri
greinum sínum
og þar þurfti ekki
að breyta einu
einasta orði. Ég
held að fáir
stjórnmálamenn
úr Alþýðubanda-
laginu, Alþýðu-
flokki eða jafnvel
Framsóknarflokki
þyldu að ritverk
þeirra frá þessum
tíma yrðu rifjuð upp. Þegar í þau er
vitnað er talað um pólitiska lang-
rækni og fortíðarhyggju. Ég vil
fremur styðja þá sem höfðu rétt fyr-
ir sér allan tímann og þurftu ekki
að skipta um skoðun til að bjarga
sér. Þessi skelegga afstaða Björns
Bjarnasonar á sfnum tfma, og það
hversu mikill hugsjónamaður hann
er og staðfastur, veldur því að ég
hef persónulega mjög mikið álit á
honum.
Mönnum ætti að vera ljóst að í
hinni hugmyndafræðilegu baráttu
hefur stefna Sjálfstæðisflokksins
sigrað. Hinir flokkarnir eru alltaf
að sveigja sig lengra og lengra i átt-
ina að Sjálfstæðisflokknum en eftir-
líkingin getur aldrei orðið betri en
frummyndin."
R-listinn búinn að fá sín
tækifæri
Nýleg skoðanakönnun DV um
vinsældir borgarfulltrúa sýndi yfir-
burðastöðu Ingibjargar Sólrúnar en
55,7 prósent þátttakenda sögðust
hafa hana í mestum metum. Þegar
Margeir er spurður álits á störfum
borgarstjóra segir hann það vera
hlutverk frambjóðenda Sjálfstæðis-
flokksins að fara í rökræður um
þau atriði. Hann segist sjá ástæðu
til að ræða um fjárhagsstöðu borg-
arinnar:
„Fjárhagsstaða borgarinnar hef-
ur versnað mjög undir stjórn R-list-
ans. Ég sé ekki betur en að ein
helsta orsök þess sé að R-listinn
hefur ekki gætt þess að skipuleggja
lóða- og íbúðaframboð þannig að út-
svarsgreiðendur haldist í borginni.
Ungt fólk verður að geta stofnað
heimili hér. Á höfuðborginni hvíla
miklar og dýrar félagslegar skyldur
og það er ekki traustvekjandi þegar
menn gleyma syona grundvallarat-
riðum. Á meðan hefur til dæmis
Kópavogur gjörbreytt sínum fjár-
hag til bóta, Við gætum lent í svip-
uðum hremmingum og New York
borg gerði á áttunda áratugnum
þegar hún varð næstum gjaldþrota.
Margeir Péturs-
son er formaður
Varðar, fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfé-
laganna í Reykja-
vík, en ráðið
heldur mikilvæg-
an fund í dag. I
viðtali við Kol-
brúnu Bergþórs-
dóttur ræðir Mar-
geir hugmyndina
um leiðtogapróf-
kjör, borgarmál
og stöðu R- og D-
lista.
„Ég met þá afskaplega góða. Það
er stórhugur í mannskapnum og
starfið í félögunum hefur gengið
vel. Reyndar gengur okkur allt í
haginn, nýjustu fréttirnar af for-
ystu okkar eru þær að Guðlaugur
Þór var að eignast tvíbura. Vonandi
helst meðbyrinn áfram og þessi víð-
tæka samstaða veit á gott“
Skákin og lífið
Margeir, sem er lögfræðingur
að mennt, stofnaði eigið fyrir-
tæki, MP Verðbréf hf. er hann
hætti sem atvinnumaður í skák.
Hann hefur um árabil verið í hópi
þekktustu skákmanna okkar en
hann segist nú einungis tefla
tvisvar í mánuði. „Ég sakna þess
stundum að tefla ekki meira en ég
er sífellt með spennandi verkefni
til úrlausnar sem er mjög ánægju-
legt.
- En nýtist skákin í hinu dag-
lega lífi?
„Já, það gerir hún. Skák er
mjög erfið grein, gerir mjög mikl-
ar kröfur til manna og það er
mikil spenna i henni. Mér tókst
eitt sinn að komast upp í 23. sæti
á heimslistanum. Samkeppnin
þar er svo gífurlega hörð að það
veitir manni ákveðið sjálfstraust
að komast svo langt. Maður trúir
því að maður geti náð árangri í
öðrum greinum. Það er ekkert
grín að berjast við alla þessa at-
vinnumenn frá austantjaldslönd-
unum og halda sínu. Maður kall-
ar ekki allt ömmu sína eftir það.“
DV-MYND HILMAR ÞÓR
Margeir Pétursson.
„Mér finnst staöan að mörgu leyti
vera svipuð og 1982 þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn endurheimti borg-
ina með Davíö í forystu og fór beint
í að skipuieggja Grafarvoginn. Við
höfum allar götur síðan búið að
þeirri framsýni sem réð ríkjum frá
1982 til 1994. En við lifum ekki
mikið lengur á því. Nú liggur mikið
við og ég held að allir borgarbúar
skilji innst inni aö R-listinn er búinn
að fá sín tækifæri. “
Sími:
544 4656
Dalvegur 16a • 201 Kópavogur • Pósthólf 564 • Sími: 544 4656
Fax: 544 4657 • Netfang: mhg@mhg.is
5NJOKEÐJUR
Fyrir flestar gerðir vinnuvéla og vörubifreiða
& Jeep
SÍR
PANTANIR
y&BÍLABÚÐ
V7IABBA
:: Tangarhöfóa 2 :: Simi S6716S0 ::
Reykjavíkurborg hefur enga afsök-
un í þessum efnum. Hér er nægt
landrými. Mér finnst staðan aö
mörgu leyti vera svipuð og 1982
þegar Sjálfstæðisflokkurinn endur-
heimti borgina með Davíð í forystu
og fór beint í að skipuleggja Grafar-
voginn. Við höfum allar götur síðan
búið að þeirri framsýni sem réð
ríkjum frá 1982 til 1994. En við lif-
um ekki mikið lengur á því. Nú
liggur mikið við og ég held að allir
borgarbúar skilji innst inni að R-
listinn er búinn að fá sin tækifæri.“
- Hvernig meturðu sigurmögu-
leika ykkar?
Kírkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma
vekja athygli á nýjum símanúmerum
Skrlfstofan í Fossvogi: S:585 2700 - fax:585 2701
Fossvogskirkja:
S:585 2750 - fax:585 2751
Skrifstofan í Gufunesi
S:585 2770 -fax:587 8170 \ u /