Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Qupperneq 51
59
LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002
DV
Helgarblað
Pið munið hann Jörund fumsýnt:
Heil skonnorta
á sviðinu á
Húsavík
Hið sívinsæla leikrit, Þið munið
hann Jörund, eftir Jónas Árnason,
verður frumsýnt á Húsavík í dag,
kl. 16. Þátttakendur eru um Qörutíu
talsins, bæði innan sviðs og utan,
svo það er mikið líf og fjör i Sam-
komuhúsinu á Húsavík þessa dag-
ana. Sá sem heldur traustum hönd-
um í alla kaðla og spotta er Sigurð-
ur Hallmarsson. Auk þess að sjá um
leikstjórn er hann hönnuður leik-
myndar og hún er ekki af lakara
taginu - heil skonnorta á sviðinu
með öllu tilheyrandi. „Óhætt er að
segja að sýningin sé metnaðarfull og
mikil vinna hefur verið lögð bæði í
leik og umgjörð," segir Regína Sig-
urðardóttir, ein af aðstandendum
sýningarinnar.
Trióið Þrjú á palli, með þeim Tró-
els, Þóri og Eddu, sló i gegn á sínum
tíma þegar leikritið var frumflutt. Á
Húsavik verða hins vegar fjögur á
palli. Það eru þau Sigurður Illuga-
son, Erlingur Bergvinsson og Guð-
ný og Bylgja Steingrímsdætur. En
hverjir skyldu vera í hlutverkum
þeirra Charlie Brown og Jörundar
hundadagakonungs? Regína svarar
því: „Sá sem leikur Charlie Brown
er Jóhannes G. Einarsson og Krist-
ján Halldórsson leikur Jörund.
Þetta eru sennilega veigamestu
hlutverkin.
Jörundur hefur áður verið á fjöl-
um þeirra Húsvíkinga. Það var leik-
árið 1969-70 og að sögn Regínu eru
nokkrir þeirra sem þá tóku þátt
með núna líka. -Gun.
Híf’ í allir sem einn!
Charlie Brown og félagar. Þaö er Jóhannes G. Einarsson sem leikur Charlie Brown.
Anna Áslaug á Mozart-tónleikum í Gerðubergi:
Spilar aftur eftir
langt hlé
Anna Áslaug Ragnarsdóttir pí-
anóleikari er stödd á landinu núna
vegna Mozart-tónleika sem haldn-
ir verða í Gerðubergi á morgun,
sunnudag, kl. 17, i tilefni af fæð-
ingardegi tónskáldsins. Með henni
koma fram þau Laufey Sigurðar-
dóttir, sem leikur á fiðlu, Þórunn
Ósk Marinósdóttir, á víólu, og Ric-
hard Talkowsky, selló. Á efnis-
skránni eru meðal annars píanó-
tríó í E-dúr, píanó-sónata í B-dúr,
dúó fyrir fiðlu og víólu i G-dúr og
annað dúó fyrir fiðlu og selló sem
Mozart samdi mjög ungur. „Ég er
þarna bara í tveimur verkum,“
segir Anna Áslaug hógvær, „ein-
leikssónötu fyrir píanó, auk tríós-
ins sem er fyrir pianó, fiðlu og
selló.“
DV-MYND BRINK
Píanóleikarinn
Anna Áslaug ólst upp á ísafiröi og ætlar aö skreppa vestur eftir helgi.
Anna Áslaug hefur búið í Þýska-
landi síðustu 30 árin, lengst af í
Múnchen, og kveðst kunna vel við
sig þar. Hún segist þó oft vera á
ferðinni hér heima, enda eigi hún
hér fjölskyldu og vini. Hún kveðst
lítið hafa spilað siðustu 10-12 árin
af persónulegum ástæðum þar til
nýlega að hún byrjaði aftur. „Ég var
hætt en svo fékk ég upphringingu
héðan að heiman og boð um að taka
þátt í kammermúsíktónleikum. Eft-
ir smáumhugsun ákvað ég að slá til
og síðan hef ég bara haldið áfram.“
Anna Áslaug er dóttir hins
þekkta tónlistarfrömuðar, Ragnars
H. Ragnars, og ólst upp á ísafirði.
Hún kveðst hafa miklar taugar
þangað. „Systir mín er skólastjóri
tónlistarskólans þar,“ segir hún og
bætir við: „Ég ætla að skreppa vest-
ur eftir helgina." -Gun.
DV-MYND E.OL
Dagblöð í skólum
Samstarfsverkefni blaöaútgefenda og fræösluyfirvalda, Dagblöö í skólum, gaf nýlega út kennslubókina Dag-
blaöabókin mín sem er ætluö nemendum í þriðja bekk grunnskóla. í tilefni af því var haldinn fundur meö kenn-
urum þriöja bekkjar á höfuöborgarsvæöinu og bókin kynnt.
Ókurt-
eisastur
allra?
Þeir segja það í er-
lendu slúðurpress-
unni að Russel Crowe
hafl alls ekki látið
frægðina stíga sér til
höfuðs. Þvert á móti
hafi hann alla tíð ver-
ið ákaflega ókurteis
maður. Geoffrey
Wright, leikstjóri sem
vann með Russel fyrir
tíu árum að áströlsku
myndinni Romper
Stomper, hefur látið
hafa það eftir sér að
Russel Crowe sé
ókurteisasti leikari
sem hann hafi nokkru
sinni unnið með. Þeg-
ar Crowe heyrði þetta
varð hann ævareiður:
„Ég umgekkst hann í
átta vikur af ævi
minni! Hvemig vogar
hann sér að dæma mig
af þeim tíma!“
Nektardansmeyjarnar á nætur-
klúbbnum Scores í New York þurftu
engar vikur til þess að kveða upp
sinn dóm yfir leikaranum. Ein
þeirra tjáði sig við New York Post
og sagði frá því að Russel Crowe
hefði komið inn á næturklúbbinn,
hent 3.500 pundum í þrjár nektar-
Russel Crowe:
dansmeyjar og reynt i staðinn að fá
þær úr nærbuxunum (sem er bann-
að samkvæmt lögum). „Stelpurnar £
voru hissa á því hversu lágvaxinn
hann er,“ sagði heimildarmaður,
„og hvað hann er hrikalega ókurt-
eis.“
Efhún
er ekkl
inni
skalég
hundur
heital