Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Qupperneq 56

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Qupperneq 56
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREISEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 /■> EM í Svíþjóð: Dramatík í leik fyrsta „Eg er mjög svekkt Ig er mjög svekktur því viö vor- um meö unninn leik. Ég er líka afar óhress meö frammistöðu dómar- anna undir lok leiksins. Við verðum hins vegar að ýta því til hliðar og fara að hugsa um næsta leik gegn Slóvenum," sagði Guðmundur Guð- mundsson, þjálfari íslenska lands- liðsins í handknattleik í gærkvöld. íslendingar og Spánverjar skildu jafnir, 24-24, í fyrsta leik liðanna á Evrópumótinu í handknattleik í Skövde í Svíþjóð í gærkvöldi. Leik- urinn endaði á dramatískan hátt því íslenska liðið hafði tveggja marka forystu, 24-22, þegar stutt var eftir. Spánverjar sýndu mikla þrautseigju og náðu að jafna leik- inn, 24-24, með skoti utan af velli þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka. íslenska liöið hyggst kæra um- deilt atvik í leiknum en leikklukkan stöðvaðist í tíu sekúndur þegar leiknum var að ljúka. Ákvörðun um kæru hafði þó ekki verið tekin þeg- ar blaðið fór i prentun. íslendingar mæta Slóvenum í dag klukkan 16 og verður leiknum lýst á vefnum dvsport.is en þar er jafn- framt að finna allar upplýsingar um Evrópumótið í handknattleik. -ósk/aþ DV-MYND PJETUR Vonsviknir leikmenn íslenska landsliöiö missti niöur tveggja marka forskot á síöustu sekúndum í leiknum gegn Spánverjum í gærkvöidi. Leikurinn, sem var sá fyrsti á Evrópumótinu í handknattleik, endaöi meö jafntefli, 24-24. Guöjón Valur Sigurösson, Rúnar Sigtryggsson, Ólafur Stefánsson og Sigfús Sigurösson sjást hér niöurlútir og þreyttir eftir hörkuleik. S j ávarútvegsráðherra: Lítill tími til stefnu „Þetta eru mikil tiðindi," segir Ámi Mathiesen sjávarútvegsráðherra um sameiginlegar tillögur sjómanna og útgerðarinnar um takmörkun á framsali aflaheim- ilda. Sjávarútvegs- ráðherra segir að næst á eftir gjald- tökunni sé þarna um að ræða mesta deilumálið í sjáv- arútvegi og því sé gríðarlega brýnt að reyna að ná sátt í málinu. „Maður verður að huga mjög alvarlega að því þegar þessir aðiiar sameinast í tillög- um,“ sagði Ámi i samtali við DV í gær. Ekki er þó mikiil timi til stefnu því stefnt hefur verið að endurskoðuðu frumvarpi um sjávarútveginn fyrir þinglok. Því mun ráðuneytið bregðast hratt við að sögn sjávarútvegsráð- herra og yfirfara tillögumar. Einn er sá hópur sem lýsir efa- semdum um samkomulagið en það eru eigendur smábáta. Þeir lýsa áhyggjum yfir því að bátar þeirra verði nú verðminni en ella en Árni vill ekki tjá sig um einstakar hliðar málsins fyrr en að lokinni frekari yf- irlegu. -BÞ Húsasmiöjan: Seinheppinn stal skópari - gómaður af hliðverði Hann var seinheppinn, þjófúrinn sem stal skópari í verslun Húsasmiðj- unnar við Skútuvog á fimmtudags- morgun. Meö feng sinn hljóp hann út úr verslunni og ætlaði í var í timbur- porti íýrirtækisins við Súðarvog. Þá hafði hliðvörðurinn, Víðir Péturssson, fengið símhringingu um að þjófurinn væri á harðahlaupum inn í portið þannig að höfö vom snör handtök. | ^ „Þetta var eitthvert grey,“ sagði Víð- ir hliðvörður sem vissi ekki hverrar gerðar skómir vom. Hann sat ofan á kauða svolitla stund uns lögreglan kom á vettvang og tók hann í sína vörslu. í samtaii við DV gerði Víðir lít- ið úr afreki sínu og sagði ekki mikla líkamsburði hafa þurft til þess að fergja þjófmn en hliðvörðurinn er enginn aflraunamaður, að eigin sögn. -sbs Velti bíl Ökumaður velti bíl sínum á gatna- mótum Eyrarbakka- og Þorlákshafn- arvegar í gærkvöld. Flytja þurfti bíl- inn á brott með kranabíl. Ökumaður- inn var fluttur á sjúkrahús á Selfossi ir V og þaðan í yfirheyrslu hjá lögreglu, en grunur er um ölvunarakstur. -sbs Landsvirkjun ræður ekki óstudd við hugmyndir um aukna stækkun í Straumsvík: Myndi kalla á gríðar- legar framkvæmdir - segir Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar Álverið í Straumsvík Forráöamenn Alcan á Islandi hafa rætt viö Landsvirkjun um hvort mögulegt sé aö auka framleiöslugetu álversins í Straumsvík. „Það er alveg ljóst að Lands- virkjun ræður ekki ein við að útvega það raf- magn sem þarf til bæði Norðuráls á Grundartanga og Alcan á íslandi í Straumsvík. Jafnframt yrði aö koma til rafmagn úr gufuaflsvirkunum Hitaveitu Suö- umesja og Orkuveitu Reykjavíkur," segir Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar. Forráðamenn Alcan á íslandi hafa rætt við Landsvirkjun um hvort mögulegt sé að auka fram- leiðslugetu álversins í Straumsvík um 460.000 tonn í stað 400.000 tonna. Fyrirtækið er að fara í umhverfis- mat og hagkvæmnisat- hugun til að geta á síð- ari stigum tekið þessa ákvörðun og er með þessu útspili að kanna framtíðargrundvöll- inn. Upplýsingafull- trúi ÍSAL segir að ekki sé um neina ákvarð- anatöku að ræða held- ur bara hugmyndir. Friðrik segir • að tæknilega sé hægt að útvega þá orku sem þarf ef allir leggi saman en vitaskuld verði að gera fyrirvara um tímasetningar. „Það þarf að kanna sérstaklega getuna til að fara í öll þessi verkefni sem fyrirhuguð eru í einu og eins verður að hafa þann fyrirvara að flestar virkjanim- ar eiga eftir að fara í mat á um- hverfisáhrifum. Könnun okkar hef- ur fyrst og fremst verið tæknilegs eðlis en við höfum átt þessar við- ræður við Alcan og þær munu halda áfrarn," segir forstjóri Lands- virkjunar. Ljóst er að ef til þessa kemur til viðbótar því sem fyrir er í pípunum þarf að efna til gríðarlegra fram- kvæmda, að sögn Friðriks, þar sem Þjórsá myndi væntanlega verða í stóru hlutverki. Aðrir fag- menn á þessu sviði eru sammála um að mjög erfitt verði að sinna þess- um hugmyndum en þó breyti útspil Alcan ekki endilega fyrirætlunum um Kárahnjúkavirkjun. Þar er um allt annað orkusvæði að ræða en í hinum tilfellunum en hins vegar hafa hagfræð- ingar sett spurningarmerki við þætti, svo sem verðbólguáhrif svona umfangsmikilla framkvæmda og þá sérstaklega ef mörg járn verða í eld- inum í einu. Eins eru umhverfls- áhrifin að miklu leyti ókönnuð, sem og samningar um orkuverð. Tímasvið framkominna hug- mynda í orkumálum nær til næstu tíu til fimmtán ára. -BÞ Breiðholt: Brottnám drengs rannsakað - var með áverka þegar hann skilaði sér Lögreglan í Breiðholti rannsakar nú brottnám sex ára drengs af lóð Fellaskóla síðdegis í gær. Talið er að hann hafi verið numinn á brott um klukkan 14 en hann skilaði sér aftur eftir um tvær klukkustundir, eða um klukkan 16. Haft var sam- band við lögreglu klukkan 16.15 vegna málsins og fór hún þá strax í málið. Hefur rannsókn á málavöxt- um staðið yfir síðan. Hvað raun- verulega gerðist er óljóst og frásögn- um ber ekki saman, segir lögreglan. Nokkrir áverkar sjást á drengnum. Séð yfir Breiöholtiö. „Við höldum rannsókn áfram þar til staðreyndir málsins liggja fyrir sem ég vona að verði öðru hvorum megin við helgina. Það er alvarleg- ur áburður í málinu og drengurinn er með áverka," segir Þórður Eric Hilmarsson, rannsóknarlögreglu- maður í Breiðholti, í samtali við DV. Þorsteinn G. Hjartarson, skóla- stjóri Fellaskóla, vildi, þegar eftir því var leitað, ekki tjá sig um málið á meðan það væri til rannsóknar hjá lögreglu. Óhugur er í foreldrum í Breiðholti sem blaöið ræddi við vegna þessa máls í gærkvöld. -sbs brother P-touch 9200PC Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni Samhæft Windows 95, 98 og NT 4.0 360 dpi prentun 1 til 27 mm letur Strikamerki Rafport Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 •Veffang: www.if.is/rafport IGitarinnl ☆ Stórhöfða 27, *fc ^ s. 552 2125. fc ik ^ U ÍEJZnALb/nABiIr icki^icfcickicki?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.