Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2002, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2002, Blaðsíða 10
Fatboy Slim snýr aftur Nýlega kom út plata með plötusnúðatónleik- um Fatboy Slim sem tekin var upp á ströndinni í Brighton siðasta sumar. Brighton er heimabær stráksins og jafnframt höfuðvígi big beat-tón- listarinnar þar sem bæði Skint-útgáfan og Big Beat Boutique-klúbbur- inn hafa þar aðsetur. Uppákoman heppnaðist vel en talið er að 35.000 manns hafi mætt til þess að hlusta á skífuþeyt- ingarnar. Það stefnir í að þetta verði árlegur viðburður því að búið er að ákveða að endurtaka leikinn íjúlí nk. Annars er Fatboy að koma úr fríi og er þessa dagana að vinna með Blur að næstu plötu þeirra og svo hefur hann í hyggju að endurvekja Mighty Dub Katz aukasjálfið sem hann notaði þegar hann gerði latin-house tónlist á tfunda-áratugnum. Næsta Fatboy Slim-plata með nýju efni verður svo tekin upp íhaust. Badly Drawn Boy með tvær plötur í vinnslu Önnur ptata Damon Gough, i gervi Badly Drawn Boy, er væntan leg i apríl. Það er tónlist við kvik- myndina About A Boy og innihetd- ur platan 16 lög, þ. á m. smáskifu- lagið Silent Sight sem verður gefið út 25. mars. Damon er annars kom inn á fullt með næstu plötu, hann er búinn að taka upp 20 lög fyrir þriðju plötuna sem hefur fengið vinnuheitið Oh Possibilities. Hann hefur líka lýst því yfir að samstarf með New York-sveitinni The Strokes sé h'klegt cinhvern tímann á næstunni en hann hefur verið mikill Strokes-aðdáandi lengi og bauð sveitinni að hitta sig þegar hann hélt leynitónleika í London síðasta sumar. Thievery fer höndum um upptökusafn Ver- VE-ÚTGÁFUNNAR Nýlega kom út plat- an Sounds From The Verve Hi-Fi en á henni eru lög sem Islandsvin- irnir í Thievery Cor- poration völdu úr upp- tökusafni Verve-útgáf- unnar sem þekktust er fyrir útgáfu á gæða djasstónlist. Nafnið á safninu er auðvitað tilvi'sun í plötu Thievery Sounds From the Thievery Hi-Fi. Platan inniheldur mikið af latin djass (samba, bossa nova...), en eins og þeir vita sem hafa hlustað á afurðir Thievery sækja þeir félagar mikið í þessa tónlist. Þeir Rob Garza og Eric Hilton skrifa báðir smáritgerðir í ptötubæklinginn. Á meðal flytjenda á plötunni eru Stan Getz, Sergio Mendez, Richie Havens, Chico Hamilton, Cal Tjader og Astrud Gilberto sem tekur sína margrómuðu útgáfu á Doors-slagaranum Light My Fire. AMERICAN IV MEÐ JOHNNY CASH í FÆÐINGU Það voru margir yfir sig hrifnir þegar Johnny Cash gerði st'nar útgáfur á tögum með Nick Cave, Soundgarden, Will Oldham o.fl. á plötunni American III Solitary Man. Nú er plata númer fjögur í American-röðinni t' vinnslu og á meðal þeira laga sem Rick Rubin og Johnny Cash hafa valið t þetta skiptið eru Hurt með Nine Inch Nails, Imagine með John Lennon, Norwegian Wood Bítlanna og The First Time I Ever Saw Your Face með Robertu Flack. Það er stefnt að því að platan komi út ísumar. Johnny Cash er annars nýordinn sjö- tugur og af þvítilefni koma út á vegum Sony nokkrar nýjar safnplötur, þ. á m. The Essential Johnny Cash og Kindred Spi- rits sem er tribút- ptata þar sem Bruce Springsteen, Bob Dyl- an o.fl. taka lög eftir svartklædda mann- inn. plö^udómai 1 „Jtt * 4 éC Js Flytjandi: | Boards Of Canada jlTf Platan: ! ; Útgefandi: Warp/Smekkleysa Lengd: 66:06 min Flytjandi: A Silver Mt. Zion Platan: Born Into Trouble Útgefandi: Constellaúon/ Hljómalind Lengd: 58:25 min. Bandaríski tónlistarmaðurinn Jim O'Rourke á að baki einstakan feril sem bæði inniheldur spuna og tilraunatónlist og rokktónlist. Seint á síðasta ári komu út tvær plötur með honum sem endurspegla þessar ólíku hliðar. Trausti Júiíusson forvitnaðist um manninn sem síðustu misseri hefur verið fimmti meðlimur Sonic Youth. Öllum möguleikum haldi ð opnum Seint á síðasta ári komu út tvær nýjar plötur með bandaríska tónlistarmann- inum Jim O’Rourke. Önn- ur þeirra, Insignificance, kom út hjá Domino-fyrir- tækinu og hefur að geyma aðgengilegri rokktónlist en hin, I’m Happy And I’m Singing And A 1, 2, 3, 4, sem Mego gaf út, inniheld- ur tilraunakennda tónlist sem er eingöngu unnin á Powerbook-tölvu. Insigni- ficance er af mörgum talin ein af bestu indie-rokk- plötum síðasta árs. Hún hef- ur verið ófáanleg á íslandi en er nú nýkomin í plötu- verslanir hérlendis. Abstrakt popp Jim O’Rourke er fæddur í Chicago árið 1969. Hann hefur komið mjög víða við tónlistarlega. Sumt af því sem hann hefur gert er í djass-geiranum, annað er raftónlist, þjóðlagatónlist, hrein tilraunamennska eða spuni, en svo hefur hann líka sent ffá sér plötur með hefðbundnari rokktónlist. Oft hefur hann líka byggt brýr á milli þessara ólíku tónlistarheima sem einhvem tímann varð til þess að tónlistin hans var kölluð abstrakt popp. Jim fékk strax f æsku mjög mikinn áhuga á tónlist og hefur alltaf verið sérstaklega opinn fyrir hinu ókannaða. Á meðal þeirra platna sem mótuðu hann á unglingsárunum má nefna Discreet Music sem er naumhyggju-raftónlist úr smiðju ffum- kvöðulsins Brians Enos og svo Lot 74 með spunahetjunni Der- ek Bailey. Alla tíð frá því að Jim hóf sjálfur að búa til tónlist hefur hann haldið öllum möguleikum opnum og lagt sig fram um að fara ótroðnar slóðir. Fimmti meðlimur Sonic Youth J im O’Rourke er gítarleikari og tónsmiður. Hann hefur unn- ið með hljómsveitum eins og Red Krayola, þýsku sveitinni Faust, Stereolab, Smog og svo Sonic Youth en undanfarið hef- ur hann verið fimmti meðlimur þeirra. Hann gerði m.a. með þeim plötumar SYR3 og Goodbye 20th Century og hann var nýbyrjaður að vinna með þeim að nýrri plötu þegar hörmung- amar 11. september skullu á en hljóðver Sonic Youth er í námunda við World Trade Center. Jim var staddur f stúdíóinu þegar ósköpin dundu yfir. Öll vinna við plötuna frestaðist vegna at- burðanna en þessa dagana eru þau að leggja lokahönd á gerð hennar og Jim er eins og áður fullgildur meðlimur og með-pródúser. Jim hefur líka unnið með spunatónlistarmönnum eins og Derek Bailey, Henry Kaiser og Eddie Prevost. Hann stofnaði tilrauna- rokksveitina Gastr Del Sol meðDavid Grubbs árið 1991 en sú sveit á að baki fimm mjög áhugaverðar plötur sem komu út á árunum 1994-1998. Undanfarin ár hefur Jim samt helgað sig meira sínum eigin sólóplöt- um en merkastar þeirra em Bad Timing og Happy Days frá 1997, Eureka frá 1999 og svo áðumefnd Insingni- ficance frá því í fyrra. Merkingarlaust? Jim O’Rourke hefúr sér- stakt dálæti á kvikmynda- leikstjóranum Nicolas Roeg en eins og Eureka og Bad Timing heitir Insignificance eftir einni af kvikmyndum hans. Platan hefur að geyma sjö mjúk og vel mótuð popplög sem einkennast af flottum gítarriffum, fal- legum píanóleik og ljúfum poppmelódíum. Platan er engan veginn byltingarkennd en Jim tekst að því er manni virðist al- veg fyrirhafnarlaust að búa til klassíska poppplötu sem rennur þægilega í gegn. Þetta er ein af þessum plötum sem maður hef- ur á tilfinningunni að ekki væri hægt að bæta neinu við - hún er fullkomin eins og hún er. Á plötunni leika með Jim m.a. þeir Jeff Tweedy úr Wilco og Rob Mazurek og Ken Vandermark úr Chicago Underground. Það hafa sumir verið að leika sér að því að lesa í nafn plötunn- ar. Þetta er tilgerðarlaus poppplata og kannski lítils virði eða merkingarlaus (“insignificant") miðað við sum fyrri verk Jims 0”Rourke. Svo eru líka textamir, að sögn Jims, merkingarlaus- ir en sá fyrsti hefst á orðunum:„Don’t Believe A Word I Say/Not That You Would Anyway/I May Be Insincere/But It’s All Downhill From Here“... hva8 fvrir skejnuntileaar —1 niðurstaða hvern? staðreyndir Geogaddi er önnur plata breska dúós- ins Boards of Canada sem er skipaö þeim Michael Sandison og Marcus Eoin, en fyrri platan Music Has The Right To Children sem kom út í aprfl 1998 þótti mikiö snilldarverk og var víöa á listum tónlistargagnrýnenda yfir bestu plöturnar það áriö. Þetta er frekar hæggeng en fönkí raf- tónlist meö miklum sýruáhrifum og ætti aö höföa til allra þeirra sem hafa áhuga á hugmyndarikri raftónlist, hvort sem við eru aö tala um Aphex Twin, Air, Atom Heart, Pan Sonic, múm eöa Trabant. Þeir Michael og Marcus hafa þekkst frá barnæsku og hafa verið að búa til tónlist saman í ýmsum myndum frá seinni hluta áttunda áratugarins. Þeir eiga aö baki ótal tilraunakenndar tón- smíðar og geröu m.a. mikið af tónlist við kvikmyndir. Þeir gáfu út töluvert af tónlist sem þeir fjármögnuðu sjálfir áöur en þeir gengu til liös við Warp út- gáfuna í ársbyijun 1998. Þetta er alveg mögnuö plata og fyrsta meistaraverk ársins. Tónlistin er fram- sækin en um leiö mjög aðgengileg og poppuö. Þessi 23 lög eru samfellt ferðalag um flotta takta og hugmyndrik sánd. Inn á milli heyrast raddir, t.d. op- inberar tilkynningar eöa barnsraddir og misbjagaður söngur. Útkoman er hrein snilld. trausti júliusson Þetta er önnur plata A Silver Mt. Zion sem er eitt af hliöarverkefnum meö- lima Godspeed You Black Emperor. Á fyrri plötunni He Has Left Us Alone But Shafts Of Light Sometimes Grace The Corner Of Our Rooms voru þau þrjú, en nú eru meðlimirnir orðir sex auk gesta og tónlistin nokkuö fjölbreyttari. Þetta er auðvitað plata fýrir alla þá sem ætla aö mæta á tónleika God- speed You Black Emperor í næstu viku. Þeir sem eiga Godspeed plöturn- ar ættu að tékka á þessari. Hér eru þaö fiölur, selló og planó sem eru mest áberandi og yflrbragðið á þessari tónlist minnir oft á klassíka tónlist. Þau kalla tónlistina .kviöafullar sinfón- íur. Þaö eru þau Efrim (gítar/píanó), Sophie (fiðla) og Thierry (bassi) úr Godspeed sem eru í A Silver Mount Zion Memorial Orchestra & Tra-la-la Band eins og sveitir heitir fullu nafni, en auk þeirra eru Beckie, lan og Jessica meölimir en þau spila á gítar, fiðlu og selló. Sveitin spilaöi töluvert á tónlelkum á síöasta ári. Fyrri platan var frábær. Tónlistin var nokkuö einfaldari og á heildina fallegri, en þessi plata er kraftmeiri og drama- tískari. Þessi tónlist er nokkuö sér á báti og þeir sem hafa áhuga á forvitni- legri tónlist ættu að leggja við hlustirn- ar. Það eru mörg mögnuð stykki hér, en persónulega finnst mér instúmental lögin flottari en þau sem sungiö er í. trausti júlíusson 10 8. mars 2002

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.