Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2002, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2002, Blaðsíða 14
Undanfarin misseri hefur verið mikið rætt og ritað um sífelldar komur breskra ungmenna til íslands sem vilja kynna sér næturlífið í Reykjavík. Miðborgin hefur verið auglýst sem skemmt- analífsparadís og á tíðum hefur vart verið þverfótað fyrir erlendum skemmtanafíklum í bæn- um. En hver er ástæðan fyrir þessu? Er næturlífið í London virkilega svona slæmt? Fókus skellti sér út á lífið í London í síðustu viku. Hvað eiga Frikki Weiss, Dorrit Moussaieff, Seð og heyrt og Gulli Helga sameiginlegt? Það er góður hópur sem er samankominn í Leifsstöð að morgni [iriðjudags. Flugstöðin er fámenn á þessum tíma dags og flestir koma sér fyrir í matsalnum eða í biðsaln- um fyrir brottför. Nærvera Dorritar Moussaieff er eitt af því sem lífgar upp á þennan annars grámyglulega morg- un. Hún klæðist leðurbuxum og er á leið til London eins ogvið. Á Heathrow-flugvelli er þó nokkur bið eftir töskun- um. Dorrit fær sínar fljótt og það kannski ekki að ástæðulausu - þær eru merktar President of lceland. Bið- in er þó fljótlega fyrirgefin þegar komið er út úr flugstöð- inni og við fólkinu blasir eitt stykki limmúsína sem ferja á mannskapinn niður í bæ. ÍSLENDINGAR í ÚTLÖNDUM Andrúmsloftið í limmúsínunni er hreint ótrúlegt. Þama hefúr verið smalað saman fólki af nokkuð ólfku sauðahúsi sem þó á það sameiginlegt að vilja kynna sér skemmtanalífið. Þama eru nokkrir veitingamenn bæjar- ins með Friðrik Weisshappel fremstan í flokki hvað frægð varðar, útvarpsmógúllinn Gulli Helga er fulltrúi Bylgj- unnar og þau Margrét Rós og Jón Þór tökumaður eru fulltrúar Skjás eins. Fæstir viðstaddir hafa líklegast upp- lifað það að stíga inn í svona farartæki og eins og Islend- inga er siður nýta menn sér það til hins ítrasta. Förinni er heitið á lítið ítalskt veitingahús og þar hefjast veislu- höldin. Yfir máltfðinni má sjá öll helstu einkenni ís- lendinga í útlöndum: misgóð enska, sjálfskipaðir skemmtikraffar og að sjálfsögðu er einn orðinn of fullur. Tunglið og Rex í London Um kvöldið er komið að alvöru málsins. Fram undan er flakk um nokkra af helstu klúbbum borgarinnar og þá þarf fólk að vera í rétta gírnum. Þegar sest er inn í bílana fyrir utan hótelið tilkynnir Friðrik Weisshappel hátíðlega að hann sitji fram í og fellur snarlega í augljósa gryfju. Kappinn veit ekki fyrr en hann hefur tyllt sér inn bíl- stjóramegin. Frikki uppsker hlátur viðstaddra og hlær manna mest sjálfur. Fyrsti viðkomustaðurinn er gamalt leikhús sem búið er að innrétta sem klúbb til hálfs. Ekk- ert má hrófla við gömlu leiksætunum og því er staðurinn einkennileg blanda af Tunglinu sáluga og íslensku óper- unni. Afar furðuleg blanda ef út í það er farið. Þær breyt- ingar sem lagt hefur verið í eru heldur ekki til að hrópa húrra fyrir, veitingamennimir íslensku eru í það minnsta ekki mjög hrifnir. Á þessum tímapunkti hafa útsendar- ar Séð og heyrt bæst í hópinn og vekur það eftirtekt að ljósmyndarinn, Sigurjón Ragnar, hefur nælt sér í viður- nefnið Dragon hjá innfæddum. Ekki dónalegt viður- nefni það. Næst er haldið á heldur skemmtilegri klúbb sem er staðsettur í bankahverfinu og ber heitið Nylon. Innrétt- ingamar eru í stíl áttunda áratugarins og þarna hefur fólki tekist vel til. íslendingunum verður á orði að Nylon sé nokkurs konar Rex með sál. Hellt yfir Culla Helga Það kemur fljótlega í ljós að þriðjudagskvöld eru ekki aðalkvöldin í London eins og gefur að skilja. Ekki má taka því sem svo að það sé einhver kaffihúsastemning eins og heima - fólk sækir frekar ákveðna klúbba sem bjóða upp á dansstemningu það kvöld. Stefnan er nú tekin á lítinn stað sem mikið hefur ver- Það var rolegheita 70’s stemning á Nylon sem var staösettur í bankahverfinu. Gulli Helga ktifrar inn í limmósfnuna sem beið Islendinganna á Heathrow. íslendingarnir skáru sig nokkuð úr á ein- um stað þar sem bara voru „pakistan- ar“ eins og einhver kallaði þá. texti: Höskuldur Daði Magnússon - fókusmyndir: Hari f ó k u s ið lagt í innréttingarnar - svo mikið að myndatökur eru harðbannaðar þar alla jafna. Að sjálfsögðu er gerð undan- tekning fyrir lslendingana og upp spinnast umræður um lögmæti slíkra myndatakna. Frikki Weiss býðst að sjálf- sögðu til að taka málstað þeirra enda er Kaupfélagið þekkt fyrir þá stefnu sína. Á þessum stað ber það hæst að þegar þjónninn færir gestunum drykkina tekst honum á ein- hvem óskiljanlegan hátt að hella heilum bakka yfir Gulla Helga. Gulli tekur þó atvikinu af stakri karl- mennsku og þakkar eflaust guði fyrir að hafa mætt í svörtum buxum þetta kvöld. Fyrsti dansstaðurinn Fram að þessu hefur verið rólegt yfir stöðunum sem sóttir hafa verið en það breytist fljótt þegar komið er inn á þann næsta. Þar á maður í mestu vandræðum með að komast leiðar sinnar. Þótt þessi klúbbur sé stappaður af fólki er samt mjög sérstök stemning sem íslendingar eiga ekki að venjast. Fyrir utan hræðilega júrópopptón- list er staðurinn fullur af því sem Ali G kallar „Pakistan- is“. Þama er sem sagt ótrúlegur fjöldi ungra krakka sem eiga það sameiginlegt að vera af erlendu bergi bromir. Hvað sem því líður er stemningin góð og allir eru dans- andi. Þegar fjölmiðlamenn frá Islandi munda myndavél- 14 8. mars 2002

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.