Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2002, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2002, Síða 10
10 K/PA^/Cf'Éa rnror 3-5 ára Jón T. Harðarson Dagbjört A. Magnúsdóttir Þórhallur Ö. Ragnarsson 6—9 ára Gíslunn Hilmarsdóttir Björk Úlfarsdóttir Gunnar T. Steinarsson 10-12 ára Þórunn B. Heimisdóttir Auður Ó. Hlynsdóttir Valdís Steinarsdóttir Nr. 18216 Nr. 15879 Nr. 14568 Nr. 12455 Nr. 18047 Nr. 18738 Nr. 12758 Nr. 7894 Nr. 17749 Krakkaklúbbur DV og Penninn óska vinningshöfum til hamingju. Vinningshafar nálgist vinninginn hjá Þjónustuveri M ( \ ' , DV, Skaftahlíð 24, fyrir 1. júní. (s S/ í- Kveðja. Tígri og Halldóra TOYOTA Handlyftarar KRAFTVÉLAR Dalvegur 6-8 • 200 Kópavogur • Slmi 535 3500 • Fax 535 3501 haraldur@kraftvelar.is • www.kraftvelar.is H®ifrúii Sigur§>®ird<sttir nr. Hélm®r D®ve>i Skúlmsn nr. <J@h<svnn T. GuSmundss@n nr. @1S89 @rv<ar Snosr f>r<sv8t<svr8@n nr. 80S2 P@itrekur P. Pétursson nr. 1 §069 Trgggvi H. Jénssen nr. 1 S©28 S@r\j<sv Rún Kiernom nr. 18S48 Bjcárgvín G. Bj@rgvinss@n nr. S&&S Gunn©tr Bj@rn <ál<svfss@n nr. 1428S Andri F®tnn@r Gue>mundss@n nr. 121S2 «5igríe>ur <J@nsd@ttir nr. ©4S2T f»@rir @rn Þérissen nr. 1 79®2 Ann® PlovríGA nr. 19S9@ Evcsv IVI<SkrI<sv ©rn@If sd@ttir nr. 1 SS@2 D@vvíe> Þ. Gunn<svrss@n nr. 192ST Krakkaklúbbur DV og Skífan óska vinningshöfum til hamingju. Vinningshafar nólgist vinningana í Þjónustuveri DV, Skaftahlíð 24. fyrir 1. júní Þökkum þótttökuna. Kveðja. Tígri og Halldóra Ulubour Útlönd MÁNUDAGUR 22. APRÍL 2002 DV Forsetakosningarnar í Frakklandi: ESESESSSM Le Pen sigr- aði Jospin Mikil ólga er nú í Frakklandi eftir að hægri öfgamaðurinn Jean- Marie Le Pen tryggði sig öllum á óvart áfram í aðra umferð frönsku forsetakosninganna, sem fram fara 5, maí nk., þar sem hann mætir Jacques Chirac, forseta Frakklands, frambjóðanda hægri flokks Gaull- ista, sem sigraði örugglega í fyrri umferðinni í gær. Þátttakan í kosningunum var frekar dræm, eða um 70%, og hlaut Chirac 19,62% greiddra atkvæða, Le Pen 17,07% og Jospin 16,04%. Niðurstaðan er mikið áfali fyrir Lionel Jospin, forsætisráðherra landsins og frambjóðanda jafnaðar- manna, sem þegar hefur tilkynnt að hann muni hætta afskiptum af stjórnmálum eftir seinni umferð kosninganna. Það var strax ljóst í hvað stefndi þegar fyrstu tölur voru birtar í gærkvöld og þegar um helmingur atkvæða hafði verið talinn hafði Chirac fengið 19,8% greiddra at- kvæða, Le Pen 17,2 og Jospin 15,3. Það er langt frá niðurstöðum síðustu skoðanEikönnunar sem birt var daginn fyrir kosningar þar sem Le Pen mældist með tæp 14 prósent á móti 18 prósentum Jospins. Jafnaðarmenn hafa þegar hvatt stuðningmenn sína til að styðja Chirac í síðari umferð kosninganna og koma þannig í veg fyrir það slys að Le Pen nái kosningu. Viðbrög við úrslitunum létu ekki á sér standa og kom strax til mót- mæla í öllum stærstu borgum lands- ins þar sem ungir stuðningsmenn jafnaðarmanna fjölmenntu á götum úti, klæddir bolum með áletruninni „Við skömmumst okkar.“ RETURSMYND Le Pen grelðlr atkvæði sltt Hægri öfgamaöurionn Le Pen komst öllum á óvart áfram i seinni umferö forseta- kosninganna í Frakklandi meö sigri á jafnaöarmanninum Lionel Jospin. Umsátrið um Fæðingarkirkjuna: Fimm tókst að flýja í skjóli myrkurs Fimm Palestínumönnum tókst i gærkvöld í skjóli myrkurs að flýja út úr Fæðingarkirkjunni í Betlehem þar sem um 250 manns hafa hafst við síð- ustu þrjár vikurnar í umsátri ísraels- manna. Mennimir notuðu stiga við flóttann en þá höfðu ísraelsmenn reist upp við veggi kirkjunnar í tilraunum sínum til að komast inn fyrir veggi hennar. Matarbirgðir munu vera þrotnar í kirkjunni og ekkert rennandi vatn að hafa. Ástandið er því ömurlegt og að sögn milligöngumanna kom upp ósætti í hópnum um helgina en í hon- um eru, auk óbreyttra borgara, um 40 prestar og nunnur og 30 meintir hryðjuverkamenn sem ísraelar vilja fá framselda. Hafa sumir i hópnum hótað að binda enda á líf sitt frekar en að gefast upp. Palestínskur lögreglumaður, sem er í kirkjunni, sagði í farsímaviðtali í gær að ástandið væru skelfilegt og að Israelskar drápsvélar Matarskortur er farinn aö segja til sín meöal 250 Palestínumanna sem hafast viö í Fæöingarkirkjunni í Betlehem. ísraelar hefðu komið í veg fyrir að þeim bærust matvæli. „Við höfúm eingöngu lifað á hrísgrjónum og spag- ettí en nú er það uppurið." Páfi ítrekar hreinlífi ■ Þrettán kardinál- ar kaþólsku kirkj- unnar í Bandaríkj- unum munu hitta páfa á fundi í Róm á morgun þar sem staða kirkjunnar í Bandaríkjunum verður rædd eftir bamamisnotkunar- málin sem komið hafa upp hvert af öðru þar í landi og hvemig byggja megi aftur upp traust fólks til kirkj- unnar. Páfi sagði í gær að prestar yrðu að ástunda hreinlífi sem væri fórn þeirra til trúarinnar. Þeir yrðu að sýna gott fordæmi. ÍRA afneitar getgátum Talsmenn írska lýðveldishersins, ÍRA, mótmæltu í gær þeim getgátum lögregluyfirvalda að samtökin væru með árásir á stjórnmálamenn og breskar herstöðvar í undirbúningi og sögðust standa við gert friðarsam- komulag sem gerir ráð fyrir afvopn- um ÍRA-samtakanna í áföngum. Þeir neitðu einnig að ÍRA hefði staðið fyr- ir innbrotinu í Castlereagh-lögreglu- stöðina i Belfast í síðasta mánuði þar sem ýmsum leyniskjölum var stolið. Helmingurinn í dópinu Samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar í Bretlandi hefur meira en helmingur ungmenna þar í landi, sextán ára og eldri, neytt ólög- legra eiturlyfja. Þar kemur einnig fram að fimm milljónir noti kannabis- efni reglulega og um tvær milljónir noti regluiega alsælu, amfetamin og kókaín. Þetta þýöir að meira en fjórð- ungur ungmenna þjóðarinnar notar ólögleg efni sem hlýtur að kalla á átak gegn bölinu og endurskoðun laga. ETA vaknar til iífsins Aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, stóðu á laugardaginn fyrir sprengju- tilræði í Baskahéruðum Spánar, við glæsibæinn Getxo í nágrenni Bilbao. Maður hringdi til lögreglunnar og varaði við sprengingunni og tókst að rýma næsta nágrenni áður en hún sprakk. Aðgerðir ETA hafa orðið um 800 manns að bana síðan árið 1968 en að undanfórnu hefur lítið farið fyrir þeim en fyrr í mánuðinum viður- kenndu samtökin morð á bæjarráðs- manni sósíalista í smábæ á Norður- Spáni. Schröder tapar fylgi Samkvæmt niðurstöðum skoðana- urinn fær 18,5% fylgi í könnuninni og tapar um helmingi fylgis síns frá því í kosningunum 1998. Það eru kristilegir demókratar, CDU, sem njóta góðs af en þeir fengu 37,5% sem er um 15% aukning frá 1998. Þá tapar hægri öfga- flokkurinn, DVU, öllu sínu fylgi sem var um 13% í síðustu kosningum. Farum-uppskriftin fer víöa Samkvæmt fréttum danska blaðs- ins Politiken hefur Farum-uppskrift- in, sem gengm- út á einkavæðingu bæjarfélaga, breiðst víða út í Dan- mörku en samkvæmt úttekt blaðsins hafa minnst sextán bæjarfélög selt eignir fyrir meira en fimm milljónir danskra króna. í úttektinni kemur einnig fram að meira en fjörutíu bæj- arfélög hafa selt einhverjar eignir og siðan leigt þær aftur af kaupanda. Farum-uppskriftin er því útbreiddari en nýlega kom fram í danska þing- inuþar sem innanríkisráðherrann upplýsi þingheim um sex dæmi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.