Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2002, Side 28
Allianz (jfi)
- Loforð er loforð
Verkalýðshreyfingin stórhækkar gjöld:
Orlofshús VR
hækka um 42%
- félögum send ávísun til að mæta hækkun
Leiguverð orlofsíbúða Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur á kom-
andi sumri hækkar upp í 17.000
krónur, eða um nær 5.000 krónur,
sem samsvarar um 42% hækkun.
Þetta á við t.d. um húsin i Miðhúsa-
skógi, á Flúðum og í Húsafelli, sem
öll eru með heitum potti, en alls á
VR um 40 orlofshús. Á sama tíma fá
félagsmenn senda ávísun í pósti
sem þeir geta m.a. notað til þess að
greiða niður leiguna, þannig að hún
verður þá sú sama miili ára.
Helgi Þorvaldsson, félagsmaður í
Gnúpur dreginn
til hafnar
Varðskipið Óðinn var væntanleg-
ur til Hafnaríjarðar í morgun, með
togarann Gnúp GK-11 í togi.
Togarinn fékk trollið í skrúfuna
þar sem skipið var að veiðum á
Reykjaneshryggnum og kom beiðni
um aðstoð tii Landhelgisgæslunnar
um klukkan 19 á laugardag. Svo
vildi til að varðskipið Óðinn var
skammt undan og tók Gnúp í tog.
Ekki var hægt að athafna sig við
það úti á rúmsjó að skera úr skrúf-
unni og því var stefnan tekin á
Hafnarfjörð. -gk
„Stútur“ inn í garð
ölvuð kona ók bifreið sinni inn í
garð á Fomuströnd á Seltjamamesi
um miðnætti á laugardag. Konan
hafði engin tök á akstrinum og var
mildi að hún slasaði hvorki sig né
aðra. Bifeiðin festist inni i garðin-
um og varð að kalla til kranabifreið
til að ná henni burt. -gk
Veður vikunnar:
Kólnar með
sumrmu
Eftir vorþeyinn um
liðna helgi fer veður kóln-
andi þegar á vikuna líður.
4 Fram á fimmtudag verða
samt suðvestlægar áttir, 5-7 m/s og
væta sunnan og vestan til en annars
staðar ætti að hanga þurrt. Reikna
má með hitatölum á bilinu 2-7. Undir
helgi snýst vindur til norðaustlægrar-
og norðlægrar áttar, 5-10 m/s, með
slyddu eða éljum norðanlands og hita
nálægt frostmarki. Sunnan til á land-
inu verður úrkomuminna og ívið
hlýrra en sumarið ætlar samt'að láta
aðeins bíða eftir sér þótt sumardagur-
inn fyrsti á fbnmtudaginn gefi fógur
fyrirheit. -Gun
MIKLU BETRI
SAUÐIR!
VR, furðar sig á því hvemig verka-
lýðsfélag sem undanfamar vikur og
mánuði hefur beitt kröftum sinum
gegn vöruhækkunum þannig að
halda megi verðbólgunni niðri geti
leyft sér að hækka leiguverðið á or-
lofshúsunum. Hann ætli ekki að
sækja um orlofshús og biður VR að
halda ávísuninni sem honum var
ætluð.
Einar M. Nikulásson, starfsmað-
ur VR, segir að orlofshúsagjaldið
hafi verið greitt óhemjulega mikið
niður undanfarin ár meö 0,25%
framlagi úr orlofssjóði en nú hafi
verið ákveðið að draga nokkuð úr.
Húsin kosti nú 17.000 krónur á viku
en kostnaður VR nemi um 40.000
krónum.
Einar bendir á að vilji VR-félagar
ekki nýta sér ávísunina til þess að
leigja orlofshús geti þeir nýtt sér
hana t.d. í viðskiptum við Heims-
ferðir, Ferðafélag íslands, Útivist og
Fosshótelin. Þannig hafi valkostir
félagsmanna aukist nokkuð. -GG
DV-MYND: PJETUR.
Ríklð kaupir Gljúfrastein og listaverk fyrir 66 milljónir króna
/ gær, sunnudag, var undirritaöur kaupsamningur milii frú Auöar Laxness og ríkisins á íbúöarhúsinu á Gljúfrasteini. Forsætisráð-
herra, Davíö Oddsson, undirritaði samninginn fyrir hönd ríkisins en undirritunin fór fram á Gljúfrasteini. Afsama tilefni var undirrit-
uö yfirlýsing af menntamálaráöherra, Tómasi Inga Olrích, um samstarf milli fræöaseturs, sem Mosfeiisbær hyggst koma á fót,
og safns Halldórs Laxness á Gljúfrasteini.Ríkið greiöir 35 milljónir króna fyrír húsið og 31 milljón fyrír listaverk í húsinu, en með
fylgir hluti innbús. Halldór Kiljan Laxness heföi oröiö 100 ára á morgun, 23. apríl. A myndinni er Frú Auöur Sveinsdóttir Laxness
og Daviö Oddsson forsætisráöherra skoöa ýmsa muni á Gljúfrasteini sem tengjast nóbelsskáldinu Halldóri Kiljan Laxness.
Sátt hefur náðst um frumvarp landbúnaðarráðherra:
Gæöastýringar-
ákvæði frestaö
- mikilvægt aö toga sauðfjárbændur upp úr fátæktargildrunni
Sátt hefur náðst um frumvarp
Guðna Ágústssonar landbúnaðar-
ráðherra um gæðastýringu í sauð-
fjárrækt. Mikill styrr hefur staðið
um frumvarpið síðan það var lagt
fram á Alþingi.
Bændur viöa um land höfðu mót-
mælt því harðlega, enda talið að þaö
hyggi i beingreiðslufyrirkomulagið.
Þá var ágreiningur mUli einstakra
nefndarmanna í landbúnaðamefnd
Alþingis annars vegar og landbún-
aðarráðherra hins vegar, þar sem
þeir vildu fresta gUdistöku frum-
varpsins tU að samtök sauðfjár-
bænda í landinu fengju tækifæri tU
að ræða það betur.
Samkvæmt upplýsingum DV hef-
ur nú náðst samkomulag og mun
landbúnaðamefnd ganga frá nefnd-
aráliti í dag. Það felst í stórum
dráttum í því að gUdistöku ákvæðis
um gæðastýrðan framleiðsluferU
verði frestað um eitt ár, eða tU 1.
Sátt um sauðkindina
Sátt hefur náöst um frumvarp
landbúnaðarráðherra um
gæðastýringu í sauðfjárrækt
janúar 2004. Þá verði takmörkunum
á frjálsu framsali í greiðslumarki
mUli bænda aflétt strax. Loks verði
í þriðja lagi, við afgreiðslu frum-
varpsins, ákveðið að endurskoðun
ákvæðis samningsins mUli ríkis-
stjómar íslands og Bændasamtak-
anna, um framleiðslu sauðfjáraf-
urða frá 11. mars árið 2000, geti haf-
ist strax á þessu ári.
Gert er ráð fyrir að fjármunir
sem fara tU greinarinnar verði af-
greiddir eins og þeir hafa verið á
síðari árum, þ.e. að sérstakt álag
sem átti aö koma vegna gæðastýrðs
framleiðsluferils, verði greitt jafnt á
aUa framleiðendur á sama hátt og
jöfnunargreiðslur. Beingreiðslur
verði því ekki skertar.
Drífa Hjartardóttir, formaður
landbúnaðamefndarinnar, kvaðst
ekki vUja tjá sig um samkomulagið
að öðru leyti en því að það væri í
höfn og bæri mjög að fagna því.
„Það eru miklir erfiðleikar í þess-
ari grein," sagði hún. „Það sem mér
fmnst mikUvægast í þessu öUu sam-
an er að hægt sé að toga sauðfjár-
bændur upp úr þeirri fátæktar-
gUdru sem þeir eru í.“ -JSS
Þyrla sótti
sjómann
Okumaðurinn
stakk af
Bifreið var ekið út af veginum við
Núpa í Ölfusi í gærmorgun og er
hún talin gjörónýt.
Ökumaðurinn var farinn af vett-
vangi þegar lögreglan kom á stað-
inn en skráður eigandi bifreiðarinn-
ar ók ekki í þetta skipti samkvæmt
upplýsingum lögreglu. Lögreglan
leitaði ökumannsins í gær og taldi
sig vita hver hann væri. Bifreiðin
hafði farið á mUli tveggja kletta og
upp á annan klett þar sem hún vó
salt. -gk
Islandsfugli bjargað
- Byggðastofnun gaf vilyrði fyrir aðstoð
„Við fengum munnlegt vUyrði fyrir
því hjá Byggðastofnun að erindi sem
þar hefur legið inni frá íslandsfugli
verði afgreitt á jákvæðan hátt, en þetta
var 60 mUljóna króna lánsumsókn.
Þetta réð úrslitum í málinu og því hef-
ur tekist að bjarga fyrirtækinu," segir
Sigmundur Ófeigsson, framkvæmda-
stjóri Norðlenska ehf., en Norðlenska,
fjárfestingarfyrirtækið Kaldbakur,
Sparisjóður Norðurlands og Sparisjóð-
ur Svarfdæla keyptu á fostudaginn öU
hlutabréfm í kjúklingabúinu Islands-
fúgli á Dalvík. Þar með var fyrirtækinu
forðað frá yfirvofandi gjaldþroti.
Ljóst var að geysUega mikið var i
húfi fyrir ýmsa aðUa að tækist að
bjarga fyrirtækinu. Þannig skuldaði
það ýmsum aðUum á Dalvík, sem unnu
við uppbyggingu fyrrtækisins, og voru
þær skuldir, sem eru á bUinu 30-40
miUjónir, aUar gjaldfallnar. „Menn
munu ekki tapa þessum peningmn en
þetta hefði oröið mikill harmleikur á
Dalvík ef fyrirtækið hefði farið í gjald-
þrot,“ segir Sigmundur. Þess má einnig
geta að fyrirtækið hefúr ekki greitt
laun í talsvert langan tíma en tU stend-
ur að greiða fólkinu launin í dag.
Sigmundur segir að tekjur muni
ekki fást af fyrirtækinu fyrr en í ágúst.
„Það kom upp veiki erlendis og því
kom takmarkað magn af svoköUuðum
stofnfugli tU landsins. Það þýðir að við
verðum eina fjóra mánuði að ná upp
framleiðslu. Fyrirtækið er hins vegar
orðið rekstrarhæft og þetta lítur ágæt-
lega út,“ segir Sigmundur. -gk
Brother PT-2450 merkivélin er komin
Mögnuð vél
sem, með þinni hjálp,
hefur hlutina í röð
ogreglu.
Snjöll og góð lausn á
óreglunni.
Rafaort
Nýbýiavegi 14 • sími 554 4443 • www.rafport.is
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREISEFUF
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
I fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
I greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
I er gætt. Viö tókum viö fréttaskotum allan
I sólarhringinn.
550 5555
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
LÍF, sótti sjómann um borð í togar-
ann Baldvin Þorsteinsson frá Akur-
eyri á laugardagskvöld.
Beiðni kom tU Landhelgisgæsl-
unnar um fjarskiptastöðina í Gufu-
nesi og var beðið um ráðleggingar
vegna manns sem meiðst hafði um
boð. í framhaldinu var ákveðið að
sækja manninn, en togarinn var á
Vestfjarðamiðum. Ferð þyrlunnar
gekk mjög vel og lenti hún við Land-
spítalann í Fossvogi rétt um mið-
nætti, um fjórum klukkustundum
eftir að beiðni barst. Maðurinn mun
hafa klemmst Ula og var meiddur á
handlegg og öxl. -gk
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
: