Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ VISIR 125. TBL. - 92. ARG. - ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 VERÐ I LAUSASOLU KR. 200 M/VSK Strákarnir undu glaöir viö sitt og sandinn gula í Nauthólsvík í gær, þar sem ylströndin hefur sagnaö gildi sitt á síðustu dögum. Sjá : baksíöu. ^ ? DV:mynd ÞQK Sífellt fjölgar þeim sem vilja hvalveiðar á ný samkvæmt könnun DV: Meðvituð þjóð eða remba? „Þetta kemur ekki á óvart og endurspeglar stuðning almenn- ings við þá stefnu stjórnvalda að hefja hvalveiðar á ný. Við höfum unnið markvisst að veiðum á undanförnum árum samkvæmt þingsályktunartillögu en hins vegar eru ýmis ljón í veginum eins og menn vita,“ sagði Ámi Mathiesen sjávarútvegsráðherra í samtali við DV í morgun vegna yfirgnæfandi stuðnings þjóðar- innar við hvalveiðar samkvæmt skoðanakönnun DV. í skoðanakönnun, DV, sem gerð var sl. sunnudag, kom fram að 86,4 prósent aðspurðra eru fylgjandi því að hvalveiðar verði hafnar að nýju en 13,6 prósent eru andvíg hvalveiðum. Hefur fylgjendum veiða fjölgað frá því DV gerði sams konar könnun í mars 1997 og að auki taka mun fleiri afstöðu til spurningarinnar um hvalveiðar nú en fyrir fimm árum. Þá kemur fram að stuðningur við hvalveiðar er meiri úti á landi en á höfuðborgarsvæðinu. Árni Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra sagði við DV að áfram yrði unniö. Ef hann teldi hvalveið- ar ekki raunhæft markmið myndi hann verja tímanum i önnur verk- efni. Guðjón A. Kristjánsson, þing- maður frjálslyndra, er i hópi þing- manna sem vilja hvalveiðar sem fyrst. „Það er mikið fagnaðarefni að þjóðin skuli vera svona meðvituð um hvaða áherslur við þurfum að leggja í nýtingu á lífríkinu. Hér verður ekki haldið uppi eðlileg- um veiðum í framtíðinni nema með veiðum á hval,“ sagði Guð- jón. „Ég vona að Alþingi taki af skarið strax í haust. Þessi já- og nei-leikur ríkisstjórnarinnar gengur ekki. Það verður að taka þennan slag hérna heima,“ sagði Guðjón. Ásbjöm Björgvinsson, forstöðu- maður Hvalasafnsins á Húsavík, segir niðurstöðumar sýna dæmi- gerðan þjóðarrembing. „Það er búið að blása upp þjóð- rembuna í kjölfar alþjóða hval- veiðiráðstefnunnar og sú um- ræða hefur mikil áhrif, því það er í mínum augum nánast spuming um sjálfstæðisyfirlýsingu hvort við fáum sjálf að nýta auðlindir okkar,“ sagði Ásbjörn. Hann taldi að í könnun sem þessari væri hin undirliggjandi spurning: Erum við mýs eða menn - eigum við að bjóða heim- inum birginn? Almenningur væri einhliða upplýstur um mál- in en staðreyndin væri sú að ís- lendingar væru að nýta hval í miklum mæli án veiða og sú nýt- ing skapaði þjóðarbúinu gríðar- leg verðmæti. -BÞ/hlh ■ NÁNARI UMFJÖLLUN Á BLS. 2 í DAG Ásbjörn Björgvinsson. Fótboltabullur á sushi Danskir karlmenn rífa í sig sushi af miklum móð meðan á leikjum í heimsmeistarakeppninni í knatt- spymu stendur. íslendingurinn Kristján Berg, sem starfar í fiskbúð í Árósum í Danmörku, segir söluna nú slá öll fyrri met. Hann segist ekki hafa neina skýringu á þessu mikla sushi-áti aðra en þá að keppnin sé haldin i Japan og Kóreu. Heima á íslandi hefur sushi-æðið enn ekki náð inn í raðir fótboltaað- dáenda sem sitja sem límdir fyrir framan sjónvarpstækin á morgnana þegar aðrir landsmenn stunda vinnu. Guðrún Anna Finnbogadótt- ir hjá Sindrabergi á ísaflrði segir að reyndar sé þetta tilvalin fæða fyrir þá karla sem rífa sig upp eldsnemma og setjast banhungraðir fyrir framan skjáina. „Þetta er alveg tilvalið fyrir þá. Þeir þurfa þá ekki að vekja konum- ar til að fá sér snakk,“ segir Guð- rún Anna. -rt VIERI í HAM Á HM: Skoraði bæði mörk Ítalaí góðum sigri 26 KVENKYNS MÚRARI: ! „Ekki bara I fyrir karlmenn" | 7)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.