Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2002, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 Tilvera I>V Brúðarmyndirnar óhæfar til birtingar Opinbera brúðarmyndin af norsku prinsessunni, Mörtu Lovísu, og Ara Behn, sem dreifa átti um allan heim, hefur verið harðlega gagnrýnd af ljós- myndurum i Noregi. Myndin þykir afar illa tekin og úrvinnslan langt frá því að vera fullnægjandi. „Japanskur ferðamaður í Forgner- garðinum heföi getað tekið betri myndir en þessar," sagði atvinnuljós- myndarinn Dag Thorenfeldt er hann sá myndirnar. í höllinni var heldur engin ánægja með myndina, sem tekin er í herra- garði konungshjónanna í Þrándheimi, strax eftir vígsluna í Niðaróssdóm- kirkjunni. Blaðafulltrúi konungs, Wenche Rasch, bað um nýja mynda- töku um leið og hún leit yfir afrakst- ur ljósmyndarans en því var hafhað vegna tímaskorts hans. Prinsessukoss Brúöhjónin Marta Lovísa, prinsessa af Noregi, og Ari Behn kyssast á svölum konungsbústaö- arins í Þrándheimi. Það sem gagnrýnendur myndar- innar telja henni til foráttu er að parið stendur of langt frá ljósmyndar- anum, auk þess sem hurð í herberg- inu, þar sem myndin er tekin, stendur opin. Slóði brúðarinnar er ekki allur með á myndinni auk þess sem rauður litur á gluggatjöldum og veggteppi í her- berginu þykir yfirgnæfa myndefnið, sjálfa prinsessuna og eiginmann hennar. Ofan á annað bætist að gleymst hafði að taka til á sófaborði sem sést á myndinni auk þess sem einhver hafði gleymt sjali á einum af stólunum. Ljósmyndarinn, Tor-Erik Dank- worth, er ósáttur við gagnrýnina og segir að margar myndanna séu mun betri en sú sem valin hafi verið til op- inberrar birtingar. -GÞÖ Bíógagnrýni Laugarásbíó - All about the Benjamins: ★ ★ Málað eftir númerum skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Banderas leikur ástmann Cruz Spænski hjartaknúsarinn fær að leika ástmann hinnar spænsku senjórítu Penelópu Cruz í næstu mynd spænska leikstjórans Pedros Almodovars. „Ég vil fá þau aftur til mín,“ segir leikstjórinn frægi sem átti ekki hvað minnstan þátt í að gera þau að þeim stórstjömum sem þau eru. Banderas komst á allra varir eftir frammistöðu sína í Konum á barmi taugaáfalls en Penelópa er meðal ann- ars fræg fyrir að leika í hinni margrómuðu Allt um móður mína. Banderas og Penelópa hafa aldrei leikið hvort á móti öðra. REUTERSMYND Brjóstin ekta? Grínistar eru ekki eins og fólk er flest. Spaugaranum Adam Sandler lék því ekki forvitni á aö fá nánari fréttir af meintum þjófnaöi leikkonunnar Winonu Ryder þegar þau kynntu MTV-verölaunin um daginn, heldur vildi hann vita hvort brjóstin á henni væru ekta. Winona sagði svo vera og Adam fékk aö pota til aö sannreyna þaö. Winona og Adam leika saman í myndinni „Mr. Deeds“, sem er væntanleg á markaö- inn innan skamms. Rapparinn Ice Cube skaust inn í kvikmyndir fyrir nokkrum árum eftir að hafa selt nokkrar milljónir af geisladiskum. Þótt hann sé vafalaust betri tónlistarmaður en leikari þá kemst hann ágætlega frá grínhasam- um All about the Benjamins, en hann hefði ef til vill átt að leyfa fleiri aö eiga við handritið með sér. Ice Cube leikur Bucum Jackson, Miami-töffara sem eltir uppi eftirlýsta glæpamenn fyrir borgun en dreymir um að verða alvöru-einkaspæjari með eigið fyrirtæki - nafnið sitt á glerhurð eins Bogart forðum. Þegar hann er að elta smákrimmann Reggie (Mike Epps), sem er með afar verðmætan lottómiða í vasanum, komast þeir óvart í kast við hrottalegan glæpa- mann, Williamson (Flanagan) og heyra af miklu demantaráni sem er í bígerð. Bucum vill klófesta William- son á undan lögreglunni til að fá orð- spor sem hörkuspæjari, Reggie viE finna lottómiðann sem harrn týndi í ryskingum við glæpalýð Williamsons og báðir hafa þeir mikinn áhuga á demöntunum því þeir geta breyst í „Benjamins", en það er annað heiti yfir hundrað dollara seðla. All about the Benjamins er eins og myndirnar sem maður málar eftir númerum. Hvert atriði fylgir öðru eins og fjöldaframleitt á færibandi en þar með er ekki sagt að ekki sé hægt að hafa svolítið gaman af. Handritið er að vísu ansi gloppótt og í því leyn- ast nokkur fullkomlega óútskýranleg atriði - hvað varð t.d. um bófana tvo sem stelpumar ýttu í vatnið, voru þeir étnir af hákörlum við bryggju- sporðinn eða fóru þeir fram á launa- hækkun? En myndinni er bjargað af persónu Mike Epps, smákrimmanum Reggie, sem er eins og Eddie Murphy og allir hans tvífarar en tekst mitt í klisjunni að vera fyndinn. Enda fær hann öll bestu tilsvörin og að sumum er ekki hægt annað en flissa upphátt. Ice Cube er sjálfúr hin fúla ofbeldis- fulla persóna með byssuna á lofti og er ansi drumbslegur en mun betri í hasamum en í spjallinu. Ofbeldið er óþægilega grimmilegt, án þess að það þjóni myndinni sérstaklega, því henni er oft á tíðum nett leikstýrt með smörtum tónlistarmyndbandslegum klippingum undir heitri fönktónlist. Mér kæmi ekki á óvart þótt það kæmi framhald af All about the Benja- mins því Cube og Epps smella svo vel saman að eitthvað af Benjamin-dollur- um hlýtur aö rata ofan í þeirra vasa: En þá ætti leikstjórinn, Kevin Bray, að leggja meiri áherslu á samhengi milli atriða en blóðslettna. Leikstjórl: Kevin Bray. Handrit: Ronald Lang og lce Cube. Kvlkmyndataka: Glen MacPherson. Aðalleikarar: lce Cube, Mike Epps, Eva Mendes, Tommy Flanag- an o.fl. Bíófréttir Vinsælustu kvikmyndirnar í Bandaríkjunum: Fjórða myndin um Jack Ryan á toppinn Bækur Tom Clancy um njósnar- ann Jack Ryan hafa slegið í gegn. Vandaðar kvikmyndaútgáfur hafa fylgt í kjölfariö. Sú fyrsta var The Hunt For Red October þar sem Alec Baldwin lék Ryan. í næstu tveimur, Patriot Games og Clear and Present Danger lék Harrison Ford njósnarann. í þeirri fjórðu, The Sum of All Ferars, sem um helgina velti nýju Star Wars myndinni af toppi vinsældalistans, er það Ben Afleck, sem fer með hlutverk Jack Ryans. I myndinni er óvinurinn nýnasistar í Evrópu sem hafa komist yfir kjarnorku- sprengju og er ætlunin að koma henni fyrir á íþróttaleikvangi og sprengja þegar úrslitaleikurinn i amerískum fótbolra (Super Bowl) fer fram og láta líta út sem Rússar hafi staðið fyrir þessu. Sem betur fer kemst Jack Ryan að þessu ráða- bruggi og tekur að sér að leysa mál- ið. Mótleikarar Afleck eru Morgan The Sum of All Fears Ben Affleck er þriöji leikarinn sem fer meö hlutverk njósnarans Jack Ryans. Freeman, Alan Bates og Liev Schreiber. í íjórða sæti er einnig ný kvikmynd, Undercover Brothers, gamanmynd sem byggð er á tölvu- leik. rwrirnirn 11—_______________________________________________ ALLAR UPPHÆÐIR í ÞÚSUNDUM BANDARÍKJADOLLARA. SÆTI FYRRI VIKA TITILL INNKOMA HELGIN: INNKOMA ALLS: FJÖLDI BÍÓSALA O _ The Sum of All Fears 31.178 31.178 3183 O 1 Star Wars: Episode II 21.002 232.324 3161 O 2 Spider-Man 14.317 353.823 3646 O _ Undercover Brother 12.037 12.037 2168 O 4 Spirit: Stallion of the Cimarron 11.303 38.750 3362 O 3 Insomnia 9.945 41.612 2610 o 5 Enough 6.808 27.148 2623 o 6 About a Boy 4.126 27.846 1755 o 7 Unfalthful 2.942 45.674 1696 © 8 The New Guy 1.415 26.818 1676 0 11 My Big Fat Greek Wedding 910 8.863 238 © 18 Importance of Being Earnest 773 1.428 147 © 10 The Scorpion King 594 88.876 752 © 13 Space Station 548 6.196 50 © 9 Changing Lanes 437 65.249 758 © 12 The Rookie 331 72.544 435 © 14 Y Tu Mama Tambien 324 11.597 175 © 15 Monsters, Inc. 312 254.252 282 © 19 Monsson Wedding 253 11.485 170 © - Enlgma 244 2.065 100 Vinsælustu myndböndin: Oheiöarleg lögga Harry Potter varð að víkja úr efsta sæti myndbandalistans fyrir óskarsverðlaunahafanum Denzel Washington sem fer á kostum í hlutverki óheiðarlegrar löggu í Training Day. Myndin gerist á einum sólarhring og hefst árla morguns. Hinn ungi lögreglumað- ur Jake Hoyt (Ethan Hawke) er að taka sína fyrstu vakt án einkenn- isbúnings. Leiðbeinandi hans er gamall jaxl í lögreglunni, Alonzo Harris (Denzel Washinton), sem virðist í fyrstu vera ákveðinn og heiðarlegur. Fljótt kemur þó , í ljós að Harris fer ekki sam- kvæmt bókinni og gerir lítið úr heiðar- leika Hoyts. Ef Harr- is hefur hagað sér einkennilega fyrir hádegi þá á Hoyt samt eftir að kynnast honum fyrir alvöru þegar líður á daginn og sú viðkynning er ekki fógur til af- spumar. Vert er að geta myndar sem fer beint í ellefta sæti listans. Um er að ræða spennumynd, Animal Factory, sem gerist að mestu innan fangelsismúra. Það er einstakt að mynd sem ekki hefúr verið sýnd í bíói skuli fara svo hátt á listann í fyrstu tilraun. -HK Tralning Day Denzel Washington fékk óskarsverö- launin fyrir leik sinn í myndinni. SÆT1 FYRRI VIKUR VIKA Tinu. (DREIRNGARADIU) Á USTA 0 _ Training Day isam myndbónd) 1 © 1 Harry Potter isam myndbönd) 3 © 3 Bandits (skífan) 2 O 2 Corky Romano (sam myndbönd) 3 © _ The Glass House (skífan) 1 o _ Jeepers Creepers (háskólabíó) 1 © 11 Out Cold (MYNDF0RM) 2 o 4 The Others ibergvík) 7 o 14 Enigma isam myndbónd) 2 © 5 Legend of the Drunken (sam myndbönd) 4 0 _ Animal Factory iskífanj 1 0 7 Evil Woman (skífan) 6 © 6 The Score isam myndbónd) 10 © 9 3000 Miies To Graceland (sam myndbönd) 6 10 Gemsar (skífan) 3 © 8 The One (myndform) 5 © 13 Good Advice (myndform) 10 © 12 The Pledge (sam myndböndi 5 19 Jalla Jalla (góðar stundir) 5 15 Legally Blonde iskífan) 12

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.